Morgunblaðið - 22.11.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 35
BRÉF TIL BLAÐSINS
Opið bréf til
skattsljórans
í Reykjavík
Frá Jóhönnu Þráinsdóttur:
KÆRI Gestur Steinþórsson.
Ég vil byija á að þakka þér fyr-
ir bréf sem ég fékk sent fyrir þína
hönd frá einum fulltrúa þinna nú
í mánaðarbyijun. Ástæður fyrir því
að ég kýs að svara því á opinberum
vettvangi eru reyndar tvær. í
fyrsta lagi má það verða þeim, sem
stunda svipaða starfsemi og ég,
til glöggvunar, því miður er flest-
um þeirra staða þeirra í kerfinu
öldungis óljós. í öðru lagi þótti
mér vænt um að sjá að þið hjá
skattinum eruð ekki hálfgerðar
þurrpumpur, eins og þorri þjóðar-
innar vill meina, heldur mestu grín-
istar, þegar þið viljið það við hafa,
ef marka má röksemdafærslurnar
í ofangreindu bréfí, sem er reyndar
úrskurður í smákærumáli okkar á
milli. Þykir mér ánægjulegt að
geta leiðrétt þann misskilning.
Fyrir þeim sem ekki þekkja jafn-
vel til minna mála og þú, er vita-
skuld nauðsynlegt að útskýra
málsaðdraganda. Svo er mál með
vexti að ég hef í tvo áratugi lagt
stund á þýðingar í atvinnuskyni.
Síðari áratuginn hef ég reyndar
verið hvorki meira né minna en
heilt fyrirtæki í greininni, sem hef-
ur þá sérstöðu meðal annars at-
vinnureksturs, að ekki er talið að
neins þurfi til hans að kosta utan
lágmarkstækjakaupa.
Reyndar má það til sanns vegar
færa, þar sem aðalatvinnutæki
okkar í þessari grein er toppstykk-
ið og eini söluvarningurinn er það
sem í það tekst að troða, þ.e.a.s.
þekking. Og því miður gengur hún
úr sér, ekki síður en tækin. Þetta
er líka viðurkennt í öðrum grein-
um, ef marka má útgjöld ríkisins
vegna viðhalds á þekkingu starfs-
manna sinna (námskeið og náms-
ferðir).
Nýting á ársgrundvelli
Þess vegna fannst mér eiginlega
sjálfsagt að það hlyti að teljast til
rekstrarkostnaðar hjá fyrirtæki í
minni grein að reyna að viðhalda
því sem það hefur að bjóða á mark-
aðinum og lagði því í þann kostnað
að bregða mér á námskeið í tékk-
nesku. Þá tungu lærði ég fyrir 28
árum og er því töluvert farin að
ryðga í henni þótt ég hafi sannan-
lega haft tekjur af að þýða úr
henni.
Ég taldi því beinan, útlagðan
kostnað af námskeiðinu fram sem
rekstrarkostnað í skattskýrslu
minni. Ég vil taka það fram að ég
er með skírteini upp á að hafa tek-
ið þátt í námskeiði þessu. Og þar
erum við komin að kjarna málsins,
röksemdafærslunni fyrir því að
þetta fékkst ekki samþykkt.
Hún er byggð á 1. tl. 31. gr.
laga nr. 75/1981, en samkvæmt
henni er heimilt að draga frá tekj-
, um atvinnurekstrar rekstrarkostn-
að, það eru þau gjöld sem eiga á
árinu að ganga til að afla tekn-
anna, tryggja þær og halda þeim
við. Það tel ég mig einmitt hafa
verið að gera í þessu tilviki og
raunar eru rökin fyrir höfnun á
Nýtt og betra
(É^2^sn^irlíki
á afmælistilboöi um land allt!
þessum gjaldlið mínum ákaflega
torskilin, en þau hljóða svona:
„Útgjöld verða skv. ofanrituðu að
vera notuð á árinu til markmiða
sem nást, eða er ætlað að nást, á
því ári, þ.e. kostnaður sem ætlað
er að afla tekna í framtíðinni er
ekki frádráttarbær frá tekjum árs-
ins.“ Samkvæmt mínum skilningi
þýðir það að fyrirtæki sem setja
sér „markmið" verða að gæta þess
að þau dugi alls ekki lengur en
út árið og séu í vondum málum
ef þau eru svo óheppin að hafa
áframhaldandi tekjur af þeim.
I þeim skilningi er næsta ótrú-
legt að nokkur geti með réttu nýtt
sér heimild þessa. Eða hvernig er
hægt að sanna að það sem nýtist
í Ar, nýtist alls ekki í framtíðinni?
Fjárfesting sem ber að
eignfæra
Rúsínan í pylsuendanum er þó
sú að i þokkabót er námskeið þetta
að ykkar mati „fjárfesting sem ber
að eignfæra". Ég er eiginlega
fremur stolt af því, mér hefur allt-
af þótt súrt í broti að vera gjörsam-
lega eignalaust fyrirtæki og er því
alveg til í að eignfæra fjarfestingu
þessa á næstu skattskýrslu. En við
það vakna ýmsar spurningar. Eru
eignir ekki eignaskattskyldar? Og
hvernig stend ég að vígi með af-
skriftir á þessari eign minni? Eru
þá ekki öll námskeið, sem lands-
menn sækja, fjárfesting sem ber
að eignfæra? Eða er ég ein grunuð
um að hafa sótt námskeið sem
gæti nýst lengur en út árið?
Fyrir nú utan það að mér sýnist
hér opnast ný leið til skattheimtu.
Því ekki að leggja eignaskatt á
þekkingu? Það mætti jafnvel hafa
hana í þremur þrepum, almennan
þekkingarskatt, háþekkingarskatt
og sérþekkingarskatt.
Að vísu ruglið þið mig dálítið í
ríminu með klausu síðar í bréfinu
þar sem segir orðrétt: „Sú þekking
sem kærandi (undirrituð) aflar sér
er hennar, fylgir henni og verður
ekki framseld öðrum.“ Hvernig
getur þetta samrýmst því að mér
ber að eignfæra námskeiðið? Er
Eru námskeið „fjárfesting sem
ber að eignfæra"?
þetta þá bara plateign, þegar allt
kemur til alls?
Lögboðin skammsýni
í framhaldi af því langar mig
líka til að leiðrétta þann misskiln-
ing sem kemur fram í bréfi þínu,
að þessi þekking (tékkneskunám-
skeiðið) geti nýst mér í starfi hjá
öðrum.
Þessi þekking hefur því miður
reynst gjörsamlega óseljanleg
nema á þeim eina markaði sem ég
hef verið á í sl. tvo áratugi (sjón-
varpsþýðingar). Það er því langt í
frá að ég hafi með námskeiðinu
verið að „útvíkka rekstur minn eða
bæta hann á neinn hátt“. Ég var
þvert á móti að reyna að halda
honum í horfinu. Raunar fannst
mér sú klausa sem ég vitna hér í
stórfróðleg: „Kostnaður verður
ennfremur að vera til að tryggja
tekjurnar og halda þeim við, þ.e.
til að halda rekstrinum óbreyttum,
en ekki útvíkka hann eða bæta á
neinn hátt.“ Ég hef alltaf haldið
að skammsýni væri eitthvert með-
fætt þjóðaróeðli, ég vissi ekki að
hún væri lögboðin.
Með kærri kveðju og þakklæti
fyrir fróðleg tilskrif,
JÓHANNA ÞRÁINSDÓTTIR,
Njálsgötu 5, Reykjavík.
Löglegt
en sið-
laust
Frá Rannveigu Tryggvadóttur:
MÉR VAR það mikið fagnaðarefni
þegar þrír menn úr sjávarútvegi
hlutu þijú efstu sætin í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum,
enda sú skipan í fullu samræmi við
atvinnuhætti þar. Einar Guðfinns-
son og Einar Oddur Kristjánsson
urðu í 1. og 2. sæti með 1.466 og
1.363 atkvæð. í þriðja sæti varð
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins og varaþingmaður, maður
sem sótt hefur sjó í 30 ár, lengst
af sem skipstjóri á fískiskipum.
Hlaut hann 818 atkvæði og vantaði
aðeins 2% upp á að ná bindandi
kosningu í 3. sætið sem hann hefði
svo sannarlega átt að fá að halda,
enda vildi kjörnefnd það. Fjórði
varð svo Olafur Hannibalsson
blaðamaður með 766 atkvæði. Mun-
aði 42 atkvæðum á þeim sem er
talsvart í svo stijálli byggð sem
Vestfírðir eru.
Á fundi kjördæmisráðs kom ung-
ur maður fram með breytingatillögu
við listann þess eðlis að Ólafur
skyldi skipa 3. sætið en Guðjón það
4. Fékkst hún samþykkt í skriflegri
atkvæðagreiðslu með 23 atkvæðurn
gegn 21 en 2 seðlar voru auðir.
Fjórtán manns höfðu um of langan
veg að sækja til að komast á fund-
inn. Var í fréttum sagt að breyting-
in hefði verið gerð til að fá breidd
í listann sem ég tel fáránlega rök-
semdafærslu því breidd í hópi þing-
manna fæst síður en svo með því
að bola burt eina fiskiskipstjóranum
á Alþingi, þótt varamaður sé, og
eina frambjóðanda Sjálfstæðis-
flokksins úr verkalýðshreyfingunni.
Ber mjög að harma þessa niður-
stöðu.
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR,
Bjarmalandi 7, Reykjavík.
Blab allra landsmanna!
JRorgtmMabib
- kjarni málsins!
PaseMáker námskeíð
94042
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90
HUSQVÁRNA
256
slœrígegn!
Sœnsk gœðasaumavél með
13 nytjasaumum, 12 skrautsporum o.m.fl.
Rafeindastýrður mótor.
Taska og vinnuborð fylgja með
íþessu tilboði.
Verð 42.513- kr. stgr.
Smaragd 230 kostar aðeins 37.810- kr. stgr.
/ÖRKIN 2096-30-4
(h) Husqvarna
(SSjVÖLUSTEINN
Faxafen 14, Sími 889505
HF
Vaskhugi
Islenskt forrit með
öllu sem þarf fyrir
t/ Fjárhagsbókhald
t/ Sölukerfi
\/ Birgðakerfi
t/ Viðskiptamannakerfi
\/ Verkefiiabókhald
\/ Launabókhald
t/ Félagakerfi
/ Vaskhugi sýnir og
prentar ótal skýrslur.
Hringið og við sendum
bækling með nánari
upplýsingum.
V^V^tskhugi hf.
Grensásvegi 13 • Sími 682 680 • Fax 682 679
HÓTEL
LEIFUR EIRÍKSSON
Skólavörðustíg 45
Reykjavík
sími 620800
Fax 620804
Hagkvæm gisting
í hjarta borgarinnar
Einst.herb.
kr. 2.900
Tveggia m. herb.
kr. 3.950
Þriggja m. herb.
kr. 4.950
Morgunverður innifalinn
Sendum í póstkröfu.
Gott verð .
Gæðaþjónusta.
ísetning á staðnum.
Verslið hjá
fagmanninum.