Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 45
Frá félagsmiðstöðinni Vitanum, Hafnarfírði
Kraftakeppni
Vitans 1994
Tekið úr fréttabréfi Vitans, frétta-
bréfi sem lætur allt flakka.
Kraftakeppni var haldin dag-
ana 17. 19. og 24 október,
fjölmargir keppendur tóku
þátt og var mikil spenna.
A fyrsta degi komust fímm kepp-
endur í úrslit, en á öðrum degi
komust sex keppendur áfram, þijár
stejpur og þrír strákar.
í undanúrslitum var keppt í
tveim greinum úti en fjórum inni.
í keppninni var ekki nóg að vera
bara sterkur heldur þurftu krakk-
amir að vera snögg og nota rétta
taskni. Eva María varð fyrir því
óhappi að æla þegar hún var búin
að þamba gosið í 6. þraut. Gísli
stóð sig best fyrsta daginn og hafn-
aði í fyrsta sæti í undanúrslitunum.
Inga stóð sig best í kvennaflokki.
Úrslitin fóru fram mánudaginn
24. október og varð það mjög hörð
keppni, Sterkasti maður Hafnar-
fjarðar, Magnús, kom og hjálpaði
til við að kynna keppnina. í úrslita-
keppninni voru sjö greinar, tvær
úti en fimm inni, dauðagangan
þótti lang erfiðust. Síðasta og jafn-
framt skemmtilegasta þrautin var
að pússla og rista brauð og lita
mynd með fjórum litum. Stelpumar
kepptu í því hver væri fljótust að
pússla saman 60 kubbum, en strák-
amir ristuðu brauð og lituðu mynd.
Úrslitin urðu þau að Inga úr
Víðistaðaskóla varð í fyrsta sæti í
kvennaflokki, en þær Kolbrún og
Heba í öðru og þriðja sæti. Gísli
Pétur úr Öldutúnsskóla varð í
fyrsta sæti í karlaflokki en Ragnar
Steinn og Bergþór í öðru og þriðja
sæti.
Sigurvegararnir fengu glæsileg
verðlaun í lok keppninnar. Úrslita-
kvöldið endaði svo á því að Maggi
Bess fór úr að ofan og sýndi vöðv-
ana við mikla hrifningu áhorfenda
og þar með lauk skemmtilegri
kraftakeppni.
S m
Starfsmenn Tónabæjar.
Skólakeppni Tónabæjar 1994
Vináttuleikar
Félagsmiðstöðin Tónabær hélt
dagana 24. október til 4.
nóvember skólakeppni á
milli _sex skóla í hverfinu.
Nemendur Álftamýrarskóla hlutu
titilinn skólameistarar Tónabæjar
1994. Voru úrslit kynnt í Tónabæ
föstudaginn 4. nóvember. Sigurveg-
ararnir hlutu farandbikar að laun-
um. Eftir að úrslitin höfðu verið
kynnt var slegið upp balli, þar sem
Páll Óskar og milljónamæringarnir
léku fyrir dansi.
Þetta er í fjórða sinn sem skóla-
keppnin er haldin. Markmið hennar
er að nemendur skólanna hittist og
kynnist, að hér fari fram drengileg
keppni sem allir hafi gaman af.
Keppt var í þremur greinum, fót-
bolta, félagsvist og spurninga-
keppni. Reyndi þá á ólíka hæfileika
og samstöðu innan hvers skóla.
Unglingarnir sem kepptu í skóla-
keppninni og áhangendur stóðu sig
mjög vel og voru til fyrirmyndar í
alla staði og skólum sínum til sóma.
Úrslit urðu: Hlíðarskóli vann í
félagsvist, Álftamýrarskóli hafnaði
í öðru sæti og Tjarnarskóli í því
þriðja. Æfmgaskóli KHÍ sigraði í
knattspyrnu, Álftamýrarskóli varð
í öðru sæti og Hlíðarskóli í því þriðja.
Dagana 27. október til.3. nóvem-
ber fór fram undankeppni í spurn-
ingakeppninni. Greinilegt var að
unglingarnir höfðu undirbúið sig
vel, því hart var barist. Úrslita-
keppnin fór svo fram 3. nóvember
og þar sigraði Álftamýrarskóli
glæsilega, Austurbæjaskóli hafnaði
í öðru sæti og Tjarnarskóli í því
þriðja.
UNGLINGAR
Unglingurinn í dag
Villstyttri
skóladag
Algjör steypa
Maður hóstar
upp hring sem
hann gleypti
tólf árum fyrr
HINUM þrítuga Don Varshoe brá
heldur þegar hann varð fyrir þeirri
reynslu að hósta upp hring sem
hann hafði glatað tólf árum fyrr.
Þar sem hann sat með vinkonu sinni
og borðaði tælenskan mat í róleg-
heitum, festist eitthvað í hálsinum
á honum. Það undarlega var, að
það var ekki eitthvað sem hann var
að kyngja, heldur eitthvað sem var
að koma upp úr honum.
Hann varð allur blár í framan
og greip um hálsinn eins og hann
væri að kafna, sem hann var reýnd-
ar að gera. Nálægur þjónn sá hvað
verða vildi og greip Don í fangið
og beitti svokallaðri Heimlich-
aðferð til að ná hringnum úr koki
hins kafnandi manns. Hringurinn
spýttist með ógnarkrafti í næsta
vegg og svo á gólfíð.
Don varð að vonum mjög undr-
andi við að sjá hringinn með áletr-
uninni: Útskriftarárgangur 1981,
Miðbæjarskólinn. Hann hafði tapað
hringnum í gleðskap tólf árum áð-
ur, en ekki grunað að hann hefði
sjálfur gleypt hann. „Ég er auðvitað
svolítið undrandi að hafa verið með
hringinn inni í mér allan þennan
tíma,“ sagði Don „en mikið óskap-
lega er ég feginn að hafa fundið
hann aftur“.
Þýtt og endursagt úr The Sun.
Nafn: Kristján Hafsteinsson
Aldur: 13 ára
Heima: Kópavogi
Skóli: Hjallaskóli
Finnst þér að skólinn geti verið
betri?
Já, mér fínnst að hann ætti bæði
að vera skemmtilegri og styttri að
deginum.
Myndirðu vi^ja breyta einhverju
í þjóðfélaginu?
Nú vandast málið, ég er ekki viss
um að ég vilji breyta neinu, mér
fínnst allt ósköp eðlilegt.
Er til unglingavanda-
mál?
Já, það er til unglinga-
vandamál, unglingar
lenda í þessari vitleysu
að drekka og reykja og
svoleiðis.
Er til foreldravanda-
mál?
Já, fullt af því. Foreldrar
mættu vera skemmti-
legri og meira heima,
foreldrar vinna of mikið.
Hvernig er fyrirmyndai'ungling-
ur?
Bara eins og ég.
Hvað viltu ráðleggja þeim sem
umgangast unglinga?
Að láta unglingana ekki fara í taug-
arnar á sér.
Hvemig er að vera unglingur í
dag?
Það er ágætt, félagslífíð er gott hjá
okkur og nóg að gera með vinum
sínum.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir?
Fara á diskótek og fara heim úr
skólanum.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir?
Vakna á morgnana til að fara í
skólann.
Hver myndir þú vijja
vera ef þú værir ekki
þú?
Eg vildi vera Jóakim
aðalönd.
Hvað ætlar þú að varða
þegar þú verður stór?
Ég hef bara ekkert spáð
í það, ég myndi helst vilja
vera flugmaður, banka-
stjóri eða eitthvað slíkt,
en ég hef ekki hugmynd
um það.
Hver er munurinn á hænu og
gallabuxum?
Maður getur gengið í gallabuxum
en ekki í hænunni.
UNGL
INGU
R NN
í DAG
mmm
nHBHHHHHnHHHHHI
Lipur
kven-
kyns
stöðu-
mæla-
vörður
Eitthvað
geðveikt
Hallur
Adam
Jóhann