Morgunblaðið - 11.01.1995, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samþykkt í bæjarstjórn að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar Hafnarfjarðar til mánaðamóta
Morgunblaðið/Þorkell
JOHANN G. Bergþórsson greiðir atkvæði með því að fresta bæjarstjórnarfundi. Samflokksmenn hans í bæjarsljórn,
þau Valgerður Sigurðardóttir og Þorgils Ottar Mathiesen, greiddu atkvæði á móti.
Oddvitamir segja
meirihlutann fallinn
Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar er fallinn
eftir að samþykkt var með atkvæðum alþýðu-
flokksmanna og Jóhanns G. Bergþórssonar að
fresta afgreiðslu fj árhagsáætlunar fram tii 31.
janúar. Meirihlutaviðræður Jóhanns og Alþýðu-
flokksins halda áfram.
EIRIHLUTI Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðu-
bandalags í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar féll í
gær, er Jóhann G. Bergþórsson,
bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, og
bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
greiddu atkvæði með tillögu um að
fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar
bæjarins til 31. október. Magnús
Gunnarsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn, segist líta svo
á að með þessu hafi Jóhann sagt
sig úr flokknum. Bæði Magnús
Gunnarsson og Magnús Jón Árna-
son bæjarstjóri viðurkenna að
meirihlutinn sé fallinn. Meirihluta-
viðræður Jóhanns og Alþýðuflokks-
ins_ héldu áfram í gærkvöldi.
í byijun fundarins las Lúðvík
Geirsson, sem stýrði fundinum í
fjarveru Ellerts Borgars Þorvalds-
sonar, forseta bæjarstjórnar, upp
svohljóðandi tillögu sem undirrituð
var af bæjarfulltrúum Alþýðu-
flokksins og Jóhanni G. Bergþórs-
syni:
Bæjarstjóri hætti
„Undirritaðir bæjarfulltrúar
leggja fram eftirfarandi dagskrár-
tillögu í upphafi bæjarstjórnarfund-
ar sem verði afgreidd án
frekari umræðu eins og
fundarsköp segja til um.
Bæjarstjóm samþykkir
að fresta 1. lið og 2. lið
dagskrár bæjarstjóm-
arfundar 10. janúar til 31. janúar
nk., þar sem ljóst er að ekki er
meirihluti fyrir framlagðri tillögu
bæjarstjóra um fjárhagsáætlun.
Jafnframt er bæjarendurskoð-
anda og bæjarlögmanni falið að
fara yfir samskipti og skila greinar-
gerð vegna viðskipta bæjarsjóðs og
eftirfarandi fyrirtækja: Byggða-
verks,' Drafnar, Fjarðarmóts,_ Hag-
virkis og Hagvirkis/Kletts, Istaks,
Miðbæjar, Núnataks, SH-verktaka,
Sjólastöðvarinnar, Skerseyrar og
Þórs op- annarra helstu viðskiptaað-
ila bæjarins síðustu árin fram til
dagsins í dag.
Þá samþykkir bæjarstjórn að
bæjarstjóri láti nú þegar af störfum
þar sem Ijóst er að hann nýtur ekki
meirihlutafylgis í bæjarstjórn en
fjármálastjóri gegni því starfi þar
til nýr bæjarstjóri sem nýtur meiri-
hlutatrausts verður ráðinn.“
Aðeins greidd atkvæði
um frestun
Lúðvík sagðist líta svo á að þarna
væri komin fram dagskrártillaga
um frestun á framlagðri dagskrá
fundarins þar sem fara átti fram
síðari umræða um gjaldskrá vegna
hundahalds og síðari umræða um
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnar-
fjarðar og stofnana hans. Því væri
ekki annað hægt en að
taka eingöngu fyrir til
atkvæða fyrsta lið tillög-
unnar, þ.e. tillögu um
frestun á umræddum
dagskrárliðum til 31. jan-
úar. Tillagan var svo samþykkt með
6 atkvæðum fulltrúa Alþýðuflokks-
ins og Jóhanns G. Bergþórssonar
gegn 5 atkvæðum annarra bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og
fulltrúa Alþýðubandalagsins. Að
atkvæðagreiðslu lokinni var bæjar-
stjórnarfundinum slitið og hafði
hann þá staðið í þtjár mínútur.
Hefur yfirgefið
Sjálfstæðisflokkinn
Magnús Gunnarsson oddviti
Sjálfstæðismanna sagði í samtali
við Morgunblaðið að loknum fund-
inum að ekki mætti bera tillögu af
þessu tagi fram, þar sem um væri
að ræða dagskrártillögu þar sem
eingöngu ætti að fjalla um dagskrá
fundarins, en væntanlega hefði for-
seti gengið svo langt sem raun ber
vitni vegna lýðræðisins.
„Ég lít auðvitað þannig á að
meirihlutinn sé fallinn, en hins veg-
ar er þessi meirihluti, þ.e. samstarf
Alþýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks, enn við völd og stjórn í
Hafnarfirði," sagði Magnús. „Jó-
hann Gunnar er greinilega búinn
að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn.
Framhaldið á næstu dögum hlýtur
að ráðast af því hvernig vindar
blása. Við gefum okkur góðan tíma
til þess að huga að stöðunni og
skoða hana. Við förum áfram með
stjórn bæjarins, það er að segja
nema þeir myndi formlegan meiri-
hluta, Jóhann Gunnar og Alþýðu-
flokkurinn, og þá kemur það auðvit-
að til að nýr meirihluti Jóhanns
Gunnars og Alþýðuflokksins sé bú-
inn að sjá dagsins ljós.“
Bara venjulegur
bæjarfulltrúi
Jóhann G. Bergþórsson sagði
eftir bæjarstjórnarfundinn að hann
myndi áfram ræða við Alþýðuflokk-
inn. í viðræðum við alþýðuflokks-
menn hefði hann lagt áherzlu á að
nýr bæjarstjóri kæmi ekki úr röðum
bæjarfulltrúa, heldur yrði ráðinn
fagmaður. „Ég er sarnt ekki að
segja að viðkomandi eigi ekki að
hafa pólitíska skoðun,“ sagði hann.
Aðspurður hvort hann myndi
sjálfur gera kröfu um eitthvert af
embættum bæjarstjórnarinnar,
sagði Jóhann: „Ég ætla ekki að
sækjast eftir neinu embætti. Ég
reikna með að ég verði bara venju-
legur bæjarfulltrúi.“
Morgunblaðinu er kunnugt um
að ýmsir áhrifamenn úr Sjálfstæðis-
flokknum hafa haft samband við
Jóhann og reynt að fá hann til að
sættast við samflokksmenn sína í
bæjarstjórn. Aðspurður hvort for-
ysta Sjálfstæðisflokksins hefði
þrýst á hann að skipta um skoðun,
sagði Jóhann svo ekki vera. Ekki
hefði verið haft beint samband við
sig af hálfu forystumanna flokks-
ins.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er nú fast lagt að öllum,
sem skipuðu framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar í Hafnarfirði að
svíkja ekki lit með því að ganga í
lið með Jóhanni. Aðspurður sagðist
Jóhann ekki geta nefnt nafn neins
á listanum, sem gæti orðið vara-
maður hans, ef hann myndaði meiri-
hluta með Alþýðuflokknum. Hann
sagðist hafa rætt við ýmsa sjálf-
stæðismenn í Hafnarfirði,
en ekki væri búið að negla
það niður. „Það er í þessu
máli eins og öðrum, að
ekkert er frágengið fyrr
en búið er að innsigla það
með undirskrift," sagði Jóhann.
Höfum ekkert
að fela
„Nú er það skjalfest að meirihlut-
inn er fallinn," sagði Ingvar Vikt-
orsson, oddviti Alþýðuflokksins í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar, að lokn-
um bæjarstjórnarfundinum. „Það,
sem' er inni í myndinni hlýtur nú
að vera meirihlutaviðræður Alþýðu-
flokksins við einhvern af þeim
þremur, sem nú er um að ræða,
þ.e.a.s. Jóhann Gunnar, Alþýðu-
bandalagið og það sem eftir er af
Sjálfstæðisflokknum."
Ingvar sagði að áfram yrði rætt
við Jóhann, það lægi í hlutarins
eðli, þar sem hann hefði verið
óánægður í meirihlutanum og haft
samband við Alþýðuflokkinn. Hann
sagði að ekki hefði verið haft sam-
band við Alþýðubandalagið eða
Sjálfstæðisflokkinn, fyrst yrði reynt
til þrautar að mynda meirihluta
með Jóhanni. „Það væri ekki heiðar-
legt að ræða við tvo í einu,“ sagði
hann.
Ingvar sagði að Jóhann hefði
ekki sett fram í viðræðum við Al-
þýðuflokkinn kröfur um að bæjar-
stjóri yrði ekki úr hópi bæjarfull-
trúa. „Við höfum verið að fara í
gegnum fjárhagsáætlun og ýmis
önnur mál, sem við vorum mjög
sammála um á síðasta kjörtímabili,
og þær viðræður hafa gengið vel.
Hitt er annað mál að þetta hlýtur
að fara að bera á góma hjá okkur.“
Hann sagðist ekki óttast athugun
á fjárhagstengslum Hafnarfjarðar-
bæjar og fyrirtækja í bænum, enda
hefðu alþýðuflokksmenn lagt til að
þau yrðu athuguð. „Við viljum að
þetta komi ailt saman upp og höfum
ekkert að fela,“
Eiginhagsmunir
ofar öllu öðru
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
sagði eftir bæjarstjórnarfundinn að
tillaga Jóhanns Bergþórssonar og
Alþýðuflokksins, um að leysa bæj-
arstjóra frá störfum og láta gera
úttekt á tengslum bæjarins við fyr-
irtæki, hefði ekki verið tæk. Dag-
skrártillaga gæti aðeins varðað
dagskrá fundarins. Niðurstaða
fundarins væri því sú að meirihlut-
inn væri fallinn, en það breytti því
ekki að Sjálfstæðisflokkuj/ og Al-
þýðubandalag yrðu áfram við völd,
þar til nýr meirihluti yrði myndaður.
„Og ég sé ekki þann meirihluta
myndaðan," sagði Magnýs Jón.
„Hér kemur ekki fram nejnn nýr
meirihluti. Það eina, sem Jóhann
Gunnar Bergþórsson og alþýðu-
flokksmenn eru sammála um, er
að reka mig.“
Magnús Jón sagðist ekki útiloka
neina möguleika í meirihlutasam-
starfi, ekki þann heldur að Alþýðu-
bandalag myndaði meirihluta með
Alþýðuflokkr.um ef eftir því yrði
leitað. Hins vegar hefðu Alþýðu-
flokksmenn ekki haft samband.
„Mér finnst þessar aðferðir afar
kúnstugar, ef þeir ætluðu að ræða
við mig. Þetta bendir til einhvers
annars,“ sagði hann.
Bæjarstjórinn sagði að áfram
væri verið að skoða hvort samskipti
Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækis
Jóhanns Bergþórssonar, Hagvirkis-
Kletts, á síðasta Iqortímabili yrðu
kærð til félagsmálaráðuneytisins.
„Hins vegar er furðulegt að í tillög-
unni fólst líka að rannsaka viðskipti
við ljölda fyrirtækja. Það eru Al-
þýðuflokksmenn, sem sátu við völd
síðastliðin íjögur ár, sem biðja um
þá athugun. Það er eins og þeir, sem
stóðu í þessum viðskiptum, viti ekki
hvað þeir hafa verið að gera. Þeir
mega bezt vita það. Enn furðulegra
er að Jóhann Gunnar Bergþórsson
var búinn, innan meirihlutans, að
samþykkja athugun á flestum þess-
ara fyrirtækja líka.“
Magnús Jón sagði að ekki bólaði
á neinum breytingartil-
lögum við fjárhagsáætl-
un Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags, hvorki
frá Jóhanni né Alþýðu-
flokknum. „Ég hef ekki
heyrt neinar tillögur frá Jóhanni
Gunnari um fjármál, atvinnumál
eða annað af því, sem hann hefur
verið að telja upp sem ástæður þess
að hann styður ekki meirihlutann,"
sagði Magnús.
„Það er augljóst hvað hér býr
að baki. Maðurinn setúr ímyndaða
eiginhagsmuni ofar öllu öðru og
Alþýðuflokkurinn hefur glapizt til
að stökkva á þann vagn. Það er
kannski til að skemmta mönnum,
en þetta er ekki til heilla fyrir Hafn-
arfjörð."
Vilja úttektá
tengslum við
fyrirtæki
Krafa um ut-
anaðkomandi
bæjarstjóra