Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚÁR 1995 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÖRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reýkjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NYTT B AND ARÍKJ AÞIN G NÝR MEIRIHLUTI tók við völdum á Bandaríkjaþingi í síð- ustu viku. í fyrsta skipti í fjörutíu ár ráða repúblikanar ríkjum jafnt í fulltrúa- sem öldungadeildinni. Þetta gerist einungis tveimur árum eftir að Bill Clinton tók við sem forseti, með það að markmiði að hverfa frá hinni íhaldssömu 'Stefnu Ronalds Reagans og George Bush. Honum hefur orðið lítið ágengt í að koma stefnumiðum sínum í fram- kvæmd og nú, þegar hann getur ekki lengur treyst á stuðning þingsins, verður erfiðara en ella að ná fram stórvægilegum breytingum, t.d. á bandaríska heilbrigðiskerfinu. Hinir nýju leiðtogar repúblikana á þingi, með Georgiuþing- manninn Newt Gingrich í fararbroddi, ætla sér hins vegar stóra hluti og hafa heitið að koma stefnuskrá sinni, sem þeir nefna „Samning við Bandaríkin“ í framkvæmd á nakkrum mánuðum. Þessar breytingar á valdajafnvæginu í Washington eru ekki fyllilega sambærilegar við þær sem áttu sér stað er Reagan komst til valda á sínum tíma. Á þeim tíma hafði um nokkurt skeið átt sér stað mikil fræðileg gerjun meðal bandarískra hægrimanna sem braust út með kjöri hins íhaldssama Reagans. Hugmyndafræðin að baki sigri Gingrich er hins vegar ekki sprottinn upp meðal fræðimanna heldur almennings. Umskipt- in endurspegla öðru fremur megna óánægju með „valdastétt- ina“; stjórnmálamenn og fjölmiðla. Bandaríkjamenn telja veru- leika stjórnmálanna í Washington eiga orðið lítið sameiginlegt með þeirra daglega lífi. Margar þær hugmyndir sem settar eru fram í stefnuskrá repúblikana eru líka allrar athygli verðar, ekki síst þær sem miðast að því að skera niður og einfalda stjórnkerfið. Það má hins vegar draga í efa að þær róttæku breytingar, sem nú eru boðaðar, verði að veruleika. Marga þingmenn repú- blikana skortir pólitíska reynslu og leiðtogi þeirra hefur þegar sýnt að hann á auðvelt með að misstíga sig. Reynslan hefur að auki sýnt að það er ávallt auðveldara að lofa niðurskurði en að framkvæma hann. SKILNINGSLEYSI HVERRA? IMORGUNBLAÐINU á föstudag var birtur kafli úr bréfi, sem fjármálaráðuneytið sendi Verzlunarráði vegna athuga- semda við aukagjald, sem lagt hefur verið á innfluttan bjór til að vernda innlenda framleiðslu. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur nú gert athugasemdir við þetta gjald, þar sem það brýtur í bága við EES-samninginn og er talið skekkja samkeppnis- stöðu. í bréfinu, sem undirritað er af embættismanni í ráðuneytinu fyrir hönd ráðherra, segir: „Fjármálaráðuneytið treystir því fyllilega að samningsaðilar okkar innan EES og stofnanir á þess vegum hafi fullan skilning á þessum sjónarmiðum [um vernd innlendrar framieiðslu] og telji þessar aðgerðir í fullu samræmi við tilgang EES-samningsins . . .“ í Morgunblaðinu daginn eftir var Guðmundur Árni Stefáns- son, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og fyrrverandi félags- málaráðherra, spurður álits á þeirri niðurstöðu endurskoðunar- fyrirtækis að viðskipti Hafnarfjarðarbæjar undir hans forystu við Hagvirki-Klett hf. brjóti í bága við 89. grein sveitarstjórnar- laga. Þingmaðurinn svaraði: „Ég hef ekki séð þessa skýrslu og get ekki svarað einstökum efnisatriðum en mér finnst þetta mál endurspegla skilningsleysi núverandi meirihluta á þörfum atvinnulífs og eðli samskipta bæjarins við stór atvinnufyrir- tæki í bænum.“ í fyrra tilvikinu, sem hér er nefnt, heldur ráðuneyti í stjórn- arráði íslands því fram að ekki þurfi að fara eftir alþjóðasamn- ingi, sem lögfestur hefur verið á Isiandi og veitir erlendum fyrirtækjum jafnan rétt á við innlend. Ráðuneytið væntir „skilnings" og lítur því væntanlega svo á að athugasemdir ESA nú beri vott um skilningsleysi. í síðara tilvikinu gefur stjórnmálamaður, sem áður stýrði einu stærsta sveitarfélagi landsins og bar síðar ábyrgð á því ráðuneyti, sem ber að hafa eftirlit með að sveitarstjórnarlögum sé fylgt, f skyn að það sé „skilningsleysi" að vænta þess að farið sé að lögum í samskiptum sveitarfélags og atvinnufyrir- tækis. Hvort tveggja ber þetta vott um þá tilhneigingu til geðþótta- ákvarðana og þann skort á reglufestu, sem einkenna íslenzka stjórnsýslu og stjórnmál í alltof ríkum mæli. Spyrja má hvorir sýni meira skilningsleysi, þeir sem vilja beygja reglurnar eða hinir, sem benda á að bæði alþjóðasamningar og landslög eru til þess að fara eftir þeim og hlutverk þeirra er í og með að veita stjórnvöldum aðhald. Tæknifijóvgunarnefnd hefur skilað tveimur útgáfum af Notkun gjafaeggja álitaefni Tæknifrjóvgunamefnd hefur skilað tveimur útgáf- um af fmmvarpi til laga um tæknifrjóvgun. Önn- ur gerir ráð fyrir notkun gjafasæðis. Hin leyfír að annað hvort sé notað gjafasæði eða gjafaegg. * + Anna G. Olafsdóttir leitaði álits Þórðar Oskars- sonar sérfræðings á glasafrjóvgunardeild á helstu kostum og göllum á notkun gjafakynfruma. EINS OG öðrum lífverum er mannkyninu eðlilegt að geta af sér afkvæmi. Langflestir eignast börn einhvern tíma á ævinni og sjaldgæft er að gagnkynhneigð pör taki ákvörðun um að láta barneignir eiga sig. Þegar litið er til barneigna má heldur ekki gleyma því að stór hópur mannkyns á við ófrjósemi að stríða. Reyndar segja opinberar tölur að allt að tíunda hvert par eigi við ófijó- semisvanda að etja af ýmsum orsök- um. Stórstígar framfarir á sviði lækna- vísinda hafa valdið því að sífellt er hægt að hjálpa fleiri ófrjósömum pörum að eignast börn. Tæknifrjóvg- un skiptir sköpum í því sambandi, en með því er annars vegar átt við getnað í framhaldi af tæknisæðingu (sæði komið fyrir í eða við kynfæri konu) og hins vegar glasafrjóvgun INNLENDUM VETTVANGI (fijóvgun utan líkama) og hefur hvort tveggja verið tekið upp hér á landi. Tæknisæðing var tekin upp árið 1980 og starfsemi glasafrjóvg- unardeildar Landspítalans hófst haustið 1991. Lagagrunnur Glasafijóvgunardeildin .var ekki opnuð fyrr en fyrir lágu reglur stjórnarnefndar ríkisspítalanna um FÓSTURVÍSIR á é starfsemina, enda ljóst að um afar viðkvæmt svið væri að ræða. Sam- kvæmt reglunum skal par sem gengst undir meðferð hafa verið í hjúskap eða óvígðri sambúð í að minnsta kosti þijú ár áður en með- ferð hefst. Konan skal ekki vera eldri en 42 ára. Eigi parið fleiri en eitt barn saman fær það ekki aðgang að meðferðinni. Notkun gjafa- frumna, þ.e.a.s. bæði sæðisfrumna og eggfrumna og frysting fósturvísa er óheimil. Með reynslu og þekkingu hefur krafan um traustan lagalegan grunn hins vegar orðið háværari. Alþingi fjallaði um málið árið 1986 og sam- þykkti í framhaldi af því skipun nefndar til að kanna réttaráhrif tæknifijóvgunar og gera tillögur um hvernig réttarstaða aðila verði tryggð- Nefndina skipuðu Ólafur W. Stefánsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, formaður, Jón Hilmar Alfreðsson, yfirlæknir, tilnefndur af læknadeild Háskólans, Ásta Kr. Ragnarsdóttir, forstöðu- maður Námsráðgjafar HÍ, tilnefnd af Barnaverndarráði, Ólafur Axels- son og Þórður S. Gunnarsson, hæst-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.