Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 11
FRÉTTIR
Eldsvoði hjá sjóflokki Ingólfs
Tjónið nemur
lOtil 15
milljónum króna
TJÓNIÐ sem varð í eldsvoða í
húsnæði Tilkynningaskyldunnar
hjá Slysavarnafélagi íslands við
Grandagarð er talið nema 10 til
15 milljónum króna. Sjóflokkur
björgunarsveitarinnar Ingólfs
hafði aðsetur í húsnæðinu og varð
tjónið aðallega á útbúnaði sveitar-
innar. Eitthvert tjón varð á hús-
næðinu, m.a. brotnuðu rúður og
einangrun á einum vegg er
skemmd.
Að sögn Estherar Guðmunds-
dóttur, framkvæmdastjóra SVFÍ,
hefur ekki verið farið yfir alla þá
muni sem í húsnæðinu voru, en
talið er að tjónið nemi 10-15 millj-
ónum króna. Hún segir að einhver
röskun verði á starfsemi sjóflokks-
ins en hann sé þó vel útkallsfær,
þótt dálítið af búnaði vanti.
í húsnæðinu voru m.a. flot-
vinnugallar, köfunartæki, teppi og
fleira auk þess sem félagar í sjó-
flokknum voru þar með persónu-
legan búnað. Esther segir að mörg
stykki af hverjum hlut hafi verið
í húsnæðinu og hver hlutur sé til-
tölulega dýr og þess vegna sé tjón-
ið þetta mikið.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur rannsakað eldsupptök. Þau hafa
ekki verið staðfest en grunur bein-
ist að neyðarljósum á flotgöllum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐMUNDUR Gylfi Guðmundsson, formaður stjórnar foreldra-
félagsins Holtaborgar, afhendir Arna Þór Sigurðssyni, formanni
stjórnar Dagvistar bama, kröfur foreldra Holtaborgar.
Foreldrar krefjast
endurbóta á Holtaborg
STJORN foreldrafélags leikskól-
ans Holtaborgar við Sólheima í
Reykjavík hefur afhent borgaryf-
irvöldum undirskriftir með nöfnum
152 foreldra þar sem farið er fram
á að tafarlaust verði gerðar endur-
bætur á skólanum. Borgaryfirvöld
hyggjast veija auknum fjármun-
um til framkvæmda við leikskóla
á þessu ári.
Foreldrafélag Holtaborgar telur
að leikskólinn sé orðinn einn af
verst settu leikskólum borgarinnar
hvað varðar húsnæði. Ekkert eld-
hús sé í skólanum og börn í sex
tíma vistun þurfi að búa við
skrínukost. Krafa foreldranna er
að lögð sé áhersla á að gera nauð-
synlegar endurbætur á eldri leik-
skólum samhliða uppbyggingu
nýrra leikskóla.
Samkvæmt framkvæmdaáætl-
un átti að gera endurbætur á
Holtaborg á árinu 1996, en stjórn
foreldrafélagsins vill að áætlun við
leikskólann verði flýtt.
Á fundi foreldra Holtaborgar og
stjómar Dagvistar bama kom fram
að áætlað framkvæmdafé til leik-
skóla er 450 milljónir á þessu ári,
en það var 209 milljónir á síðasta
ári og 150 milljónir á árinu 1993.
Tungnáijökull
Hlaupið í hámarki
TUNGNÁRJÖKULL hefur nú
skriðið fram um 700 metra og
segir Hannes Haraldsson vatna-
mælingamaður hjá Landsvirkjun
að hann fari fram um 8 metra á
dag.
Starfsmenn Landsvirkjunar
fylgjast með framvindunni á hálfs-
mánaðar fresti og hefur jök-
ulhlaupið að líkindum náð hámarki
að Hannesar sögn.
Tungnáijökull, sem er um 300
km2, skreið síðast fram fyrir 50
árum en hann liggur að Skaftár-
jökli í Vatnajökli. Sporðurinn er
nú um 40 metrar á hæð og segir
Hannes að jökullinn verði á skriði
fram á vorið.
Hugheilar þakkir fœri ég ykkur sem glödduö
mig með gjöfum, kveöjum og heimsóknum á
70 ára afmœli mínu 30. des. sl.
Einnig fœri ég aöstandendum H-lista, fyrr og
nú, miklar þakkir.
Bestu nýárskveöjur til ykkar allra,
Dagmar Árnadóttir,
Skiphóli, Garði.
M E R Y L
K E V 1 N
STREEP
BAC0N
I VERÐLAUN ERU JAKKAR, DERHÚFUR, BÍÓMIÐAR
0G ÆSISPENNANDI HVÍTÁRFERÐIR FRÁ
BÁTAFÓLKINU.