Morgunblaðið - 19.01.1995, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
Kveðja frá Bandalagi
íslenskra skáta
Björk Thomsen gekk ung til liðs
við skátahreyfinguna. Hún var fé-
lagi í Kvenskátafélagi Reykjavíkur
á 6. áratugnum og vakti þá þegar
athygli fyrir einarða framkomu.
Kvik og snaggaraleg telpa starfaði
þar í góðum vinahópi. Saman stýrðu
þær litlu flokkunum sínum í þriðja
hverfi félagsins af röggsemi, hug-
kvæmni og óbilandi samviskusemi,
trúar grundvallarhugsjónum skát-
anna.
Björk hélt áfram að gegna mikil-
vægum stöðum í félaginu og varð
sveitar- og deildarforingi. Að loknu
stúdentsprófi starfaði hún um tíma
á skrifstofu Bandalags íslenskra
skáta og greiddi þar götu hvers
manns. Þessir eiginleikar fylgdu
Björk ætíð síðan, hvað sem hún tók
sér fyrir hendur. Árin liðu, Björk
lauk námi, stofnaði heimili og sinnti
ýmsum öðrum félagsstörfum.
Löngu seinna, í lok 9. áratugar-
ins, kom Björk aftur af krafti inn
í skátahreyfinguna. Hún hafði hend-
ur fullar af verkefnum, vann sem
kerfisfræðingur og stóð fyrir heim-
ili ásamt manni sínum með ungbam
og annað á táningsaldri. Það er
óvenjulegt að konur með þannig
aðstæður gefi eins mikið til skáta-
starfsins og Björk hefur gert síð-
ustu sjö árin.
Hún tók sæti í starfsráði Skáta-
sambands Reykjavíkur og fór þegar
að láta til sín taka við endurskoðun
og mótun á starfsverkefnum fyrir
skátastarfið í landinu. Jafnframt sat
hún í stjóm skátasambandsins til
1991. Á Skátaþingi árið 1990 var
hún kjörin formaður starfsráðs
Bandalags íslenskra skáta. Undir
forystu hennar var mótuð stefna í
fræðslukerfi bandalagsins og end-
urskoðuð verkefni fyrir þijú aldurs-
skeið á bilinu 9-14 ára.
En Björk lét sér ekki nægja að
setja stefnuna á blað. Hún vildi
reyna hana með bömum í starfí. Á
aðalfundi BÍS í fyrra sagði hún af
sér störfum fyrir bandalagið til að
geta einbeitt sér að foringjastörfum
með bömum í Skátafélaginu
Ægisbúum í vesturbænum í Reykja-
vík. Hér taldi Björk að sín væri
mest þörf. Við útilífsstörf með skát-
um sínum þar varð hún fyrir smá-
slysi, lítið skurðsár vildi ekki gróa,
og þá uppgötvaðist sjúkdómurinn
sem varð henni að aldurtila á fáum
mánuðum.
Með Björk er gengin drenglynd
og heilsteypt persóna langt um ald-
ur fram. Skátahreyfingin saknar
vinar í stað og harmar einstakan
liðsmann. Mestur er þó missir fjöl-
skyldu hennar, móður, eiginmanns,
dætranna og annarra aðstandenda.
Stjóm Bandalags íslenskra skáta
færir þeim einlægar samúðarkveðj-
ur með djúpri þökk fyrir ómetanlegt
starf Bjarkar á liðnum ámm. Megi
hið eilífa ljós lýsa Björk á nýju og
æðra sviði.
Gunnar H. Eyjólfsson
skátahöfðingi,
Kristín Bjarnadóttir,
Ólafur Ásgeirsson.
Björk Thomsen er látin eftir
hetjulega baráttu við illvígan sjúk-
dóm í um sjö mánuði. Leiðir okkar
Bjarkar lágu saman í Menntaskól-
anum í Reykjavík þar sem við sátum
í sama bakk vetuma 1962 til 1965.
Þetta var nokkuð óvenjulegur bekk-
ur, stærðfræðideildarbekkur þar
sem vom saman komnar 13 stúlkur
og 9 piltar. Við komum úr ýmsum
áttum og áttum e.t.v. fátt annað
sameiginlegt en að vera í stærð-
fræðideild í MR. Á því lífsskeiði sem
við gengum í gegnum þá myndast
þó oft vinátta milli manna sem end-
ist þótt langt hlé geti orðið á sam-
vistum. Björk var einstaklega hlé-
dræg og prúð stúlka. Hún stundaði
nám sitt af mikilli samviskusemi.
Við vissum að hún var skáti og
eyddi dijúgum hluta af frítíma sín-
um í skátastarf og pilturinn hennar
var líka skáti en Björk staðfesti ráð
sitt fyrr en flest okkar hinna.
Að afloknu stúdentsprófí skildu
leiðir. Björk tók kennarapróf og
menntaði sig síðan í tölvufræðum
og vann sem kerfisfræðingur eftir
það. Sum okkar dvöldu erlendis
langdvölum, sum hafa skilað sér
heim, önnur ekki. En einhvern veg-
inn tókst okkur að fylgjast með
hvert öðru og hvað verið væri að
bralla. Björk bjó í Fossvoginum,
vissum við, og átti eina telpu. Sú
sem þetta ritar hafði tækifæri til
þess að fýlgjast nokkuð með Björk
hin síðari ár þar sem leiðir okkar
hafa legið saman á ýmsum vett-
vangi. Fyrir nokkrum árum tókum
við báðar upp á því að stunda lang-
hlaup og mætti ég Björk þá oft í
Elliðaárdalnum. Ég mun hafa hitt
hana þar síðast skömmu áður en
ljóst var hversu veik hún var.
Lífíð fór ekki alltaf mjúkum hönd-
um um Björk en hún fann nýjan
lífsförunaut, Auðun Sæmundsson,
kerfisfræðing, og saman áttu þau
eina dóttur. Sú sem þetta ritar
þekkti þennan unga mann og vissi
að þar fór einstaklega elskulegur
piltur. Enda hefur sambúð þeirra
fært þeim lífshamingju og öryggi.
Nú er í fyrsta sinni höggvið skarð
í þann fríða hóp sem hélt út í lífíð
RADA UGL YSINGAR
Laus staða ,
Staða framkvæmdastjóra hljóðvarpsdeildar
Ríkisútvarpsins er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og starfsferil, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 15. febrúar 1995.
Menntamálaráðuneytið,
18. janúar 1995.
Umhverfisráðuneytið
Umhverfisráðuneytið óskar að ráða í starf
deildarstjóra í alþjóðadeild ráðuneytisins.
Um er að ræða tímabundið starf frá 1. mars
1995 til 30. júní 1998.
Umsækjandi skal hafa háskólapróf og hafa
þekkingu á alþjóðatengslum og starfsemi
alþjóða stofnana. Umsækjandi verður að
hafa gott vald á íslensku og ensku og kunn-
áttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Viðkom-
andi þarf að geta tekið þátt í alþjóðlegum
fundum, þ.á m. að semja og flytja ávörp á
alþjóðavettvangi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu berast umhverfisráðu-
neytinu, Vonarstræti 4, 150 Reykjavík,
í síðasta lagi 31. janúar nk.
TIL SÖLU
Vesturland sf., fasteignamiðlun og lögfræðistofa,
Kirkjubraut 40, Akranesi,
sími 93-14266/14144, bréfsími 93-14244.
Eignir þrotabús
Hafnarlax hf.
Hér með er óskað eftir tilboðum í eignir
þrotabús Hafnarlax hf. að Höfn, Melasveit,
Borgarfjarðarsýslu.
Helstu eignirnar eru: Tvö jarðföst ker, um
9,5x2 m; vatnsveita og lagnir; geymsluskúr.
Hagstæður leigusamningur er um land-
spildu, þ.m.t. vatnasvæði Hafnarár.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður
á skrifstofutíma. Tilboðum skal skilað fyrir
26. janúar næstkomandi.
Jón Haukur Hauksson, hdl.,
skiptastjóri.
Fasteignasala til sölu
Vegna sérstakra ástæðna er fasteignasala í
miðborg Reykjvíkur til sölu. Gott tækifæri
fyrir tvo samhenta aðila eða einstakling.
Hagstæð kjör.
Þeir, sem hafa áhuga, skili svari til afgreiðslu
Mbl. fyrir 23. janúar, merktu: „Þ - 4433“.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, myndir, málverk,
silfur, silfurborðbúnað, Ijósakrónur, lampa,
bollastell, hatta, platta, gömul póstkort og
smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 91-671989.
Geymið auglýsinguna.
Geymsluhúsnæði óskast
Opinber stofnun óskar eftir að taka á leigu
200-300 fm geymsluhúsnæði með aðkeyrslu-
dyrum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, helst
gluggalaust.
Nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson
í síma 624070.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Skotfélags Reykjavíkur
verður haldinn í íþróttamiðstöðinni, Laugar-
dal, fimmtudaginn 26. janúar kl. 20.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kjördæmisráð
Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík
Fundi kjördæmisráðs Alþýðubandalagsfélag-
anna, sem verða átti fimmtudaginn 19. janúar
og boðaður var með bréfi dagsettu 12. janú-
ar, verður frestað til þriðjudagsins 24. janú-
ar kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn í
A-sal Hótels Sögu.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Ákvörðun um framboðslista Alþýðu-
bandalagsfélaganna í Reykjavík til alþing-
iskosninganna 1995.
2. Önnur mál.
Með þessari auglýsingu eru allir kjördæmis-
ráðsmenn Alþýðubandalagsfélaganna boð-
aðir til fundar.
Haukur Már Haraldsson,
formaður.
Þorrablóti aflýst
Þorrablót Bolvíkingafélagsins og nágrennis,
sem halda átti í Glæsibæ föstudaginn
20. janúar, verður aflýst.
I.O.O.F. 5 = 1761198'/2 = F.R.
Sp.
I.O.O.F. 11 = 17601198 =
St. St. 5995011919 VII
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrœti 2
Lofgjörðarsamkoma í umsjá
unga fólkslns kl. 20.30. Sven
Fosse talar. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir!
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Við viljum hvetja sem flesta til
að mæta. Vegna slyssins i
Súðavík verður matarkvöldí nk.
laugardag frestað um óákveð-
inn tfma.
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30 við
Holtaveg. Staða KFUM árið
2020. Framsöguerindi: Bjarni
Gunnarsson, Gunnar Finnboga-
son og Einar Th. Magnússon.
Hugleiðing: Gunnar J. Gunnars-
son, lektor.
Allir karlmenn velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Fimmtudagskvöldið
19.janúar kl. 20.30:
Myndakvöld
Fyrsta myndakvöld nýja ársins
er í kvöld, fimmtudagskvöld, í
Breiðfirðingabúð (Faxafeni 14,
næsta nágrenni við Mörkina).
Fyrir hlé verða sýndar myndir
úr sumarleyfisferðum síöastliðið
sumar.
1. Miðhálendisferðin í ágúst.
Þór Halldórsson sýnir myndir af
náttúruperlum norðan Vatnajök-
uls. Næsta sumar verður ný at-
hyglisverð hálendisferð á dag-
skrá í samvinnu við Náttúru-
fræðifélagið.
2. Gönguleiðin frá Hreðavatni
um Langavatnsdal f Hnappadal
í júlí. Þessi fjölbreytta en fáfarna
leið var farin í fyrsta sinn f fyrra
og sýna Árni Tryggvason og
Skúli Gunnarsson myndir úr
þeirri ferð. Ferðin verður einnig
á dagskrá í sumar.
3. Eftir hlé sýnir Jóhannes I.
Jónsson, margreyndur farar-
stjóri í Ferðafélagsferðum,
myndir úr ferðum sínum, m.a.
vetrarferðum.
Góðar kaffiveitingar í hléi.
Verð 500 kr. (kaffi og meðlæti
innifalið).
Fjölmennið, eflið félagsstarfið.
Myndakvöldið er öilum opið,
félögum sem öðrum.
Fræðsluritið nýja, Saga Fjall-
vegafélagsins, mun liggja
frammi til sýnis og sölu.
Verð 1.000 kr. til félaga F.f.
Ferðafélag Islands.
...blabib
-kjarni málslnsl
Sjábu hlutina í víbara samhengi!