Morgunblaðið - 27.01.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.01.1995, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERIINIU FRÉTTIR: EVRÓPA Morgunblaðið/Rúnar Þór AKRABERG við bryggju á Akureyri, en fyrir aftan það er Margrét EA. Akrabergið á veiðar AKRABERG, frystitogari Sam- herja á Akureyri og færeyskra meðeigenda þeirra, lét úr höfn á Akureyri síðla kvölds í gær eftir viðamiklar breytingar. Skipið fer fyrst til Færeyja en síðan á þorsk- veiðar í Barentshafi. Þar á skipið um 2.500 tonna kvóta, þar af um 2.000 tonn af þorski. þetta verður fyrsta veiðiferðin eftir að Sam- heiji hóf útgerð þess. Reiknað er með að hún standi í allt að 6 vik- ur, en síðan verður skipinu haldið til úthafskarfaveiða á Reykjanes- hrygg fram undir haust. Þá fer það á ný norður í Barentshafið, en reiknað er með að kvóti þess dugi í þrjár veiðiferðir. Breyting- arnar á skipinu kostuðu um 100 mill. kr. og munar mestu um al- gjöra endumýjun á millidekki, en þar er nú ný flakavinnslulína og frystikerfi. Möguleg frysting á sólarhring em 25 til 30 tonn af flökum, en skipið ber 450 tonn af flökum í lest. Skipstjóri er Fær- eyingurinn Eyðunn á Bergi og er áhöfn öll færeysk að undanskildum fjóram íslendingum, sem hafa umsjón með vinnslunni. Ný reglugerð frá sjávarútvegsráðuneytinu Allur undirmálsfiskur skal reiknast til kvóta SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur ákeðið að fella úr gildi undan- þáguákvæði þess efnis að þriðjungur undirmálsfisks, sem komið er með að landi, reiknist utan kvóta. Þetta er gert að tillögu samstarfsnefndar um bæta umgegni um auðlindir sjáv- ar. Samkvæmt reglum sem gilt hafa nokkur undanfarin ár, hefur undir- málsfiskur aðeins að tveimur þriðju hlutum reiknazt til kvóta fiskiskips, enda hafí hann ekki farið yfir 10% af heildarafla þess í veiðiferð. Miðað hefur verið við 50 sentímetra þorsk eða minni, 45 sentímetra ýsu og 500 gramma karfa. í áfangaskýrslu sem samstarfs- nefndin skilaði til sjávarútvegsráð- herra í desember síðastliðnum er lagt til að afnumin verði sú regla að hluti undirmálsfisks teljist ekki til kvóta. Segir í skýrslu nefndarinn- ar, að athuganir sýni að stór hluti eða allt að 70 til 80% þess físks, sem landað er sem undirmálsfíski, standist mál. Telur nefndin að ómögulegt sé fyrir vigtarmenn að fylgjast með því að reglan sé ekki misnotuð og að löndun físks undir máli fari vaxandi. Reglan leiði því til sjálftöku á kvóta og eigi að af- nemast. Sjávarútvegsráðuneytið hefur því ákveðið að fara að tillögu sam- starfsnefndarinnar og hefur gefíð út reglugerð, sem fellir úr gildi of- angreint undanþáguákvæði varð- andi undirmálsfisk. Reglugerð þessi tekur gildi fyrsta febrúar næstkom- andi og frá og með þeim degi reikn- ast því fiskur undir ofangreindum mörkum að fullu til kvóta. Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1984-l.il. 1988-l.fl.A 6 ár 1990-l.fl.D 5 ár 01.02.95 -01.08.95 01.02.95 -01.02.96 10.02.95 kr. 68.876,70 kr. 28.881,30 kr. 16.480,50 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 27. janúar 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS Portúgalar vilja meiri kvóta á N-Atlantshafi FULLTRÚAR portúgalskra útgerð- armanna kvörtuðu sáran yfir kvóta- leysi er þeir gengu á fund sjávarút- vegsnefndar Evrópusambandsins fyrr í vikunni. Fram kemur í fundar- gerð að útgerðarmennirnir telji framleiðslu portúgalska úthafsveiði- flotans hafa dregizt saman um 60%, úr 160.000 tonnum í 65.000, frá því ríkið gekk í ESB árið 1986. Útgerðarmennirnir bentu á þijú svæði, sem gætu skilað Portúgal meiri kvóta. í fyrsta lagi Norðvestur- Atlantshaf, þar sem fylgja yrði harð- ari stefnu gagnvart Kanada. Portúg- alarnir fóru fram að Bretland og Þýzkalánd létu hluta af kvóta sínum til Portúgals. í öðru lagi vilja portúgölsku út- gerðarmennirnir meiri kvóta við Svalbarða og benda á að aðeins 0,3% af kvóta ESB af íshafsþorski komi í þeirra hlut. í þriðja lagi fara Portúgalar fram á meiri karfa- og þorskkvóta í græn- lenzkri lögsögu. Núverandi kvótaút- hlutun veitir Portúgölum engan kvóta þar (þeir eiga ekki sögulegt tilkall til kvóta þar fremur en við Sval- barða), en þau aðildarríki, sem fá kvótann, nýta ekki nema 20% af honum. Portúgölsku útgerðarmennirnir buðu sjávarútvegsnefndarmönnum að sjá „eymdarástandið" i sumum fiskibæjum í Portúgal. „Við gengum ekki í Evrópusambandið til þess að þetta yrði svona,“ sögðu þeir. Verðbólga eykst ÍESB • VERÐBÓLGA í Evrópusam- bandsríkjunum var að meðaltali 3,1% í desember síðastliðnum og hafði aukizt um 0,1% frá því í nóvember. Þetta er fyrsta meðal- talsaukning verðbólgunnar í fimm ár. Frakkar búa við minnsta verðbólgu en Grikkir mesta. Þess- ar tölur taka einvörðungu mið af ríkjunum tólf, sem voru í sam- bandinu þar til um áramót. Des- emberverðbólgan var 2,6% í Aust- urríki, 1,6% í Finnlandi og 2,5% í Svíþjóð, þannig að búast má við að meðaltalið lækki lítillega við inngöngu þeirra. Verðbólga í Bandaríkjunum var 2,7% í desem- ber og 0,5% í Japan. • LEON Brittan, sem fer með utanríkisviðskipti í framkvæmda- stjórn ESB, og franski utanríkis- ráðherrann Alain Juppe era á leið til Washington í opinbera heimsókn. Þeir munu meðal ann- ars ræða ráðningu framkvæmda- stjóra nýju heimsviðskiptastofn- unarinnar, WTO. ESB hefur stutt Renato Ruggiero, en Bandaríkin Carlos Salinas, fyrrverandi for- seta Mexíkó. • BRETAR vinna að meðaltali lengstu vinnuvikuna ínnan ESB, eða 43,3 stundir. Stytzt er vinnu- vikan í Belgíu, 38,2 stundir. • KÖNNUN framkvæmdastjórn- ar ESB sýnir að bifreiðar eru dýrastar í Frakklandi og Þýzka- landi. • SÁTTANEFND Evrópuþings- Verðbólga í ríkjum ESB í desember '94 Samanburður á neysluverðsvísitölu í desember 1994 og desember 1993 Ríkj 0 2 4 Grikkland Spánn Ítalía Portúgal Bretland Þýskaland Austurríki Holland Svíþjóð írland* Danmörk Lúxembúrg Frakkland Finnland 4»3 12.1 irrri 4.2| 0,0 7ML .3,5 ZMl L9 aT 1994 1993 Meðaltal ESB-ríkja** 'Nóvember 1994 0 2 '* 12 ríki í desember 1994 Heimlld: Eurostat. ins og ráðherraráðs ESB hefur loks náð samkomulagi um fram- lög til mennta- og æskulýðsverk- efnanna SOKRATES og „Æska í Evrópu“. Fyrra verkefnið fær um 71.5 milljarða króna framlag næstu fimm árin, og það síðara 10.6 milljarða. Verkefnin eiga að hvetja ungt fólk til að leita sér menntunar í öðru landi en heima- landi sínu og kynnast tungu og menningu annarra Evrópuþjóða. Tryggingafélög hvelja til frelsis í varahlutaverzlun Brussel. Reuter. TRYGGINGAFÉLÖG í Evrópusam- bandinu hvetja ákaft til þess að frelsi í viðskiptum með bílavarahluti verði aukið, þar sem núverandi fyrirkomu- lag hækki verulega viðgerðareikn- inga viðskiptavina þeirra. Samkvæmt uppkasti að nýjum reglum Evrópusambandsins fá framleiðendur varahluta „til við- gerða“ aðeins að halda einkaleyfi á framleiðslu hlutarins í þijú ár eftir að hann er settur á markað. Trygg- ingafélögin styðja þessar tillögur, en evrópskir bílaframleiðendur hafa hins vegar lagzt eindregið gegn þeim og halda því fram að með þessu sé lögvemdun á hönnun bif- reiða í hættu. Núverandi reglur breytilegar Núverandi reglur í Evrópusam; bandslöndum eru breytilegar. í Bretlandi hafa framleiðendur vara- hluta til dæmis ekkert einkaleyfi, en í sumum öðrum ríkjum er allt að 30 ára einkaleyfi á t.d. fram- leiðslu stuðara eða framljósa. Samtök bflaverkstæða, neyt- endasamtök og sjálfstæðir vara- hlutaframleiðendur styðja trygg- ingafélögin í baráttunni við bíla- framleiðendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.