Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C/D 50. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR1. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sókn Rússa fyrir sunnan Grosní Hóta að eyða byg-gðunum Moskvu, Goity. Reuter. PAVEL Gratsjov, vamarmálaráð- herra Rússlands, segir, að andspyrn- an í Tsjetsjníju hafí verið brotin á bak aftur að mestu leyti þótt búast megi við skærum áfram. Rússar héldu uppi skothríð á stöðvar Tsjetsj- ena fyrir sunnan Grosní í gær og skipuðu íbúum þorpa og bæja að hafa samvinnu við herinn, ella yrði byggðinni eytt. Gratsjov sagði, að í bardögunum um Grosní hefðu rússnesku her- mennimir verið flestir 38.000 að tölu en um 30.000 manns í sveitum Tsjetsjena. Þar af hefðu verið 6.000 málaliðar og 1.200 „hættulegir glæpamenn" eins og hann komst að orði. 7.000 tsjetsjenskir hermenn fallnir Rússneska fréttastofan Itar-Tass hafði eftir hershöfðingjanum Fjodor Ladygín í gær, að 7.000 tsjetsjensk- ir hermenn hefðu fallið síðan átökin hófust í landinu fyrir 11 vikum. Rússneskir hermenn em sakaðir um gróf mannréttindabrot í nýrri skýrslu frá bandarísku mannrétt- indasamtökunum Human Rights Watch. Segja þau, að þeir hafi farið um rænandi og ruplandi og pyntað fanga og drepið og eru Sameinuðu þjóðirnar ávíttar sérstaklega fyrir að láta þessa glæpi liggja í þagnar- gildi. Reuter Morðið á framkvæmdastjóra stjórnarflokks Mexíkó Bróðir Salinas de Gortari handtekinn Mexíkóborg. Reuter. BRÓÐIR Carlos Salinas de Gortari, fyrrverandi forseta Mexíkó, var í gær handtekinn og sakaður um að hafa lagt á ráðin um morðið á fram- kvæmdastjóra stjórnarflokksins, Francisco Ruiz Massieu, í fyrra. Ruiz Massieu, sem var annar valdamesti maður Byltingarflokks- ins, var myrtur í skotárás þegar hann gekk út úr hóteli í Mexíkóborg 28. september. Við rannsókn málsins hafa komið fram vísbendingar um að hann hafí verið fómarlamb valda- baráttu innan Byltingarflokksins, sem hefur verið við völd í Mexíkó LÖGREGLA í ýmsum Asíulöndum leitaði í gær ákaft að breska banka- manninum Nick Leeson sem með spákaupmennsku sinni síðustu þrjú árin í Singapore gróf undan elsta fjárfestingarbanka Breta, _ Barings- banka. Leeson og eiginkona fara huldu höfði, enginn veit með vissu í hvaða landi þau eru eða hvort þau eru saman. Engin kæra hefur verið lögð fram á hendur Leeson en yfirvöld í Sing- apore vilja ræða við hann vegna rannsóknar á bankahruninu. Hafa þau beðið nágranna sína í Malasíu um aðstoð. „Hann var á hóteli í Kuala Lump- ur [höfuðborg Malasíu] á föstudag en síðan höfum við ekkert af honum samfleytt frá árinu 1929. Carlos Salinas var forseti þegar morðið var framið en lét af embætti 1. desember. Fjölmiðlar í Mexíkó hafa birt fréttir um að bróðir hans, Raul, atkvæðamikill fjármálamaður, hafí verið í nánum tengslum við harðlínumenn innan stjómarflokks- ins sem eru andvígir lýðræðislegum umbótum. Ungur maður var handtekinn skömmu eftir morðið og hann játaði að hafa skotið Ruiz Massieu til bana. Lögreglumenn, sem rannsaka morð- ið, hafa sagt að hann hafi ekki verið frétt," sagði embættismaður lögreglu í Malasíu. Lögreglumenn og kunningjar Lee- sons veltu því fyrir sér hvort hann hefði reynt að komast að landamær- um Malasíu og Tælands þar sem eru miklir frumskógar. Þar eru viða lítt kunnir stígar yfír landamærin sem aðeins smyglarar nota, einnig ára- tuga gömul jarðgöng sem skæruliðar kommúnista gerðu. Grannar Leeson-hjónanna segja þau hafa horfíð úr íbúð sinni sl. fimmtudag. Heimildarmenn töldu að hjónin hefðu nóg fé til umráða og jafnvel lystisnekkju. Þau gætu því falið sig víða. ■ Eftirlit stokkað upp/19 einn að verki og að grunur leiki á að háttsettir menn innan Bylting- arflokksins hafi greitt honum fyrir verknaðinn. Um tólf manns hafa verið handteknir vegna morðmálsins. Salinas neitar yfirhylmingu Skömmu fyrir handtökuna í gær hafði Carlos Salinas komið fram í sjónvarpi til að vísa á bug ásökunum um að stjómin hafí hylmt yfir með morðingjum forsetaefnis flokksins, Luis Donaldo Colosio, sem var myrt- ur í mars í fyrra. Hann minntist hins vegar ekki á morðið á Ruiz Massieu. LÖGREGLAN í París kvaðst í gær hafa fundið vopnabúr í eigu ísl- amskra bókstafstrúarmanna frá Alsír. Lögreglan fann búnað til Misheppn- aðri friðar- gæslu lokið BANDARÍSKIR og ítalskir her- menn grófu skotgrafir á flugvell- inum og við höfnina í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í gær. Þorri 1.800 bandarískra hermanna og 400 ítalskra hafði þá verið fluttur á land með svifnökkvum til að aðstoða við brottflutning síðustu friðargæsluliðanna frá Sómalíu. Hersveitirnar komu á nákvæm- lega sama stað og þegar þær voru sendar til landsins í desember árið 1992 til að binda enda á hung- ursneyðina þar. 132 friðargæslu- liðar biðu bana þegar reynt var að stillatil friðar í landinu. Stjórn- leysi ríkir enn í Sómalíu og friðar- gæslan misheppnaðist þótt 30.000 hermenn frá 28 ríkjum hefðu ver- ið sendir til landsins. að skjóta flugskeytum, þrjár vél- byssur, þrjár haglabyssur, nokkr- ar skammbyssur, 8.000 skothylki, auk búnaðar til sprengjugerðar. Hjarta- rafstuðs- tækií þotur? Á ÁRI hverju deyja allt að 1.000 manns um borð í flugvélum af völdum hjartastopps og fólk, sem ferðast oft með flugvélum, er líklegra til að deyja af þessum sökum en í flugslysi, að sögn lækna í Ástralíu. Breska dagblaðið The Inde- pendent segir að læknarnir hafi hvatt til þess að hjartarafstuðs- tæki verði sett í farþegaþotur og flugstöðvar og starfsmenn verði þjálfaðir í notkun þeirra. Læknamir leggja þetta til eft- ir þriggja ára könnun sem sýndi að hægt er að bjarga mannslífum með hjartastuðstækjunum í þot- um og á flugvöllum. Könnunin var gerð í samvinnu við ástralska flugfélagið Quantas, sem hefur sett tækin í allar 53 farþegaþot- ur sínar í millilandaflugi og helstu flugstöðvar. Allar yfir- flugfreyjur Quantas fengu einnig þjálfun í notkun tækjanna. , Flestir þurfa gjörgæslu Læknamir segja að frá sept- ember til desember í fyrra hafi tækin verið notuð 50 sinnum. Þar af voru þau notuð 29 sinnum vegna hjartastopps, sextán þeirra tilvika voru um borð í þotunum og 13 í flugstöðvunum. Tíu farþeganna, sem fengu hjartastuð í flugstöðvunum, héldu lífi, en tveir í þotunum. Talsmaður British Airways sagði að ekki hefði verið talin ástæða til að setja rafstuðstæki í þotur flugfélagsins þar sem hjartastoppin væru ekki mörg miðað við fjölda farþeganna. „Og fólkið sem fær hjartastuð þarf að komast í gjörgæslu lækna og hún er ekki fyrir hendi um borð í þotunum." Áköf leit gerð að Nick Leeson London. Reuter. Reuter Vopnabúr finnst í París
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.