Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 45
ALOE vera.
Kraftaverkajurtin aloe vera
Frá Ragnari Þjóðólfssyni:
í GLUGGUM margra má sjá jurt
með þykkum grænum blöðum sem
vaxa í krans. Plantan líkist mest
kaktus en er í raun af liijuætt og
til eru yfir 300 tegundir af henni.
Safinn úr þeim minni dugar ágæt-
lega á brunasár og við húðþurrki
en hin eiginlega aloea vera sem átt
er við í lyfja- og læknisfræðibókum
er Aloe barbadensis. Plantan er
fullþroskuð þegar hún nær 50-130
cm hæð og þá má sneiða af henni
ystu blöðin og nýta til lækninga.
Saga aloe vera-lækningajurtar-
innar er mjög löng. Á leirtöflum frá
Mesópótamíu er hennar getið um
1750 fyrir Krist og 550 f. Krist er
minnst á lækningamátt hennar
gegn sýkingum í húð i egypskum
bókum og Kleópatra notaði hana
sem fegrunarmeðal. Grískir læknar
skrifa um hana mannsaldri fyrir
fæðingu Krists og í gegnum aldirn-
ar hefur hún verið notuð með góð-
um árangri gegn hvers konar exemi
og til búkhreinsunar.
Læknar brunasár
Á Vesturlöndum er lítið fjallað
um jurtina frá miðöldum og þar
til 1935 að geislalækningar hefj-
ast. Sjúklingar fengu oft erfið sár
á þá staði sem geislunum var helst
beitt. Kaunin greru illa og fylgdi
mikill kláði og sýkingarhætta.
Ýmis lyf voru reynd en ekkert
náði að græða sárin né veita líkn
frá kláðanum fyrr en konu nokk-
urri hugkvæmdist að leggja afhýdd
blöð aloe vera-jurtarinnar beint á
sár sín. Innan sólarhrings hafði
kláðinn minnkað og á fimm vikum
voru sárin gróin.
Eftir þetta var farið að beita aloe
vera í auknum mæli til lækninga.
í ljós kom að hún dugði sérlega vel
á hvers kyns brunasár og ekki er
til betra efni við sólbruna og sól-
arexemi. Víða í Bandaríkjunum
nota brunaliðsmenn sérstök teppi
vætt aloe vera-safa til að veíja um
fórnarlömb bruna.
Drepur bakteríur
Jurtin reyndist einnig vinna
mjög vel innvortis, en seyði af
henni vinnur gegn mörgum teg-
undum baktería. Þeirra á meðal
lungnabólgu og berklum, en einnig
gegn herpes-veirunni og sveppum
í meltingarfærum af gerðinni
Candida. Frá Danmörku berast
þær fréttir að asma í börnum megi
halda niðri með aloe vera-safa.
Gegn psórasis og gigt
Margir psoriasis-sjúklingar nota
aloe vera. Áburður með yfír 70%
hreinum safa úr jurtinni dregur mik-
ið úr húðþurrki og græðir sár sem
oft myndast á þeim stöðum þar sem
psoriasis-exem er slæmt. íslensk
kona hafði lengi verið slæm af psor-
iasis á höndunum og húðin var oft
mjög þurr og sprungin. Allt jók ert-
ingu húðarinnar og jafnvel það eitt
að þvo sér í vatni orsakaði sársauka
og kláða. í tvö ár hefur hún borið'1
gelið á hendumar á kvöldin, dregið
á þær bómullarhanska og sofíð með
þá til morguns. Húðin er mjúk, óspr-
ungin og að mestu laus við psorias-
is-bletti.
Víða á Norðurlöndum er farið að
nota aloe vera-gelið, en það er 98%
hreinn jurtasafí gegn gigt og bólgu
í liðum. Sjúkraþjálfarar nudda gelinu
inn í auma liðina og vöðva og við
það dregur merkjanlega úr bólgum
og sársauka. Hér á landi hefur gelið
verið notað á nokkrum sjúkrastofn-
unum með góðum árangri.
RAGNAR ÞJÓÐÓLFSSON,
Arnartanga 17, Mosfellsbæ.
Hver hefur áhuga á
amerískum fótbolta?
Frá Sigurði Jónssyni:
NÚ í vetur hefur nokkrum sinnum
verið fjallað um amerískan fótbolta,
eða ruðning eins og farið er að kalla
þetta fyrirbæri hér á landi, á íþróttas-
iðum blaðsins. Ég get ekki orða
bundist, því að á sama tíma eru rit-
stjórar blaðsins að biðja þá sem senda
greinar til blaðsins að vera ekki of
langorðir vegna þess að pláss er
ekki ótakmarkað í blaðinu. Þetta á
sjálfsagt líka við um íþróttasíðuna.
Áf hveiju í ósköpunum er þá verið
að eyða plássi og kröftum starfs-
manns í umfjöllun um ruðning? Á
sama tíma er ýmsu sleppt sem flest-
ir teldu eflaust eðlilegt að um væri
fjallað, margir sakna t.d. 2. deildar
í handknattleik og ísknattleiks. Ég
hef aldrei séð skrifað um leiki í ann-
arri deild handboltans, stundum eitt-
hvað um ísknattleik en það mætti
vera meira. Um síðustu helgi var
haldið unglingamót á skautasvellinu
í Laugardal, ekkert var fjallað um
það á íþróttasíðunum en ein mynd
inni í blaðinu og texti undir sem
ekki bendir til þess að meira verði
fjallað um þetta mót.
Morgunblaðið mætti taka DV sér
til fyrirmyndar og fjalla meira um
íþróttir barna og unglinga og þær
íþróttir sem stundaðar eru hér á landi
en hætta að eltast við óskir vina eða
duttlunga íþróttafréttamanna.
Ef það er stefna blaðsins að verða
við óskum fámennra þrýstihópa þá
vil ég fyrir mína hönd og margra
félaga minna biðja um að fjallað
verði um göfugar íþróttir eins og
krikket og póló svo ég minnist nú
ekki á rugby.
SIGURÐUR JÓNSSON,
Hörgshlíð 16, Reykjavík.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fjölda fyrirspurna
varðandi Internet-tengingu við
Morgunblaðið, skal eftirfarandi
áréttað:
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upplýs-
ingar um blaðið, s.s netföng starfs-
manna, upplýsingar um hvernig
skila á greinum til blaðsins og
helstu símanúmer.
Morgunblaðið á Internetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Internetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða með
því að tengjast heimasíðu biaðsins
og velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Internetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Internetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
fínna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir,
auglýsingar og myndir eins og
fram kemur á heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Internet
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik að
tengjast blaðinu. Einungis þarf að
slá inn þá slóð sem gefin er upp
hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar. Hægt
er að nota afkastaminni mótöld
með Gopher-forritinu.
Átak gegn umframþyngd, A-tími.
Átak gegn umframþyngd framh. B-tími.
- Átak gegn umframþynd, A - tími
8 vikna námskeið fyrir þá sem vilja
losna við aukakílóin. Tilvalið fyrir
byrjendur af báðum kynjum. Lokaður
hópur.
- Námskeiðið hefst 6. mars. og er
skráning þegar hafin. Takmarkaður
fjöldi.
- Átak gegn umframþyngd framhald,
B - tími, nýtt 8 vikna námskeið fyrir þá
sem þegar hafa lokið námskeiði A, og
aðra sem komnir eru í einhverja
æfingu en vilja gott aðhald.
Lokaður hópur.
- Námskeiðið hefst 7. mar. og skrán-
ing þegar hafin. Takmarkaður fjöldi.
verð 10.990,-
Þeir sem missa 8 kíló eða meira
fá frítt mánaðarkort
Morguntímar
Frí barnapössun
TÆK)ASAIUR • ÞOLFIMI • LJÓSABEKKIR
FROSTASKJÓLI 6 • SÍMI: 551 2815 OG 551 2355