Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 11

Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁRNI Þór Sigurðsson, formaður Dagvistar barna, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Guðjón Ólafur Jónsson, sljórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta, og Dagur B. Eggertsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Islands. Reykjavíkurborg, Félagsstofnun stúdenta og Stúdentaráð Háskóla íslands Heilsdagsrýmum fjölgað fyrir börn stúdenta REYKJAVIKURBORG, Félags- stofnun stúdenta og Stúdentaráð Háskóla íslands hafa undirritað samkomulag um rekstur leikskóla fyrir böm stúdenta. Jafnframt hafa sömu aðilar undirritað samning um byggingu leikskóla á stúdentagarði við Eggertsgötu 34. Gert er ráð fyrir að heilsdagsrýmum fyrir börn stúdenta fjölgi úr 180 í 230. Þar af verða allt að 30 rými ætluð börn- um á aldrinum eins til tveggja ára. Rekstur í höndum Dagvistar barna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri undirritaði samkomu- lagið fyrir hönd borgarinnar með fyrirvara um samþykki borgarráðs. Dagvist barna mun sjá um rekstur leikskólans við Efrihlíð v/Stigahlíð, sem er eign Félagsstofnunar stúd- enta. Ennfremur rekstur leikskól- anna við Eggertsgötu 12 og Egg- ertsgötu 34 sem verður sameiginleg eign Félagsstofnunar og borgarinn- ar. Mun borgin greiða kostnað við leikskólann og þær breytingar á byggingunni sem hann hefur í för með sér. Fram kemur að Félags- stofnun stúdenta leggur fram lóð auk 10 milljónatil framkvæmdanna við Eggertsgötu 34. Til umráða fyrir börn stúdenta í Háskóla íslands verða ígildi 230 heilsdagsrýma þar með talin öll rými í Efrihlíð og hlutdeild Félags- stofnunar í leikskólunum við Egg- ertsgötu 12 og 34. Gert er ráð fyr- ir að hagsmunanefnd stúdentaráðs hafi tillögurétt um úthlutun dag- vistunarrýma og er nefndinni heim- ilt að gera ráð fyrir vistun allt að 30 barna á aldrinum eins til tveggja ára. Aðallega á leikskólann við Eggertsgötu 34. Börn stúdenta skulu njóta forgangs á heimilin við Eggertsgötu. Sveitarfélög greiði fyrir börn af landsbyggðinni Fram kemur að heilsdagsrýmin 230 geti skipst niður á fleiri börn þegar um er að ræða vistun hluta úr degi. Um einstætt foreldri við nám í háskólanum gilda almennar úthlutunarreglur og reiknast þeirra rými ekki með dagvistunarrýmum stúdenta. Þá er gert ráð fyrir að vistuð verði böm háskólanema með lögheimili í Reykjavík og þeirra með lögheimili á landsbyggðinni að því tilskildu að viðkomandi sveitarfélag taki á sig rekstrarkostnað eins og Dagvist barna gerir vegna reyk- vískra barna. Um vistgjöld gitda almennar reglur sem eru í gildi hjá rekstraraðila en áfram verður sér- stakur lægri gjaldflokkur fyrir börn námsmanna. Loks er lýst yfir vilja til að greiða fyrir sveigjanleika á þeim árstíma þegar próf eru við háskólann. Frumsýning : laugardag 4. mars 2. sýning : sunnudag 5. mars Höfundur: Leena Lander Þýðandi: Hjörtur Pálsson Leikgerd: Páll Baldvin Baldvinsson Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Búningar: Stefanía Adolfsdóttir Lýsing: Lárus Björnsson Dansahöfundur: Nanna Ólafsdóttir Sýningarstjóri: Ingibjörg Bjarnadóttir Leikstjóri: Eija-Elina Bergholm Leikarar: Ari Matthíasson, Benedikt Erlingsson, Eyjólfur Kári Friðjónsson, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Jón Hjartarson, Jakob Þór Einarsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Magnús Jónssonj Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður Karlsson, Stefán Sturla Sigurjónsson, Steinunn Ólafsdóttir, Theodór Júlíusson, Þröstur Leó Gunnarsson Leikfélag Reykjavíkur Borgarleikhús Sími: 680 680 Fyrsta vél- skóflustunga INGIBJÖRG Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri tók á mánudag fyrstu skóflustungu að fjögurra deilda leikskóla við Lau- frima 9. Hann mun rúma 80 börn og eru áætluð verklok bygging- arinnar 22. febr- úar 1996. Gert er ráð fyrir bygging- arkostnaði upp á 97 miiyónir fyrir fullfrágengið hús og frágenginni lóð. Stefnt er að því að ljúka jarð- vinnu um miðjan mars og verða til- boð í framkvæmd- ir og fullnaðarfrá- gang lóðaropnuð 23. mars. Arkitekt bússins er Albína Thordarson. Andlát SIGFUS ORN SIGFÚSSON SIGFÚS Örn Sigfús- son verkfræðingur lést í umferðarslysi í Mary- land-fylki í Bandaríkj- unum aðfaranótt mánudags. Slysið mun hafa orðið vegna hálku og lentu í því 22 bílar. 9 manns slösuðust en Sigfús var sá eini sem lést. Sigfús fæddist 5. janúar 1932 í Reykja- vík. Hann lauk fyrri- hlutaprófi í verkfræði frá Háskóla íslands 1955 og prófi í bygg- ingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1958. Sigfús hefur í tæp 20 ár búið vestanhafs og starfað fyrir Alþjóða- bankann í Washington. Hann var áður yfirmað- ur áætlanagerðar Vega- gerðar ríkisins. Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er Margrét Jensdóttir. Hann lætur auk þess eftir sig aldr- aða móður, uppkomna dóttur og tvo uppkomna stjúpsyni. 6 vikurá Benidorm frá kr. 54.630* Verðfrákr. 68560 m.v. 2 í íbúð. Century Vislamar, 23. aprfl. Frábær aöbúnaöur: Móttaka, veitingastaður, bar, sjónvarp, sími, sundlaug og garður. HEIMSFERÐIR Austursti-æti 17,2. hæð. Sími 624600. m.v. hjón með 2 böm. Verðírakr. 54.630 Ótrúlegt kynningartilboð Heimsferða í fyrstu sumarbrottförina, 23. apríl. Njóttu vorsins á Benidorm við frábæran aðbúnað og tryggðu þér þetta ótrúlega verð með því að bóka fyrir 10. mars. Við bjóðum glæsilegan gististað, Century Vistamar með afbragðs aðstöðu. 23. apríl - l.júní

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.