Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 13

Morgunblaðið - 01.03.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 13 AKUREYRI Lærði gluggaútstillingar í Danmörku Verslanir selja út á fallega glugga HELGA María Símonardóttir er nýkomin heim frá Viborg í Dan- mörku þar sem hún var við nám í gluggaútstillingum í skólanum Leensbak Dekoratorskole, en skól- inn sérhæfir sig í gluggaútstilling- um. Námið tekur hálft ár. „Mig hefur langað til að læra þetta frá því ég var 17 ára,“ sagði Helga María, en hún ætlaði upp- haflega í slíkan skóla í Kaup- mannahöfn en búið var að leggja hann niður. Námið skiptist í tvær annir, á þeirri fyrri læra nemarnir að mála, blanda saman litum, skera út myndir, teikna og skrifa á skilti svo eitthvað sé nefnt en síðari hluti námsins er helgaður útstillingum í verslunarglugga. Alls eru 16 nemar í einu í skólnum og eru þeir nokkuð sjálfstæðir í náminu. Þeir eru mikið á ferðinni um bæinn og stilla út í glugga verslana þar, en fyrst þarf að teikna gluggann upp og fá samþykki kennarans. Náminu lýkur með prófi sem tekur eina viku, nemendur draga um verkefni sem þeir eiga að leysa á þeim tíma. Verkefni Helgu Maríu var stilla út í glugga dömufatnaði. Blóma- og borðskreytingar Skólinn í Viborg er einkaskóli og námið því töluvert dýrt að sögn Helgu Maríu, en hún notaði tímann vel og lærði auk gluggaútstilling- anna blómaskreytingar og borð- skreytingar, þ.e. að leggja á borð og sjá um skreytingar fyrir stærri veislur. „Mig langar helst að starfa hér á Akureyri og vona að ég fái eitt- BRUNAHJOL ! | ^ NOHA \ \ - Lengdir 25 og 30 Mtr. Brunaslöngur á hjóli og i skáp. Heildsala - smásala ^ VATNSVIRKINN HF ÁRMÚLA21 S:568-6455 Sjábu hlutina í víbara samhengi! -kjarni málsins! hvað að gera. Það þykir sannað mál að það selst mikið út á fallega glugga,“ sagði hún. „Mig langaði mjög mikið að læra þetta og ákvað því að fara út þó svo ég vissi að erfítt gæti verið að fá vinnu.“ Verslunarglugga á Akureyri sagði hún afar misjafna, sumar verslanir legðu mikið upp úr gluggaútstillingum en aðrar ekki. M.a. væri í tísku varðandi útstill- ingar um þessár mundir að lífga upp á gluggann með ávöxtum, greni eða gömlum húsgögnum svo dæmi væru nefnd. HJOLATJAKKAR HVERGI BETRA VERÐ! CML hjólatjakkarnir eru úrvalsvara á fínu verði. Þeir eru á einföldum eða tvöföldum mjúkum hjólum, sem ekki skaða gólf. Verð frá kr. 35.990 N/ Hringás hf. Smiðjuvegi 4a, s. 567 7878. Morgunblaðið/Rúnar Þór HELGA María Símonardóttir er nýkomin heim frá Danmörku þar sem hún lærði gluggaútstillingar. Náttúruverndarár Evrópu 1995 Hvað er atvinnulífíð að gera í umhverfismálum? Sjálfbær þróun í atvinnurekstri og góð sambúð við umhverfíð Ráðstefna á Hótel Sögu, 7. mars 1995 Dagskrá 11:30 Innritun. 12:00 Hádegisverður í Átthagasal. 13:00 Ávarp og setning, Össur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra. 13:10 Góð umhverfisstefna er góð viðskiptastefna, Laurens J. Brinkhorst, þingmaður á Evrópuþinginu og fyrrverandi yfimiaður umhverfismála framkvæmdastjómar ESB í Brussel. Ársalur w * 13:40 Atvinnulífið og umhverfismál - stefnumótun VSI, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. 13:55 Stefnumótun fyrirtœkja í umhverfismálum, Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Sólar hf. 14:10 Bœtt nýting hráefnis; meðhöndlun fljótandi úrgangs frá fiskvinnslu, Hafsteinn Helgason, lektor við verkfræðideild Háskóla íslands. 14:25 Sambúð fyrirtækis og umhverfis, Tómas Möller, framkvæmdastjóri markaðssviðs Olíuverslunar íslands hf. 14:40 í sátt við umhverfið, Geir Þórðarson, formaður Umhverfisfélags íslandsbanka. 15:00 Kaffihlé. 15:20 Hreinni framleiðslutœkni og nútíma stjórnunarhœttir, Guðjón Jónsson, deildarstjóri umhverfisdeildar Iðntæknistofnunar íslands. 15:35 Frá orðum til athafna, Bjami Snæbjöm Jónsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Skeljungs hf. 15:50 Stefna ÍSAL í umhverfismálum, Rannveig Rist, steypuskálastjóri íslenska álfélagsins hf. 16:15 Yfirlit og lokaorð, Árni Mathiesen, alþingismaður. 16:30 Móttaka í boði umhverfisráðherra í Skála. Ráðstefnustjóri Óskar Maríusson, efnaverkfræðingur, VSÍ. Ráðstefnugjald er krónur 2.500. lnnifalið í verðinu er hádegisverður, kaffi og fundargögn.Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir kl. 12:00, mánudaginn 6. mars nk. til KOM hf. í síma 562 2411 eða með faxi 562 3411. Skipuleggjendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskrá vegna ófyrirsjáanlegra atvika. Umhverfísráðuneytið ISLANDSBANKI II Skeljungur hf. Shell einkaumboö Umsjón og skipulag KOM hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.