Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMNINGAR UM
VOR í ÞJÓÐARBÚ-
SKAPNUM
ÞAÐ ER VOR í lofti í íslenzkum þjóðarbúskap. Þrátt fyrir
efnahagslægð og aflasamdrátt mörg undanfarin ár býr
þjóðin við stöðugleika og byrjandi hagvöxt, sem mikilvægt er
að festa í sessi. Enginn vafi er á því að sá árangur, sem náðst
hefur að þessu leyti við erfiðar aðstæður, á fyrst og fremst
rætur að rekja til þjóðarsáttarsamninganna, er gerðir voru
árið 1990, og þeirrar samstöðu aðila vinnumarkaðarins og
stjórnvalda sem tekizt hefur að varðveita síðan. Þeir samning-
ar sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði nýverið sýna
og ótvírætt, að aðilar hafa lagt sig fram um að raska sem
minnst stöðugleikanum í samfélaginu.
Efnahagslægðin og viðbrögðin, sem óhjákvæmileg voru,
þrengdu kosti þjóðarinnar. Ríkisbúskapurinn hefur verið rekinn
með óheyrilegum halla um langt árabil. Fjárhagsstaða sveitar-
félaga hefur og versnað umtalsvert, sérstaklega hin síðari
árin. En verst Iék kreppan láglaunafólkið í landinu, sem sætti
rýrðum kaupmætti, minnkandi yfirvinnu og vaxandi atvinnu-
leysi. Það var því ekki óeðlilegt að nokkurs óþols gætti á þeim
vettvangi, eftir bættum hag, þegar byrjandi bati sagði til sín
í samfélaginu.
Verkamannafélagið Dagsbrún samþykkti nýgerða kjara-
samninga með naumum meirihluta á félagsfundi í fyrradag,
290 atkvæðum gegn 252. Það, hve mjótt var á munum, verð-
ur að skoða í ljósi þrenginga í samfélaginu í heild - en þó
- fyrst og fremst á láglaunaheimilum. Af þeim sökum var for-
ysta verkalýðshreyfingarinnar í erfiðri stöðu. Ekki sízt forysta
hinna stóru og sterku félaga, eins og Dagsbrúnar. Annars
vegar varð að taka tillit til vaxandi þrýstings um kjarabætur.
Hins vegar til mikilvægis þess að varðveita stöðugleikann í
.efnahagslífinu sem forsendu hagvaxtar og fjölgunar starfa.
Ekki verður annað sagt en að forysta Dagsbrúnar og annarra
ASI-félaga hafa staðið að þessu málum af ábyrgð og festu,
bæði gagnvart umbjóðendum sínum og samfélaginu í heild.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, var
einn af þremur höfundum þjóðarsáttarinnar í febrúar 1990.
Fáir, ef nokkrir, verkalýðsforingjar hafa verið í jafn erfiðri
stöðu og hann á vettvangi síns félags. Naumur meirihluti með
samningunum sýnir, að formaður Dagsbrúnar hefur metið
rétt, hve erfið staða félagsmanna hans væri og í því ljósi ber
að skoða yfirlýsingar hans síðustu vikur fyrir samkomulagið.
Guðmundur J. Guðmundsson á virðingu skilið fyrir hlut hans
að kjarasamningum frá ársbyijun 1990.
ÚRELT VINNUBRÖGÐ
AVIÐSKIPTASÍÐU Morgunblaðsins í gær var sagt frá
skýrslu sem Þóroddur Th. SigurðsSon verkfræðingur
hefur unnið fyrir Aflvaka Reykjavíkur. í skýrslunni er gagn-
rýnt hvernig staðið hefur verið að því að laða orkufrekan iðn-
að til Iandsins. Tvennt sé einkum orsökin fyrir slælegum ár-
angri í þeim efnum, of mikil pólitísk afskipti og of litlar mark-
aðsrannsóknir.
í skýrslunni er Iagt til að Markaðsskrifstofa iðnaðarráðu-
neytisins og Landsvirkjunar (MIL) verði efld til þess að auka
megi markaðsrannsóknir. Byggja þurfi upp góðan gagnabanka
og hefja markaðstengda leit að líklegum fjárfestum. Um núver-
andi aðstæður skrifstofunnar segir hins vegar í skýrslunni:
„Starfsmenn MIL eru nú aðeins tveir auk ritara en yfir henni
eru fimm pólitískt skipaðir stjórnarmenn, sem vart eru þess
megnugir að leggja mikið til málanna ef nauðsynlegar grunn-
upplýsingar eru af skornum skammti."
Það er vafalaust álitamál, hvort efla á Markaðsskrifstofuna
eða leita annarra leiða en vandamálið, sem hér er bent á, er
raunar ekki nýtt af nálinni. Pólitísk afskipti annars vegar og
skortur á rannsóknum hins vegar eru að minnsta kosti hluti
skýringar þess hvernig fór fyrir sumum þeim nýju atvinnu-
greinum, sem hér voru bundnar vonir við, til dæmis loðdýra-
rækt og fiskeldi. Oftrú á pólitískar lausnir og takmarkað tillit
til lögmála markaðarins og framtíðarhorfa komu þessum grein-
um, sem hefðu getað orðið vænlegir vaxtarbroddar, ef rétt
hefði verið á haldið, í ógöngur.
Nú ættu menn hins vegar að hafa lært af reynslunni og
áttað sig á því að gömlu vinnubrögðin eru úrelt. Þörf er á að
taka upp nýja starfshætti í leit að erlendri fjárfestingu og
leggja aukna áherzlu á rannsóknir, bæði til þess að finna
vænlega erlenda fjárfesta og til að geta veitt þeim sem beztar
upplýsingar um aðstæður hér á landi, markaðshorfur og fleira
af því taginu. Slík vinna er auðvitað fyrst og fremst verkefni
fagmanna. Stjórnmálamennirnir koma svo til sögu, þegar taka
þarf ákvarðanir á grundvelli vinnu þeirra.
NORRÆNT MENNINGAR- OG FRÆÐ
SAMSTARF er nauðsynlegt hvort sem er á milli einsta
Islenskt skólast
góðs af norrænu
Norræna ráðherranefndin ghefur veitt fé
til ýmissa verkefna svo sem hlustunarefnis
í dönsku fyrir grunnskólanema, bókmennta-
verkefna og kennsluefnis í landafræði á
myndböndum auk ýmissa samskiptaverk-
efna í grunn- og framhaldsskólum.
FYRSTA sérhannaða náms-
efnið til þjálfunar í hlustun
á dönsku fyrir íslenska
grunnskólanemendur er
að sjá dagsins ljós þessa dagana,
þrátt fyrir að danska hafi verið
skyldufag í nokkra áratugi. Efnið
er allt unnið að af íslenskum kenn-
urum, en um er að ræða sex hlust-
unarspólur og þijú verkefnahefti.
Fjöldi annars nýs kennsluefnis er
einnig að koma á markað, meðal
annars bókmennta-, menningar- og
samskiptaverkefni, svo og kennslu-
efni í landafræði á myndböndum.
Norræna ráðherra- __________
nefndin hefur veitt fé til
allra verkefnanna sem
falla undir svokallaða
Nordmál-áætlun, en það
er fimm ára áætlun
nefndarinnar um aukin
samskipti milli Norður-
landa.
Biynhildur Ragnars-
dóttir kennsluráðgjafi og
starfsmaður Norðurlandaráðs bend-
ir á að íslenskt skólastarf njóti mjög
svo góðs af norrænu samstarfi.
„Við fáum meðal annars
kennslubækur á móðurmáli sem eru
unnar í samvinnu við móðurmáls-
kennara á Norðurlöndum, samnorr-
æn endurmenntunarnámskeið
kennara auk alls kyns námskeiða-
halds og styrkja sem kennarar geta
sótt um,“ segir hún.
Lifandi menningarmiðlun
Menningarmálaráðherra Norður-
Þetta er í
fyrsta sinn
sem útbúið er
sérhannað
hlustunarefni í
dönsku fyrir
grunnskóla.
landanna hafa einnig styrkt norræn
skólaverkefni eins og þemalýsingar
fyrir nemendur í grunnskólum og
lifandi menningarmiðlun í mennta-
skólum í tengslum við þá klúbba-
starfsemi sem þar fer fram. „Lif-
andi menningarmiðlun er enn á
hugmyndastigi en getur orðið
skemmtilegt verkefni, þar sem
tungumálið er tæki í samskiptum
en ekki markmið," segir Brynhildur.
„Tökum sem dæmi skóla þar sem
kvikmynda- eða myndbandsklúbbar
eru starfræktir. Þar yrði hægt að
fá fagmann frá einhveiju Norður-
------- landanna til þess að vinna
með nemendum í viku og
leiðbeina þeim. Með
þessu móti er hægt að
tengja tungumálið við
það sem nemendur eru
að fást við.“
Að þemalýsingunum
stendur hópur reyndra
kennara sem þekkja vel
til aðstæðna í íslenskum
skólum og viðkomandi löndum. Við-
fangsefnin eru fjölbreytt og henta
vel sem smærri verkefni einstakl-
inga og fámennra hópa eða til
þemavinnu í heilum bekkjum eða
skólum.
Markhópurinn er nemendur
grunnskóla en sum verkefni geta
einnig hentað í framhaldsskóla, en
verkefnunum er skipt í þijú þyngd-
arstig. Gengið er út frá því efni sem
er til á skóla- og almenningsbóka-
söfnum, á tölvudisklingum og í
gagnabönkum. Jafnframt er ýtt
BRYNHILDUR Ragnarsdóttir k
Norðurlandaráðs segir að verkef
starf fari vaxandi i
Stuðlað1
SÖgU- (
NORDLIV, fortíð - nútíð - fram-
tíð - er sameiginlegt verkefni
Norrænu félaganna fjármagnað
af Norrænu ráðherranefndinni.
Verkefninu er ætlað er að stuðla
að samnorrænni sögu- og menn-
ingarvitund og skiptist í fimm
meginþætti, grasrótar- og vina-
bæjasamstarf, skóla- og fræðslu-
verkefni, söfn og menningar-
stofnanir, sagnfræði á háskóla-
stigi og fjölmiðla. Hugmyndin er
komin frá Finnum, sem óttuðust
að þegar flestar Norðurlanda-
þjóðanna væru gengnar í eða
væru að huga að inngöngu í