Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 01.03.1995, Qupperneq 56
K N__G L*TT* alltaf á Miðvikudögnm MORGUNBLADID, IPUNGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 86 MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Hulda Ásgeirsdóttir Sameinaðir verk- takar greiða 200 milljónir kr. í arð AÐALFUNDUR Sameinaðra verk- taka hf. samþykkti á mánudag að greiða 10% arð af markaðsvirði hlutabréfa miðað við gengið 7,2 eða sem nemur tæplega 200 milljónum króna. Bókfært hlutafé fyrirtækisins er 310 milljónir en arðgreiðslan miðast við 2.232 milljónir. Þar af á fyrirtæk- ið sjálft um 7% hlutafjárins. Þetta er svipuð arðgreiðsla og samþykkt var að greiða út á aðalfundi félags- ins á síðasta ári. A fundinum var skýrt frá því að bókfærður hagnaður félagsins nam alls um 100 milljónum króna á sl. ári samanborið við 64 milljónir árið áður. Þar er meðtalin hlutdeild í afkomu íslenskra aðalverktaka og Dverghamra sf. Félagið á um 32% hlut í íslenskum aðalverktökum. Að sögn Bergs Haraldssonar, stjórnarformanns, var mikil umræða á aðalfundinum um stöðu og fram- tíð félagsins. Samþykkt var að fresta fundinum um óákveðinn tíma þegar kom að kjöri stjómar. Hana skipa nú auk Bergs, þeir Jakob Bjamason, Bjami Thors, Páll Gústafsson og Jón Halldórsson. Ránið á peningum olíufélagsins Skeljungs Engar handtökur RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins verst allra frétta af gangi rann- sóknar á miljjónaráninu sem framið var við dyr íslandsbanka í Lækjar- götu í fyrradag þegar þrír menn komust undan með rúmlega 5,2 milljónir króna. Enginn ákveðinn var í gær grunaður um verknaðinn. Fjölmargir rannsóknarlögreglu- menn vinna að rannsókninni, sem er alfarið í höndum RLR. Þó mun fíkniefnalögreglan líka vinna að málinu, samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins, og reyna að nýta sambönd sín til að afla um það upplýsinga. Enginn hafði þó verið handtekinn eða færður til yfirheyrslu vegna gruns um aðild að málinu sam- kvæmt upplýsingum blaðsins. ■ Fyrirspumum/4 Nomin og prinsessan ÖSKUDAGUR er miðvikudagur í 7. viku fyrir páska. Þá hefst langafasta og stendur allt til páskadags. Dagsheitið er dregið af því að þá var ösku dreift yfir höfuð iðrandi kirkjugesta í kat- ólskum sið. Þetta segir í Sögu daganna eftir Ama Björnsson um öskudaginn. Bömin gera sér margt til tilbreytingar á þessum degi og reyna að koma öskupok- um á aðra og einnig er orðinn siður að þau gangi um í grímu- búningum á þessum degi og slái köttinn úr tunnunni. Systumar á myndinni, Sonja Huld, 7 ára, og Eva Sigrún, 5 ára, Guðjónsdæt- ur, völdu sér ólík gervi, nornina með gandinn og prinsessuna prúðbúnu. Frestur til að sækja um rekstur bílasölu runninn út Aðeins örfáar um- sóknir hafa borizt MIKILL misbrestur er á því að forsvarsmenn starfandi bílasala á land- inu hafi sótt um áframhaldandi starfsleyfi til viðkomandi sýslumanna, en frestur til þess rennur út um þessi mánaðamót. Fulltrúi sýslumanns á Akureyri býst við því að loka þurfí bílasölum um mánaðamótin, en í dag taka gildi ný lög um sölu á notuðum bílum. í Reykjavík hafði verið sótt um leyfi fyrir 13 bílasölur en þær eru um 32 í borginni. Enginn hafði sótt um leyfi á sýslumannsskrifstofunni á Egilsstöðum. Á landinu er áætlað að séu um 60 bílasölur, þar með talin bílaumboð- in, en meðal þeirra 13 sem hafa sótt um leyfi í Reykjavík eru öll bif- reiðaumboðin sem selja notaða bíla. w w Onnur loðnugang’a við Hrolllaugseyjar SVANUR RE fann í gær loðnu við Hrolllaugseyjar og var í gærkvöldi á leið til hafnar með 730-740 tonn. IJitt annað skip var búið að fylla sig og nokkur voru á leið á miðin. Gunnar Gunnarsson, skipstjóri á Svani, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að engin áta væri í loðnunni. Hún væri frekar smá, 55-60 stykki í kílóinu, en hann taldi að hún færi engu að síður í frystingu. Gunnar sagðist hafa kastað ' klukkan fjögur í gærdag og hann hefði fyllt skipið í tveimur köstum. Þá sagði hann að Jóna Eðvalds frá Höfn hefði fyllt sig í einu kasti og væri á leið til hafnar og að nokkur skip væru á leið á miðin og yrðu komin þangað. um miðnætti. Hann sagðist ekki vita hversu mikið magn væri þarna, nóg hefði verið að sjá, en loðnan væri brellinn fiskur og í gærmorgun hefði til dæmis ekki sést neitt. Botninn virðist dottinn úr loðnu- frystingu á þessari vertíð. Hún nem- ur nú 16 til 18 þúsund tonnum, sem er nokkru minna en í fyrra og allt að helmingi minna en samið hafði verið um sölu á til Japans. Áætlað verðmæti framleiðslunnar er nálægt 1,5 milljörðum króna en var um 2,2 milljarðar á síðasta ári. Þá fóru utan um 18.200 tonn. Síðan þá hefur verðið Iækkað um 10 til 20% eftir stærðarflokkum, en loðnan er einnig smærri nú. ■ Aðeins fryst upp í/Cl Lög voru sett á Alþingi í maí sl. um sölu notaðra ökutækja þar sem sérstaklega var tekið á starfi bíla- salans. í lögunum var þeim sem við gildistöku þeirra unnu við sölu not- aðra ökutækja gefmn sex mánaða aðlögunartími til að sækja um leyfi til sýslumanns og níu mánuðum frá gildistöku laganna er með öllu óheimilt að stunda sölu notaðra ökutækja i atvinnuskyni án leyfis. Áður en hægt er að sækja um leyf- ið þarf að uppfylla ákveðin skilyrði sem m.a. snerta tryggingar, aldur, eigin fjárhagsstöðu og námskeið og próf á vegum Fræðslumiðstöðvar bílgreina. Jón Garðar Hreiðarsson, fram- kvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar bílgreina, sem annaðist námskeiða- hald fyrir bílasala, sagði að um 30% fall hefði orðið í námskeiðunum. „Lögunum samkvæmt eiga þeir að hafa leyfi og það er lögregluemb- ætta víðsvegar að fylgja því eftir eins og öðrum lögum. Þetta kemur mér ekkert á óvart. Ég vissi að margir höfðu ekki sótt um og sum- ir þurftu nánast að ýta við sýslu- mönnum með fyrirspurnum," sagði Jón Garðar. Hann segir að leyfísveiting sýslu- manns tryggi það að viðkomandi bílasali hafi ábyrgðartryggingu sem Iryggir viðskiptavinum skaða sem bílasali er valdur að. Borgarplast Veltajókst VELTA Borgarplasts hf. jókst á síðasta ári um 70% frá árinu 1993 og var á síðasta ári um 230 milljón- ir króna. Að sögn framkvæmdastjórans, Guðna Þórðarsonar, munar mest um stóraukna sölu fiskikara en söluaukning varð einnig í öðrum vöruflokkum. Sala innanlands var um 70% heildarinnar og útflutning- ur um 30% og jókst hann um 120% á árinu. Mikil áhersla er lögð á vöruþróun, gæði og hagræðingu í rekstri og var um 7% af veltu árs- ins varið til þeirra mála. ■ Borgarplast tvöfaldar/C8 -------*-♦-*--- Hundahald í Reykjavík Gjaldskrá lækkuð um 12% HEILBRIGÐISNEFND Reykjavík- ur hefur lagt til við borgarstjórn að gjaldskrá fyrir hundahald í borg- inni verði lækkuð um 12%. Erindið var lagt fyrir borgarráð og var því vísað til afgreiðslu í borg- arstjórn. Lagt er til að gjaldskráin verði lækkuð úr 9.600 krónum í 8.500 krónur eða um 12%. Jafn- framt er gert ráð fyrir að endur- skoðun, sem nú stendur yfir á sam- þykkt um hundahald í borginni verði lokið eigi síðar en 1. nóvem- ber 1995.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.