Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsti bústaðurinn af 18 afhentur fórnarlömbum flóðsins í Súðavík
„ Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GLÆSILEG hús á Bústaðavegi í Súðavík. A innfelldu myndinni taka hjónin Björg Hansdóttir og Frosti Gunnarsson ásamt börnum
sínum, Elmu Dögg og Gunnari, við Iyklum að nýju heimili úr höndum Guðmundar Gunnarssonar formanns Rafiðnaðarsambands íslands.
„Hjálpar okkur
að sofa óttalaus“
Súðavik. Morgunblaðið.
FYRSTA bráðabirgðahúsið af átj-
án fyrir íbúa Súðavíkur var afhent
í gær. Samkvæmt upplýsingum
frá hreppsskrifstofunni er nú ver-
ið að ganga frá rafmagni, síma,
skólpleiðslum og öðru því sem
þarf til að bústaðirnir allir verði
íbúðarhæfir og miðað við fram-
kvæmdahraða, standa vonir til að
allir íbúarnir, um 67 manns, geti
flutt inn á laugardag. Nýja sum-
arbústaðabyggðin gengur nú und-
ir nafninu Bústaðavegur.
Guðmundur Gunnarsson for-
maður Rafiðnaðarsambands ís-
lands afhenti Frosta Gunnarssyni
og fjölskyldu hans lykla að bú-
staðnum, en þau misstu hús sitt í
snjóflóðinu í Súðavik 16. janúar
sl. Guðmundur óskaði nýju íbúun-
um velfarnaðar í húsinu og lofaði
aðstoð sambandsins í hvívetna,
þyrfti fjölskyldan einhveija að-
stoð vegna nýrra vistarvera. „Það
hefur geysimikla þýðingu fyrir
okkur að fá þak yfir höfuðið að
nýju og alveg ómetanlegt að kom-
ast i húsnæði sem við getum kall-
að okkar eigið,“ sagði Frosti í
samtali við Morgunblaðið. Súða-
víkurhreppur hefur boðið ýmsum
félagasamtökum að kaupa bústað-
ina átján og lána íbúum Súðavíkur
þá endurgjaldslaust til 1. júní á
næsta ári, þegar þeir eiga af hafa
fundið sér framtíðarhíbýli. Raf-
iðnaðarsambandið samþykkti
fyrst féiaga þessa málaleitan.
„Við höfum hangið í lausu lofti
og ekki áttað okkur á tilverunni
ennþá, lifað á vinum og ættingjum,
en nú höfum við fastan punkt i
til verunni og getum reynt að lifa
lífinu eðlilega að nýju,“ sagði
Björg Hansdóttir, kona Frosta.
„Bústaðurinn er 60 fermetrar að
stærð og því minna en húsið sem
við misstum, en það er ekkert
verra að byija smátt á meðan við
Súðvíkingar erum að sameinast
aftur og eignast búslóðir á nýjan
leik. Við þurfum að kaupa allt
niður í diska upp á nýtt, og því
er þetta eins og að hefja búskap
aftur, 22 árum síðar. Þetta er sér-
staklega skrýtin tilfinning.“
Fjölskyldan ætlar að flytja inn
í dag og Ijúka því starfí á morg-
un, laugardag. Frosti segir Súð-
vikinga bíða og vona að hús þeirra
sem enn standa uppi og eru á
hættusvæði, verði keypt af Ofan-
flóðasjóði eða öðrum opinberum
aðilum. Þeir sem hafa verið hús-
næðislausir síðan flóðið féll, hafa
flestir búið annaðhvort í verbúð
sem stendur innan við bæinn eða
á Isafirði, en þegar veður hefur
versnað hafa íbúar kauptúnsins
gjarnan kosið að leita skjóls i
grunnskólanum. „Ekki má gera
vind, þá er fólk farið úr húsum
sinum. Hræðslan á orðið svo sterk
ítök í fólki. Bústaðirnir munu
hjálpa okkur og öðrum þeim sem
misstu hús sin eða eiga hús á
hættusvæði, til að sofa óttalaus
því að þeir standa á öruggu svæði.
Lífíð fellur fyrr í fastar skorður,"
segir Frosti.
Efnt hefur verið til samkeppni
á meðal arkitekta um deiliskipu-
lag á nýju byggingarlandi á
Eyrardalssvæði austan við barna-
skóla Súðavíkur. Jón Gauti Jóns-
son sveitarstjóri í Súðvík kveðst
telja tilkomu bústaðanna átján
lykilþátt við endurreisn mannlifs
í Súðavík. Lögð verði áhersla á
að fólk sem missti aleigu sína í
flóðinu geti hafið byggingafram-
kvæmdir i sumar.
Framkvæmdir eftir 1. maí
„Við vonum að þeim fram-
kvæmdum geti lokið fyrir 1. júni
á næsta ári og ég heyri það á
þeim sem ég hef rætt við, að fólk
hyggst koma upp fokheldu húsi
fyrir haustið. Samkeppninni lýkur
14. mars nk. og þá hefur dóm-
nefndin viku eða tiu daga til að
velja eina lausn og þá gerum við
ráð fyrir að viðkomandi aðili og
verkfræðistofa hefji fullhönnun,
þannig að áætlanir okkar um að
hefja framkvæmdir 1. maí stand-
ist,“ segir Jón. Hann segir að nýtt
deiliskipulag og gerð hættumats
sé grundvöllur samkomulags við
Ofanflóðasjóð um þátttöku í
kostnaði við framkvæmdir. Trú
manna sé að stærsti hluti Súðavík-
ur standi á hættusvæði, enda hafi
stór hluti kauptúnsins staðið á
hættusvæði og flóðið í janúar fall-
ið utan þess, á svæði sem talið var
iqjög öruggt.
Þjófar
sækja í
geymslur
í blokkum
INNBROT í geymslur fjölbýlis-
húsa hafa verið tíð undanfarið
og hafa fjölmarg’ir orðið fyrir
tjóni af þeim sökum.
í fyrrinótt var brotist inn í 6
geymslur í fjölbýlishúsi vð
Grandaveg. Engu virtist hafa
verið stolið að sögn lögreglu en
miklar skemmdir höfðu verið
unnar á lásum og dyraumbún-
aði.
I fyrrinótt var einnig brotist
inn í 6 geymslur í fjölbýlishúsi
við Súluhóla og þaðan var svip-
aða sögu að segja um aðkom-
una.
Forvamadeild lögreglunnar
og hverfalöggæslustöðvar í
Reykjavík hafa að sögn lagt
áherslu á að ná tali af forráða-
mönnum húsfélaga til að ráð-
leggja þeim um hvemig standa
skuli að öryggismálum til að
torvelda þjófum aðgang að
þeim verðmætum sem oft er
að fínna í geymslum fjölbýlis-
húsa og komast hjá þeim kostn-
aði sem oft hlýst af vitjunum
þjófa og skemmdarvarga í sam-
eignir í fjölbýlishúsum.
Skeljungsránið
Varðhald
staðfest
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
31 árs manni, sem RLR hefur
í haldi vegna gruns um aðild
að ráninu á peningum Skelj-
ungs í Lækjargötu á mánudag
í síðustu viku.
Maðurinn hefur, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins,
ekki gengist við neinni aðild að
ráninu.
Hann hefur hins vegar við
yfírheyrslur ekki getað gert
grein fyrir ferðum sínum-dag-
inn sem ránið var framið og
ekki skýrt frá því hvemig hann
komst yfír þær um það bil 700
þúsund krónur sem hann var
með í fórum sínum við handtöku
sl. fimmtudag.
Fjöldi rannsóknarlögreglu-
manna vinnur enn að rannsókn
ránsins en aðrir en gæslufang-
inn hafa ekki verið handteknir
eða yfírheyrðir vegna gruns um
aðild að því, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Vísitala neysluvöruverðs reiknuð út í fyrsta skipti samkvæmt nýsettum lögum
Lækkaði
um 0,2%
frá febrúar
Vísitala neysluverðs ímare 1995 (172,0)
Ferðir og flutningar (20,0)
Húsnæði, rafmagn og hiti (18,3)
Matvörur(16,1)
Tómstundaiðkun og menntun (11,8)
Húsgögn og heimilisbúnaður (6,6)
Föt og skófatnaður (5,9)
Drykkjarvörur og tóbak (4,4)
Heilsuvernd (2,8)
Aðrar vörur og þjónusta (14,1)
-0,6%
-0,3%
-0,4%
+0,3%
■ +0,1%
*°% Breyting
H+0,1% i ' í ;
0,0% frafyrri
■ +0,1% manuði
VISITALA NEYSLUVERÐS
-0,2% Tölurísvigumvísatil
’ vægis einstakra liða af 100.
HAGSTOFA íslands hefur reiknað
út vísitölu neysluverðs eftir verðlagi
í byijun mars og reyndist hún vera
0,2% lægri en í febrúar. Vísitala
neysluverðs tekur við af vísitölu
framfærslukostnaðar samkvæmt
nýjum lögum sem samþykkt voru
fyrir þinglok í vetur og er reiknuð
út með sama hætti og vísitala fram-
færslukostnaðar var áður reiknuð
út. Að auki fær þessi vísitala nýtt
hlutverk, þar sem verðtrygging fjár-
skuldbindinga mun miðast við vísi-
tölu neysluverðs og breytingar á
henni frá og með næstu mánaða-
mótum.
í frétt frá Hagstofunni segir að
breytingar á vörugjöldum hafí vald-
ið 1,2% lækkun á verði nýrra bif-
reiða sem hafí í för með sér 0,09%
lækkun á vísitölunni. Þá olli lækkun
bílatrygginga um 1,2% lækkun vísi-
tölunnar um 0,03% og auknar niður-
greiðslur á rafmagni til húsahitunar
lækkaði vísitöluna einnig um 0,03%.
Hins vegar olli hækkun innlendra
tímarita um 11,4% hækkun vísi-
tölunnar um 0,03%.
Vísitala neysluverðs í mars er því
172,0 stig og hefur hækkað um
1,4% síðustu tólf mánuði. Vísitala
neysluverðs án húsnæðis hefur hins
vegar hækkað minna síðastliðið ár
eða um 0,7%. Undanfama þijá
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 0,7% sem jafngildir
2,8% verðbólgu á heilu ári, en
þriggja mánaða breyting á vísitölu
neysluverðs án húsnæðis jafngildir
1,8% verðbólgu á heilu ári.
, Gamla lánskjaravísitalan breytist
nu I hlutfalli við breytingar á vísi-
tölu neysluverðs og lækkar því um
0,2% milli mánaðanna mars og apríl.
Lánskjaravísitalan 3.402 gilti þann-
ig í marsmánuði, en lánskjaravísital-
an 3.296 gildir í apríl næstkom-
andi. Lánskjaravísitala verður
áfram reiknuð út vegna eldri fjár-
skuldbindinga sem verðtryggðar
voru samkvæmt henni, en eins og
fyrr sagði munu breytingar á henni
miðast við breytingar á vísitölu
neysluverðs. Ef gamla lánskjaravísi-
talan hefði gilt óbreytt hefði ekki
verið hægt að reikna hana út fyrr
en um 20. þessa mánaðar þegar
byggingarvísitala og launavísitala
hefðu verið reiknaðar út, en hvor
um sig gilti þriðjung í grunni láns-
kjaravísitölu, auk framfærsluvísi-
tölu. Vegna nýgerðra kjarasamn-
inga mun næsta launavísitala vænt-
anlega hækka talsvert og hefði það
því orðið til þess að gamla lánskjara-
vísitalan hefði einnig hækkað nokk-
uð ef reglur hefðu verið óbreyttar.
Nýjar verðtryggðar Ijárskuld-
bindingar sem stofnað verður til í
aprílmánuði verða hins vegar verð-
tryggðar miðað við vísitölu neyslu-
verðs og gildir vísitalan 172,0 í apríl
eins og áður sagði.