Morgunblaðið - 09.03.1995, Page 12

Morgunblaðið - 09.03.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Einar Guðfinnsson um brottför Halldórs Hermannssonar Vona að leiðir liggi saman síðar „VIÐ sjálfstæðismenn viijum skoða spurninguna um afstöðu til Evrópu- sambandsins betur. Við bendum á að ríkjaráðstefnan, sem mun vænt- anlega breyta eðli og uppbyggingu Evrópusambandsins í grundvallar- atriðum, verður ekki haldin fyrr en á næsta ári og mun væntanlega standa í nokkur ár. Við segjum ein- faldlega að það sé ótímabært að taka afstöðu til einhverrar framtíðar með Evrópusambandinu, sem við vitum ekki hvemig lítur út,“ segir Einar K. Guðfínnsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Vestíjörðum. Halldór Hermannsson, sem um langan tíma hefur verið einn af áhrifamönnum í Sjálfstæðisflokkn- um á Vestfjörðum, hefur sagt skilið við flokkinn vegna ágreinings við hann um afstöðuna til Evrópusam- bandsins. Halldór vill að ísland óski eftir aðild að ESB. Hann hefur lýst yfir stuðningi við Alþýðuflokkinn. „Mér þykir mjög miður að Halldór skuli að þessu sinni ætla að kjósa Alþýðuflokkinn. Okkar leiðir hafa jafnan legið saman. Ég vona að þó að það skilji með okkur að þessu sinni þá eigi leiðir okkar eftir að liggja saman fyrr en síðar. Ég vek athygli á því að það er einungis í þessu máli sem ber á milli okkar og hans,“ sagði Einar. Einar sagði að spumingin um af- stöðu til ESB hefði ekki verið ofar- lega á baugi fram að þessu í kosn- ingabaráttunni. Það væm önnur mál sem brynnu á kjósendum á Vestfjörð- um. -------». » »----- Kvennalistinn á Sauðárkróki HÚSFYLLIR varð er Kvennalistinn I Norðurlandskjördæmi vestra opn- aði kosningaskrifstofu á Sauðár- króki hinn 4. mars sl., segir í frétt frá Kvennalistanum. Stefnuskrá Kvennalistans var kynnt og rætt um helstu baráttu- mál komandi kosninga m.a. launa- munur kynjanna og atvinnumál. Kosningaskrifstofan verður opin virka daga frá kl. 14-18 og um helgar kl. 14-17. Kosningastýra er Ingileif Oddsdóttir. FRÉTTIR Forsætisráðherra á kosningafundi Forræði yfir auðlindum sjávar ekki fórnað DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ekki komi til greina að fóma forræði yfír auðiindum sjáv- ar fyrir aðild að ESB. EES-samn- ingurinn sé í fullu gildi og íslend- ingar njóti ábatans án þess að þurfa að gefa eftir yfirráð yfir fískimiðunum við landið. Þetta kom fram á fjölmennum fundi í kosningamiðstöð Sjálfstæð- isflokksins við Lækjartorg á þriðjudaginn en fleiri frambjóð- endur á lista flokksins í Reykjavík munu efna til funda þar á næst- unni. Davíð sagði að EES-samningur- inn þýddi að ísland sæti við sama borð og þjóðir Evrópusambandsins að því undanskildu að við hefðum ekki áhrif á ákvarðanatöku innan ESB. Áhrifín sem stæðu okkur til boða, ef við gengjum í sambandið, væm hins vegar ekki mikil og lít- ils virði ef þau þýddu að við gætum ekki lengur haft áhrif á okkar eig- in mál. Stöðugleiki allra hagur Forsætisráðherra taláði al- mennt um stöðu þjóðmála og lagði áherslu á, að brýnt væri að byggja á þeim árangri sem náðst hefði í tíð núverandi ríkisstjórnar við erf- iðar aðstæður. Nauðsynlegt væri að viðhalda stöðugleika í þjóðfé- laginu enda væri það allra hagur. Davíð fullyrti meðal annars að engin ríkisstjórn hefði haft jafn mikil afskipti af atvinnulífínu. Að vísu hefði hann ekki staðið á tröpp- um Stjórnarráðsins og úthlutað milljónum enda mætti hafa skyn- samlegri afskipti af atvinnulífinu. Þá sagði Davíð að fjögurra flokka vinstristjórn að loknum kosningum væri ávísun á kollsteypu. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, á fundi í kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins á þriðjudag. Morgunverðarfundur Verslunarráðs um atvinnulíf og pólitískt umhverfi Lítil framleiðni og lítið eigið fé veikleiki efnahagskerfísins VERSLUNARRÁÐ íslands gekkst fyrir morgunverðarfundi með for- ystumönnum Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Þjóðvaka í gær- morgun, en þar var fjallað um ís- lenskt atvinnulíf og pólitískt um- hverfí og hvert sé stefnt í sam- keppni þjóðanna. Þetta var fyrri stjórnmála- fundurinn af tveim sem Verslunar- ráð gengst fyrir þar sem forystu- menn stjómmálaflokka gera í hnotskum grein fyrir stefnu flokka sinna í þessum málaflokki og svara fyrirspumum. Forystumenn stjómmálahreyf- inganna vom sammála því á fund- inum í gær að lítil framleiðni og bágborin eiginfjárstaða væra helstu veikleikar íslensks efnahag- skerfis. Uppræta þarf fákeppni og einokun Aðspurðir um hvernig þeir vildu taka á þessum vanda og leysa hann til frambúðar sagði Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins, að þegar horft væri til velferðarkerfisins og ríkisvalds- ins þyrfti fyrst og fremst að beita gagnrýnni skoðun á alla sjálfvirkni þar og stýra ekki út frá sjónarmið- um hagsmuna heldur þjónustunni og þeim vandamálum sem þyrfti að leysa. „Við verðum að halda áfram á þeirri braut að uppræta einokun og fákeppni, hvort heldur það er ríkisvaidsins eða annarra aðila. Við verðum að innleiða hér sam- keppni og beygja íslenskt atvinnu- líf undir aga samræmdra sam- keppnisreglna, og við þurfum auk- ið erlent fjármagn inn í þetta þjóð- félag, fyrir utan það að hvetja þjóðina til spamaðar. Viðskiptasambönd ónýtt auðlind í framhaldi af EES-samningnum þýðir þetta það að við eigum auð- vitað að setja okkur það markmið að sækja um aðild að Evrópusam- bandinu og vera fullgild Evrópu- þjóð til borðs með lýðræðisþjóðum í því hagkerfi sem skiptir okkur mestu máli,“ sagði Jón Baldvin. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, sagði að svokölluð útflutningsleið Al- þýðubandalagsins væri svar við því hvemig komast ætti út úr kreppu íslensks þjóðfélags. Að- ferðirnar væra í grófum dráttum fólgnar í því að búa til með eðlileg- um hætti sóknarlínur í þeim grein- um sem vilji væri fyrir að sækja fram í. Þá þyrfti að koma til samvinna innflutnings- og útflutningsfyrir- tækja, þar sem viðskiptasambönd innflutningsfyrirtækjanna úti í heimi væru ein af þeim auðlindum sem ekki befðu verið notaðar hér á landi. Komið að fyrirtækjunum að bæta sig „Nýr hugsunarháttur, ný heimssýn í viðskiptum, nýjar vinnuaðferðir um allt ríkiskerfíð og einnig hjá viðskiptalífínu era eina leiðin til að ná okkur út úr þessari kreppu. Ef útflutningsleið- in verður ekki framkvæmd hér á næstu áram þá verður þetta áfram þjóðfélag stöðnunar,“ sagði Ólafur Ragnar Agúst Einarsson, ritari Þjóð- vaka, sagði að þar sem kominn væri stöðugleiki í efnahagslífínu væri komið að fyrirtækjunum sjálfum að bæta sig, og þau mættu ekki alltaf snúa öllu upp á ríkis- valdið þannig að það sé óvinurinn. „Þetta er ekki svo, því nú eru komnar þær aðstæður að fyrirtæk- in sjálf verða að sýna hvað í þeim býr og að við þurfum ekki að vera hér með eitt Iægsta tímakaup í Evrópu. Ef við ætlum að auka spamað þá geram við það ekki öðruvísi en með því að auka verð- mætasköpun í landinu, og með því getum við aukið batann í þessu landi. Fyrirtækin eiga fyrst og fremst að taka stöðugleika síðustu miss- era sem áskoran til framtíðarinnar um að bæta hér lífskjör með því að taka til í eigin húsi en ekki sífellt að gera ríkisfjármál og ann- að sem viðvíkur hinu opinbera að sérstöku umtalsefni, því ég full- yrði að mjög margt í opinberum rekstri, t.d. á sviði heilbrigðismála og menntamála, gerist ekki betra miðað við það fjármagn sem þar er varið í,“ sagði Ágúst. 3 ts 'TO tfí H- co o r- ■ o CN 3 ts 'JS v> M— ra 20-70% afsláttur - 20-70% afsláttur - 20-70% afsláttur - 20-70% afsláttur - 20-70% afsláttur - 20-70% afsláttur - 20-70% afsíáttuT Borgardagar í Borgarkringlunni 8.-11. mars Úrvalsvörur á afsláttarverði o I o OJ ro o -j o fi> u> 5T' C ro O l -J o Opið: Virka daga 10-1830 og laugardaga 10-16 • 10-11 matvöruverslun 10-11 ■ jnHB|S*B %0Z-0Z - Jn»B|S*B %0Z-03 - JnHB|S|B %OZ-0Z - JnuB|S*B %0Z-0Z - JnUB|S*B %0Z-0Z - Jnu?|S*B %0Z-0Z - Jn«B|SiB %0Z*0Z Ð) óT' 7t b i c < € ( C: í ( ( C 1, ( C' 1 c. ( c c c ( I «■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.