Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 13
FRÉTTIR
Frambjóðendur Framsóknarfiokks á Reykjanesi vilja fækka togurum
Þorskkvóti færður
frá togurum til báta
FRAMBJÓÐENDUR Framsóknar-
flokksins á Reykjanesi vilja að
þorskkvóti verði í nokkrum áföng-
um fluttur af togurum yfir á báta.
Togararnir fái síðan aukna hlut-
deild í þorskkvóta þegar þorsk-
stofninn hefur stækkað á ný.
Þeir vilja að togurum verði
fækkað og mótaðar verði reglur
sem banni þeim að veiða á land-
grunninu.
Formaðurinn tók
tillögunum ekki iila
Siv Friðleifsdóttir, efsti maður á
lista flokksins, sagði að þetta væru
aðrar áherslur en Framsóknar-
flokkurinn hefði fylgt í sjávarút-
vegsmálum til þessa. Frambjóð-
endur flokksins á Reykjanesi
myndu reyna að vinna þessum
áherslum fylgi innan flokksins.
Hún sagði að tillögurnar hefðu
verið kynntar fyrir Halldóri Ás-
grímssyni og hann hefði ekki tekið
þeim illa. Hún sagði þetta sýna
að fullyrðingar um að ekki mætti
ræða um sjávarútvegsmál í Fram-
sóknarflokknum væru rangar.
Hjálmar Árnason, annar maður
á lista framsóknarmanna á
Reykjanesi, sagði að ef farið yrði
að tillögunum væri hægt að skapa
2.000-3.000 ný störf í sjávarút-
vegi. Hann sagði að með því að
hlúa að bátaútgerðinni ynnist
margt. Betra hráefni kæmi að<-
landi og minna yrði um smáfiska-
dráp. Hann sagði ljóst að tillögurn-
ar myndu leiða til fækkunar tog-
ara, en fækkun þeirra vasri nauð-
synleg miðað við núverandi stærð
fiskistofnanna.
Fyrirtæki geri,
jafnlaunaáætlanir
Siv sagði að framsóknarmenn
á Reykjanesi legðu mikla áherslu
á jafnréttismál. Þeir vildu að sett
yrði lög sem skylduðu fyrirtæki
til að gera jafnlaunaáætlanir.
Stofnanir ríkisins væru í dag
skuldbiyidnar til að gera slíkar
áætlanir, en fylgja þyrfti þeim
betur eftir.
Hjálmar sagði að ný skýrsla um
laun karla og kvenna væri nánast
löðrungur framan í þjóðina. Allir,
jafnt konur og karlar, hlytu að
hafa áhyggjur af þeirri staðreynd
að aukin menntun breikkaði launa-
bilið milli karla og kvenna.
Kvennalistinn
á Austurlandi
EFTIRTALDAR skipa framboðslista
Kvennalistans á Austurlandi:
1. Salóme Berglind Guðmunsdótt-
ir, bóndi, Eiðaþinghá, 2. Þeba Björt
Klarsdóttir, búfræðingur, Djúpavogi,
3. Anna María Pálsdóttir, húsfreyja,
Vopnafirði, 4. Unnur Fríða ,Hall-
dórsdótitr, þroskaþjálfi, Egilsstöðum,
5. Ragnhildur Jónsdóttir, sérkennari,
Höfn, 6. Helga Kolbeihsdóttir, söng-
nemi, Seyðisfirði, 7. Unnur Garðars-
dóttir, húsmóðir, Höfn, 8. Sr. Yrsa
Þórðardóttir, fræðslufulltrúi þjóð-
kirkjunnar á Austurlandi, Fáskrúðs-
firði, 9. Guðbjörg Gunnarsdóttir,
þroskaþjálfi, Egilsstöðum, 10. Stef-
ánný Níelsdóttir, fyrrverandi bóndi,
Egilsstöðum.
Framboðs-
listi Þjóð-
vaka á Vest-
fjörðum
ÁKVEÐINN hefur verið listi Þjóð-
vaka í Vestfjarðakjördæmi við al-
þingiskosningarnar 8. apríl næst-
komandi.
Sigurður Pétursson sagnfræð-
ingur og fyrrverandi formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna
skipar fyrsta sæti listans. í öðru
sæti er Brynhildur Barðadóttir fé-
lagsmálstjóri, ísafirði, í 3. sæti Júl-
íus Ólafsson verkamaður, Súðavík,
í 4. sæti Sólrún Ósk Gestsdóttir
húsmóðir, Reykjum, í 5. sæti Krist-
ín Hannesdóttir húsmóðir, Bíldudal,
í 6. sæti Magnús Ól. Hansson inn-
heimtufulltrúi, Bolungarvík, í 7.
sæti Laufey Jónsdóttir fram-
kvæmdastjóri, ísafirði, í 8. sæti
Örvar Ásberg Jóhannsson sjómað-
ur, Suðureyri, í 9. sæti Zófonías
Þorvaldsson bóndi á Læk í Dýra-
firði og í 10. sæti Guðlaug Þor-
steinsdóttir matráðskona, Hnífsdal.
Þjóðvaki
heldur opinn
fund um
menntamál
ÞJÓÐVAKI heldur fímmtudaginn
9. mars opinn fund um menntamál.
Frummælandi á fundinum verður
Mörður Árnason, 3. maður á lista
Þjóðvaka í Reykjavík, og einnig
mun fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla
íslands mæta til fundarins og kynna
áherslur þeirra fyrir þessar kosn-
ingar.
Fundurinn verður haldinn í kosn-
ingamiðstöð Þjóðvaka, Hafnar-
stræti 7, og hefst hann kl. 20.30.
Kennarar, námsmenn og aðrir
áhugamenn um menntunamál eru
boðnir hjartanlega velkomnir og eru
þeir hvattir til að mæta og láta
skoðun sína í ljós, segir í frétt frá
Þjóðvaka.
Fundarstjóri verður Páll Hall-
dórsson, formaður BHMR og 8.
maður á lista Þjóðvaka í Reykjavík.
Ekki thkh neinh
fllTTU MEfl
!l
VELDU ÚGLEYMRNlEEfl
ElNN HLLRH BE5TI
Hótclin á Algarve í Portúgal bera af enda þykir inargt
afþví sem er sjálfsagt í Algarvc munaöur á öðrum
sólarstöðum.
Ondamar - einn af ijölmörgum frábærum
gististöðum okkar.
Einstaklega ríkulega búnar loftkældar íbúðir og
stúdíó með gervihnattasjónvarpi.
Glæsilegur sundlaugargarður
sundlaug, bamasundlaug,
innisundlaug • Sauna • Tyrkneskt
H jf*i
gufubað • Veggtennis •
íl. Líkamsræktarsalur • Billiard •
* ■ Veitingastaður • Bar •
Næturklúbbur • Útibar.
Daglega skemmtidagskrá í
sundlaugargarðinum.
Verð sem kveikir sólskinsbros
Þrátt fyrir að Algarve beri af ílestum sólarstöðum er leitun að sólarlandaferð á lægra verði.
Verðdæmi: Pinlial Falésia í 2 vikur 47.3SS kr.* á mannm.v. tvo fullorðna og tvö börn
(2ja til og með 11 ára) í íbúð með 1 svefnherbergi.
Ondamax í 2 vikur 77.206 kr.' á mann m.v. tvo fullorðna í stúdíóíbúð.
’ Vcrð mcð föstum aukagjöldum nt.v. Rauðar
dagsetningar oj< 6% Greiðsluafslátt.
Kynnið ykkur llauðar dagsetningar í verðlista okkar.
Þargetur fjölskyldan sparað svo um munarl
ÚRVAL'ÚTSÝN
Ldgmúla 4 si'mi 569 9300, í Hafnarfiröi sími 565 2366,
í Keflavík sími 1 13 53, á Akureyri sími 2 50 00,
á Selfossi sími 21 666 - og hjá umboðsmönnum um land alll.