Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 16

Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson SNJÓBÍLLINN kemur í Bjarnarfjörð. Bjarnarfjörður Snjóbíll leysir af moksturinn Laugarhóli - Hjón úr Bjarnarfirði komu sl. mánudag á bifreið sinni til Hólmavíkur. Þau voru á leið heim í Bjarnarfjörð frá dvöl í Reykjavík. Það sem mætti þeim hins vegar var hin algjöra ófærð vegna snjóa er hefur beinlínis lokað allri umferð á landi til bæði Bjarnar- fjarðar og Drangsness auk fleiri staða á Ströndum. Þegar þetta er skrifað er lausnin fundin en hún var að senda snjóbíl frá Hólmavík með þau hjónin heim þar sem mokstur, sem kosta mundi allt að milljón krónur, myndi tæp- ast gagnast nema ef til vill dag- langt. Um leið vannst líka mögu- leiki á að senda vörur með honum í Bjarnarfjörð en þar er orðinn skortur á ýmsu og þá ekki síst á mjólk. Snjómagn í Bjarnarfirði er að verða meira en elstu menn muna og er ekki einsdæmi að skaflar séu orðnir 13 metra djúpir. Þá eru allar fjallahlíðar orðnar sléttar og ávalar af snjó og slær á þær fallegum rauðgulum lit í sólinni þegar hún nær að skína. KÁ á Selfossi lækkar skuldir um 400 millj. með eignasölu Selja Laugardæli og húsnæði smiðjanna Morgunblaðið/Sig. Jóns. ÞORSTEINN Pálsson framkvæmdastjóri og Guðmundur Búason aðstoðarframkvæmdastjóri ásamt starfsstúlkum í Vöruhúsi KA. Selfossi - Kaupfélag Árnesinga á Selfossi undirritaði tvo stóra sö- Iusamninga á eignum síðastliðinn þriðjudag. Samvinnulifeyris- sjóðurinn keypti jörðina Laugar- dæli og Landsbanki Islands keypti húsnæði Kaupfélagssmiðjanna. Sala þessara eigna er liður í fjár- hagslegri endurskipulagningu inn- an KÁ. Þessir sölusamningar hafa engin áhrif á þann rekstur sem fram fer í húsnæði smiðjanna. KÁ hefur verið rekið með nokkru tapi á undanförnum árum. í haust var gerð úttekt á rekstri og stöðu félagsins og í framhaldi af því ráðist í fjárhagslega og rekstrarlega endurskipulagningu. Markmiðið var að lækka nettó- skuldir um 400 milljónir en þær voru komnar í um 870 milljónir króna. Að sögn Þorsteins Pálsson- ar framkvæmdastjóra KÁ hefur það tekist með þessum síðustu sölusamningum og fyrirtækið komið í viðunandi rekstrarum- hverfi til að geta myndað peninga- eign úr rekstri. Afborganir af lán- um og vaxtagreiðslur lækka um 100 milljónir á ári við þá endur- skipulagningu sem framkvæmd hefur verið. Einkaverslanir í kaupfélaginu „Við erum bjartsýnir á að vera komnir á grunn til að byggja upp fyrirtækið,“ sagði Þorsteinn Páls- son. Hann sagði að áfram yrði unnið að endurskipulagningu ýmissa rekstrarþátta með það að markmiði að bæta afkomu rekstr- arins. Ýmsar nýjungar munu líta dagsins ljós í verslun fyrirtækisins á Selfossi með endurskipulagningu og nýjum innréttingum. Þá mun einkareknum verslunum og þjón- ustufyrirtækjum verða gefinn kostur á að starfa í húsnæðinu og í kjallara hússins verður bíla- stæðahús. Þorsteinn sagði að mikil sölu- aukning hefði orðið í verslunum félagsins fyrstu mánuði ársins ásamt því að aukning hefði orðið í sölu skrifstofuhúsgagna hjá tré- smiðju fyrirtækisins. Mat hans var að fyrirtækið hefði góðan meðbyr í kjölfar þeirra aðgerða sem fram- kvæmdar hefðu verið. Hann kvaðst gera ráð fyrir svipaðri veltu og var á síðastliðnu ári, um 2,2 milljörðum króna. FELAG ISLENSKRA STORKAUPMANNA - FÉLAG MILLIRÍKJAVERSLUNAR OG VÖRUDREIFINGAR - Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna verður haldinn í dag, fimmtudag 9. mars 1995, kl. 14:00 í Átthagasal Hótel Sögu. Dagskrá skv. félagslögum: 1. Fundarsetning. 2. Kjör fundarstjóra og úrskurður um lögmæti fundar. 3. Ræða formanns, Birgis R. Jónssonar. 4. Ávarp gests: Davíð Oddsson forsætisráðherra. KafFihlé. 5. Skýrsla stjómar. Ársreikningar 1994. Fjárhagsáætlun FÍS 1995. 6. Yfirlit um starfsemi sjóða. 7. ÍSLENSK VERSLUN - skýrsla formanns. 8. Lagabreytingar. 9. Kjör formanns. 10. Kjör til stjómar. 11. Kjör tveggja endurskoðenda og tveggja til vara. 12. Kosið í fagnefndir. 13. ÍSLENSK VERSLUN - kjör fjögurra stjómarmanna og fjögurra varamanna. 14. Ályktanir. 15. Önnur mál. 16. Fundarslit. Birgir R. Jónsson formaður FÍS Davíð Oddsson forsælisráðherra Félagsmenn em hvattir til að fjölmenna. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagsins í síma 588 8910 Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Mikið fannfergi í Grundarfirði MIKLUM snjó hefur kyngt nið- ur á Grundarfirði að undan- fömu en ekki hefur snjóað svo mikið síðan 1984. Á sumum götum var sryór það mikill að keyra þurfti snjóinn í burtu. Kostnaður snjómoksturs á Grundarfirði er kominn í rúm- lega eina milljón króna það sem af er árinu. Fræðsluhelgi um alkóhólisma FJALLAÐ veðrur um alkóhólisma á fræðsludegi í Landakirkju í Vest- mannaeyjum. Fræðari er Flosi Karlsson, læknir, sem starfar á geðdeildum Landspítalans og hefur m.a. sinnt áfengis- og fíkniefna- meðferð sem rekin er í anda 12 spora kerfis AA-samtakanna. Dagskrá fræðsluhelgarinnar er sem hér segir: Á föstudagskvöldið kl. 20.30 verður opinn fundur í safn- aðarheimili kirkjunnar um alkóhól- isma og aðrar ánetjanir. Spurt verð- ur: Eru vísindin að staðfesta það sem AA-menn hafa lengi vitað? A laugardaginn verða tveir fyrirlestr- ar í boði: Kl. 17: Einkenni og afleið- ingar alkóhólisma, og kl. 18: Bata: leiðir - hlutverk æðri máttar. I sunnudagsguðsþjónustu kl. D verður sjónum beint til mannkyns- lausnarans Jesú Krists og í messu- kaffi mun Flosi Karlsson stjórna umræðum og svara fyrirspurnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.