Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 18
1S FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
► HÁR Berglindar
Hallgrímsdóttur var
klippt, greitt og litað
samkvæmt „Grafískri
línu“ frá Tony Guys.
Gylltar strípur voru
settar í með nýrri að-
ferð; hárinu var
stjörnuskipt í hvirflin-
um og jafnframt var
notaður brúnn glans-
litur.
Umfangsmikil starfsemi Slysavarnafélags íslands er að
stórum hluta kostuð af ágóða happdrættis félagsins,
sem byggir á góðri þátttöku landsinanna. Slysavarna-
deildir félagsins eru 90 að tölu og björgunarsveitir
þess einnig 90, af tæplega 130 sveitum á landinu öllu.
fkkar pátttaka - akkar styrkur - ykkar áryggt!
m
tsk
Flug og bíll
til Lúxemborgar
á ýmsum kjörum
HJÓN sem ætla að fljúga til
Lúxemborgar og taka bílaleigubíl
í hálfan mánuð geta sparað sér um
40.000 kr. með því að athuga verð
á nokkrum stöðum og panta
snemma.
Þessa dagana er verið að selja
stéttarfélagsfargjöld til ýmissa
landa, þ.á m. til Lúxemborgar. Við
settum upp dæmi þar sem hjón
ætla til Lúxemborgar í maí og vilja
leigja sér bíl í C-flokki í hálfan
mánuð. Þau vilja komast út á sem
hagkvæmastan hátt og athuga því
ódýrustu möguleikana.
í ljós kom að munurinn var tölu-
verður. Hafi hjónin möguleika á
að kaupa sér sér miða á stéttarfé-
lagsfargjaldi fyrir 9. mars (sem er
í dag) þá geta þau komist út og
leigt bíl í C-flokki fyrir 88.582
krónur. Miðað er við staðgreiðslu
á fargjöldum en bílaleigubílinn
greiða hjónin þegar þau koma til
Lúxemborgar.
Kaupi þau hinsvegar miðann á
morgun hækkar verðið um nokkrar
þúsundir. Kaupi þau miðann hjá
Flugleiðum og nýti sér sumarleyf-
isfargjöld fyrirtækisins kostar farið
með bílaleigubíl frá Autolux 97.222
krónur. Ekki þarf að staðgreiða þá
farseðla við pöntun. Leigi þau bílinn
hjá Flugleiðum líka (Hertz) kostar
það 108.800 krónur.
Símbréf til Lúxemborgar
Send voru símbréf á nokkrar
bílaleigur í Lúxemborg og forvitn-
ast um verð á bíl í C-flokki fyrir
hjón sem ætluðu að fara út um
miðjan maí.
Ekkert tillit var tekið til annars
en bíllinn væri í C-flokki, um ótak-
markaðan akstur væri að ræða,
skatt og nauðsynlegar tryggingar
sem þó kunna að vera mismunandi.
Mjög mismunandi er síðan
hversu háar tryggingarfjárhæðir
fólk þarf að skilja eftir komi eitt-
hvað fyrir bílinn. Tryggingarnar
sem fást endurgreiddar þegar bíln-
um er skilað voru frá 14.000 og
upp í um 35.000 krónur.
Bílaleigan Hertz á íslenska
markaðinn
Úrval-Útsýn og Alís voru ein-
ungis með verðskrá Flugleiða á
Hertz-bílaleigum og Samvinnuferð-
ir-Landsýn líka.
Hvað snertir flug til Lúxemborg-
ar voru ekki aðrir sjáanlegir mögu-
leikar í boði en það sem Flugleiðir
bjóða og síðan umrædd stéttarfé-
lagsfargjöld.
Ýmsir annmarkar eru á því
hvernig flogið er á hinum ýmsu
fargjöldum Flugleiða, hvenær er
bókað og svo framvegis og stéttar-
félagsfargjöldin taka ekki gildi fyrr
en 15. maí næstkomandi.
Hringt var í Samvinnuferðir-
Landsýn, í Alís og Úrval-Útsýn en
allar ferðaskrifstofurnar, fyrir utan
SL sem eru með stéttarfélagsfar-
gjöldin, bjóða upp á það sama, far-
gjöld Flugleiða.
Hér á síðunni eru nokkur dæmi
um verð á flugi og bíl til Lúxem-
borgar og eflaust eru til fleiri bíla-
leigur í Lúxemborg sem hægt er
að hafa samband við annaðhvort
símleiðis eða með símbréfi.
Ekki er heldur ólíklegt að ýmis
tilboð séu í gangi á hveijum tíma.
Fjarðarkaup
Sjávarréttadagar
Handhafar happdrættismiða Slysavarnafélags íslands
eru beðnir velvirðingar á leiðum mistökum sem urðu
við útsendingu mfðanna. Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum urðu mistök við val á úrtaki, þannig að
sumar konur fengu tvo miða í stað eins, og örfáar fengu
báða þá miða með sama númeri. Á sama tíma erum
við þakklát fyrir þann stuðning og velvilja sem margar
þessarra kvenna hafa sýnt okkur með því að greiða
báða miðana.
ÞESSA viku eru sjávar-
réttadagar í Fjarðarkaup-
um. Hægt er að kaupa
ýmsa tilbúna sjávarrétti,
ferskan fisk og furðufiska.
T.d. er boðið upp á 8 teg-
undir af sjávarréttagúllasi,
30 tegundir af fiski, þ.á m.
öfugkjafta, aldamótakarfa,
hámeri, rauðmaga, skötus-
el, búra, háf, lúðu og skel-
fisk.
Rúnar Marvinsson verð-
ur gestur búðarinnar í dag,
fimmtudag, og mun hann
kynna ýmsar matreiðslu-
aðferðir.
NEYTENDUR
Hvað kostar flug og bíll til Lúxemborgar?
Flug:
Ftug og bíll:
Flugleiðir
Samvinnuferðir/
Landsýn
28.800 m/skatti
Sumarl.fargj., flogið miðv,- og fimmtud.,
miði keyptur fyrir 10/3.
Eftir 10/3 er fargjaldið 30.900 m/skatti.
24.180 m/skatti
Stéttarfél.fargjald m/skatti,
miði keyptur fyrir 10/3.
Eftir 9/3 er fargjaldið 25.240 m/skatti.
53.000 m/skatti
53.000 venji „
largjald m/skatti
49.780 et keyptur
erstéttarléiagsmiði
Hjðn fara í 2 vikur í maí til Lúxemborgar og leigja þar bíl í C-flokki
i n/cnni- Stéttarfél.fargj., keypllyrlr9/3: 2x24.180
'■ Bíll trá Autolux bílaleigunni: 40.222
Samtals: 88.582
o n/ciuu- Stéttarfél.fargj., keypteftir9/3: 2 x 25.240
í. UÆIYII. Bílaleigubíllígegn um Flugl.: 51.200
Samtals: 101.680
o n/CMi- Sumarl.fargj. Flugl., keypte. 10/3: 2 x 30.900
ó. U/ciyil. Bílltrá Autoluxbílaleigunni: 40.222
Samtals: 102.022
4. DÆIVII: Flugleiðir, llug og bíll: 2 x 53.000
Samtals: 106.000
c n/CMl- Sumarl.fargj. Flugl., keyptl. 10/3: 2 x 28.800
U/Clyl1- BflaleigubíllígegnumFlugl.: 51.200
Samtals: 108.800
Hvað kostar bílaleigubíll
í C-flokki í 2 vikur í
Lúxemborg?
Keypt í gegn um:
Flugleiðir (Hertz bílal.) Samvinnuf./Landsýn 51.200 51.200
Keypt beint:
Autolux 40.222
Europe car/lnterrent 47.616
Avis 88.596
Budget car 67.316
Hertz 57.641
Mikil litagleði og gljái
ríkjandi í hártískunni
DAGNÝ Oddsdóttir og Sirrý Jónsdóttir, hársnyrti-
meistarar á Hárgreiðslustofunni Hrönn, brugðu sér
til Lundúna fyrir skemmstu til að kynna sér nýjustu
stefnur og strauma í hártískunni hjá Tony Guy og
Vidal Sassoon.
Þegar heim var komið fengu þær að hafa hendur
í hári þeirra Þorbjargar Eðvaldsdóttur og Berglind-
ar Hallgrímsdóttur til að prófa nýjungarnar, sem
þær kynntust þar ytra, en Ólöf Sigurðardóttir á
Snyrtistofunni Hrönn sá um förðunina.
Helstu einkenni sumarhár-
tískunnar segja þær Dagný og
Sirrý vera beinar, mjúkar línur
og áberandi titi, jafnvel fjólu-
bláa, bleika og appelsínugula í
strípur. Mikil hreyfing á að
vera í hárinu og klippingin er
öllu stílhreinni og kvenlegri en
áður, hvort sem hárið er stutt,
millisítt eða sítt.
Þeim stöllum finnst mikil
notkun lita og glansefna einna
skemmtilegasta nýjungin, enda
gefi það hárinu einkar fallegan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
► ÞORBJÖRG Eðvaldsdóttir með greiðstu
og klippingu samkvæmt „Bad Girl Glamo-
urs“, nýjustu hártískulínunni frá Vidal Sasso-
on. Strípjirnar eru rauðar rendur og notað
var rauðbrúnn glanslitur.
Verðkönnun vikunar