Morgunblaðið - 09.03.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 23
Leeson
ekki einn
að verki
STEPHEN Pollard, lögfræðing-
ur Nick Leesons, sem setti Bar-
ingsbanka, einn af elstu bönk-
um í Bret-
landi, á haus-
inn, sagði í
gær, að Lee-
son hefði ekki
verið einn í
leiknum þótt
skella ætti
allri skuldinni
á hann. „Ef
einhveijurn
dettur í hug, að Leeson hafi
gert bankann gjaldþrota upp á
eigin spýtur, þá vita menn ekki
um hvað þeir eru að tala,“ sagði
Pollard og bætti því við, að
Leeson hefði gefið sér „mjög
fróðlegar uppiýsingar" um inn-
anbúðarmál hjá Barings.
Mafíósar
handteknir
MONYA Elson, sem sagður er
leiðtogi rússnesku mafíunnar í
New York, var handtekinn í
gær á Ítalíu. Er hann eftirlýstur
í Bandaríkjunum fyrir tvö norð
og morðtilræði. Elson er fæddur
í Rússlandi en er nú bandarísk-
ur ríkisborgari. ítalska lögregl-
an hefur einnig handtekið Ang-
elo Clemente Leone, mafíósa,
sem hefur farið huldu höfði í
tvö ár, en hann hefur verið
dæmdur fjarstaddur fyrir morð.
Olæknandi
lygari
EMAD Salem, einn helsti upp-
ljóstrari ákæruvaldsins í málinu
gegn þeim, sem eru sakaðir um
að hafa staðið að sprengjutil-
ræðinu í World Trade Center í
New York, hefur viðurkennt að
vera ólæknandi lygari. Er hann
fyrrverandi foringi í egypska
hemum en eftir að hann kom
til Bándaríkjanna þóttist hann
vera stór karl og laug til um
flest, sem honum viðkom. Hon-
um tókst að komast inn í hóp-
inn með Omar Abdel-Rahman
og tíu öðrum múslimum, sem
sakaðir eru um tilræðið.
Eignaupptak-
an standi
TÉKKNESKI stjómarskrár-
dómstóllinn úrskurðaði í gær,
að forsetátilskipun frá árinu
1945 skyldi
standa en með
henni voru
Þjóðveijar bú-
settir í Tékkó-
slóvakíu svipt-
ir eignum sín-
um. Það var
Edvard Be-
nes, sem und-
irritaði til-
skipunina, en eftir stríð voru 2,5
milljónir Súdeta-Þjóðveijar
reknar til Þýskalands fyrir sam-
starf við nasista þótt margir
væru saklausir af því.
Ekki látið
undan IRA
BRESK stjómvöld neituðu því í
gær, að dregið hefði verið úr
kröfum um, að IRA, írski lýð-
veldisherinn, afhenti vopn sín
áður en gengið yrði til samninga
um frið á Norður-írlandi. Það
voru þingmenn Sambandsflokks
mótmælenda á Norður-írlandi,
sem sökuðu bresku stjórnina um
eftirgjöf að þessu leyti.
Edvard Benes
Stephen Pollard
„Réttað“ í
máli heit-
trúarmanna
Skotárás á Bandaríkjamenn í Karachi
Tveir létu lífið
og einn særðist
Karachi. Reuter.
TVEIR starfsmenn bandarísku
aðalræðismannsskrifstofunnar í
Karachi í Pakistan voru skotnir til
bana í gær. Voru þeir á leið til
vinnu sinnar í bíl þegar menn á
öðrum bíl eltu þá uppi og létu
kúlnahríðina dynja á þeim. Hugs-
anlegt er talið, að morðin tengist
handtöku írasks hryðjuverka-
manns og framsali hans til Banda-
ríkjanna.
Þriðji Bandarílq'amaðurinn
særðist í árásinni en pakistanskur
ökumaður bílsins slapp ómeiddur.
Ekki er vitað hvort um var að
ræða sendimenn en bandaríska
sendiráðið í Islamabad ætlaði að
skýra frá stöðu þeirra þegar haft
hefði verið samband við ættingja.
Fyrir íjórum vikum var íraskur
maður, Ramzi Ahmed Yousef,
handtekinn í Pakistan og strax
framseldur til Bandaríkjanna. Er
hann grunaður um að hafa skipu-
lagt sprengjutilræðið í World Trade
Center í New York 1993. Hugsan-
legt er talið, að atburðirnir tengist
en það eru þó aðeins getgátur.
Mikið ofbeldi '
Ofbeldi og morð eru daglegt
brauð í Karachi en þar hafa um
1.000 manns verið myrt á einu
ári, þar af hátt í 300 í átökum
milli íslamskra trúflokka. Benazir
Bhutto, forsætisráðherra Pakist-
ans, var stödd í Singapore þegar
hún fékk fréttirnar af morðunum
en vildi ekkert um þær segja að
sinni.
Túnis. Reuter.
ALSÍRSKAR konur sviðsettu í gær
réttarhöld í Algeirsborg yfir leiðtog-
um múslimskra heittrúarmanna.
Saka þær heittrúarmenn um að bera
ábyrgð á því að þúsundir kvenna
hafi misst eiginmenn sína og að
hundruð kvenna hafí verið myrtar,
eða þeim rænt og nauðgað.
Enginn hinna „ákærðu" var við-
staddur réttarhöldin en konur sem
hafa misst eiginmenn sína í hermd-
arverkum samtaka heittrúarmanna
báru vitni.
Samkvæmt upplýsingum samtaka
fórnarlamba borgarastríðsins í land-
inu hafa tíu þúsund konur misst
menn sína og 140 þúsund börn feð-
ur sína á síðustu þremur árum.
Enginn „dómaranna" vildi gefa
upp nafn sitt af ótta við ofbeldis-
verk. „Sama hvað það kostar þá
höfnum við því að Alsír gefist upp
fyrir ógnarstefnu heittrúarmanna,“
sagði kona er kallaði sig Zazi í sam-
tali við blaðið Le Matin.
Reuter
PAKISTANSKIR lögreglumenn við bíl Bandaríkjamannanna. Bandaríkjastjórn hefur ráðið
þegnum sínum frá því að fara til Karachi og annarra svæða þar sem ofbeldisverk eru tíð.
Argentískur herforingi segir frá manndrápum í tíð herforingja
Föngum kastað lif-
andi út úr flugvél
Buenos Aires. Reuter.
FORINGI í argentínska flughern-
um, sem lýsti því í síðustu viku
hvernig þúsundum pólitískra fanga
hefði verið kastað lifandi út úr flug-
vél á áttunda áratugnum, hefur
verið sviptur metorðum innan hers-
ins. Er það að sögn vegna dóms,
sem hann hefur hlotið fyrir ýmiss
konar misferli.
Adolfo Francisco Scilingo er
fyrsti foringinn í argentínska hern-
um, sem játar það, sem landsmenn
hafa vitað árum saman, að her-
stjórnin fyrrverandi losaði sig við
þúsundir andstæðinga sinna með
því að láta kasta þeim út úr flug-
vél yfir sjó. Lýsti hann því nákvæm-
lega hvernig herlæknir hefði
sprautað fangana, sem voru oft svo
illa á sig komnir eftir pyntingar að
það varð að bera þá um borð, með
róandi lyfjum og hvernig hann og
annar foringi hefðu afklætt þá og
kastað meðvitundarlausum í sjóinn.
„Óhreina stríðið"
Scilingo fór á eftirlaun 1986 en
hann segir, að minningarnar um
OPINBERLEGA er 10.000
manns saknað úr „óhreina
stríðinu" en ýrnsir mannrétt-
indahópar segja, að talan sé
hærri, allt að 30.000. Hér eru
argentnskar mæður á mót-
mæiafundi sncmma á síðasta
áratug með myndir af horfn-
um börnum sínum.
tvær flugferðir af þessu tagi og
pyntingar, sem hann hefði verið
viðstaddur, hefðu aldrei látið hann
í friði. Sagði hann loks blaðamann-
inum Horacio Verbitsky sögu sína
en segir, að hann hafi áður reynt
að fá yfirstjóm hersins til að segja
allt af létta um „óhreina stríðið". í
því voru 4.000 manns drepin og
10.000 hurfu sporlaust.
Carlos Menem, forseti Argent-
ínu, sem var sjálfur fangelsaður á
dögum herstjórnarinnar, gagnrýndi
Scilingo harkalega fyrr í vikunni
og kallaði hann „glæpamann".
Varði hann þá ákvörðun sína að
gefa herforingjunum upp sakir og
sagði, að ekki hefði verið um annað
að ræða til að koma í veg fyrir
valdarán.
Tveir biskupar í Argentínu hafa
beðið landsmenn að fyrirgefa kirkj-
unni hugsanlegt skeytingarleysi
gagnvart manndrápum herforingja-
stjórnarinnar en Scilingo segir, að
kirkjunnar menn liafi haft þau orð
um, að það væri „kristilegur dauð-
dagi“ að vera kastað út úr flugvél.
SÆLKERA
SAGA
í Grillinu
- margrétta|£
ævintýri
fyrir ungt fólk
á öllum aldri
fostudaginn
10. mars
Nú er txkifærið komið
að bregða sér
í Grillið á Sögu og upplife
spennandi sælkerakvold.
Sigurður HaU
verður á staðnum
og spjallar við gesti en hann ásamt
Ragnari Wessman
annast matseldina
og hin vinsæla hljómsveit
Skárra en ekkert
leikur ljúía tónlist f\TÍr mataigesti.
í boði er fjögurra rétta málu'ð ásamt
fbidrykk fyrir aðeins X
Komið og upplifíð ævintýraltgt
kvöld í Grillinu, góðan mat
og Ijúfe lifándi tónlist.
Fordrykkur
Ravioli fyUt gæsaparfáit,
með madeirasósu og
tómatkjöti
eða
Grænn spergill og
humar í Sautemsósu
Svepparagout í volgri
sherry vinaigrette
Léttsaltaður hunangs
braseraður Iambahryggur
< með rósmarinsoði og
2 rifiBuðu rótargrænmeti
< eða
Q
Franskur fiskipottur
„Pot-au-féu de poisson"
Sablé með perum
og Sabayon sósu
Pantanir í síma 552 5033
-þín saga!