Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 25

Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 25 LISTIR Fjölhæfur tónlistargestur Wayne Marshall kvaðst aldrei hafa komið til íslands fyrr. „Það var yndislegt að koma hér í gær,“ sagði hann. „Hér er allt svo hreint og loftið svo tært. Engin ljós voru en ég sá móta fyrir landslaginu í mánaskini, það var skemmtilegt að sjá. Ég þekkti aðeins ísland af afspurn og Sinfóníuhljómsveitinni hafði ég aldrei heyrt í fyrr en í dag, hún er er mjög góð.“ Islensk- an djass kvaðst Marshall aldrei hafa heyrt en vildi gjarnan kynn- ast honum. Wayne Marshall þykir sérlega fjölhæfur tónlistarmaður, þekkt- astur er hann sem orgelleikari. Nýlega lék hann orgelkonsert eftir Poulenc með Dallas-sinfóníuhljóm- sveitinni undir stjóm Richard Hickox. „Ég leik mína eigin tegund af djass, hann er að vissu leyti í ætt við sígilda tónlist. Ég hef þá gjarna spilað með litlum hljómsveitum,“ sagði Marshall. Hann býr í London en ferðast mikið starfs síns vegna, hann er bæði konsertpíanóleikari og stjómandi. „Ég ætla að fara og skoða orgelið í Hallgrímskirkju á morgun," sagði Marshall. Hann kvaðst hafa heyrt frá Roger Sayer að það væri mjög gott orgel. Wayne kvaðst vera gefinn fyrir ferðalög enda væri ekkert sem bindi, hann er hvorki kvæntur né á börn ennþá, eins og hann orðar það brosandi. Marshall er fæddur í Manchester af foreldrum sem bæði eru tónlistarfólk. Systur hans tvær em líka hljóðfæraleikarar. „Ég fór að læra tónlist þegar ég var þriggja ára og hóf píanónám þegar ég var sjö ára,“ sagði hann. Síðar stundaði hann nám í Royal College of Music í Manchester þar sem aðalhljóðfæri hans vom píanó og orgel, jafnframt hefur hann lagt fyrir sig söng og hljómsveitar- stjórn. Hann tók þátt í þekktustu uppfærslu í Bretlandi á óperu Gers- hwins, Porgy and Bess á Blyndebo- urne-tónlistarhátíðinni, en þar söng hann hlutverk Jasbo Brown, auk þess var hann þar kórstjóri og lék píanópart hljómsveitarinnar. „Ég hlakka til tónleikanna í Há- skólabíói, ég hef æft eftir bestu getu með hljómsveitinni og ég vona að þetta verði skemmtilegt, það er aðalmálið," segir þessi fjölhæfi og glaðlegi breski tónlistarmaður. Efnisskrá tónleikanna T Há- skólabíói í kvöld er samansett af verkum eftir George Gershwin. Hann fæddist í Brooklyn í New York 1897. Hann var af fátæku fólki kominn en foreldrar hans voru rússneskir gyðingar sem fluttust til Bandaríkjanna. Fyrst mun hljómsveitin leika Strike up the Band sem hér verður fluttur í útsetningu Don Rose. Þá verður fluttur Konsert í F sem frumfluttur var 3. desember 1925 með tón- Síðustu dag- ar Magnúsar í Ráðhúsinu Á MORGUN föstudag lýkur í Ráð- húsi Reykjavíkur sýningu á hljóð- og innsetningarverki eftir Magnús Pálsson myndlistarmann. I kynningu segir að verkið sé eins konar óður til Tjarnarinnar. Sjábu hlutina í víbara samhcngi! skáldið sem einleikara. Eftir hlé koma Songs for Jazz Band sem þeir leggja báðir nafn sitt við Gers- hwin og Duke Ellington, hinn ókrýndi konungur bandarískrar alþýðu- og djasstónlistar, en Wa- yne Marshall hefur útsett. Tónleik- arnir enda. á Sinfónískum myndum úr Porgy and Bess, því fræga verki Gershwins, sem lengi mun eflaust halda nafni hans á lofti. Það verður mikil sveifla í Háskólabíói í kvöld. Sinfóníuhljómsveit Is- lands mun leika lög eft- ir George Gershwin, stjórnandi er Wayne Marshall og leikur hann líka einleik á píanó. Guðrún Guðlaugsdótt- ir hitti Marshall að máli fyrir skömmu. WAYNE Marshall. Mbl./Sverrir Nœsta mál! Kosning gjaldkera húsfélagsins >ð ‘5. Cl r Húsfélagaþjónusta íslandsbanka býöur sig fram til oð sjá um fjárreiöur húsfélaga Gjaldkerastarf í húsfélagi fjölbýlishúsa hefur aldrei þótt eftirsóknarvert, enda bœöi tímafrekt og oft vanþakklátt. Auk þess gera ný lög um fjöleignarhús enn meiri kröfur um bókhald og uppgjör en áöur. Húsfélagaþjónusta íslandsbanka tryggir öruggari fjárreiöur húsfélaga meö nákvœmri yfirsýn yfir greiöslustööu og rekstur á hverjum tíma. Þetta fyrirkomulag er því öllum íbúum fjölbýlishúsa til hagsbóta. Helstu þœttir Húsfélagaþjónustu íslandsbanka: Innheimta - öryggi og betri upplýsingar Bankinn annast mánaöarlega útskrift gíróseöils á hvern greiöanda húsgjalds. Á gíróseölinum eru þau gjöld sundurliöuö sem greiöa þarf til húsfélagsins. Hœgt er aö senda ítrekanir til þeirra sem ekki standa í skilum. Húsfélagiö fcer mánaöarlega yfirlit yfir ógreidda gíróseöla. Rekstraryfirlit - nákvcem yfírsýn yfír rekstur í lok hvers mánaöar er sent út reikningsyfirlit sem sýnir hverjir hafa greitt og hvert peningarnir hafa fariö. í árslok liggur fyrir yfirlit yfir rekstur húsfélagsins á árinu, greiöslur íbúa og skuldir þeirra í lok árs. Viö upphaf viöskipta fœr húsfélagiö möppu undir yfirlit og önnur gögn. Framkvœmdalán - betri kjör og lengri lánstími íslandsbanki býöur nú húsfélögum betri kjör og lengri lánstíma á framkvœmdalánum. Lánsupphœö getur veriö allt aö 300.000 kr. fyrir hverja íbúö og lánstími 5 ár. Húsfélög njóta hagstœöra vaxtakjara og þau geta einnig fengiö yfirdráttarlán meöan á framkvœmdum stendur. Lögfrœöiþjónusta - góö ráö og skilvirk innheimta Húsfélög í viöskiptum viö íslandsbanka geta gerst aöilar aö Húseigendafélaginu á sérstökum afsláttar- kjörum. Þar er hœgt aö fá ráögjöf varöandi nýju fjöleignarhúsalögin og aöra lögfrœöiþjónustu sem tengist rekstri húsfélaga. Bankinn hefur milligöngu um lögfrœöiinnheimtu húsgjalda sem eru í vanskilum. Allar nánari upplýsingar fást í neöangreindum útibúum bankans sem veita Húsfélagaþjónustu. ★ KYNNINGARTILBOÐ TIL 12. APRÍL ★ Bankastrœti S, sími 560 8700 Dalbraut 3, sími S68 5488 Culiinbrú, Stórhöfba 17, sími 567 5800 Háaleitisbraut 58, sími 581 2755 Kringtan 7, sími 560 8010 Laugavegur 172, sími 562 6962 Lóuhólar 2-6, sími 557 9777 Suburlandsbraut 30, sími 560 8400 Eibistorg 17, Seltjarnarnesi, sími 562 9966 Reykjavíkurvegur 60, Hafnarfirbi, sími 555 0980 Carbatorg 7, Garbabœ, sími 565 8000 Hamraborg 14a, Kópavogi, sími 554 2300 Þverholt 6, Mosfeiisbæ, sími 566 6080 Hafnargata 60, Keflavík, sími 92-15555 Kirkjubraut 40, Akranesi, sími 93-13255 Hafnarstrœti 1, ísafirbi, sími 94-3744 Abalgata 34, Siglufirbi, sími 96-71305 Hrísalundur la, Akureyri, sími 96-21200 Stórigarbur 1, Húsavík, sími 96-41500 Þau húsfélög sem hefja viöskipti fyrir 12. apríl fá ókeypis handbókA um ný lög fyrir fjöleignarhús. ISLANDSBANKI -í takt viö nýja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.