Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 49
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
I sannleika sagt
Frá Evu S. Einarsdóttur: úrskarandi siðlegu lög sem setja
í ÞÆTTINUM „í sannleika sagt“,
sem var á dagskrá Ríkissjónvarpsins
miðvikudaginn 1. mars síðastliðinn
þar sem fjallað var um tæknifijóvgun
svo og lög- og siðfræðileg mál tengd
því, kom fram' í máli lögfræðingsins
að sjálfsagt væri og rétt að algjör
nafnleynd skyldi viðhöfð um hveijir
væru gefendur að sæðis- og egg-
frumum, sem notuð væru við tækni-
fijóvganir. Jafnframt að þau böm
sem getin væru með gjafasæði eða
eggjum ættu ekki að fá neinn „rétt“
til að vita hið sanna um uppruna sinn.
Ef þannig á að standa að þessum
málum þá gefur það augaleið að
hálfsystkini gætu átt eftir að giftast
og eignast saman böm, — Þó svo
að sæðið sé fengið frá Danmörku
þá vita það allir að ungt íslenskt
fólk dvelur þar í landi mikið t.d. við
nám. Og ekki er heldur útilokað að
sæði úr sama manni geti verið notað
hér á landi fyrir fleiri en eina konu.
Því þeir sem gefa sæði til tækni-
fijóvgunar eru í raun ekkert öðruvísi
en þarfanaut sem notuð eru aftur
og aftur til undaneldis. Andlegur
þroski þessara manna muni einnig
mjög líklega vera á svipuðu stigi.
Því varla tækju þeir að sér slíkt hlut-
verk væru vitsmunir þeirra eitthvað
meiri og bæru þeir einhveija virðingu
fyrir sjálfum sér.
Ekki bættu yfirlýsingar heilbrigð-
isráðherra úr; þegar hann lýsti því
yfir að það væri svo sem ekkert við
það að athuga þó að systkini eignuð-
ust saman börn. Mörgum brá illa í
brún, fólk átti ekki von á því að sið-
ferðisþroski ráðherrans væri á svona
lágu stigi.
„Dómgreindin" virtist ekki alveg
vera í fullkomnu lagi hjá öllum, sem
tjáðu sig í áðurnefndum þætti. — í
raun var það aðeins landlæknir sem
tók það skýrt fram að hann væri
ekki sáttur við allar framkvæmdir
sem fyrirhugaðar væru, né hin fram-
Viðurkennum
sjálfstæði
Tsjetsjeníju
Frá Peter Kyhn:
VIÐ ERUM mörg í Danmörku sem
litum með aðdáun til íslands, þegar
það fýrst allra landa viðurkenndi
sjálfstæði Litháens 12. februar 1991.
I næstu lotu í skiptingu gjaldþrota-
bús heimsveldisins Rússlands var
þing Eistlands fyrst allra landa til
að skora á stjóm sína að viðurkenna
sjálfstæði Tsjetsjeníju frá Rússlandi
.,um leið og alþjóðleg staða leyfir".
Við erum enn nokkur í Danmörku
sem vonumst eftir samskonar fram-
taki hjá ríkisstjórn íslands eða A!-
þingi. Einu sinni enn ísland!
PETÉR KYHN,
stud.mag.
Husumgade 22, Kaupmannahöfn,
Danmörku.
ætti um starfsemina.
Óneitanlega finnst manni komnar
mótsagnir í það hvað telst rétt og
siðsamt við barnsgetnað. Fyrir
nokkrum árum hefði flestum fundist
(og finnst það kannski enn) ekki allt
vera í sómanum þegar kona gat ekki
feðrað bam sitt, sökum þess að kynn-
in við barnsföðurinn vom svo stutt
að hún vissi ekki hvað maðurinn
hét. Eða þar sem svo margir komu
til greina að aldrei tókst að feðra
barnið.
En í raun er fijóvgun, sem fram-
kvæmd er með gjafasæði þar sem
ekkert er vitað um hinn raunvemlega
föður nákvæmlega eins. En yfír það
hyggjast yfirvöld leggja blessun sína
og breiða á yfir það með því að setja
um það lög. Og kóróna skal síðan
verkið með því að bömin sem til
verða við slíkan getnað verði réttlaus
til að fá að vita hið sanna um „upp-
runa sinn“, sem er alveg í andstöðu
við það sem segir í barnalögum.
Börnin á síðan að „rangfeðra" og
ljúga svo að þeim um faðernið allt
frá fæðingu. Varla er hægt að segja
að þetta séu kristileg vinnubrögð
gagnvart börnunum. — En ég hef
jafnframt velt því fyrir mér hvernig
andleg líðan þessa fólks muni verða,
sem þarf að ljúga að börnunum alla
sína ævi.
Eitthvað sýnist manni að sam-
viskusemin og siðferðið muni vera
að síga niður á við þegar yfirvöld í
broddi fylkingar eru farin að láta
semja lagasmíð, sem miðast að því
að rangfeðra börn og þau eigi síðan
að vera beitt lyginni alla sína ævi.
En enginn í áðurnefndum viðtals-
þætti sá neina ástæðu til að nefna
þetta svo sem á nafn. Þrátt fyrir það
að í hópnum sæti einn besti siðfræð-
ingur þessa lands, prestur og annað
hámenntað fólk!
Með þessu áframhaldi er ekki ann-
að sýnna en hér á landi verði komið
einhvers konar þjóðfélag í stíl Só-
dómu og Gómorru árið 2000. A.m.k.
er ekki að sjá að í vændum sé öld
kærleikans.
Sjálfsagt er að hjálpa fólki sem á
í erfiðleikum með að eignast börn,
en það verður að vera innan siðsam-
legra marka. Þó svo að sum önnur
lönd hafi tekið þá ákvörðun að leyfa
að gefið sé sæði og egg til tækni-
fijóvgunar með nafnleynd á því
hveijir séu þar gefendur þá finnst
mér það ekki til neinnar fyrirmynd-
ar. Þetta eru bara þjóðfélög sem eru
ekki enn komin á hærra þroskastig.
íslendingar eiga frekar að sýna og
vera þessum þjóðum „vitrari" og
fremri og framkvæma ekki tækni-
fijóvgun með gjafasæði né eggjum.
Við vitum ekki hvað framtíðin kann
að bera í skauti sér. — En sagt hef-
ur verið, að þar sem reynt er að fela
hin raunverulegu ættartengsl vilji
„syndir feðranna komi niður á böm-
unum“ og slík dæmi eru svo sannar-
lega þekkt. — Vill fólk virkilega
stuðla að slíku?
EVA S. EINARSDÓTTIR,
ljósmóðir.
250 mílna landhelgi
Frá Sigurði Guðjóni Haraldssyni:
SAGA landhelgismálsins er í sem
skemmstu máli á þann veg, að land-
helgin var færð úr 3 mílum í 4 mílur
1952, í 12 mílur 1958, síðan í 50
mílur 1972 og svo loks í 200 mílur
1974, er Geir Hallgrímsson var for-
sætisráðherra í samstjórn Sjálfstæð-
is- og Framsóknarflokks. Þá var
Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra og lýkur hann 36 ára farsælli
þingmennsku einmitt í vor. - Nú er
málum svo háttað, að vegna ásóknar
í Jiskistofnana við landið, bæði er-
lendra og innlendra veiðiskipa, gerist
sú hugsun áleitin, hvort ekki sé full
ástæða til þess í nálægri framtíð, að
fara alvarlega að huga að því, og
fara að undirbúa og beijast fyrir
útfærslu landhelginnar í 250 mílur,
fiskstofnarnir við landið eru nú einu
sinni fjöregg þjóðarinnar. A þeim
byggist búseta okkar og afkoma enn
þá að miklu leyti, og svo mun verða
um ókomna tíð. Er ekki sjálfsagt
fyrir íslenska ráðamenn, með hæstv-
irtan sjávarútvegsráðherra Þorstein
Pálsson í broddi fylkingar að fara
að huga að þessu í fullri alvöru, og
hefja baráttu fyrir þessu innanlands
og á alþjóðavettvangi?
Forna máltækið, eyðist, sem af
er tekið, á vel við þegar verndun fjö-
reggs þjóðarinnar, fiskistofnanna í
hafinu við landið, er um að ræða.
Eg skora á íslenska ráðamenn og
stjórnmálaleiðtoga að hefjast strax
handa og ná þjóðarsamstöðu um
þetta mál, því að lífsafkoma þjóðar-
innar á næstu árum og áratugum
veltur á því að útfærsla í 250 sjómíl-
ur nái fram að ganga.
SIGURÐUR GUÐJÓN HARALDSSON,
Njálsgötu 90, Reykjavík.
Hösi/Skomakare
hengiljós
ExÍt vínglös
4 í pakka
Slermá
matar og kaffstell
f. Af3P hlutir
Rutig
viskastykki
6 í pk.
Kvintin 33
lampaskermur
ýmsir litir j
Matrix 19
lampafótur á
ýmsir litir M
nev vasi
handunniS gler
Stuva
eldhúsóhöld
ýmsar ger&ir
Mygga basHcarfa
5 stæröir
795,
Malla
Tjenis
snagarekki
Intemat
krúsir m. loft-
tæmingarpumpu
Brallis
indjánatjald
úr pappa
Hövding
Afrísk gríma
3 gerðir
Padborg Wilton
motta Ó7xl 10 sm, 4 gerðir
Twist
kanna
ýmsir litir
fyrir fólkið í landinu
lillltHh
ÞHitWi
IllUltv
! |U‘tII"
Póstkröfus. 800 68 50