Morgunblaðið - 09.03.1995, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 55
I
I
I
BICBCE'
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 878 900
SNORRABRAUT 37, SfMI 2S211 OG 11384
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 878 900
KONUNGUR
LJÓNANNA
SU.VE MARTIN
Sýnd kl. 5 og 7,
Islenskt tal.
Enskt tal kl. 5 og 9.10.
Gleymdi eigin símanúmeri
► Kanadíska leikkonan Jennifer
Tilly hefur nú náð þeim merka
áfanga á ferli sínum, 36 ára göm-
ul, að smeygja sér úr skugga
yngri og þekktari systur sinnar
Meg Tilly, sem hefur leikið i ýms-
um þekktum Hollywoodkvik-
myndum. Jennifer náði þessum
tímamótum er hún var útnefnd
sem kandídat til óskarsverðlauna
fyrir bestu frammistöðu leikkonu
í aukahlutverki í kvikmyndinni
„Bullets over Broadway, sem leik-
stýrt er af sérvitringnum Woody
Allen.
Jennifer segir að hún hafi gert
sér grein fyrir því að það væri
fremur Iangsótt að nafn hennar
yrði í hattinum, en hún hefði jafn-
framt trúað því að ef hún horfði
ekki á útnefningarnar í sjónvarp-
inu ætti hún frekar möguleika,
því dómnefndin myndi ef til vill
skynja það að hún væri að reyna
að liafa áhrif á hana!
„Þess vegna fór ég út á strönd
og fór að leika mér á brimbretti,
kærastinn minn Peter passaði
húsið mitt á meðan og ætlaði að
horfa á sjónvarpið. Ég var á brim-
brettinu síðla nætur og í morguns-
árið, gat ekki sofið, og ég var svo
taugaóstyrk þegar ég ætlaði að
hringja heim og spyrja Peter um
úrslitin, að ég gleymdi símanúm-
erinu. Eg þurfti að hringja fjórum
sinnum heim til mín áður en ég
náði númerinu rétt,“ segir leik-
konan. Hún hefur þegar fengið
ótal tilboð frá þekktum tísku-
hönnuðum sem vilja klæða hana
upp fyrir stóra kvöldið og veltir
því öllu fyrir sér. „Það er ekki
svo oft að ég hef tækifæri til að
klæða mig upp og fara á flott
ball,“ segir Tilly.
DENNIS Hopper við tökur á myndinni „Colors'
Tékkar fá loksins
að sjá Easy Rider
KVIKMYNDIN „Easy Rider“ var
frumsýnd í Tékklandi fyrir
skömmu, tuttugu og sex árum eftir
að hún var bönnuð í Tékkóslóvakíu.
I tilefni sýningarinnar var mikið um
dýrðir. „Þetta var ein af stærstu
stundum í lífi mínu,“ segir Dennis
Hopper, sem bæði leikstýrði og lék
í myndinni. „50 bifhjólamenn óku
á eftir mér niður aðalgötu Prag og
rúmlega þúsund manns mættu til
að fagna. Fólkið var yndislegt, vina-
legt, opinskátt og himinlifandi yfír
frelsinu." A meðal þeirra sem komu
á frumsýninguna var Vaclav Hav-
el, forseti Tékklands.
sAMmm
SAMBM
Frumsýning GETTU BETUR!
AFHJUPUN
Frumsýning á spennumyndinni Uns sekt er sönnuð
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLA UNA
M.A. SliM BESTA MYND ÁRSINS.
TRIAL
BY
JURY
A Roberí Redford Film
Hann er mafíuforingi, hún er í kviðdómi. Ólíkt
því sem ætla mætti hefur hann örlög hennar í
hendi sér. Er mögulegt að berjast við mafiuna
eða verður maður að ganga í lið með henni?
„Trial By Jury" er mögnuð spennumynd, full af
stórleikurum. Mynd sem getur ekki klikkað!
Aðalhutverk: Joanne Whalley-Kilmer, Armand
Assante, William Hurt og Gabriel Byrne.
Leikstjóri: Heywood Gould.
„Quiz Show" er frábær mynd frá leikstjóranum Robert
Redford sem tilnefnd er til 4 Óskarsverðlauna, m.a. sem
besta mynd ársins og Robert Redford sem besti
leikstjórinn. Ralph Fiennes (Schindlers List), John Turturro
og Rob Morow fara á kostum í þessari mögnuðu mynd
um siðferði, spillingu og blekkingu.
„Quiz Show" EIN FRÁBÆR FYRIR ÞIG!
Aðalhlutverk: Michael Douglas, Demi Moore og Donald
Sutherland.Framleiðandi: Michael Crihcton og Barry
Levinson.Leikstjóri: Barry Levinson.
PABBI ÓSKAST
AFHJUPUN
LEON