Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 60
Afl þegar þörf krefur!
§IL
\
RISC System / 6000
<o> NÝHERJI
W V t
I
m
HEWLETT
PACKARD
H P Á ÍS.LANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRJNGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3010, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: ILAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Flugleiðir græða
260 milljóiiir kr.
Gegn
kynferðis-
ofbeldi
STÍGAMÓT minntust fimm
ára starfsafmælis samtakanna
í gær, meðal annars með
göngu gegn kynferðisofbeldi.
Farið var frá Hlaðvarpanum
við Vesturgötu og gengið um
miðbæinn með viðkomu í
stjórnarráðshúsinu þar sem
fulltrúa ríkisstj órnarinnar var
afhent áskorunarskjal. Loks
var útifundur á Ingólfstorgi.
Konur huldu andlit sín til að
vekja á táknrænan hátt at-
hygli á því falda ofbeldi sem
þær berjast gegn.
HAGNAÐUR af reglulegri starfsemi
Flugleiða varð um 260 milljónir
króna á síðasta ári en árið 1993
varð 305 milljóna króna tap. Rekstr-
arafkoman batnar því um tæplega
565 milljónir króna milli ára. Þá
seldi félagið Boeing 737-400, sem
skilaði um 304 milljóna króna sölu-
hagnaði og auk þess fékk félagið
67 milljóna króna hagnað af dóttur-
félagi. Heildarhagnaður varð því um
624 milljónir króna á árinu miðað
við tæplega 188 milljóna króna tap
árið áður.
Rekstrartekjur Flugleiða námu um
14,7 milljörðum í fyrra og er það 10%
aukning frá árinu 1993. Rekstr-
argjöld voru 13,5 milljarðar og er það
7% aukning miili ára. Veltufé frá
rekstri var 2 milljarðar en var 1,1
milljarður árið 1993. Heildarskuldir
voru 17,5 milljarðar í árslok en voru
20,3 milljarðar ári fyrr.
Farþegum fjölgaði
Farþeguiji fjölgaði um 17,2% á
árinu. í millilandaflugi ijölgaði far-
þegum um 22,4% miðað við árið
1993 og 3,3% í innanlandsflugi. Að
sögn Sigurðar Helgasonar forstjóra
Flugleiða er þetta betri afkoma en
gert var ráð fyrir. „Tekjurnar auk-
ast um 10% á meðan gjöldin aukast
aðeins um 7%,“ sagði hann. „Það
hefur orðið veruleg framleiðniaukn-
ing á síðustu árum því við höfum
fjölgað farþegum mjög mikið án
þess að fjölga starfsfólki. Þá hefur
fjárhagsstaðan líklega aldrei verið
sterkari."
■ Hagnaður um 624/Bl
Morgunblaðið/Kristinn
Agæt veiði
suður af
Malarrifi
LOÐNUVEIÐI glæddist í gær
eftir að hafa verið dræm í fyrri-
nótt og var fjöldi loðnuskipa á
miðunum suður af Malarrifí á
Snæfellsnesi, þeirra á meðal
Helga II RE. Náði hún góðu
kasti um morguninn og var að
draga öðru sinni þegar Morgun-
blaðið náði tali af Geir Garðars-
syni skipstjóra. Skipið hóf veið-
ar í birtingu en landað var 1.000
tonnum úr því hjá Granda á
þriðjudag. „Ég held að þetta
sé að byija aftur, það eru
ábyggilega ein tíu til fimmtán
skip héma.“
Að sögn Geirs var renniblíða
á miðunum í gær og aðstæður
því ákjósanlegar. Hann sagði
að mikil hrognafylling væri í
loðnunni en treysti sér ekki til
að nefna prósentutölu í því sam-
hengi. „Það komu Japanir um
borð í gær og þeir eru ekki
farnir að taka hrognin sjálfir;
fannst þau ekki nógu þroskuð.
Það hlýtur því að vera hægt
að veiða þetta eitthvað lengur.
Það er mikil hrygna í þessu
núna - 60% í síðasta kasti - en
annars er þetta misjafnt milli
kasta."
Snjómokst-
urspeningar
víða búnir
KOSTNAÐUR bæjarfélaga og Vega-
gerðar ríkisins er í flestum landshlut-
um orðinn meiri en á sama tíma á
síðasta ári. Mörg bæjarfélög hafa
klárað snjómoksturspeninga sína og
standa frammi fyrir því að skerða
framkvæmdafé til að halda götum
opnum.
Hjörleifur Ólafsson, deildarstjóri
þjónustudeildar Vegagerðar ríkisins,
telur að kostnaður stofnunarinnar
sé orðinn um 300 millj. kr. frá ára-
mótum eða um helmingur áætlaðrar
fjárveitingar á árinu.
■ Bæjarfélög farin að/6
■ Hafa eytt 23 millj./14
Engan sakaði við óhapp í flugtaki Flugleiðavélar í Lúxemborg í gær
Stélið strauk
flugbrautina
FLUGLEIÐAVÉL, sömu gerðar og sú sem hlekktist
á í flugtaki í Lúxemborg í gær, Boeing 757.
Lúxemborg. Morgunblaðið.
FLUGLEIÐAVÉL af gerðinni
Boeing 757 ofreis í flugtaki í Lúx-
emborg og snerti stélið flugbraut-
ina. Þetta gerðist um kl. hálfþijú
að staðartíma í gærdag. Vélin fór
á loft og flaug einn hring yfir flug-
vellinum og lenti síðan aftur. Eng-
an sakaði og urðu farþegar lítið
varir við það sem gerðist.
Nokkrar smárifur og rispur
komu á skrokk vélarinnar utan
þrýstiklefa og hófst viðgerð
skömmu eftir lendingu. I fyrstu
var talið að henni myndi ljúka síð-
degis og var framan af áætlað að
fljúga vélinni til Keflavíkur og síð-
an áfram til New York þegar henni
lyki. Það tókst ekki og í gær-
kvöldi var áætlað að hún myndi
fara frá Lúxemborg kl. 9 í dag.
Biðin löng
og leiðinleg
Farþegar vélarinnar biðu á flug-
vellinum í Lúxemborg { nokkrar
klukkustundir áður en þeim var
komið fyrir á hótelum en farþegar
á leið til New York héðan og úr
öðru Evrópuflugi, sem hefðu farið
um borð í vélina í Keflavík, kom-
ust allir með vél til Baltimore í
gær og þaðan áfram til New York.
Fréttaritari Morgunblaðsins
hitti nokkra farþega vélarinnar í
flugstöðinni á Findel-flugvelli í
gær. Þeir höfðu á orði að þeir
hefðu ekki fengið að fylgjast með
gangi mála og þótti biðin löng og
leiðinleg. Þó var fólk sátt við að
öryggi væri sett ofar öllu.
Hjónin Hrafnhildur Arnarsdótt-
ir og Gunnar Tryggvason, sem
voru á leið til New York ásamt
tveimur ungum börnum sínum,
sátu framarlega og sögðust hvorki
hafa heyrt né fundið neitt óvenju-
legt.
I sama streng tóku Elsa Ævars-
dóttir og Árni Arason, nema hvað
þeim fannst vélin klifra óvenjulega
mikið strax eftir flugtak. Að þeirra
sögn var fólkið um borð rólegt,
en Elsa sagði að hún hefði ekki
verið alveg í rónni fyrr en eftir
að lent var að nýju.
Misræmi í upplýsingum
Sveinbjörn Dagfinnsson, Ásta
Begga Ólafsdóttir og Gísli Sveins-
son, er sátu í sætaröð 10, voru
sammála áðursögðu en fannst þó
súrt í brotið að fá ekki að fylgjast
betur með gangi mála eftir að lent
hafði verið aftur. Einnig fannst
þeim sambandsleysi innan Flug-
leiða afar slæmt því þegar þau
hringdu til íslands til að boða sín-
um nánustu seinkum, einni og
hálfri klukkustundu eftir lendingu,
var þeim sagt að skömmu áður
hefðu Flugleiðir staðfest óbreytt-
an komutíma vélarinnar til Kefla-
víkur. Fannst þeim það algerlega
óviðunandi.
Enginn sagði neitt
Hjón, sem ekki vildu láta nafna
sinna getið, kvörtuðu undan því
að farið væri með fólk eins og
ómálga börn. Enginn segði neitt
og enginn vissi neitt. Þó að fólk
skildi að álagið á starfsfólki Flug-
leiða í Lúxemborg undir þessum
kringumstæðum væri mikið, væri
ófært að enginn væri í sambandi
við farþegana, sem sumir hveijir
væru ótalandi á annað en íslenska
tungu og skildu því minna en ella.