Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 4
4 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór Guðmundsson
HARÐAR deilur urðu á aðalfundi Lögmannafélags íslands í gær um það hvort félagið ætti að
hætta þátttöku í Mannréttindaskrifstofunni.
Hart deilt á aðalfundi Lögmannafélags íslands
Ursögn úr Mannréttinda-
skrifstofunni samþykkt
AÐALFUNDUR Lögmannafélags
íslands samþykkti í gær með 30 at-
kvæða mun, að loknum hörðum deil-
um, tillögu átta fyrrverandi for-
manna félagsins um að LMFÍ hætti
aðild að Mannréttindaskrifstofunni
og jafnframt að stjóm félagsins
gæti þess framvegis að ekki séu
gefnar út pólitískar ályktanir í nafni
þess.
Davíð hitt-
ir Mandela
DAVÍÐ Oddsson fór í gær til
Kaupmannahafnar og mun þar
ávarpa leiðtogafund Samein-
uðu þjóðanna um félagslega
þróun á sunnudag.
Forsætisráðherra mun á
morgun eiga fund með Nelson
Mandela, ásamt öðrum forsæt-
isráðherrum Norðurlandanna
og einnig mun hann hitta for-
seta Lettlands og Litháen.
Ríflega 100 lögmenn sátu fundinn.
Ragnar Aðalsteinsson, fráfarandi
formaður Lögmannafélagsins, spáir
því að deyfð muni einkenna starf
þess eftir samþykkt tillögunnar þar
sem LMFÍ sé nú eina lögmannafélag-
ið utan einræðisríkja sem gert hafi
stjóm sína umboðslausa til að tjá sig
um þau mál sem mestu skipti varð-
andi réttaröryggi borgara í landinu.
Ragnar sagði að samþykkt tillög-
unnar væri úr takt við það sem væri
að gerast í samtökum lögmanna á
alþjóðavettvangi og kvaðst vænta
þess að LMFÍ segði sig úr Intemat-
ional Bar Association en nýkjörinn
formaður þess sambands hefði ný-
lega lýst' því yfir að öll mál yrðu að
víkja fyrir mannréttindamálum.
„Þeir menn sem að þessu stóðu
hafa aldrei kynnst aðstæðum þar
sem mannréttindi skipta máli. Þetta
er þröngsýnt fólk sem blandar saman
óskyldum hlutum," sagði Ragnar.
Ekki verið að breyta neinu
Þorsteinn Júlíusson, einn flutn-
ingsmanna tillögunnar, segir að nið-
urstaða fundarins hafi verið í sam-
ræmi við það sem búast mátti við
og þrátt fyrir íjörlegar umræður sé
fráleitt að tala um að legið hafi við
klofningi félagsins.
„Við skiptumst á skoðunum á
hreinskilinn hátt eins og við var að
búast. Félagið hefur haldið sig til
hlés við pólitísk átök og það hlýtur
að gera það vegna þess að það er
skyldufélag. Ég held að niðurstaða
fundarins hafi staðfest það og ekk-
ert annað.“
Þorsteinn segir órökrétt að halda
fram að félagið eigi ekki lengur sam-
leið með sambærilegum félögum í
lýðræðisríkjum eftir þessa niður-
stöðu, það sé í sjálfu sér ekki verið
að breyta neinu.
Þórunn sjálfkjörin
Á aðalfundinum var Þórunn Guð-
mundsdóttir hrl. sjálfkjörin formaður
í stað Ragnars Aðalsteinssonar, sem
gaf ekki kost á sér til endurkjörs
eftir tvö ár í embætti. Einnig gengu
úr stjórn Ingólfur Hjartarson og
Guðni Haraldsson. I stað þeirra voru
kjömir Sigurmar K. Albertsson og
Hreinn Loftsson.
Sigxtrður Björnsson formaöur Sér-
fræðingafélags íslands
Yfirlýsingar ráö-
herra um sjálf-
töku ærumeiðandi
SIGURÐUR Björnsson, formaður
Sérfræðingafélags íslands, segir að
yfirlýsingar Sighvats Björgvinsson-
ar, heilbrigðisráðherra, um að sér-
fræðingar séu með einhvers konar
sjálftökukerfi úr almannasjóðum
séu ærumeiðandi og algjörlega
óviðurkvæmilegar.
„Það er hægt að ærumeiða heila
stétt lækna jafnvel það mikið að
þeir verði harðari en nokkru sinni
áður. Ég tel sjálfur að það eigi að
gæta meðalhófs og fara samninga-
leiðina í þessu máli, en það eru
menn í hópnum sem eru mjög harð-
ir og vilja miklu harðari aðgerðir
en við höfum viljað fallast á,“ sagði
Sigurður í samtali við Morgunblað-
ið.
„Við tökum mjög nærri okkur
þegar hann [heilbrigðisráðherra]
heldur því fram að við séum að
stela. Það finnst okkur vera fyrir
neðan hans virðingu að nota slíkan
málflutning," sagði hann.
Óskað eftir viðræðum
við forsætisráðherra
Sigurður sagði að sérfræðingar
hefðu óskað eftir viðræðum við
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
um tilvísanamálið, en af þeim fundi
hefði ekki getað orðið enn sem kom-
ið er. Hann sagði að málið hefði
verið rætt við fleiri ráðherra, en
vildi ekki segja við hverja.
„Hann [forsætisráðherra] er þess
mjög fysandi að ræða við okkur,
en við teljum að þetta sé ekki að-
eins mál fyrir ríkisstjómina heldur
líka þann flokk sem hann stýrir.
Þar eru veruleg „prinsipp“-mál í
gangi sem varða ríkisrekstur á
móti einhvers konar sjálfstæðum
atvinnurekstri í landinu. Okkur
fínnst það eiginlega vera mjög und-
arlegt að þessi ríkisstjórn ætli að
gera það að sínu síðasta verki að
þjóðnýta endanlega það sem eftir
er af sjálfstæðum atvinnurekstri í
heilbrigðiskerfinu. Það er í fullri
andstöðu við stefnu flokksins og í
fullri andstöðu við samþykkt lands-
fundarins," sagði Sigurður.
Lögfræðiálit ekki tilbúið
Sigurður sagði að lögfræðiálit
sem Sérfræðingafélag íslands hefði
falið Hreini Loftssyni, lögfræðingi,
að vinna um tilvísanakerfíð liggi
ekki fyrir í endanlegri mynd og
félaginu hafí aðeins verið kynnt
bráðabirgðaniðurstaða. Engin
ákvörðun hafi enn verið tekin um
málssókn á hendur heilbrigðisráð-
herrra vegna setningar reglugerð-
arinnar um tilvísanir.
„Við erum að vonast til að kom-
ast hjá því í lengstu lög. Við höfum
engan áhuga á málaferlum við ís-
lenska ríkið, en ef það verður
þrautalendingin í þessu máli þá
áskiljum við okkur rétt til þess að
nota þann rétt í lýðræðisþjóðfé-
lagi,“ sagði hann.
Aðspurður um hver viðbrögð sér-
fræðinga yrðu ef þeir færu í mál
við heilbrigðisráðherra og myndu
tapa því sagði Sigurður að það yrði
á valdi hvers einstaks læknis af
þeim 300 sérfræðingum sem sagt
hafa upp samningi við Trygginga-
stofnun ríkisins að bregðast við
þeirri niðurstöðu.
„Sérfræðingafélag lækna er ekk-
ert annað en samtök sérgreinafé-
laga sem eru með fullt sjálfstæði
yfir sínum málum. Við erum ekkert
annað en tengiliður milli manna og
höfum engan samningsrétt," sagði
hann.
Borgarstjóra berst greinargerð Ingu J. Þórðardóttur um einkavæðingu í rekstri Reykjavíkur
Ein fleiri greinar-
gerða og minnisblaða
Borgarstjóra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, hefur nýlega borist
greinargerð Ingu Jónu Þórðardóttur viðskiptafræðings frá því í
júní 1992, sem hún tók saman fyrir þáverandi borgarstjóra, Mark-
---mm .... .. ......................—---------—
ús Om Antonsson. Að sögn Ingibjargar er henni ekki kunnugt um
hver sendi henni greinargerðina.
Ablaðamannafundi,
sem borgarstjóri boðaði
til í gær, kom fram að
borgarfulltrúar minni-
hlutans í síðustu borgarstjóm
hefðu ítrekað spurt eftir skýrslu
Ingu Jónu en því hefði verið neitað
af henni, af Markúsi Emi og Áma
Sigfússyni, fyrrverandi borgar-
stjóra, að hún væri til.
Ingibjörg Sólrún sagði í gær að
frambjóiðendur R-listans hefðu í
kosningabaráttunni á síðasta ári
talið víst að greinargerðin væri til
og margsinnis farið fram á að hún
væri afhent borgarfulltrúum og
ekki síst borgarráðsmönnum.
Pólitískt eldfimt mál
„Því var afneitað að skýrslan
væri til í heildstæðu formi og í
greinargerð sem lögð var fram í
borgarráði 12. apríl 1994 frá fyrr-
verandi borgarstjóra, Markúsi
Erni Antonssyni, til Árna Sigfús-
sonar, segir að á reglulegum fund-
um með borgarstjóra hafi Inga
Jóna lagt fram minnisblöð og
greinargerðir sem vinnuplögg til
að vinna frekar úr,“ sagði Ingi-
björg Sólrún.
Ingibjörg vitnaði í gær í borgar-
ráðsbókanir og viðtöl í fjölmiðlum
þar sem Árni Sigfússon og Inga
Jóna Þórðardóttir hefðu staðfest
að engin heildarskýrsla væri til.
Meirihlutanum hefði þó átt að
vera í lófa lagið að leggja fram
plagg Ingu Jónu úr því það var til.
„Mín skoðun er sú að þéir hafi
talið það óheppilegt fyrir flokkinn;
að þetta hafi verið pólitískt eldfímt
mál rétt fyrir kosningar, ekki síst
vegna þess að í kosningastefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar segir
að sjálfstæðismenn ætli ekki að
einkavæða þjónustufyrirtæki í
eigu Reykjavíkurborgar en þessi
skýrsla er beinlínis um einkavæð-
ingu í rekstri borgarinnar. í öðru
lagi snýst þetta mál um það að
skýrslan var kynnt fyrir og afhent
ákveðnum ef ekki öllum borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins
meðan minnihlutinn sá hvorki
tangur né tetur af þessari vinnu.
Annaðhvort er slík vinna, eins og
þessi sem er unnin fyrir skattpen-
inga, fyrir alla borgarfulltrúa eða
engan. Annaðhvort er þetta opin-
bert plagg eða ekki,“ sagði Ingi-
björg Sólrún í gær.
Markús Örn segir að hann hafi
aldrei litið svo á að þama væri á
ferðinni skýrsla í þeim skilningi
sem menn vilji leggja í það orð
heldur hafi hann beðið Ingu Jónu
um úttektir og ráðgjafarvinnu og
hún hafi gert honum grein fyrir
þeirri vinnu jafnóðum. Hann seg-
ist ósammála því að allir borgar-
fulltrúar hefðu átt að hafa aðgang
að vinnu hennar. Borgarstjórinn,
sem fari með stjórnina ásamt
borgarráði, geti látið vinna fyrir
sig úttektir og ráðgjafarvinnu án
þess að það þurfi endilega að
koma til umfjöllunar í ráðum og
nefndum borgarinnar.
Hann segir að Inga Jóna hafi
m.a. varpað fram hugmyndum um
að hugsanlega væri hægt að gera
stórtækar breytingar á rekstrar-
formi einstakra borgarfyrirtækja.
„Það fór ekkert lengra af minni
hálfu vegna þess að um það hefði
þurft að takast pólitísk samstaða.
Ég var að leitast við að fá fram
hugmyndir um aðgerðir til
sparnaðar í borgarrekstri. Ýmis-
legt af þessu hefur verið að ger-
ast og það var farið yfir fjölda-
mörg atriði. T.d. er vinna við að
breyta SKÝRR í hlutafélag langt
komin, en það var eitt þeirra atr-
iða sem nefnd voru í þessum minn-
ispunktum,“ sagði Markús Örn.
Kom á óvart að punktarnir
fundust ekki í ráðhúsinu
Aðspurður um það hveijir hefðu
fengið greinargerðina á sínum
tíma sagðist hann ekki vita það.
„Ég geri mér ekki grein fyrir hvað
hefur orðið um hana. Ég vissi
ekki betur en hún væri til niðri í
ráðhúsi og þess vegna kom mér á
óvart að þessir punktar sem slíkir
hefðu ekki fundist. Ég vonast
bara til að það verði farið svolítið
ofan í saumana á þessum málum
í umfjöllun fjölmiðla, þannig að
skattgreiðendur sem óska eftir því
að hagkvæmni sé gætt geti mynd-
að sér skoðanir," sagði Markús
Örn.
Ein af fleiri greinargerðum
Inga Jóna vísar því á bug að
hún hafi ekki sagt satt um vinnu
sína. Hún hafi ítrekað lýst því
með hvaða hætti hún hafí farið
fram. „Ég vinn með borgarstjóra
um tæplega eins árs skeið þar sem
á reglulegum fundum okkar eru
lögð fram minnisblöð og greinar-
gerðir um þær hugmyndir sem
uppi eru. Sú greinargerð sem
borgarstjóra hefur borist í hendur
er ein af þeim greinargerðum.
Hún er heildaryfirlit yfir ýmsa
möguleika sem á þeim tíma var
gerð tillaga um að kannaðir yrðu
og í sjálfu sér ekkert meira. Ég
hef alltaf sagt það að það væri
ekki um að ræða neina heildar-
skýrslu fyrir verkefnið," sagði
Inga Jóna.
Hún segir að efnislega hafi öll
atriði þessarar greinargerðar
komið fram fyrir löngu, m.a. í
minnisblaði frá Markúsi Erni Ant-
onssyni til Árna Sigfússonar frá
8. apríl 1994 og sjálfstæðismenn
hafi ekkert að fela.