Morgunblaðið - 11.03.1995, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Til hamingju. Þér eruð orðinn faðir að 2500 tonna þorskígildis dreng . . .
Dómur vegna upptöku bíls fíkniefnainnflyljanda
Stjórnvöld sýknuð
af skaðabótakröfu
inn fyrir fé fengið með sölu fíkni-
efna.
Sambýliskonan krafðist þess að
henni yrði bættur bíllinn þar sem
meðferð lögreglustjóra á bílnum
hefði verið andstæð lögum. Lög-
reglu hefði borið að skila bifreið-
inni eftir að Hæstiréttur hafnaði
að gera hana upptæka. Krafðist
hún 360 þúsund króna vegna verð-
mætis bílsins en 415 þúsund króna
vegna afnotamissis.
I dómi Hæstaréttar var sú
niðurstaða héraðsdóms að sýkna
ríkið af kröfunni staðfest. Þar seg-
ir að dæma verði málið eftir því
sem atvik lágu fyrir þegar uppboð
fór fram í júní 1991. Sambýliskon-
an verði að sæta öllum þeim vörn-
um sem halda megi uppi gegn
Ólafi Þór, sem hafi í fyrstu stað-
fastlega þrætt fyrir að eiga bifreið-
ina og hafi konan stutt þann fram-
burð við rannsókn og meðferð
málsins.
Kostnaður hlóðst upp
Skráður eigandi hafi ekkért til-
kall gert til bílsins. Ólafur Þór
hafi síðan flúið af landi brott og
í tæpt ár eftir að hæstaréttardóm-
ur var kveðinn upp hafi enginn
gert kröfu um að fá bílinn afhent-
an þótt konan vissi hvar hann
væri geymdur en kostnaður hafi
hlaðist upp. Því hafi algjör óvissa
verið um eignarhald bílsins og síð-
asti umráðamaður hans hafi flúið
land undan ábyrgð sinni á refsi-
verðu athæfi, sem hann hafði ver-
ið dæmdur fyrir. Því verði að telja
að lögreglan hafi eins og á stóð
mátt heimila fyrir sitt leyti að bíll-
inn yrði seldur fyrir áföllnum
kostnaði en Vaka hafi átt halds-
rétt í bílnum vegna þess kostnað-
ar.
HÆSTIRÉTTUR sýknaði íslenska
ríkið í gær af skaðabótakröfu fyrr-
um sambýliskonu Ólafs Þórs Þór-
hallssonar, sem flúði úr landi frá
óafplánuðum 4 ára fangelsisdómi
vegna kókaíninnflutnings. Krafan
var á því byggð að lögreglan hefði
í heimildarleysi_ látið selja á upp-
boði bíl sem Ólafur átti og var
lagt hald á við rannsókn málsins.
Lögreglan lagði hald á bifreið-
ina í júlí 1989 þar _sem talið var
að hún væri eign Ólafs Þórs og
væri keypt fyrir andvirði sölu
fíkniefna. Ólafur og sambýliskona
hans þrættu fyrir við rannsókn
mála á hendur þeim að Ólafur
væri eigandi bílsins heldur hefði
hann hann að láni en skráður eig-
andi bílsins kvaðst hafa selt hon-
um bílinn og gaf Ólafur síðan yfir-
lýsingu þess efnis að það væri
rétt en afsalaði sér um leið rétti
til bílsins til fyrrum sambýliskonu
sinnar.
Bílnum hafði lögreglan komið í
geymslu hjá Vöku fljótlega eftir
haldlagningu árið 1989 og þar
gerði enginn tilkall til hans. í júní
1991 heimilaði lögreglustjóri Vöku
að selja bílinn, en þá hafði safnast
á hann 323 þúsund króna
geymslukostnaður. Bíllinn seldist
á uppboði fyrir 145 þúsund krónur.
Var sýknaður
af upptökukröfu
Hæstiréttur hafði í mars það ár
sýknað Ólaf Þór í refsimálinu af
kröfu um að bifreiðin yrði gerð
upptæk þar sem ekki þótti sannað
nægilega að hann hefði keypt bíl-
Andlát
HANSINA
J ÓH ANNESDÓTTIR
HANSINA Jóhannes-
dóttir, elsti íbúi
Stykkishólms, Iést á
Sjúkrahúsi Stykkis-
hólms á fimmtudags-
kvöldið, 103 ára að
aldri.
Hansína Jóhannes-
dóttir fæddist að Eiði,
Grundarfírði, 18.
nóvember 1891, dóttir
Jóhannesar Bjarna-
sonar og Hildar
Helgadóttur.
Til Stykkishólms
kom hún árið 1912
Hansína
Jóhannesdóttir
og árið 1917 giftist
hún Sigurði M. Jó-
hannssyni sjómanni.
Þau bjuggu allan sinn
búskap í Stykkishólmi
en Sigurður lést árið
1961. Hansína dvaldi
á Sjúkrahúsi Stykkis-
hólms frá árinu 1980.
Hansína og Sigurð-
ur eignuðust fimm
börn og af þeim kom-
ust upp fjórar systur.
Þá ólu þau hjón upp
einn dreng.
Sendiherra Hollands
Þarf að auka
fjárfestingar
Jan H. Van Roijen
► JAN HERMAN VAN ROIJ-
JAN H. Van Roijen,
sendiherra Hollands
á íslandi, afhenti for-
seta íslands trúnaðarbréf
sitt á miðvikudaginn.
Hann hefur aðsetur í
Lundúnum. Faðir hans var
sendiherra á íslandi frá
1964-1971 en Van Roijen
hefur gegnt utanríkisþjón-
ustu í 32 ár, einkum í
Miðausturlöndum og
Austurlöndum fjær.
— Hvernig leggst
sendiherraembættið á ís-
landi í þig?
„Mér finnst það forrétt-
indi að fá að gegna því. í
fyrsta lagi fínnst mér mik-
ið til forsetans koma. Hún
er glæsileg og vel gefin
og mjög sérstakur þjóð-
höfðingi. Þeir ráðherrar sem ég
hef hitt eru mjög vel að sér á
alþjóðlegan mælikvarða. Ég hef
verið hérna í þrjá daga og íbú-
arnir hafa sýnt okkur mikla gest-
risni. Við heimsóttum Vest-
mannaeyjar þar sem okkur var
ákaflega vel tekið og hið sama
gildir um Reykjavík. Auk þess
efndum við til móttöku þar sem
helmingur gestanna var íslensk-
ur. Ég hef því hitt ljölda fólks
og það fer ekki á milli mála að
landsmenn hafa bæði hlýtt við-
mót og eru vel að sér. Einnig
finnst mér landslagið fallegt og
loftið tært. Sjórinn er hreinn,
sem er einsdæmi í heiminum.
Allt þetta gerir landið einstakt."
— Hvernig má bæta sam-
skipti landanna að þínum dómi?
„Það þarf að auka verslun
milli landanna. Sem stendur eru
hollenskar vörur um 6% af inn-
flutningi íslendinga og íslenskar
um 3% af því sem við flytjum
inn. Fjárfestingar þarf að kanna
betur I framtíðinni en við erum
með áætlanir á pijónunum sem
ekki er búið að útfæra. Hvað
ferðamannaiðnaðinn áhrærir er
talsvert um hollenska ferðamenn
hérlendis að sumarlagi. Vinsæld-
ir landsins eru alltaf að aukast
því Hollendingar kunna vel að
meta fámennið og víðáttuna."
— Hvað vita Hollendingar um
ísland?
„Þeir vita meira en við mætti
búast. Hér hefur verið ræðis-
mannsembætti frá miðri nítj-
ándu öld og því eiga samskipti
landanna sér langa
sögu. Einnig vita Hol-
Iendingar enn meira
eftir opinbera heim-
sókn drottningarinnar
til íslands í fyrra. Hol-
lensku blöðin voru troðfull af
efni frá íslandi. Auk þess hittast
fulltrúar landanna meira en áður
vegna EES.“
— Er það algengt að börn
stjórnarerindreka feti í fótspor
foreldra sinna í Hollandi?
„Það er fátítt, sérstaklega að
feðgar gegni sendiherraembætti
í sama landi. Ég held að það
hafi aldrei gerst áður. Sem
stendur er næstum ómögulegt
fyrir son stjórnarerindreka að fá
starf í utanríkisþjónustunni. Því
miður. Ég var yfírmaður manna-
ráðninga í utanríkisþjónustunni
og vandinn með böm erindreka
er sá að þau eru menntuð erlend-
is í alþjóðlegum skólum. Oft
hafa þau ekki næga þekkingu á
Hollandi og tala málið ekki nægi-
lega vel til að ná tilskildum próf-
EN sendiherra fæddist 17.
desember 1936 í Tókíó í Jap-
an. Hann lauk prófi frá Gro-
ton School í Massachusetts í
Bandaríkjunum árið 1955 og
embættisprófi í lögfræði frá
Utrecht-háskóla árið 1961.
Tveimur árum síðar hóf hann
störf hjá hollensku utanríkis-
þjónustunni. Árið 1965-67 var
hann þriðji sendiráðsritari í
Jakarta, 1967-70 annarsendi-
ráðsritari í fastanefnd Hol-
lands í NATO, 1973-75 sendi-
fulltrúi í Saigon og yfirmaður
sendiráða í Aþenu, Ottawa í
Kanada og Jakarta 1975-83.
Árið 1983-86 var hann ráðu-
neýtisstjóri alþjóðasamvinnu í
utanríkisráðuneyti, sendi-
herra í Tel Aviv 1986-89,
ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneyti í heimalandinu
1989-91 og sendiherra í Ja-
karta 1992-1994.
um. Það er miður því þau eru
alin upp í rétta umhverfinu að
mörgu leyti.“
— Heyrðir þú mikið um landið
á yngri árum?
„Fyrsta landið sem ég lærði
um í landafræði eftir stríðið var
ísland. Einnig hef ég átt góð
samskipti við íslendinga í gegn-
um árin. Faðir Thors Thors var
sendiherra í Bandaríkjunum þeg-
ar ég var búsettur þar og hann
sagði mér mikið af Islandi. Jafn-
framt hitti ég Henrik Sv. Björns-
son sendiráðunaut ís-
lands hjá NATO mikið
og ræddi ísland við
hann. Þannig að ég
bý að ýmsum upplýs-
ingum.“
— Eru einhverjir menningar-
viðburðir á döfinni?
„Það verður haldin Önnu
Frank-sýning hér árið 1996 og
einnig eru aðrar sýningar í bí-
gerð. Jafnframt hef á áhuga á
að koma á samstarfi milli há-
skóla, styrkjaveitingum til náms,
tónleikum og fleira.“
— Hvað með samninga?
„Það er í gangi undirbúningur
vegna viðræðna um tvískött-
unarsamning milli ríkjanna og
má búast við samningum þar að
lútandi í framtíðinni. Einnig von-
ast ég eftir rammasamkomulagi
um menningarsamstarf milli
landanna í framtíðinni. Ég ákvað
að afhenda trúnaðarbréf mitt
núna, þrátt fyrir yfirvofandi
kosningar, svo hægt væri að
byrja að efla tengslin sem fyrst.“
íslendingar
hlýir og
vel að sér