Morgunblaðið - 11.03.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 í 1
FRETTIR
Yfirlýsing frá fyrrum meirihlutaeigendum Morgunpóstsins
Ekki markmið að eiga
aðild lengi að útgáfu
EIGENDAHOPURINN sem átti
meirihluta í Morgunpóstinum, en
seldi hlut sinn í gær, sendi í gær
frá sér yfirlýsingu sem fer hér á
eftir:
SÁ HÓPUR sem tók sig saman
undir forystu Jóhanns Óla í Securit-
as sl. sumar og fjárfesti í útgáfu
Morgunpóstsins hefur nú selt
hlutabréf sín í fyrirtækinu. Það
hafði ekki verið tilgangur hópsins
að vera aðilar að blaðaútgáfu til
lengri tíma eins og fram hefur
komið áður. Hlutabréfin hafa verið
seld til áhugasamra fjárfesta.
Þessi hópur undir forystu Jó-
hanns Óla, sem nú selur hlutabréf
sín í Morgunpóstinum, á umtals-
verðra hagsmuna að gæta sem
hlutahafar í íslenska útvarpsfélag-
inu hf.
Eins og margir vita var það
ætlum eigenda Fijálsrar fjölmiðl-
unar hf. — DV að hefja rekstur
sjónvarpsstöðvar í fullri samkeppni
við Islenska útvarpsfélagið. Þessar
fyrirætlanir hafa staðið fyrir dyrum
lengi en hvað mest alvara virðist
hafa legið þar á bak við nú síðustu
misserin. Áf augljósum ástæðum
var talin brýn ástæða til að bregð-
ast við til varnar hagsmunum Is-
lenska útvarpsfélagsins og þá ekki
hvað síst þegar skuldastaða fyrir-
tækisins er höfð í huga. Það væri
ábyrgðarhluti bæði gagnvart hlut-
höfum íslenska útvarpsfélagsins
sem og lánardrottnum félagsins,
að gera ekki allar nauðsynlegar
ráðstafanir til að treysta sam-
keppnisstöðu þess í næstu framtíð
svo félagið geti staðið við skuld-
bindingar sínar og sinnt hlutverki
sínu í þjóðfélaginu. Því hefur það
verið til umræðu um nokkurt skeið
VITASTIG 13
26020-26065
Eskihlíð. 4ra horb. falleg
endafb. á 3. hœð, 90 fm. Nýl.
gler og gluggar. Parket á gólfum.
Qóð lán áhv. 4 millj húsbr.
Verð 7,3 millj,
Háaleitisbraut. 4ra
herb. falleg íb. á 3. hæð 108 fm.
Góðar innr. Fallegt parket. Nýl.
gler og gluggar. Fallegt útsýni.
Laus. Verð 7,8 millj.
Flúðassel. 5 herb. Ib. á 2.
hæð 104 fm auk 36 fm bilskýlis.
Fallegar innr. Fallegt parket.
Verð 7,9 millj. Laus.
Blöndubakki. 4ra herb. ib.
á 3. hæð 116 fm m. herb. i kj.
Fallegt útsýni. Góð sameign.
Verð 7,9 millj.
Mulduland. 5-6 herb. fb. á
2. haað 120 fm auk bilsk. Stórar
suðursv. Góð sameign.
FÉLAG HFASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fastelgnasall, hs. 77410.
á meðal ýmissa hluthafa Islenska
útvarpsfélagsins hvort þeir ættu
ekki að gera tilraun til að kaupa
sig inn í Fijálsa fjölmiðlun hf. —
DV og freista þess að hafa beinni
áhrif á framvindu mála og leita
samkomulagsgrundvaliar sem
tryggt gæti sem best áframhald-
andi rekstrargrundvöll fyrirtækj-
anna hvors á sínu sviði.
Sú leið sem var vajin til að ná
fram samningsstöðu í málinu var
að standa að áframhaldandi sam-
keppni á blaðamarkaðnum sem
nokkur vissa var fyrir að leiddi til
þeirrar niðurstöðu sem nú hefur
orðið. Fijáls fjölmiðlun hf. — DV
er nú komin að stórum hluta í eigu
okkar gegnum íslenska útvarpsfé-
lagið hf. og má vænta þess að þessi
fyrirtæki hagi málum þannig að
rekstur beggja verði tryggari en
áður. Þegar þeir hagsmunir liggja
fyrir sjáum við ekkert því til fyrir-
stöðu að DV verði selt að nýju til
áhugasamra fjárfesta sem vilja
starfa við blaðaútgáfu. Við lítum
því á það sem bráðabirgðaráðstöf-
un að láta ljósvakafjölmiðil eiga í
prentmiðli eins og hér hefur gerst
og hefðum heldur kosið að einstak-
ir hluthafar íslenska útvarpsfélags-
ins hf. hefðu sjálfir fjármagnað
þessi kaup í stað þess að láta yfir-
skuldsett félagið gera það. Önnur
viðhorf urðu því miður ofaná að
þessu sinni.
Rétt er að taka fram af þessu
tilefni að við, þ.e. sá hópur sem tók
að sér að fjárfesta í útgáfu Morgun-
póstsins, styðjum eindregið, eins
og fram er komið, hugmyndir um
að bannað verði að fjölmiðlar eigi
með þessum hætti hver í öðrum.
Okkar áhugi beinist sem fyrr að
störfum við ljósvakamiðlun en ekki
prentmiðlun. Markmiðum okkar
hefur verið náð. Því seljum við
hlutabréf okkar í Morgunpóstinum
í hendur þeirra aðila sem við teljum
að geti staðið vel að áframhaldandi
rekstri á því sviði og vonumst til
að geta staðið fyrir sölu hlutabréfa
íslenska útvarpsfélagsins í Fijálsri
fjölmiðlun — DV sem allra fyrst.
F.h. umrædds hlutahafahóps,
Jóhann Oli Guðmundsson.
Átaksverkefni Reykjavíkurborgar
Umsóknirnar af-
greiddar eftir helgi
PÉTUR Sigurðsson, formaður
stjórnar Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs, segir að stjórn sjóðsins muni
á mánudaginn afgreiða umsóknir
frá Reykjavíkurborg um átaksverk-
efni fyrir 100 manns í grunnskólum
borgarinnar.
Félagsmálaráðherra hefur lýst
því yfir að það hafi verið mistök
af hálfu stjórnar Atvinnuleysis-
Þyggægasjóðs að ekki skuli vera
búið að afgreiða umsóknir Reykja-
víkurborgar. Sjóðsstjórnin hefði átt
að afgreiða málið eftir eldri reglum,
en ekki bíða eftir nýjum reglum,
sem hafa verið í undirbúningi.
Pétur sagði að reglurnar sem
stjórnin hefði starfað eftir hefðu
fallið úr gildi um síðustu áramót
og henni hefði ekki verið heimilt
að afgreiða umsóknir fyrr en nýjar
reglur hefðu verið samþykktar.
Afgreiðsla á nýjum reglum hefði
tafist, ekki síst fyrir tilstuðlan Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Ástæðan verkfall
kennara
Pétur sagðist vera sannfærður
um að það væri lögbrot að segja
þessum 100 starfsmönnum upp
störfum án fyrirvara. Margt af fólk-
inu hefði starfað við þessi störf í
18 mánuði og ætti því rétt á upp-
sagnarfresti. „Reykjavíkurborg er
að reyna að nota Atvinnuleysis-
tryggingasjóð og félagsmálaráðu-
neytið sem blóraböggul í þessu
máli. Borgin er að losa sig við þetta
fólk af launaskrá af því að það er
verkfall hjá kennurum," sagði Pét-
Styttan af
Nonna mót-
uð í snjó
VASKUR hópur skáta undir leið-
sögn Fanneyjar Hauksdóttur
arkitekts reisti í vikunni snjó-
styttu framan við hús Zonta-
klúbbs Akureyrar í Aðalstræti.
Styttan er nákvæmlega jafnstór
og stytta sú af Jóni Sveinssyni,
Nonna sem Zontakonur ætla að
setja upp á þessum sama stað.
Klúbbnum var gefin styttan af
Nonna eftir Nínu Sæmundsson en
styttan var lengi týnd. Nú er ver-
ið að steypa hana upp í varanlegt
efni í Þýskalandi og í júní í sumar
verður hún á stórri höggmynda-
sýningu í Nurnberg en verður
send til Akureyrar að sýningu
lokinni og væntanlega sett upp
rétt framan við æskuheimili
Nonna við Aðalstræti. Á myndinni
eru Sigurður Tómas Þórisson,
Ásta Lín Hilmarsdóttir, Fanney
Hauksdóttir, Linda Óladóttir og
Einar Hafberg.
Ertu að hugsa um stutta
?
■
Reykjavík býður upp á margt fram yfir aðrar heimsborgir.
Til dcemis: Enginn kostnaður af millilandaflugi.
Engir tungumálaerfiðlcikar.
Mjög gott vöruúrval, oft á betra verði en erlendis.
Frumsýningar á nýjustu kvikmyndum með
íslenskum texta, stórsýningar í leikhúsunum,
frábær veitingahús að hætti margra þjóða,
fjölbreytt næturlíf og síðast en ekki síst glæsileg "show".
Úrvals hótel - HÓTEL ÍSLAND - herbergin gerast varla betri.
Glæsilegt morgunverðarhlaðborð, vinsælasti skemmtistaður
landsins í húsinu, frítt í sund og innanhúss bílageymsla.
Hringdu og við veitum þér allar upplýsingar um HEIMSBORGARPAKKA Á HÓTEL ÍSLANDl.
Pað er ckki ástœða til að Piðjdið allt það besta í
lcita langt yjír skammt. H Ó T É L heimsborginni Reykjavík.
ISLAND
ÁRMÚLI 9. 108 REYKJAVÍK, SÍMI 588 8999, FAX 568 9957