Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Tölvumynd/Verkfræðiskrifstofa Norðurlands BORGARBRAUT og ný brú yfir Glerá. Til hægri á myndinni sést yfir Sólborgarsvæðið en þangað mun Háskólinn á Akur- eyri flytja starfsemi sína innan tíðar. Hönnun á Borgarbraut verði lokið í október Kostnaður áætlaður um 80 milljónir HÖNNUN á Borgarbraut með nýrri brú yfir Glerá og tengingu við Dals- braut sem liggur meðfram Glerá á að vera lokið í október og er stefnt að bjóða verkið út í byrjun næsta árs. Gísli Bragi Hjartarson, formaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, sagði að um afar brýna framkvæmd væri að ræða. Áætlað væri að bæj- arbúar gætu sparað 34 milljónir króna á ári með tilkomu þessarar tengingar, í bensín- og rekstrar- kostnaði bifreiða. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður um 80 milljónir. Sótt hefur verið um við yfirvöld vegamála að fyrirhuguð tengibraut verði þjóðveg- ur. Brautin yrði mikilvæg tenging við hafnarsvæðið og eins yrði hún aðaltengibraut við Glæsibæjarhrepp þar sem verið væri að skipuleggja nýjan byggðakjama. Þá væri nauð- synlegt að tengja Gilja- og Síðu- hverfí nyrst í bænum betur við miðbæinn og loks mun Háskólinn á Akureyri flytja starfsemi sína á Sól- borgarsvæðið innan tíðar. „Það er alveg á hreinu að bærinn getur ekki beðið mikið eftir að hefja þessar framkvæmdir, en það myndi hraða málinu mjög ef við fengjum veginn viðurkenndan sem þjóðveg," sagði Gísli Bragi. Samstarf Samheija og Royal Greenland um veiðar við Grænland Samlierji fær 5 þús. tonna karfakvóta SAMHERJI hf. og Royal Greenland hafa gert samstarfssamning um fiskveiðar í grænlenskri lögsögu og sölu á fiskafurðum. Félögin hafa fengið úthlutað 5 þúsund tonna karfakvóta hjá grænlensku lands- stjórninni og jafnframt vilyrði fyrir 3 þúsund tonnum til viðbótar. Tog- arar Samheija munu annast veið- arnar en afurðirnar verða seldar undir merki Royal Greenland. Spennandiverkefni Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samheija, sagði þetta árangur af vinnu undanfar- inna mánaða og kæmi í framhaldi af samstarfi fyrirtækjanna sem hófst í byrjun þessa árs, en þá var gerður samstarfssamningur um sölu rækju frá verksmiðjum Sam- heija á Dalvík og Akureyri. Reynsl- an af þeirri samvinnu lofar góðu og því var sú ákvörðun tekin að fara einnig út í samstarf á öðrum sviðum. „Þetta er spennandi verk- efni, en það hefur ekkert dottið niður úr skýjunum, við höfum unn- ið að þessu máli um tíma,“ sagði Þorsteinn. Lykillinn að samstarfínu er sú reynsla og þekking sem útgerð og starfsmenn Samheija hafa á karfa- veiðum og vinnslu og munu Græn- lendingar fá aðgang að þeirri þekk- ingu, en nokkrir grænlenskir sjó- menn verða í áhöfnum skipanna. Samstarfíð um karfaveiðar í grænlenskri lögsögu og sölu á þeim afla er nýjung hér á landi. Búist er við að það hafi í för með sér mjög aukið hagræði við karfaveið- ar. Má í því sambandi nefna að svokallaður úthafskarfi fer um haf- svæðið suður af íslandi og kemur inn í fiskveiðilögsögu bæði íslands og Grænlands. „Þarna skapast DR. Steingrímur Jónsson hefur ver- ið ráðinn dósent að Háskólanum á Akureyri. Jafnframt því að gegna starfi dósents er Steingrímur útibússtjóri Hafrannsóknastofnunar á Akur- eyri. Steingrímur lauk cand. scient. námi í í,hafeðlisfræði frá Kaup- mannahafnarháskóla 1985. Hann lauk doktorsprófi í hafeðlisfræði 1990 við Háskólann í Bergen og möguleiki fyrir okkur að fylgja hon- um eftir,“ sagði Þorsteinn. Skip Samheija hafa fengið heimild til að hefja veiðarnar og sagði Þor- steinn að þau gætu í rauninni farið hvernær sem er af stað. Samstarf við Færeyinga Þetta er annað verkefnið sem Samheiji tekur þátt í erlendis, en hitt er samstarf við Færeyinga um útgerð frystitogarans Akrabergs, en skipið landaði úr sinni fyrstu veiðiferð á Akureyri í vikunni. fj'allar doktorsritgerð hans um gerð og drifkrafta hringrásar í norður- höfum bæði á stórkvarða og milli- kvarða með sérstöku tilliti til hrin- grásar í Framsundi, milli Svaibarða og Grænlands. Frá árinu 1991 hef- ur Steingrímur veitt útibúi Ha- frannsóknastofnunar á Akureyri forstöðu eða frá því það var opnað. Hann hefur kennt undirstöðuatriði í haffræði við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri. Steingrímur Jónsson dósent við Háskólann Býrð þú t hurðarlausu? Þýsku Moralt innihurSirnar eru glæsilegar og á góSu verði. Einfaldar í uppsetningu. HafiS samband og fáiS sendan nýja glæsilega Moralt innihurSabæklinginn okkar. Söluaðili í Reykjavík: Innflytjandi: Harðviðarval, Krókhálsi 4, sími 91-671010. Sími, 96-30320 Skattframtal einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur Skilafrestur rennur út þann 15. mars Síðasti skiladagur skattframtals einstaklinga sem höfðu með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur á árinu 1994 er 15. mars. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Messur AKURERYARPRESTAKALL: Helgistund á FSA kl. 10.30 á sunnudag. Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju kl. 11.00. Messa kl. 14.00. Fermd verður í athöfninni Þóra Björk Lárus- dóttir, Heiðarlundi 2c, Akureyri. Altarisganga. Guðsþjónusta á hjúkrunardeildinni Seli kl. 17.00 á morgun. Æskulýðsfélagið heldur fund í kapellunni kl. 17.00. Biblíulestur í Safnaðar- heimili á mánudagskvöld kl. 20.30. GLERÁRKIRKJA: Biblíulest- ur og bænastund fellur niður í dag. Barnasamkoma kl. 11.00 á morgun, Messa kl. 14.00. og fundur æskulýðsfélagsins kl. 18.00. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 13.30 á morgun, Hjálpræðissamkoma kl. 20.00 sama dag, allir velkomnir. Heimilasamband fyrir konur kl. 16.00 á mánudag. >• HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld, laugardagskvöld. Vakningarsamkoma á morgun kl. 15.30. Biblíulestur á miðviku- dag kl. 20.00. KKSH kl. 17.15 á föstudag. Bænasamkoma sama daga kl. 20.30. Einar Már les í Deiglunni GILFÉLAGIÐ ásamt Máli og menningu efnir til bókmennta- kynningar í Deiglunni laugardag- inn 11. mars. Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Einar Már Guðmundsson, les úr verkum sín- um, bæði gömlum og nýjum. Kristján Kristjánsson flytur inn- gangsorð, Kristján Pétur Sig- urðsson, Haraldur Davíðsson og Þórarinn Hjartarson syngja og spila. Dagskráin hefst kl. 16.00 og er aðgangur ókeypis. Leikfélag VMA Islandsfrum- sýning á „Draumi í dós“ LEIKFÉLAG Verkmenntaskól- ans á Akureyri frumsýnir nýjan ærslaleik, „Draum í dós“, eftir Elly Brewer og Sandí Toksvig í Gryfjunni á þriðjudagskvöld, 14. mars kl. 20.30. Guðjón Ólafsson þýddi verkið. Fimmtán leikarar koma fram í sýningunni ásamt ljósa- og hljóðmönnum. Leikstjóri er Aðal- steinn Bergdal en Asasko Ichi- hashi sá um dansana. Leikfélag VMA hefur unnið sér sess í bæjarlífinu en í fyrra sýndi félagið söngleikinn Jósep við góðar undirtektir. Nú spreyta hinir ungu leikarar sig á farsan- um og telja nokkuð öruggt að menn munu kútveltast um af hlátri yfir þeim uppátækjum sem fyrir koma á sviðinu. Tónleikar kammer- hljómsveitar KAMMERHLJÓMSVEIT Tón- listarskólans á Akureyri heldur tónleika á morgun, sunnudaginn 12. mars kl. 17.00 í Akureyrar- kirkju. Á efnisskránni er konsert fyr- ir óbó og strengi eftir Bellini, konsert fyrir selló og hljómsveit eftir Lolo og hljómsveitarþættir úr óperunni Carmen eftir Bizet. Einleikarar eru Gunnar Bene- diktsson óbóleikari og Nicole Vala Cariglia sellóleikari en þau útskrifast bæði frá skólanum í vor. Stjórnandi hljómsveitarinnar síðan haustið' 1992 hefur verið Guðmundur Óli Gunnarsson skólastjóri Tónlistarskólans og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.