Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 33
MINNIIMGAR
KLARA B.
JÓNSDÓTTIR
+ Klara B. Jónsdóttir fæddist
á Lambeyri við Tálknafjörð
7. nóvember 1921. Hún lést á
heimili sínu í Hafnarfirði 16.
febrúar síðastliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin Ingibjörg
Helga Guðmundsdóttir og Jón
Guðmundsson. Klara fluttist ung
með foreldrum sínum til Pat-
reksfjarðar og ólst þar upp
ásamt þremur yngri systkinum
sínum, en þau eru Marteinn,
Magnús og Guðrún. Hinn 14.
júlí 1945 giftist hún unnusta sín-
um Guðmundi Sigurjóni Hjálm-
arssyni frá Grænhóli á Barðar-
strönd. Hófu þau búskap á
Grænhóli og eignuðust fimm
börn. Þau eru: Guðmundur Snor-
ri, kvæntur Ástu Jónsdóttur, þau
eiga fimm börn; Samúel Jón,
kvæntur Guðfinnu Sigurðardótt-
ur, þau eiga fjögur böm; Hjálm-
ar Jón, kvæntur Hafdísi Harðar-
dóttur, þau eiga fimm böm; Ingi
Gunnar, kvæntur Gróu Guð-
mundsdóttur, þau eiga fjögur
böm; og Hugrún Ósk, gift Sveini
Einarssyni, þau eiga tvo syni.
Útför Klöm fór fram frá Haga-
kirkju á Barðaströnd 27. febr-
úar.
NÚ ER farin frá okkur góð kona og
alltaf kemur það á óvart þegar kall-
ið kemur, þó hún hafi .átt við veik-
indi að stríða.
Klara fór ung að vinna fyrir sér,
fyrst á Patreksfírði við ýmis störf
og síðar fór hún á vertíð í Grindavík.
Margar minningar koma upp í
hugann eftir á svona tímamótum.
Eg kynntist Klöru þegar ég kom
fyrst að Grænhóli. Það var á fögru
haustkvöldi, en talsvert var farið að
rökkva og rafmagnið hafði bilað.
Klara var eyðlögð yfír því að þetta
þyrfti að koma upp á, þegar hún
fengi loksins að sjá tilvonandi
tengdadóttur sína, en mér fannst það
bara notalegt að sitja við kertaljós
og rabba saman. En best kynntist
ég þó Klöru, þegar tengdapabbi
veiktist og var sendur í hvelli inn á
sjúkrahúsið á Patreksfírði og var þar
í nokkra mánuði. Þá þurfti einhver
að hlaupa undir bagga og aðstoða
við mjaltir og fleira. Eg fór þá vest-
ur til að hjálpa eitthvað til og þann
tíma komst ég að því hvað göfuglynd
Klara var og hversu mikla hjarta-
hlýju og umhyggju hún bar fyrir
börnum sínum og barnabömum. Allt-
af mundi hún eftir afmælisdeginum
þeirra og hafði þá samband. Á hveiju
ári lagði Klara land undir fót og kom
hingað suður þegar eitthvert barna-
barnanna var fermt og dvaldi hún
þá til skiptis hjá börnunum sínum,
sem öll búa fyrir sunnan. Þetta var
nokkur upplyfting fyrir hana og
ánægja fyrir okkur hin.
Klara pijónaði mikið, peysur og
fleira. Bamabörnin nutu góðs af
því. Einnig heklaði hún, saumaði út
og málaði á tau á seinni árum. Hún
var snillingur í að búa til pönnukök-
ur og bömunum mínum fundust
„pönsumar“ hennar ömmu heimsins
bestu pönnukökur. Klara var mjög
vönduð kona og orðvör. Aldrei sagði
hún styggðaryrði um nokkum mann
og alla tíð var hún mjög bjartsýn og
jákvæð, þótt hún ætti við veikindi
að stríða síðustu árin.
Klara og Nonni fluttu til Hafnar-
íjarðar í haust og bjuggu sér yndis-
legt og fallegt heimili. Það var nota-
legt að koma til þeirra, því manni
var tekið opnum örmum og hlýjan
og ástúðin streymdi frá þeim. Síð-
asta barnabamið kom í heiminn
tæpri viku áður en Klara dó — svona
er tilveran, líf kviknar og líf slokknar.
Blessuð sé minning Klöra.
Elsku Nonni minn, Guð styrki þig
og styðji um ókomin ár, því að miss-
ir þinn er mikilL Guð blessi þig.
Ásta Jónsdóttir.
HILMIR
REYNIS-
SON
+ Hilmir Reynisson fæddist í
Reykjavík 13. desember
1961. Hann lést af slysförum
14. febrúar síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Bústaða-
kirkju 27. febrúar.
HINN 14. febrúar síðastliðinn feng-
um við þær skelfilegu fréttir að
Himmi vinur okkar hefði látist af
slysföram. Maður hefði haldið að
hann hefði verið búinn að taka út
sín áföll, sem voru ófá í lífi hans,
þó hann hafi alltaf staðið upp bjart-
sýnni og lífsglaðari en nokkru sinni
með háar hugmyndir, enda voru það
hans stærstu kostir ásamt óendan-
legu jafnaðargeði.
Við kynntumst honum fyrst þeg-
ar hann fluttist austur á Seyðisfjörð
í kringum fermingu. Þar féll hann
strax vel inn í hópinn, enda drengur
sem öllum líkaði vel við. Þar tengd-
ust þau bönd sem héldust alla tíð.
Þótt stundum hafi liðið nokkur tími
milli samfunda, var alltaf eins og
við hefðum sést síðast í gær. Það
lýsir því kannski best að þegar
maður hitti hann, var maður alltaf
boðinn velkominn á heimili hans og
þar leið manni strax eins og heima
hjá sér, t.d. þegar annar okkar hitti
hann síðastliðið vor, vora hann og
Jóhanna að halda sameiginlegum
vini okkar afmælisveislu þar sem
ekkert var til sparað. Þannig var
Himmi, sannur vinur.
Það er erfítt að trúa, að maður
eigi aldrei eftir að sjá hann koma
labbandi inn um dymar hjá Ingi-
björgu og Nonna á Hjaltabakkan-
um, með stríðnisbrosið á andlitinu.
Maður fær ekkert að gert, en minn-
ingin um allar þær góðu stundir,
sem við áttum með honum, getur
enginn tekið frá okkur.
Við sendum ykkur öllum, sem
eigið um sárt að binda, okkar
dýpstu samúðarkveðjur og þökkum
fyrir þann alltof stutta tíma sem
við fengum notið vinskapar Himma.
Þórhallur Jónsson og
Sigurjón Heiðdal.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Opel eöalmerki
á uppleiö
CORSA
Opel Corsa Sdyra kr. 1.059.000
Oruggari fjölskyldubíl
færbu ekki fyrir
kr. 999.000.-
Meb skráningu og íslenskri rybvörn
Bílasýning
laugardag
Tvöfaldir styrktarbitar í huröum
Bílbeltastrekkjarar undir framsætum
Stillanleg hæö öryggisbelta fyrir farþega í fram- og aftursætum
Útvarp og segulband meb þjófavörn og 6 hátölurum
Heilir hjólkoppar ..
sunnudag
kl.14- 17
Komib og
reynsluakib
öruggasta
bílnum í
þessum
verbflokki.
Viö klœöskerasaumum Corsa aö þínum óskum.
• Tvær vélastæröir, 1200ccog 1400cc
• Sjálfskipting sem er fjögurra gíra meö
sportstillingu, sparnaöarstillingu og spólvörn.
• Alfelgur, vökvastýri, samlæsingar meö
þjófavörn, höfuöpúöar fyrir aftursæti og
margt, margt fleira getum viö boöiö þér meö
"öruggasta bílnum í þessum veröflokki"
Fossháls I 110 Reykjavík Sími 634000
B I L H E I M A R
1
£ .-ÉM * i | M \ \
\ \ \