Morgunblaðið - 11.03.1995, Qupperneq 39
/
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 39
SPURT OG SVARAÐ
MESSUR
Heilbrigðis- og tryggingarádu-
neytiö og Sérfræðingafélag ís-
lenzkra lækna svara spurningum
lesenda um tilvísanakerfið.
Lesendur Morgunblaðsins
geta beint spurningum um
nýja tilvísanakerfið til blaðsins
og hefur heiibrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið fallist á að
svara þeim, svo og Sérfræð-
ingafélag íslenzkra lækna.
Lesendur geta komið spurn-
ingum sínum á framfæri í síma
691100 milli kl. 10 og 11 árdeg-
is frá mánudegi til föstudags.
Spurningum er hægt að beina
til annars hvors aðilans eða
beggja, allt eftir eðli spurning-
arinnar. Nöfn og heimilisföng
þurfa að fylgja með.
Tilvísun
gildir í allt
að 18 mánuði
Eggert Konráðsson hringdi
en hann vinnur í miðbænum í
Reykjavík og er hjarta- og sykur-
sjúklingur og gengur reglulega
á göngudeild. Hann spyr hvernig
heilbrigðisráðuneytið sjái það í
hendi sér að það geti verið ódýr-
ara fyrir hann að fara frá mið-
bænum í Reykjavík og á göngu-
deild í Kópavogi til að fá tilvísun
á hjartasérfræðing sem hann
gengur mjög reglulega til.
Svar heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins:
Reglugerð um tilvísanir bygg-
ist á því að samskipti læknis og
sjúklings hefjist að jafnaði hjá
heimilis- eða heilsugæslulækni.
Sé ástæða til að leita sérfræðings
vísar heimilislæknir sjúklingi til
sérfræðings en sjúklingur velur
til hvaða sérfræðings hann kýs
að leita. Sparnaðurinn felst í því
að sjúklingur fær oftar en nú
úrlausn sinna mála hjá heimilis-
eða heilsugæslulækni og þarf
ekki að leita sérfræðings.
Viðbótarkostnaður þeirra
sjúklinga sem þurfa að vera hjá
sérfræðingi langtímum saman
verður hverfandi þegar litið er
til þess að tilvísun getur gilt í
allt að 18 mánuði og að komu-
gjald á heilsugæslustöð er lágt,
200 krónur fyrir börn, örorku-
og ellilífeyrisþega en 600 krónur
fyrir aðra.
Ekki er hægt að svara Eg-
gerti tæmandi án þess að vita
hvað það er sem hann sækir til
hjartalæknis. Sé t.d. um eftirlit
með blóðþrýstingi að ræða gæti
heilsugæslustöðin sinnt því. A
göngudeild sykursjúkra á Land-
spítala þarf ekki tilvísun.
Hve margir
læknar verða
starfandi?
Þóra Þórðardóttir spyr:
Hve margir háls- og eyrna-
læknar verða starfandi innan
ramma tilvísunarkerfisins l.júní
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, hve
margir húðlæknar, barnalæknar
og kvensjúkdómalæknar. Hún
vill fá að vita hvort listar verði
hangandi uppi með nöfnum
lækna eða hvort hægt verði að
fá þessar upplýsingar með öðru
móti. Þóru er spurn: Ef svo vildi
til að engir læknar yrðu starf-
andi í þessum greinum, til hvaða
göngudeilda yrði hægt að leita?
Svar frá Sérfræðingafélagi ís-
lenzkra lækna:
Aliir sérfræðingar innan
þeirra sérgreina sem Þóra nefnir
og starfa á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu hafa sagt upp samningi
sínum við Tryggingastofnun rík-
isins. Það er því ekki um nein
nöfn að ræða til að setja á lista.
Varðandi göngudeildirnar, þá
er þar ekki hægt að bæta við
sjúklingum, nema að stjórnvöld
séu tilbúin að leggja til gífurlega
aukafjármuni í starfsemi þessara
deilda. Slíkt er ekki sjáanlegt á
ijárlögum þessa árs. Eina leiðin
til að fá þjónustu innan þessara
greina er að leita til sérfræði-
lækna á stofu og greiða fullt
gjald fyrir heimsóknina.
Það er hins vegar skoðun
stjórnar Sérfræðingafélags ís-
lenzkra lækna að almannatrygg-
ingalögin séu það sterk að
Tryggingastofnun ríkisins sé
ekki stætt á öðru en að endur-
greiða sjúklingum hluta af þess-
um kostnaði. Þá er tilvísunar-
kerfið fallið um sjálft sig. Ef
ekki er hér um að ræða stóraukn-
ar álögur á sjúklinga þessa lands.
Svar frá heilbrlgðis- og trygg-
ingaráðuneyti:
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins um
uppsagnir sem borist hafa stofn-
uninni fyrir 1. mars 1995 og um
nýja sérfræðinga sem hafa til-
kynnt sig til starfa verða sex
háls-, nef- og eyrnalæknar, tíu
barnalæknar, einn húð- og kyn-
sjúkdómalæknir og fjórir kven-
sjúkdómalæknar í viðskiptum við
Tryggingastofnun ríkisins við
störf á landinu öllu þann 1. júní.
Þar af verða tveir háls-, nef-
og eyrnalæknar, sex barnalækn-
ar, enginn húð- og kynsjúkdóma-
læknir og þrír kvensjúkdóma-
læknar starfandi í Reykjavík og
nágrenni.
Listar með nöfnun þeirra
lækna sem verða með samning
við Tryggingastofnun þann 1.
júní nk. munu liggja frammi í
sjúkratryggingadeild Trygginga-
stofnunar, Laugavegi 114 og
Tryggvagötu 28, hjá umboðum
Tryggingastofnunar um allt land
og á heilsugæslustöðvum.
Ef svo vill til að ekki verði
neinn læknir starfandi í sérgrein
verður hægt að leita til göngu-
deilda sjúkrahúsa. Upplýsingar
um þessar göngudeildir er að
finna í símaskrá, svo og hjá
skiptiborði viðkomandi sjúkra-
húss.
Guðspjall dagsins:
Kanverska konan.
(Matt. 15.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14 á vegum
Kirkju heyrnarlausra. Sr. Ingunn
Hagen frá Bergen prédikar. Sr.
Miyako Þórðarson.
HRAFIMISTA: Guðsþjónusta kl.
14. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Ein-
söngur Ingunn Ósk Sturludóttir.
Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11 á
vegum samstarfsnefndar krist-
inna trúfélaga. Hafliði Kristinsson
forstöðumaður Hvítasunnusafn-
aðarins prédikar. Sr. Hjalti Guð-
mundsson þjónar fyrir altari. Full-
trúar kristinna safnaða lesa ritn-
ingarorð. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Barnastarf í safnaðarheimil-
inu kl. 11 og í Vesturbæjarskóla
kl. 13. Föstumessa kl. 14. Altaris-
ganga. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Æskulýðsmessa kl.
14. Æskulýðsfélagið og ferming-
arþörn taka þátt í messunni und-
ir stjórn Dagnýjar Höllu Tómas-
dóttur. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
stund kl. 10. „Þjáningin." Sr. Sig-
finnur Þorleifsson, sjúkrahús-
prestur. Messa og barnasam-
koma kl. 11. Organisti Hörður
Áskelsson. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Kl. 12.30. Hver var Guðríður
Símonardóttir? Dagskrá á vegum
Listvinafélags Hallgrímskirkju, þar
sem Steinunn Jóhannesdóttir, rit-
höfundur flytur hádegiserindi.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Organisti Pavel Manasek. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Organisti
Jón Stefánsson. Sunnudagaskóli
á sama tíma. Óvæntir gestir
koma í heimsókn. Kaffisopi eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Biskupsvísitasía. Biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason,
prédikar. Báða bjöllusveitir koma
fram. Drengjakór Laugarnes-
kirkju syngur undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar. Kór Laugarnes-
kirkju syngur. Stjórnandi og org-
anisti Jónas Þórir. Barnastarf á
sama tíma. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Opið hús frá kl. 10. Munið
kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Orgel og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Margrét Eggertsdóttir,
cand. mag. flytur erindi um sr.
Hallgrím Pétursson eftir guðs-
þjónustu. Veitingar. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Vera
Gulasciova. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf
á sama tíma í umsjá Elínborgar
Sturludóttur og Sigurlínar ívars-
dóttur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Fundur með foreldrum
fermingarbarna eftir guðsþjón-
ustuna. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa með altaris-
göngu á sama tíma. Organisti
Daníel Jónasson. Samkoma ungs
fólks með hlutverk kl. 20. (Ath.
breyttan tíma.) Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Lenka Mátéová. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma. Um-
sjón Ragnar Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Val-
gerður, Hjörtur og Rúna. Guðs-
þjónusta kl. 14. Gídeonfélagar
heimsækja söfnuðinn og annast
ritningarlestra. Guðjón St. Garð-
arsson prédikar. Guðsþjónusta á
hjúkrunarheimilinu Eir kl. 15.30.
Organisti Bjarni Þór Jónatansson.
Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
þjónar. Organisti Oddný Þor-
steinsdóttir. Barnastarf á sama
tíma í umsjón Þórunnar og Vigfús-
ar. Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJ A: Guðsþjón-
usta kl. 11. Gídeonfélagar lesa ritn-
ingarlestra og kynna starf sitt.
Organisti Örn Falkner. Barnastarf
í safnaðarheimilinu Borgum á
sama tíma. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 14. Fermdur
verður Barði Már Jónsson, Engj-
aseli 58. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Kvenfélag kirkjunnar
heldur kökubasar að lokinni guðs-
þjónustu. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Fermd verður María
Rachel Ágústsdóttir, Hrafnhólum
8, Reykjavík. Organisti Pavel
Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga
daga messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg:
Samkoma á morgun kl. 16.30.
Auðug orðin öllu, er yfirskriftin.
Ræðumaður: Ástríður Haralds-
dóttir. Gospelkórinn syngur.
Barnasamverur á sama tíma. Létt
máltíð á vægu verði eftir sam-
komuna.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelf-
ía: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Barnagæsla og barnasamkoma á
sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 14. Bjargarkaffi eftir
messu. Þórsteinn Ragnarsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20. Anne Gur-
ine og Daníel Óskarsson stjórna
og tala.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Altarisganga. Barnastarf í safn-
aðarheimilinu kl. 11. Jón Þor-
steinsson.
BRAUTARHOLTSKIRKJA,
Kjalarnesi: Guðsþjónusta kl. 11.
Gunnar Kristjánsson.
GARÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
13. Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Aðalsafnaðar-
fundur verður haldinn í samkomu-
sal íþróttahússins að messu lok-
inni. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl.
14, altarisganga. Organisti Helgi
Bragason. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
ST. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga
kl. 8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Messa kl. 14. Frímúrarar taka
þátt í athöfninni og lesa ritningar-
lestra. Nemendur úr Tónlistar-
skóla Njarðvíkur koma fram.
Fermingarbörn og foreldrar hvött
til að mæta. Organisti Steinar
Guðmundsson. Eftir messuna
verður systrafélag kirkjunnar með
kaffisölu. Baldur Rafn Sigurðsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Kirkju-
skóli í dag, laugardag, í Stóru-
Vogaskóla kl. 11.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í umsjá Málfríðar
Jóhannsdóttur, Ragnars S. Karls-
sonar og sr. Sigfúsar Ingvasonar.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni:
Hver eru einkenni kirkjunnar? Kór
eldri borgara syngur við guðs-
þjónustuna. Organisti Einar Örn
Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Sig-
rúnar og Bjargar. Fundur um sorg
og sorgarviðbrögð 13. mars kl.
20.30. Tómas Guðmundsson.
KAPELLA HNLFÍ, Hveragerði:
Messa kl. 11. Tómas Guðmunds-
son.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Sunnudagaskóli í Landa-,
kirkju kl. 11 og í Hraunbúðum kl.
13.15. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Á fræðsluhelgi verður fjallað
um alkóhólismann og í guðsþjón-
ustunni verður sjónum beint að
honum og lausnarleið kirkjunnar.
Barnasamvera í safnaðarheimili
meðan á prédikun stendur. Altar-
isganga. í messukaffi stjórnar
Flosi Karlsson, læknir, umræðum
-og svarar fyrirspurnum. Ungl-
ingafundur KFUM og K Landa-
kirkju fellur niður vegna helgar-
móts í Vatnaskógi.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag, laugardag, kl. 11.
Stjórnandi Sigurður Grétar Sig-
urðsson. Kirkjuskóli yngstu barn-
anna í safnaðarheimilinu kl. 13.
Stjórnandi Axel Gústafsson.
Messa sunnudag kl. 14. Skúli
Svavarsson, kristniboði, prédikar.
Altarisganga. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta í Borgarneskirkju
kl. 11.15. Árni Pálsson.
BRIPS
Umsjón Arnór
Ragnarsson
Bridsfélag
Breiðholts
SL. ÞRIÐJUDAG hófst þriggja kvölda
Barómeter. Staða efstu para er þessi:
Guðm. Baldursson-GuðmundurGrétarsson _ 45
Una Árnadóttir - Kristján Jónasson 33
Maria Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 31
Baidur Bjartmarsson - Halldór Þorvaldsson 24
Leifur Kristjánsson - Gísli Tryggvason 23
Keppnin heldur áfram næsta þriðju-
dag. Æskilegt væri að bæta við einu
pari. Áhugasamir vinsamlegast hafi
samband við Hermann í síma 41507.
Spilað er í Þönglabakka 1, kl. 19.30.
Bridsfélag Reykjavíkur
Sl. miðvikudag, 8. mars, lauk aðal-
sveitakeppninni, urðu úrslit andi: eftirfar-
1. riðilLLandsbréf 65
Samvinnuferðir Landsýn 54
S. Ármann Magnússon 32
VÍB . 29
2. riðill: Ólafur Lárusson 54
Tryggingamiðstöðin 51
Hjólbarðahöllin 37
Jón Stefánsson 34
3. riðill: Esther Jakobsdóttir 62
Metró 59
Næsta keppni félagsins er einmenn-
ingur með Barómetersniði. Þetta form
er þekkt úr íslandsmótinu og hefur
notið mikilla vinsælda. Spilað er í
húsi BSÍ í Þönglabakka 1, 3. hæð, og
hefst spilamennskan kl. 19.30.
Bridskvöld byrjenda
Sl. þriðjudag 7. mars var Brids-
kvöld byrjenda og var spilaður eins
kvölds tvímenningur að vanda. Úrslit
kvöldsins urðu þannig:
NS-riðill:
Hallgrímur Markússon - Ari Jónsson 184
Þórdís Einarsdóttir - Birgir Magnússon 161
Margrét Gunnarsdóttir - Sigrún Ólafsdóttir 156
AV-riðill:
HrannarJónsson-GísliGíslason 195
Sverrir Ágústsson - Níels Hafsteinsson 192
Jensína Stefánsd. - Siguijón Guðröðarson 155
Á hveijum þriðjudegi kl. 19.30
gengst Bridssamband Islands fyrir
spilakvöldi sem ætluð eru byijendum
og bridsspilurum sem ekki hafa neina
keppnisreynslu að ráði. Spilaður er
ávallt eins kvölds tvímenningur og
spilað er í húsnæði BSÍ í Þönglabakka
1, 3. hæð, í Mjóddinni.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Sl. mánudag, 6. mars, lauk Butlern-
um og urðu úrslit þannig:
Friðþjófur Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 88
Erla Siguijónsdóttir - Kristján Ólafsson 81
Njáll Sigurðsson - Bjarni Ó. Sigursveinsson 81
SkúliRagnarsson-GuðlaugurEllertsson 62
■ Ólafur Gíslason - Þórarinn Sófusson 52
Hæsta skor annað kvöldið fengu:
BjömStefánsson-DagurHalldórsson 41
Jón Andrésson - Þorvaldur Þórðarson 27
SkúliRagnarsson-GuðlaugurEllertsson 22
Nk. mánudagskvöld hefst Lista-
brids en það er tveggja kvölda tví-
menningur þar sem skorin eru fyrir-
fram ákveðin, líkt og í Landstvímenn-
ingnum. Spilað er í íþróttahúsinu
v/Strandgötu og hefst spitamennskan
kl. 19.30.