Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 41

Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 41 Anand féll á tíma með unnið SKAK Las Palmas, Kanarícyjum ÚRSLITAEINVÍGI UM ÁSKORUNARRÉTTINN GEGN KASPAROV. 9.-23. mars. ENGINN hefði nokkru sinni getað spáð fyrir um gang mála í fyrstu einvígisskák þeirra Vyswanathans Anands frá Indlandi og Gata Kamskys frá Bandaríkjunum. An- and er frægur fyrir að vera fljótast- ur að hugsa og leika af öllum stór- meisturum í heimi, en þrátt fyrir það féll hann á tíma með unna stöðu. Undirrituðum er ekki kunnugt um að Anand hafi áður fallið á tíma á alþjóðlegu móti. Svo virðist sem taugarnar hafi brostið rétt eins og síðasta sumar þegar þeir Kamsky háðu einvígi í FIDE-heimsmeistara- keppninni. Þá blasti sigur við An- and, hann hafði tveggja vinninga forskot þegar þijár skákir voru eft- ir. Samt náði Kamsky að jafna og hann vann síðan úrslita- skák. Það er ólík- legt að Anand nái að jafna sig eftir þetta óvænta og hrikalega áfall. Kamskyvar Það hefði líklega stalheppinn. verið skárra ef Kamsky hefði unnið hann á borðinu. Alls á að tefla tólf skákir. Það er gífurlega mikið í húfi. Sigurvegarinn teflir heims- meistaraeinvígi við Kasparov í Köln í haust og tryggir sér tugi milljóna króna í verðlaunafé. Faðir Gata Kamskys, Rustam Kamsky, lætur skapið oft hlaupa með sig í gönur og er iðulega til vandræða. Þeim feðgum hefur verið hótað með háum fésektum haldi hann sig ekki á mottunni. Rustam hefur gerst sekur um að hóta Nigel Short öllu illu í vitna viðurvist. Á Indlandi í síðasta mánuði fór það í skapið á honum að einn aðstoðar- manna Kamskys, stórmeistarinn Shabalov, gaf sig á tal við vinkonu annars keppanda. Rustam gekk seinna í skrokk á aðstoðarmannin- um fyrir tiltækið og varð það til þess að hann sagði sig úr vistinni. 1. einvígisskákin: Hvitt: Anand Svart: Kamsky Spánski leikurinn I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3 - 0-0 9. h3 - Bb7 10. d4 - He8 II. Rbd2 - Bf8 12. a4 - h6 13. Bc2 — exd4 14. cxd4 — Rb4 15. Bbl - g6 16. Ha3 Hannes Hlífar Stefánsson lék 16. e5 gegn Jóhanni Hjartarsyni í auka- keppninni um íslandsmeistaratitil- inn sl. haust, en eftir 16. — de5 17. de5 - Rh5 18. e6?! - Hxe6 19. Hxe6 - fxe6 20. Re5 - Dd5! mátti svartur vel við una. 16. - Bg7 17. e5 Áður hefur verið leikið hér 17. Hae3 eða 17. Rh2. Þessari nýjung Anands hefði svartur átt að svara með Rfd5 nú eða í næsta leik. - dxe5 18. dxe5 - Rh5?! 19. axb5 - axb5 20. Db3! - c5 21. Re4 Það hefur sýnt sig að byijun Kamskys er misheppnuð. Hann verður nú að láta biskupaparið af hendi. 21. - Bxe5 22. Rxc5 - Bxf3 23. Dxf3 - Hc8 24. Re4! Hvítu biskuparnir njóta sín vel í opinni stöðu og engin samvinna er á milli svörtu mannanna. 24. - Kg7 25. Hdl - De7 26. Be3 - Hed8 27. Ha7 - De6 28. Rc5 - Hxdl+ 29. Dxdl - Dd5 30. Dg4! - Hc7. 31. Hxc7 - Bxc7 32. g3 - Dc4 Hér gerðist hið ótrúlega. Anand féll á tíma í vinningsstöðu: 33. Bd4n—- Rf6 34. Bxg6! og hvítur vinnur peð án þess að svartur fái nokkrar bætur. T.d. 34. — fxg6 35. Dd7+ - Df7 36. Re6+ - Kg8 37. Dxf7+ — Kxf7 38. Rxc7 og vinn- ur, eða 34. — Be5 35. Bxe5 — Dxg4 36. hxg4 Kxg6 37. f3 með góðum vinningslíkum í endatafli. Karpov á toppinn í Linares Anatólí Karpov, FIDE-heims- meistari, vann Khalifman frá Rúss- landi í sjöundu umferð stórmótsins í Linares á Spáni í fyrrakvöld. Vasilí ívantsjúk, Úkraínu, vann landa sinn Alexander Beljavskí sem var efstur fyrir umferðina. Þeir Karpov, Top- alov og ívantsjúk eru nú jafnir og efstir með fimm vinninga. Önnur úrslit urðu þau að Short vann Drejev, Topalov vann Illescas, Ivan Sokolov vann Shirov en jafntefli gerðu Tivjakov og Ákopjan, Ljubojevic og Lautier. Staðan eftir sjö umferðir: I. -3. Karpov,Topalovogívantsjúk 5 v. 4.-5. Beljavskí og Shirov 4'/i v. 6. Khalifman 4 v. 7. -8. DrejevogTiyjakov 3VÍ v. 9.-10. Illescas og Short 3 v. II. Ljubojevic 2VÍ v. 12,—13.1. Sokolov og Lautier 2 v. 14. Akopjan IV2 v. Öðlingaskákmót að byrja Árlegt skákmót öðlinga, þ.e. 40 ára og eldri, hefst miðvikudaginn 15. mars kl. 19.30 í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, ein umferð í viku. Teflt verður á miðvikudagskvöld- um, umhugsunartíminn er ein og hálf klukkustund á skákina. Skák- stjóri verður Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur skákdómari, sem haft hefur veg og vanda af öðlingamót- unum frá upphafi. Skákþing Norðlendinga Skákþing Norðlendinga 1995 verður haldið á Blönduósi helgina 17.—19. mars. Keppni í opnum flokki fer fram á Hótel Blönduósi og hefst föstudaginn 17. mars kl. 14. Keppni í öðrum flokkum hefst daginn eftir kl. 14. Keppni í barna- og unglingaflokki fer fram í Skjól- inu, félagsmiðstöð unglinga. Tefld- Hagstæðustu arsins ? Verðið á Renault 19 RN árgerð 1995 er aðeins kr. 1195.000.- »IBilWBWWBWWWBBaiBBMBBilBlllliíWlliWi(WM8KBBi888BWB8BBBa8W8>BBi8l / INNIFALIÐ : Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél, vökvastýri, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrt útvarp/segulband, styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar, samlitir stuðarar, málmlitur, ryðvörn, skráning .. Fallegur fjölskyldubíll á fínu verði. ar verða sjö umferðir í öllum flokk- um. Umhugsunartíminn í fyrstu þremur umferðunum verður hálf- tími á skákina, en í hinum fjórum verður ein og hálf klukkustund á fyrstu 30 ieikina, en hálftími til að ljúka skákinni. Auk opna flokksins verður teflt í kvennaflokki, unglingaflokki 13—16 ára og barnaflokki 12 ára og yngri. Sigurvegarinn í opna flokknum öðlast rétt til setu í áskor- endaflokki á Skákþingi íslands. Veitt verða sex peningaverðlaun í opna flokknum, þau hæstu kr. 20 þús. Skráning fer fram hjá Páli Leó, Blönduósi, í símum 95-24229 og 95-24010. Skráningu í opna flokkinn lýkur fimmtudaginn 16. rnars en laugardaginn 18. mars kl. 12 í hinum. Hraðskákmót Norðlendinga fer fram sunnudaginn 19. mars og hefst kl. 14. Keppendur eiga kost á gistingu og fæði á Hótel Blöndu- ósi á sérstöku tilboðsverði. Mótið er öllum opið. Margeir Pétursson Y Hvar^ gerir þú betri bílakaup ik o Á Reynsluaktu Renaultl m Sns-'s&T Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. ÁRMÚLA 13 • SÍMI 5 5 3 1 236 O miliams RENAIJLT I _r Formulal — . Þrefal«|ur heimsmeistari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.