Morgunblaðið - 11.03.1995, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Markaðslaun
Jónasi G. Jónassyni:
EINN hópur háskólamenntaðra
launþega hefur nokkra sérstöðu á
hinum svokallaða vinnumarkaði.
Það eru verkfræðingar og tækni-
fræðingar. Ef tekið er dæmi um
Stéttarfélag verkfræðinga þá eru
um 260 verk-
fræðingar félags-
ins starfandi hjá
ríki, 60 hjá
Reykj avíkurborg
og 400 á almenn-
um markaði
dreift á verk-
fræðistofur, iðn-
fyrirtæki og aðra
Jónas vinnustaði. Þessi
Jónasson staðreynd gefur
verkfræðingum og tæknifræðing-
um einstaka stöðu á vinnumarkað-
inum. Verkfræðingar og tækni-
fræðingar starfa aðallega á þremur
vettvöngum þar sem ríkir mjög
mismunandi launa- og starfs-
mannastefna. Það hefur verið
reynslan að um leið og birtir upp í
atvinnuástandi þá hreyfast verk-
fræðingar til á markaðinum og leita
þar sem betra er að hafa.
Samkeppni um
verkfræðinga
Aðilar vinnumarkaðarins eru
duglegir að draga fram staðreyndir
um „markaðinn" hvað hann þolir
og hvað ekki. Það er því kominn
tími til beita markaðsreglum á
kjarabaráttuna sjálfa. Þannig ætti
markaðurinn að ráða t.d. hver væri
þróun launa verkfræðinga og það
ætti að vera eftirspurnin eftir hæf-
um verkfæðingum sem færir þeim
bestu kjörin. Þannig getum við t.d.
smám saman unnið á úreltu og af-
brigðilegu launakerfi ríkisins þar
sem „almennur markaður" verk-
fræðinga tekur ekki þátt í slíkum
skrípaleik sem stundaður er hjá ríki.
Sem dæmi má taka að munur á
yfírvinnulaunum hjá ríki og á al-
mennum markaði er á bilinu
30-90% verkfræðingi á almennum
markaði í hag.
Þannig eru nú dæmi um að verk-
fræðistofa ræður verkfræðing frá
ríkisstofnun og greiðir honum hærri
laun. Ríkisstofnunin verður annað-
hvort að ráða jafnhæfan mann á
betri launum eða mann með minni
starfsreynslu, kosta til hans þjálf-
unar en greiða í staðinn lægri laun
vegna minni starfsreynslu. Það er
hinsvegar umhugsunarvert hvort
þetta sé ekki bara eðlilegt.
Hinsvegar virkar þetta líka vel
gagnvart til dæmis verkfræðistof-
um ef þær greiða lægri iaun en
almennt gerist á „markaðinum".
Þar eru eins og annars staðar verk-
fræðingar með upplýsingar frá
Stéttarfélaginu um hvað er greitt
að meðaltali á hinum ýmsu vett-
vöngum og sækja í önnur störf inn-
an „markaðs verkfræðinga". Þann-
ig neyðast stofur eins og ríkið, sem
ætla að byggja upp þjónustu
byggða á starfsfólki með reynslu
og hæfni einfaldlega til að bjóða
betur ef fyrirtækin ætla sér að
halda hæfum starfsmönnum. Þetta
hefur áhrif á allan markað verk-
fræðinga, hvatning fyrir fyrirtæki
og hvatning fyrir verkfræðinga til
að halda við sinni sérþekkingu og
auka hæfni sína.
Stefna SV og kjarakönnun
Þetta er helsta ástæða þess að
yfirlýst skoðun Stéttarfélags verk-
fræðinga er að nútíma kjarabarátta
muni einkennast af kröfum um
hæfni, ábyrgð og árangur í starfí
ásamt samkeppni um hæfustu verk-
fræðingana. Þetta hefur reyndar
verið stefna félagsins síðustu ár.
Þess vegna stendur Stéttarfélagið
fyrir kjarakönnun á hverju ári og
gefur niðurstöður út í riti til svar-
enda og félagsmanna. Þar er að
finna bestu upplýsingar um hvað
raunverulega er greitt á hveiju
starfssviði og á helstu starfsvett-
vöngum verkfræðinga. Stefna SV
er að vera þessi upplýsingabrunnur
um markaðinn fyrir verkfræðinga.
Niðurstöður kjarakönnunar eru
notaðar til að reikna út svokölluð
markaðslaun verkfræðinga. Þessi
laun eru í raun landsmeðaltal. Það
er að markaðslaunin endurspegla
meðaltalið af öllum starfssviðum
og öllum starfsvettvöngum. Mark-
aðslaunataflan er uppfærð fjórum
sinnum á ári og gerðar eru minni
kannanir á milli með slembiúrtaki
úr félagaskrá SV. Þessar upplýs-
ingar ásamt upplýsingum í samn-
ingum SV, upplýsingum frá kjara-
rannsóknanefnd, spá Þjóðhags-
stofnunar og vísitölur Hagstofu Is-
lands eru notaðar til að uppfæra
töfluna.
Hvað á þá Stéttarfélag að gera
þar sem samdráttur verður á vinnu-
markaði verkfræðinga? Það á að
gera nákvæmlega það sem það er
að gera í dag: Vinna að því að víkka
út vinnumarkaðinn til að auka eftir-
spumina. Það stefnir að aukinni
getu verkfræðinga til markaðssetn-
ingar á eigin hæfni og þekkingu.
Það stefnir að almennri notkun
vinnustaðasamninga þar sem metin
eru fyrmefnd atriði ásamt öðra.
Það er grandvöllurinn fyrir skyn-
samlegri umbun fyrir vinnuframlag
verkfræðingsins sem tengd er
ábyrgð, hæfni og árangri í starfi.
JÓNAS G. JÓNASSON,
framkvæmdastj. SV
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
3M0t0ttidbbitíib
- kjarni málsins!
Tröllvaxinn vinningur framundan!
Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag.
Landsleikurinn okkar!
i
MERKISMENN