Morgunblaðið - 15.03.1995, Side 1

Morgunblaðið - 15.03.1995, Side 1
72 SÍÐUR B/C/D/E 62. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Grálúðustríð Spánverja og Kanadamanna Spánveijar hefja veiðamar að nýju Madrid, Brussel, Ottawa. Reuter. SPÆNSKIR útgerðarmenn fyrir- skipuðu í gær togurum sínum að hefja tafarlaust grálúðuveiðar að nýju á umdeildum miðum utan við landhelgi Kanada. Spánvetjar sögð- ust einnig ætla að krefja kanadíska ferðamenn um vegabréfsáritanir og Javier Solana, utanríkisráðherra Spánar, sagði að þeir kynnu að senda fleiri herskip á svæðið til að vernda spænsku togarana. „Við höfum sagt skipstjórunum að bíða ekki mínútu lengur, leggja út netin og hefja veiðar,“ sagði tals- maður spænskra útgerðarmanna sem komu saman í Vigo, heimahöfn togarans Estai, sem kanadísk varð- skip tóku á fímmtudag. Um 17 spænskir togarar eru á svæðinu og hættu veiðum eftir töku Estai. Brian Tobin, sjávarútvegsráð- herra Kanada, staðfesti að spænsku skipin hefðu hafið grálúðuveiðar utan við landhelgina með „ögrandi hætti“. Bonino segir ESB reiðubúið til viðræðna Emma Bonino, sem fer með sjáv- arútvegsmál innan framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins (ESB), sagði að ESB væri reiðu- búið að hefja samningaviðræður við Kanadastjórn í dag, miðviku- dag, ef spænska togaranum yrði sleppt. Sir Leon Brittan, utanríkisvið- skiptafulltrúi ESB, neitaði að svara spurningum blaðamanna um hvort Evrópusambandið myndi grípa til viðskiptaþvingana ef togaranum yrði ekki sleppt. Hóta að senda fleiri herskip Bonino kvaðst ekki vera ánægð með þá ákvörðun spænsku stjórnarinnar að senda herskip á miðin utan við kanadísku land- helgina. Spænski utanríkisráð- herrann sagði hins vegar að til greina kæmi að Spánveijar sendu fleiri herskip á svæðið. Hann kvað einnig hugsanlegt að Spánveijar slitu stjórnmálasambandi við Kanada en kvaðst vona að til þess þyrfti ekki að koma. Ákveðið var að aflýsa fundi kanadískra, spænskra, franskra og þýskra embættismanna, sem ráðgerður var í gær. Brian Tobin sagði að stór hluti afla Estai, eða um 80%, hefði ver- ið ókynþroska smáfiskur. Svar spænska utanríkisráðherrans við þessu var að engar alþjóðlegar reglur hefðu verið settar um lág- marksstærð þeirrar grálúðu sem veiða mætti á þessum slóðum. ■ Skipveijarnir þjóðhetjur/ 27 ■ Hegðun Evrópubúa/ 26 * Utgöngubann í Istanbúl ÚTGÖNGUBANN var í einu hverfi Istanbúlborgar í gær eft- ir mikil átök í tvo daga milli manna af trúflokki alavíta og lögreglunnar. Talið er, að 17 manns hafi fallið og um 100 særst. Þrátt fyrir útgöngubann- ið safnaðist fólk saman við brennandi götuvígi í Gazi Ma- hellesi-hverfinu og í höfuðborg- inni Ankara slösuðust fjölmarg- ir er lögreglan réðst að fólki sem mótmælti árásunum á ala- víta í Istanbúl. Á myndinni setur tyrkneskur hermaður brauð í skjóðu konu í Gazi Mahellesi en vegna útgöngubannsins áttu margir í erfiðleikum með að verða sér úti um matvæli. ■ Útgöngubann í hverfi/17 Reuter Major á Gaza Þorskurinn stendur vel í Barentshafi STERKIR þorskárgangar eru að vaxa upp í Barentshafi og vöxtur fisksins er aftur orðinn eðlilegur. Var skýrt frá þessu í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren í gær. Samkvæmt mælingum norsku hafrannsóknastofnunar- innar virðist einnig sem kólnunin í Barentshafi sé að stöðvast. Þetta kom fram í rannsóknaleið- angri, sem er nýlokið, en í honum var ástand ungfisksins kannað sérstaklega. Að loknum sams kon- ar leiðangri í fyrra töldu fiskifræð- ingar ástæðu til að óttast, að úr vexti fisksins drægi vegna minni sjávarhita en fiskifræðingarnir Ásmund Bjordal og Knut Sunnaná segja, að nú sé staðan önnur og betri. Góður vöxtur Niðurstöðurnar að þessu sinni voru ekki neikvæðar að neinu leyti og virðist vöxturinn vera góður og nýliðunin einnig. Þorskárgangurinn frá 1990 lof- ar mjög góðu og lengdarvöxturinn ágætur. Er meðallengdin 54 sm og hlutfallið milli lengdar og þunga gott. Þá hafa ekki fundist nein óeðlileg merki um, að þorsk- urinn éti undan sjálfum sér. Knut Sunnaná var leiðangurs- stjóri og segir hann, að hlýsjávar hafi gætt langt inni í Barentshafi. Ástand sjávarins verður þó kannað betur í öðrum leiðangri á næst- unni. JOHN Major, forsætisráð- herra Bretlands, kom í gær í opinbera heimsókn á sjálf- sljórnarsvæði Palestínu- manna á Gaza. Hann er annar þjóðhöfðinginn sem heimsæk- ir höfuðstöðvar Yassers Araf- ats, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna, PLO. Tansu Ciller, forsætisráðherra Tyrk- lands, sótti Arafat heim á síð- asta ári. Major tilkynnti eftir fund sinn með Arafat að Bret- ar myndu veita Palestínu- mönnum 82 milljóna punda aðstoð fram til ársins 1997. Major hóf för sína í Israel á sunnudag og í dag heldur hann til Amman í Jórdaníu. Staðan í Bosníu alvarleg Sarajevo. Reuter. ENGINN árangur varð af tveggja daga viðræðum Yasushis Akashis, sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, við bosnísk stjórnvöld og Bosníu-Serba. Akashi hélt í gær frá Sarajevo eftir að honum mistókst að koma á fundi stríðandi fylkinga. „Staðan er mjög alvarleg," sagði Akashi áður en hann hélt til Zagreb. „Ef við höfumst ekkert að á næstu tveimur til þremur vikum, er hætt við að bardagar hefjist að nýju,“ sagði Akashi. Hann hélt til Sarajevo til að reyna að blása lífi í vopnahlés- samkomulagið sem komið var á um áramót. Vopnahléið hefur itrekað verið rofið að undanförnu og óttast SÞ mjög að það verði brátt úti. Eitt dæmi um þetta var skot serbneskrar leyniskyttu á flugvél Akashis er hann kom til Sarajevo á sunnudag. Serbar eru æfir vegna þess að á iaugardag myrtu leyniskyttur tvær serbneskar stúlkur og lokuðu þeir síðustu opnu leiðunum inn í Sarajevo, svokölluðum „bláum leið- um“ vegna þessa, auk þess sem leyniskyttur þeirra hertu á skothríð- inni í borginni. Akashi segir deilur um „bláu leið- irnar“. standa í vegi fyrir samninga- viðræðum. Þá þvertaka múslimar fyrir að framlengja vopnahléssam- komulagið, sem rennur út 1. maí, samþykki Serbar ekki tillögu fimm- veldanna um skiptingu Bosníu, sem kveður á um að þeir haldi 49% lands í Bosníu en múslimar og Króatar fái 51%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.