Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 15
VIÐSKIPTI
Skuldasöfnun íslendinga gæti senn komist á hættustig
Raunvextir gætu hækkað í 9%
ÍSLENDINGAR eru ekki eins illa á
sig komnir hvað varðar skuldasöfn-
un ríkissjóðs og til dæmis Svíar og
Finnar, en hætt er við að áframhald-
andi skuldasöfnun ríkisins kalli senn
fram sömu einkenni og þar, eins og
mjög háa raunvexti, aukna skatt-
byrði, gengislækkun og versnandi
lífskjör.
Þetta kemur fram í grein í nýju
Fréttabréfi um verðbréfaviðskipti
sem gefið er út af Samvinnubréfum
Landsbankans. Þar segir að hlutfall
opinberra skulda af landsframleiðslu
sé lægra á íslandi en að meðaltali
í löndum Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar (OECD) og mun
lægra en í þeim löndum sem skulda
mest.
Á íslandi var hlutfall opinberra
skulda af landsframleiðslu 35% árið
1990 en stefndi í 56% á þessu ári.
Á hinn bóginn hækkaði þetta hlut-
fall úr 14% í 80% í Finnlandi á sama
tíma, úr 44% í 102% í Svíþjóð og
úr 73% í 96% í Kanada. í þessum
og fleiri löndum hefur verið farið
„yfir strikið“ í ríkisfjármálum og
afleiðingin er meðal annars sú að
raunvextir af ríkisskuldabréfum eru
komnir í allt að 9%, sem sýni van-
traust fjármagnsmarkaða á stjórn
opinberra fjármála.
Sú staðreynd að ísland er í betri
stöðu en ofangreind ríki er þó ekki
ástæða til áhyggjuleysis, segir í
fréttabréfinu. Staða opinberra fjár-
mála á íslandi sé að sumu leyti verri
en tölur gefi til kynna, en til þess
liggi tvær ástæður. Annars vegar
sé hlutfall erlendra skulda hins opin-
bera af heildarskuldum óvíða hærra
og hins vegar séu skuldir þjóðarbús-
ins í heild erlendis meiri en flestra
annarra landa. „í þessu felst að fyrr
getur slegið í bakseglin hjá okkur
en annars staðar ef nægilegs að-
halds er ekki gætt,“ segir í greininni.
Visual Basic
F O R R I T U N
20 klukkusfundir
Námskeiðið
hefst21. mars
Æskileg undirstaða:
Góð þekking á Windows
umhverfinu og einhver forritun
569 7769 - 569 7770
Heildarskuldir hins opinbera sem hlutfall af
landsframleiðslu í nokkrum löndum 1990-95
@402% Svíþjóð
^-0% Finnland
13% OECD-lönd
1990 1991 1992 1993 1994 1995
HEIMIL8
Svefnsófi með Futon dýnu
Stærð 140 x 810 cm. Verð kr. 55.440 stgr.
Jazz kommóða
Verð kr. 17.670 stgr.
Basic skrifbnrð
Verð kr. 14.060 stgr.
0
HÚSGAGNAVERSLUNIN LÍNAN
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 60 II og 553 7100
Fylgstu meí) á föstudögum!
* Sjálfs-
elgnar
steftiai
EnÞnhotbrW*™''
iomðlrvnlvgW*''"”'
itWÍlnitbrthirM*
h*furefutt
,*5yff.r»ðoro9
br»f». jttnfyt-.
Mrrii4el»n*-
fjsrþðtf
Mtrt
»•
nimi rAU-
rSnibmti* off
ssvtir.
m.«. * þ'*.'*-' I.
Ouði*íue.d*»e"*'ur"rnin"
Heimili/fasteignir kemur út á föstudögum. Fasteignablaöiö er helsti vettvangur
fasteignaviöskipta hvort sem um er ab raeöa húsnæði til eigin nota eða til atvinnurekstrar. Þeir
sem hugsa sér til hreyfings eöa vilja bara fylgjast með fasteignamarkaöinum og kynnast
nýjungum á sviöi skipulags, viöhalds og nýsmíði fasteigna láta þetta blað ekki fram hjá sér
fara. í blaöinu er einnig ab finna innlendar og erlendar fréttir sem tengjast fasteignum auk
þess sem fjallaö er um heimilið og ótal möguleika til að piýöa það og lagfæra.
Grindavík
I kvöld kl. 20:30 verður haldinn framboðsfundur um
málefni Grindvíkinga og annarra íbúa Reykjaness-
kjördæmis. Framsögumenn verða alþingismennirnir
' / /
Arni M. Mathiesen, Arni R. Arnason og Sigríður Anna
Þórðardóttir. Fundurinn verður
haldinn í félagsheimilinu Festi.
Komdu og kynntu þér málin sem
varða framtíð þína og hvernig
möguleikar Reyknesinga
verða best nýttir.
D
BETRA
ÍSLAND