Morgunblaðið - 15.03.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 17
Reuter
B andaríkj amaður
í Bajkonúr
BANDARÍSKI geimfarinn Nor-
man Thagard veifar hér út um
gluggann á rússnesku Sojus-
geimfari í Bajkonúr-skotstöð-
inni í Kazakhstan á sunnudag.
Thagard, sem er 51 árs, varð
fyrstur Bandaríkjamanna til að
fara út í geiminn í rússnesku
geimfari í gær en með honum
voru um borð tveir Rússar,
Gennadíj Strekalov og stjórn-
andinn, Vladímír Dezjúrov.
Thagard á að dvelja í 90 daga
í Mír-geimstöðinni sem er á
sporbaug um jörðu og á m.a.
að kanna áhrif langrar vistar í
nær algeru þyngdarleysi á
mannslíkamann. I júní er ætlun-
in að Mír eigi stefnumót við
bandarísku geimfeijuna Atlant-
is en í henni verða fimm Banda-
ríkjamenn og tveir Rússar.
Trúflokkaátök í Istanbul í Tyrklandi
Utgöngubann í
hverfi alavíta
Istanbul. Reuter.
ÚTGÖNGUBANN var í einu hverfi
Istanbulborgar í gær eftir mikil
átök í tvo daga milli manna af trú-
flokki alavíta og lögreglunnar. Tal-
ið er, að 17 manns hafi fallið og
um 100 særst. Alavítar eru múslim-
ar en trú þeirra er miklu ftjálslynd-
ari en súnníta, sem eru í meirihluta
í landinu.
Þrátt fyrir útgöngubannið safn-
aðist fólk saman við brennandi
götuvígi í Gazi Mahelles-hverfinu
en tyrkneskir embættismenn sögðu
að „myrk öfl“ hefðu valdið uppþot-
unum, sem hófust eftir að tveir
menn voru skotnir og 15 særðir í
árás á kaffihús alavíta.
„Göngum ekki í gildruna" var
samhljóða forsíðufyrirsögn í þremur
helstu dagblöðum Tyrklands í gær
og Tansu Ciller forsætisráðherra
skoraði á landsmenn að gæta still-
ingar, sérstaklega nú þegar tolla-
bandalagið við Evrópusambandið
væri að koma til framkvæmda.
Ásakanir um mannréttindabrot í
Tyrklandi urðu lengi til að tefja
það. Hefur þingnefnd verið skipuð
til að rannsaka málið.
Lausir við öfgar
Alavítar eru mjög andvígir öfg-
um í trúmálum og hafa kvartað um
ofsóknir og yfirgang af hálfu súnn-
íta þar sem bókstafstrúarmönnum
hefur verið að vaxa ásmegin. Alav-
ítar eru af sítameiði íslams og líta
til dæmis svo á, að skyldurnar
fimm, sem aðrir múslimar verða að
inna af hendi, séu aðeins táknrænar
og fara því ekki eftir þeim.
Uppþotin síðustu daga eru alvar-
legustu atburðirnir af þessu tagi
síðan öfgatrúarmenn brenndu 37
menntamenn inni á hóteli i bænum
Sivas 1993. í janúar sl. kom einnig
til átaka þegar um 200 alavítar
réðust á sjónvarpsstöð eftir að
fréttaskýrandi hafði sakað alavíta-
samfélagið um sifjaspell.
Alavítar eru alls staðar í minni-
hluta í múslimalöndum og í Tyrk-
landi eru þeir um 15-20% íbúa.
Leyniþj ónustuforingi
reyndi að velta Saddam
YFIRVÖLD í írak hafa gripið til harðra refsinga til að stemma
stigu við glæpum í landinu. Myndin er af íraka eftir að önnur
höndin var skorin af honum á sjúkrahúsi. Hann hafði stolið sjón-
varpi og jafnvirði 30 króna af frænda sínum.
YFIRMAÐUR leyniþjónustu íraka
í Persaflóastríðinu 1991 gerði fyrr
í þessum mánuði misheppnaða til-
raun til að velta Saddam Hussein
forseta, að sögn bandarískra heim-
ildarmanna. Blaðið The New York
Times segir að maðurinn, Wafíq
Samaraii, sem missti embætti sitt
í hreinsunum fyrir nokkru, hafí
reynt að fá aðstoð kúrdískra upp-
reisnarmanna í norðurhéruðunum
og síta í Suður-írak, síðar hafi hann
komist undan til Sýrlands.
Oft hefur komið upp orðrómur
um byltingartilraunir í írak og
skærur eru töluverðar í landinu
milli írakshers og ýmissa uppreisn-
arhópa. Stjórn Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, sem stutt hefur við
bakið á íröskum andstæðingum
Saddams, mun hafa tekið meira
mark á þessari tilraun en öðrum
vegna þess að reynt var að sam-
ræma aðgerðir ýmissa andstöðu-
hópa. Warren Christopher utanrík-
isráðherra er sagður hafa skýrt
Fahd, konungi Saudi-Arabíu, frá
uppreisnarhugmyndunum í ferð
sinni til Jeddah fyrir skömmu.
Embættismenn í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu og erlendir
stjórnarerindrekar í Sýrlandi segja
að eitt af því sem hafi kollvarpað
áformunum hafi einmitt verið sú
staðreynd að hugmyndin var á vit-
orði allt of margra.
Ýkti stuðning í hernum
Samarii mun einnig hafa gert
allt of mikið úr þeim stuðningi sem
hann ætti hjá íröskum hermönnum
og í úrvalssveitum Saddams, Lýð-
veldisverðinum svonefnda.
Gert var ráð fyrir að fýrst myndu
hersveitir undir stjórn Iraska þjóð-
arráðsflokksins, helsta stjórnarand-
stöðuflokksins í Irak, og sveitir Jal-
als Talabanis, Kúrdaleiðtoga er
nýtur hylli stjórnvalda í Washing-
ton, leggja til atlögu í norðri gegn
írösku fótgönguliði. Keppinautur
Talabanis meðal Kúrda, Massoud
Barzani, ákvað hins vegar að halda
sig til hlés og ráðast ekki á hersveit-
ir Saddams nokkru sunnar, eins og
ákveðið hafði verið. Mun ástæðan
fyrir sinnaskiptunum einkum hafa
verið að engin merki sáust um að
íraskir hermenn hygðust leggja
Samaraii lið.
Viðskiptabanni ekki aflétt
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
tók á mánudag á dagskrá viðskipta-
bannið, sem sett var á írak vegna
innrásarinnar í Kúveit 1990. Eng-
inn fulltrúi mælti að sögn Reuters
með því að banninu yrði aflétt.
Samkvæmt því mega írakar flytja
inn matvæli og lyf en olíuútflutn-
ingur þeirra er háður ströngum
takmörkunum og vilja stjórnvöld í
Bagdad ekki hlíta þeim.
Neyð almennings er mikii í írak
en Bandaríkjamenn benda á að
Saddam virðist hafa næga peninga
til að láta reisa glæsihallir og efla
herinn, neyðina noti hann markvisst
til að reyna að hafa áhrif á almenn-
ingsálit á Vesturlöndum.
Fyrrverandi leiðtogar austur-þýska konuniinistaflokksiiis
Sjö kærðir
fyrir manndráp
Berlín. Reuter.
SJÖ fyrrverandi félagar í miðstjórn
austur-þýska kommúnistaflokksins
voru í gær formlega kærðir fyrir
manndráp. Eru þeir sakaðir um að
bera ábyrgð á dauða 47 manna er
voru drepnir er þeir reyndu að flýja
land.
Kærurnar voru lagðar fram í jan-
úarmánuði en ekki var hægt að
gera þær opinberar fyrr en að öllum
hinum stefndu hafði verið birt kær-
an, sem er 1.600 blaðsíður. Erþetta
umfangsmesta ákæruskjal í réttar-
sögu Þýskalands.
Mennirnir eru einnig kærðir fyrir
tilraun til manndráps í 24 tilvikum
vegna einstaklinga er særðust á
jarðsprengjum við flóttatilraunir.
Einungis tveir hinna ákærðu,
Erich Miickenberger og Kurt Hag-
er, yfirhugmyndafræðingur flokks-
ins, eru hins vegar sakaðir um að
hafa tekið beinan þátt í þeirri
ákvörðun að drepa flóttamenn. Hin-
ir fimm eru taldir meðsekir, þar sem
þeir hafi ekki sinnt þeirri skyldu
sinni að taka upp mannúðlegri að-
ferðir við landamæravörslu. Fimm-
menningarnir eru þeir Egon Krenz,
Horst Dohlus, Gúnther Kleiber,
Harry Tisch og Gunther
Schabowski.
Talið er að erfitt geti reynst að
sakfella þá vegna eðlis kærunnar.
Þegar hafa um tuttugu landa-
mæraverðir, sem skutu flóttamenn,
verið sakfelldir en í flestum tilvikum
hlotið væga dóma eða skilorðs-
bundna. Enginn valdamaður í fyrr-
um Austur-Þýskalandi hefur til
þessa verið dæmdur og tveir þeirra
valdamestu, Erich Honecker og
Erich Mielke voru ekki taldir nægi-
lega heilsuhraustir til að réttað yrði
í máli þeirra.
Honecker lést í útlegð í Chile en
Mielke varð að afplána sex ára
fangelsisdóm fyrir að hafa myrt tvo
lögreglumenn árið 1931.
Frakkar
gagnrýna
Castro
FRANSKIR fjölmiðlar gagn-
rýndu flestir í gær Frangois
Mitterrand
forseta fyrir
að bjóða Fídel
Castro Kúbu-
leiðtoga í op-
inbera heim-
sókn. Er hann
fyrsti vest-
ræni leiðtog-
inn sem
Castro sækir
heim. Castro segir boðið jafn-
gilda því að „aðskilnaðarstefn-
an“ gagnvart Kúbu hafí verið
rofín. Blaðið Figaro sagði
frönsku þjóðina vera agndofa
yfir því að einum alræmdasta
einræðisherra heims væri
sýndur þessi heiður.
Bretar fækka
hermönnum
Fidel
Castro
BRESKA stjórnin tilkynnti í
gær að fækkað yrði um sjö
hundruð menn í herliðinu á
Norður-írlandi. Patrick May-
hew írlandsmálaráðherra
sagði þetta mestu fækkun í
herliðinu frá upphafí og hún
væri möguleg vegna vopna-
hlésins sem staðið hefur í sex
mánuði.
Flug stöðvast
vegna féleysis
FELLA hefur orðið niður nær
allt innanlandsflug frá flugvell-
inum Khabarovsk í Rússlandi
þar sem flugvallarstjórnin hef-
ur ekki haft efni á eldsneyti.
Flugvöllurinn er sá mikilvæg-
asti í austurhluta Rússlands.
Einungis er haldið uppi milli-
landaflugi og einu flugi til
Moskvu á dag. Geta farþegar
í það flug ekki keypt miða með
meira en sólarhrings fyrirvara.
Deng orðinn
hraustur
RÍKISSTJÓRI héraðsins
Sichuan í Kína sagði í gær að
hinn níræði leiðtogi Deng Xiao-
ping hefði náð fullri heilsu á
ný eftir slæma inflúensu. „Rétt
eins og ég
kemur hann
frá héraði þar
sem fólk er
langlíft. Við
getum búist
við að hann
verði langlífur
en hversu
langlífur get
ég ekki spáð
fyrir um,“ sagði Xiao Yang,
ríkisstjóri og tók fram að
amma hans hefði orðið 104 ára
og móðir hans væri níræð.
Deng Xiaop-
ing
„Mannrán“
fyrir hest
FJÓRTÁN ára kanadísk
stúlka, búsett í Surinam ásamt
foreldrum sínum, setti á svið
mannrán til að geta keypt sér
hest. Hún hvarf á dularfullan
hátt frá heimili sínu á miðviku-
dag og eftir að „mannræningj-
arnir“ hótuðu því að myrða
hana greiddu foreldrarnir tólf
þúsund dollara lausnargjald.
Lögregla sagðist hafa komist
á snoðir um svikin með því að
veita manninum sem tók við
peningunum eftirför.