Morgunblaðið - 15.03.1995, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
GARÐASÓKNAR
verður haldinn sunnudaginn 19. mars 1995
kl. 1530 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.
Messað verður í Garðakirkju kl. 1400
SÓKNARNEFND
SKRIFSTOFUR TIL LEIGU
Um 300 fm
skrifstofuhúsnæði
til leigu í vesturbænum,
miðsvæðis.
Upplýsingor í síma 24400.
Berhaus Gulllax Lanqhali Gljáháfur
Surimi rðu fí skadag ar 13.-18. mars 1995
c ö Hlaðborð í hádeginu kr. 890
2 _c CTJ *c <D -X 3 a
3 <f) £ Hlaðborð á kvöldín kr. 1.480
o E co Veítíngahúsíð Esja
a Scandic Hótel Esja, Suðurlandsbraut 2, Sími 568-9509. Sverðtiskur Loðna Ufsí Kdkrabbi
Framtalsaðstoð
- skatttrygging
Get bætt við mig einstaklingum með og án reksurs.
Innifalið í gjaldtöku er svonefnd skatttrygging, en
hún felst í því að framteljandi hefur með
einu gjaldi í upphafi greitt fyrir:
1. Framtalsaðstoð.
2. Skattútreikning.
3. Svör við hvers konar fyrirspurnun
frá skattyfirvöldum.
4. Kærur til skattsjóra og æðri
yfirvalda.
5. Munnlegar upplýsingar um skatta-
mál viðkomandi allt árið 1995.
Upplýsingar, tímapantanir og frestbeiðnir veittar á
skrifstofu minni ki. 9-17 alla virka daga.
Notaðu tækifærið og tryggðu þér áratuga reynslu
undirritaðs meðan færi gefst.
Skattaþjómistan s/f
Bergur Guðnason, hcll.,
Suðurlandebraut 52, 108 Reykjavík.
síini 568-2828, fax. 568-2808.
I DAG
flyst upp í þriðju deild
næsta vetur eftir sigur í
úrslitakeppni fjórðu deild-
arinnar. Margir telja að
þeir fari beinustu leið upp
í aðra deild, enda tveir Is-
landsmeistarar í sveitinni.
í sigursveit Taflfélags
Hólmavíkur í 4. deild tefldu
Jón Kristinsson (íslands-
meistari 1971 og 1974),
Sjá stöðumynd
e
Svarti kóngurinn
stendur óheppilega í
horninu: 15. Bxh6! - *
Hg8? (Það kom ekki
til greina að þiggja 3
fómina. Eftir 15. - i
gxh6?? 16. Dxh6+ -
Kg8 17. Rg5 verður '
hann að gefa drottn-
inguna til að forðast
mát. Þessi hróksieikur er
ekki heldur góður, því hann
lokar undankomuleið
kóngsins.) 16. Bg5 - Be7
17. Df4! - Bxg5 18. Rxg5
- g6 19. Dh4+ - Kg7 20.
Dh7+
og svartur gafst upp því
hann er mát í næsta leik.
Taflfélag Hólmavíkur
b c d • f g h
Helgi Ólafsson, eldri (ís-
landsmeistari 1964), Guð-
jón Jóhannsson, Ari Stef-
ánsson, Pétur Pétursson,
Kristinn Bjarnason og Jón
Ólafsson.
„Öðlingamót" fyrir 40
ára og eldri hefst í kvöld
kl. 19.30 í félagsheimili
TR, Faxafeni 12.
SKÁK
llmsjón Margeir
Pctursson
ÞESSI staða kom upp í
þriðjudeildarkeppninni um
daginn. Guðjón Gíslason
(1.615), B-sveit Hellis, var
með hvítt og átti leik, en
Búi Guðmundsson,
B-sveit UMSE, hafði
svart.
LEIÐRÉTT
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Gefið smáfuglunum
VÍÐA er þröngt í búi hjá
smáfuglunum nú þegar
jarðbönn eru og eiga
þeir vafalaust erfitt upp-
dráttar þessa dagana.
Það væri gustukaverk að
gefa þessum greyjum á
örugga, katthelda staði
og þeir iauna manni von-
andi greiðann með söng
í sumar.
Þeir þiggja með þökk-
um flest það sem hent
er til þeirra, en Velvak-
anda hefur sýnst þeir
sérstaklega sólgnir í flest
feitmeti og hefur staðið
þá að verki við það að
plokka smjörið ofan af
brauðinu sem fellur af
gnægtaborði Velvak-
anda. Epli og aðrir
ávextir, kex og múslí-
kom hverfa líka eins og
dögg fyrir sólu. Vinkona
Velvakanda segist
geyma allt ónýtt og gam-
alt brauð handa fugl-
unum. Hún kurlar það í
matvinnusluvél og bætir
svo smjörlíki út í gumsið.
Þeir þurfa feitmeti núna
í kuldanum og éta allar
tegundir af fítu. Þá er
veisla hjá fuglunum.
Það er gaman að fylgj-
ast með smáfuglunum
því þeir em eins ólíkir í
hegðun og þeir eru
margir.
Tapað/Fundið
Bökunartími
I fermingarblaði Morgun-
blaðsins s.l. sunnudag
varð sú meinlega prent-
villa í uppskrift að kóko-
smarengstertu með jarð-
arbeijafyllingu að sagt
var að hún skyldi bökuð
í 15 mínútur en átti að
vera 45 minútur eins og
glöggir lesendur hafa átt-
að sig á. Þetta leiðréttist
hér með.
Heitir Jóna Björg
í fermingarblaðinu mis-
ritaðist nafn Jónu Bjarg-
ar Sætran sem útbjó silki-
breytingar fyrir lesendur.
Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Athugasemd
Ólafur Hjálmarsson,
deildarstjóri í íjármála-
ráðuneytinu, vill koma á
framfæri eftirfarandi at-
hugasemd: „Í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag er
ágæt úttekt á fjármálum
og sparnaði í heilbrigðis-
málum. í lok greinarinnar
má svo skilja að það sé
álit fjármálaráðuneytis-
ins að meginhluti sparn-
aðarins sé til kominn
vegna þjónustugjalda.
Hið rétta er að allar tölur
benda til hins gagnstæða,
þess að minnsti hluti
sparnaðarins sé vegna
þjónustugjalda og stærsti
hlutinn vegna hagræð-
ingar, kerfísbreytinga og
niðurskurðar á framlög-
um. Það verður að fara
varlega í að áætla hveiju
þjónustugjöld hafa skilað
á kjörtímabilinu og ef það
er gert verður að meta
aðrar aðgerðir á sama
hátt, einkanlega ef það á
að nýtast til samanburð-
ar. Að mati fjármálaráðu-
neytisins hafa þjónustu-
gjöld hækkað um 900-
1.000 milljónir kr. á ári,
en til samanburðar er það
svipuð fjárhæð og nemur
þeim nýju verkefnum,
sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyt-
ið hefur ráðist í. Aðrar
aðgerðir hafa skilað tals-
vert meiri sparnaði, eins
og kemur reyndar fram
í grein Morgunblaðsins."
Krosshálsmen
tapaðist
KROSSHÁLSMEN
tapaðist í janúarlok lík-
lega á Hverfísgötu í
Reykjavík. Krossinn er
frá Jens, u.þ.b. 4 cm. á
hæð að mestu úr silfri
og í grófri silfurkeðju.
Fundarlaunum heitið.
Finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
611194.
Gullarmband
tapaðist
GULLARMBAND tap-
aðist í miðbænum sl.
laugardagskvöld, ann-
aðhvort á Lækjartorgi
eða í Austurstræti.
Armbandið er með
„múrsteinsmunstri".
Skilvísfinnandi vin-
samlega hringi í síma
45325.
COSPER
Heyrð’elskan. Forstjórinn er kominn, en ég skal hafa
ofan af fyrir honum þangað til þú kemur
Víkverji skrifar...
AÐ er ekki nóg með það að
þvottaefnisauglýsendur ætli
sjónvarpsáhorfendur vitlausa að
gera, með endalausum, innihalds-
iýrum lofrullum um ágæti eigin
þvottaefnis, í sérdeilis vemmilegum
og ósannfærandi hamingjuauglýs-
ingum, þar sem hamingja heilu fjöl-
skyldnanna er augljóslega undir því
einu komin, að fjölskyldurnar noti
einmitt það þvottaefni, sem auglýst
er hveiju sinni, en ekki einhveija
aðra og augljóslega mun lakari teg-
und. Nú er auglýsingastríðið komið
á nýtt og „æðra plan“ að mati Vík-
vetja, því auglýsendurnir eru farnir
að bera söluvöru sína, eða ríflegt
sýnishorn hennar í hús, rétt eins
og um hluta af bæklingaflóðinu
væri að ræða. Þannig kom Víkveiji
í liðinni viku að útidyrum heimilis
síns í lok vinnudags og á hurðar-
húninn hafði verið hengdur plast-
poki, með talsvert myndarlegum
þvottaefniskassa í.
xxx
KKI skiptir máli í sjálfu sér
hvaða þvottaefnistegund átti
hér í hlut, sem með svo ákveðnum
hætti ruddi sér braut inn á heimili
Víkveija og alla leið inn í þvottavél
heimilisins. En Víkveiji getur þó
ekki á sér setið að greina frá nokkr-
um slagorðum sem fylgdu með í
pokanum á sérprentuðum bæklingi,
sem hann telur öll vera til þess fall-
in að gengisfella verðmæti íslenskr-
ar tungu: „Bylting í hreinskikrafti,"
var eitt þeirra. „Hreinni og bjartari
framtíð fyrir þvottinn þinn,“ var
annað. „Kveðjið þvottaduft fortíðar-
innar og veljið ... fyrir framtíðina,"
það þriðja. „Gefðu fatnaðinum þín-
um hreinni og bjartari framtíð með
...,“ það fjórða og og það fimmta
var svohljóðandi: „Með ... eiga fötin
þín hreinni og'bjartari framtíð."
xxx
ENGU er líkara en framleiðend-
ur og auglýsendur þvottaefna
ímyndi sér að líf og tilvera neytenda
snúist um eitt og aðeins eitt: Hvaða
þvottaefni á ég að nota og hvaða
þvottaefni veitir mér og mínum
mesta lífshamingju? Þvílík endemis
þvæla og bull! Væri nú ekki vitinu
nær, fyrir auglýsendurna og ráð-
gjafa þeirra, að reyna að koma sér
upp einhveiju örlitlu jarðsambandi
og temja sér notkun orðaforða í
auglýsingum sínum, sem er í ein-
hverju samræmi við efnið sem verið
er að auglýsa og þýðingu þess fyr-
ir neytendurna?
XXX
VÍKVERJI minnist þess ekki að
nokkur tegund auglýsinga sé
jafn yfirdrifin og ógeðfelld og
þvottaefnisauglýsingar, nema ef
vera kynnu hinar mjög svo hvim-
leiðu dömubindaauglýsingar, sem í
sífellu leggja ofurkapp á að lýsa
hinu „hamingjuríka tímabili" í lífi
hverrar konu, þegar hún hefur á
klæðum, með eða án vængja. Vík-
veiji þekkir ekki eina einustu konu
sem getur látið eitt orð jákvætt
falla um þessa auglýsingaáráttu
seljendanna á nauðþurftum eins og
dömubindum, en ekki er honum
kunnugt um að seljendurnir séu enn
farnir að stunda útburð í hús á
dömubindum sínum.