Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D/E
65. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Norski laxinn
300.000
tonná
árinu
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKIR laxeldismenn búast við,
að framleiðslan á þessu ári verði
um 300.000 tonn og útflutnings-
verðmætið um 90 milljarðar ísl. kr.
A síðasta ári var framleiðslan
200.000 tonn en það er meira en
öll kjötframleiðsla í Noregi.
Ársfundur Samtaka norskra fisk-
eldismanna er haldinn í Ósló þessa
dagana og jafnfram fagna þau 25
ára afmælinu undir kjörorðinu
„Ævintýrið sem varð að veruleika“.
Stefna samtakanna er að laga
framleiðsluna að óskum neytenda
og verður kannað sérstaklega hveij-
ar þær eru í einstökum löndum og
markaðssvæðum. Sem dæmi um
þetta má nefna, að í Singapore er
kynþroska lax í mestum metum en'
í Noregi er hann talinn lítils virði
og raunar bannað að flytja hann út.
Finnskir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun
„Stóð ekki á
sama um
framhaldið“
„ VIÐ sáum ekki handa okkar skil
og lögðumst niður allir í hnapp
og ætluðum að láta fjúka yfír okk-
ar. Við höfðum hins vegar misst
svefnpokana og það var svo kalt
að liggja á jörðinni í göllunum
eingöngu að við gáfumst upp. Þá
stóð mér ekki á sama um fram-
haldið,“ segir Sveinn Muller, einn
þriggja gönguskiðamanna sem
sendu frá sér neyðarkall síðdegis
á fimmtudag, en þeir fundust í gær
eftir víðtæka leit björgunarsveita.
Tjald þremenninganna sem sést
á þessari mynd grófst undir snjó
og þeir misstu allan sinn búnað
og vistir í snjóinn. í um sólarhring
börðust þeir við gegndarlausan
veðurofsa og gáfust meðal annars
upp á að grafa sig í fönn, vegna
kulda og þess að ofankoman var
svo mikil að hún lokaði þá næstum
inni.
■ Veðurofsinn var okkur
ofviða/6
Reuter
Hlynntir sarnstj órn
stærstu flokkanna
Helsinki. Morgunblaðið.
FINNSKUM jafnaðarmönnum er
spáð mestu fylgi í þingkosningun-
um á morgun en kjósendur virðast
taka lítið mark á hugmyndafræði-
legum mismun stjórnmálaflokk-
anna. Þetta kemur í ljós þegar litið
er á hvaða stjórnarsamstarf er lík-
legast að taki við eftir þingkosning-
arnar á morgun, sunnudag.
Líklegt þykir, að Paavo Lippon-
en, leiðtogi jafnaðarmanna, verði
næsti forsætisráðherra Finnlands
en flokki hans er spáð rúmlega 27%
atkvæða. Stjórnarflokkunum, Mið-
flokki og Hægriflokknum, er spáð
svipuðu fylgi, 17-19%, og sam-
kvæmt könnum, sem birtist í dag-
blaðinu Helsingin Sanomat í gær,
nýtur samstjórn þessara þriggja
flokka mestra vinsælda meðal kjós-
enda. Þess konar stjórn væri óhugs-
andi til dæmis í Svíþjóð.
Jafnaðarmenn vilja
mesta skattalækkun
■Flokksleiðtogar taka tillit til
þessa enda hefur kosningabaráttan
verið óskiljanleg í augum margra
Finna. Erfitt hefur verið að fínna
áþreifanlegan mun á stefnu stærstu
flokkanna. í sjónvarpsumræðu
flokksforingja á fimmtudagskvöldið
kom í ljós að jafnaðarmenn stóðu
fremstir í flokki þegar rætt var um
skattalækkanir. Núverandi
stjórnarflokkar, Miðflokkur og
Sameiningarflokkur, segjast einnig
vilja lækka skatta en ekki jafnmik-
ið og kratar.
Samheldni stóru flokkanna kom
einnig í ljós í afstöðu þeirra til verk-
Sjá lítinn hug-
myndafræði-
legan mun
falls hjúkrunarfræðinga sem valdið
hefur mikilli röskun í fínnska heil-
brigðiskerfinu. Hvorki jafnaðar-
menn né núverandi stjórnarflokkar
vildu tjá sig um réttmæti launa-
krafna hjúkrunarfræðinga. Þeir
sögðust ekkert geta gert í málinu.
Stóru flokkarnir saman
í könnun Helsingin Sanomat
kemur í ljós að 35% aðspurðra vildu
Harmur í
Bakú
STJÓRNARHERINN í Az-
erbajdzhan kvaðst í gær hafa
brotið á bak aftur uppreisn liðs-
manna í sérsveitum innanríkis-
ráðuneytisins. Mikið mannfall
varð í hörðum bardögum við
höfuðstöðvar sérsveitanna í
grennd við Bakú og meðal þeirra
sem féllu var Rovshan Javadov
aðstoðarvarnarmálaráðherra,
sem stjórnaði uppreisninni.
Myndin er af konu, sem er yfir-
komin af harmi yfir mannfallinu.
■ Uppreisn kveðin niður/24
helst sjá krata, miðflokksmenn og
hægrimenn í stjórn. Næstvinsælasti
kosturinn reyndist stjórn jafnaðar-
manna og hægrimanna og í þriðja
sæti var stjóm krata og Miðflokks.
Jafnaðarmenn og Miðflokkur hafa
verið kjarni allflestra ríkisstjórna í
Finnlandi.
Jafnaðarmenn og Hægriflokkur
sátu saman í stjórn árin 1987-1991
en sú stjórnarmyndun þótti söguleg,
einkum vegna þess að hægrimenn
höfðu verið í stjórnarandstöðu frá
því á sjöunda áratugnum.
Fréttaskýrendum ber saman um
að lítilla breytinga sé að vænta
hver sem niðurstaðan verði.
Astar-
raunir
á Inter-
netinu
ÁSTIN getur blossað upp á
upplýsingahraðbrautinni ekki
síður en annars staðar.
Fimmtugur bókavörður í
Ástralíu, Robert Boot, kynnt-
ist starfssystur sinni í New
York, Charlene Mirabella, á
Internetinu og eftir nokkurra
mánaða tilhugalíf fór hann
til Bandaríkjanna til að kvæn-
ast henni. En þá kom babb í
bátinn, því_ konan reyndist of
feit fyrir Ástrali.
Að sögn The Independent
tilkynnti útlendingaeftirlitið í
Ástralíu hjónunum að Mira-
bella væri ekki velkomin
þangað. Ástæðan er sú að
hún er sykursjúklingur - og
tólf kílóum of þung. Sam-
kvæmt áströlsku innflytj-
endalöggjöfinni er slíkt fólk
ekki æskilegt þar sem hætta
er á að það verði byrði á heil-
brigðiskerfinu.
Oskureið
Mirabella situr því eftir
með sárt ennið í New York,
16.000 km frá sínum heitt-
elskaða og atvinnulaus að
auki þar sem hún hafði sagt
starfi sínu lausu til að geta
flutt til hans. „Við erum ösku-
reið,“ sagði Boot, sem neyðist
nú til að tjá konu sinni ást
sína með hjálp tölvu.