Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 29 Svikin loforð D-listans ÁRNI Sigfússon, oddviti D-list- ans í Borgarstjóm Reykjavíkur, kvartar undan því í grein í Morgun- blaðinu þann 7. mars s.l. að núver- andi meirihluti í borgarstjórn vilji ekki standa við þau kosningaloforð sem hann gaf sem borgarstjóri s.l. vor. Eitt slíkra loforða var um að borgarsjóður legði 100 milljónir króna til nýbyggingar barnaspítala á lóð Landspítalans. Lætur Árni í það skína að það sem ráði afstöðu Reykjavíkurlistans sé almenn nei- kvæðni ef ekki í óvild í garð góðs málefnis. En hvernig blasa staðreyndirnar við þegar grannt er skoðað? í kosningabaráttunni s.l. vor barðist D-listinn örvæntingarfullri baráttu til að halda völdum. Öllu var tjaldað sem til var og meira að segja skipt um borgarstjóra í ofboði. Sá gerðist mikil hamhleypa Árni Sigfússon virðist nú hafa gleymt því, seg- ir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, að meira að segja hans eigin flokksmenn vildu ekki efna það meðan þeir enn og sjálfstæðismenn vissu sem var, að ekki var hægt að innleysa lof- orðið fyrir kosningar. En fjölmiðlar gerðu þessum atburði góð skil og þá var tilganginum náð. Þann 31. maí, eftir að D-listinn hafði tapað meirihluta sínum í Reykjavík, en áður en Reykjavíkur- listinn hafði tekið við, var bréf heilbrigðisráðherra lagt fram að nýju í borgarráði og enn frestað. Núna, þegar aftur nálgast kosningar, rit- ar Árni Sigfússon umrædda grein í Morgunblaðið og undrast hvers vegna Reykjavíkurlistinn hefur ekki staðið við kosningaloforð hans. Virðist hann nú hafa gleymt því, að meira að segja hans eigin flokksmenn vildu ekki efna það meðan þeir enn gátu og sviku með því alla aðila í þessu máli; heilbrigðisyfir- völd, starfsfólk og sjúklinga á Landspít- alnum og Kvenfélagið Hringinn, sem sér nú hugsjón sína í hættu. Ætlar D-listinn nú að endurtaka leikinn ? í þýðingarmiklum og viðkvæmum málum eins og hér er um að ræða er ekki betra að veifa röngu tré né öngvu. Menn eiga ekki að lofa meiru en þeir eru vissir um að geta staðið við. í þessu sam- bandi vil ég svo minna á að ríkisstjórnin gerði um það samþykkt að byggja barnaspítala á lóð Landspítalans. Sú samþykkt getur ekki staðið eða fallið með því hvort borg- arsjóður leggi ríkissjóði til fé til þessarar byggingar enda hafði rík- isstjórnin aldrei neitt fast í hendi frá borginni eins og ég hef rakið hér að ofan. Málið er á verk- og valdsviði ríkisins og engan veginn sæmandi að varpa ábyrgð af því yfir á eitt sveitarfélag í landinu. Annaðhvort stendur ríkisstjórnin við sína samþykkt eða ekki. Núverandi borgaryfirvöld munu að sjálfsögðu stuðla að uppbygg- ingu heilbrigðisþjónustu fyrir Reykvíkinga, að því marki sem þeim ber, en þau hljóta að leggja höfuðáherslu á að veita bömum og fullorðnum í Reykjavík þá þjónustu sem þau eru ábyrg fyrir lögum samkvæmt. Það verður ekki gert með sviknum loforðum D-listans. Höfundur er borgarstjóri í Reykjavík. HYUIlDfll Ríkulega búinn Accent Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gátu og sviku með því alla aðila í þessu máli. í orði fremur en á borði og lofaði að leysa hvers manns vanda. Á Landspítalanum hefur lengi verið mikill áhugi á því að koma upp bættri og fullkomnari þjónustu við börn en barnadeildin þar býr nú við mjög þröngan kost. Kvenfé- lagið Hringurinn hefur jafnframt haft það sem sitt aðal baráttumál í áratugi að koma upp fullkomnum barnaspítala og með þrautseigju og dugnaði hefur félagið safnað umtalsverðum Ijármunum til spítal- ans. Þegar við bættist að sá ráð- herra sem sat í heilbirgðismála- ráðuneytinu s.l. vor hafði mikinn áhuga á málinu virtist mönnum ekkert að vanbúnaði og ríkisstjórn- in ákvað að byggja 4.000 m2 barn- aspítala. Þá greip Árni tækifærið. Hann lýsti því yfir að Reykjavíkurborg myndi styrkja bygginguna með 100 milljónum króna framlagi. Þetta gerði hann þrátt fyrir að ljóst sé af lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að sjúkrahúsrekst- ur og uppbygging ríkisspítala sé alfarið í höndum ríkisins, en ýmis- legt annað sem varðar sérstaklega hagsmuni barna, eins og uppbygg- ing og rekstur leikskóla, sé í hönd- um sveitarfélaga. En yfirlýsingin um 100 milljónir var eðlilega hent á lofti af heilbrigð- isráðherra sem ritaði borgar- stjóranum í Reykjavík, Árna Sigf- ússyni, bréf 28. apríl 1994 þar sem hann óskaði eftir því að hann stað- festi yfirlýsingu með bréfi til ráðu- neytisins. Bréfið var lagt fram í borgarráði þann 10. maí en hlaut ekki afgreiðslu — var frestað. Engu að síður gerðist það þann 26. maí, við sérstaka athöfn á Landspítala- lóð í tilefni samnings sem gerður var milli heilbrigðisráðuneytisins, Ríkisspítalanna og Kvenfélagsins Hringsins um uppbyggingu barna- spítalans, að fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins mætti og hélt þar ræðu. Þar lofaði hann stuðningi Reykja- víkurborgar við framkvæmdina. Þá voru aðeins tveir dagar til kosninga Negld vetrardekk fylgja! og sumardekkin í skottið | Ódýrasti bíllinn í sínum flokki I 4 dyra HYUNDAI NISSAN TOYOTA MMC ACCENT SUNNY COROLLA LANCER RÚMTAK VÉLAR 1341 CC 1397 CC 1331 CC 1299 CC HESTÖFL 84 89 90 75 LENGD/mm 4117 4230 4270 4275 BREIDD/mm 1620 1670 1685 1690 HJÓLAHAF/mm 2450 2430 2465 2500 ÞYNGD 980 1000 1020 940 VERÐ 1.039.000 1.171.000 1.299.000 1.245.000 • Vökva- og veltistýri • 84 hestöfl • 1300 ccvél • Stafrænt útvarp og segulband með 4 hátölurum ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36 Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn um land allt Argus & örtcin / SÍA BL-Q02-01
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.