Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 53 BRÉF TIL BLAÐSINS Norsku stjórninni má ekki verða að ósk sini Frá Sverri Sverrissyni: ÉG SÁ það í fréttum fyrir skemmstu að norsk stjórnvöld eigi sér nú þann draum heitastan að Alþýðuflokkur- inn tapi duglega í kosningum í vor og Jón Baldvin Hannibalsson hverfi úr utan- ríkisráðuneyt- inu. Þá fyrst telja þeir sig hafa unnið sigur í Smugudeilunni við íslendinga. Það var haft eftir norsku dagblaði að harka íslend- inga í Smugu- málinu sé fyrst og fremst Jón Baldvin að kenna og það verði auðvelt að fá íslendinga ofan af þessum veiðum þegar nýr utanríkisráðherra taki við. Þetta kemur okkur ekkert á óvart, þeim sjómönnum, sem höfum verið að veiðum í Barentshafi síð- ustu tvö ár. Við teljum að íslending- ar eigi rétt á sínum skerfi veiðiheim- ilda á þessum slóðum, enda þorsk- stofninn þar ekki í hættu. Okkur skilst líka núna að þessar veiðar okkar eigi sinn þátt í því að nú sé hægt að fara að hækka laun land- verkafólks, kennara og fleiri stétta. En þegar veiðarnar hófust, þá sýndu ráðamenn okkur hvorki stuðning né skilning. Nema einn þeirra: Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Hann hefur háð harða baráttu fyrir veiðum íslenskra skipa, bæði erlendis og heima fyrir. Þegar Kanadamenn brugðust okkur svo með baksamningum við Norð- menn, þrátt fyrir stuðning okkar við þá í Norður-Atlantshafsfisk- veiðinefndinni, þá brást Jón Baldvin hárrétt við, en núverandi og fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra gengu eins og áður í lið með norsku stjórn- inni gegn íslenskum hagsmunum. íslenskir sjómenn vita að þeir hafa getað treyst á Jón Baldvin Hannibalsson. Norska stjómin held- ur hins vegar áfram að treysta á aðra íslenska ráðamenn. Vonandi verður henni ekki að ósk sinni. SVERRIR SVERRISSON, Skeljabraut 36, Seltjarnarnesi. Hver vill leggja stein í götu afreksíþróttafólks? Frá Guðmundi Haraldssyni: SÚ umræða sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum að undanförnu um þolfimi hér á landi hefur verið mjög neikvæð fyrir alla sem vinna að þessari íþrótt. Það sýnir ekki mik- inn áhuga á uppbyggingu íþróttar- innar að ætla að hindra okkar fremsta keppnisfólk í því að auka hróður okkar lands á erlendum vettvangi og er það þeim sem þann- ig vinna til skammar. Þolfími er íþróttagrein sem er í mikilli upp- sveiflu og nýtur orðið mikilla vin- sælda víða um heim. ídag eru sjö alþjóðleg þolfimi- sambönd í heiminum sem hafa umboðsmenn víða um heim og keppnir sem kostaðar eru af ýms- um fyrirtækjum. Eitt af þessum fyrirtækjum er Suzuki sem kostað hefur þolfimikeppnir International Aerobies Federation, IAF, en það er með sterkustu mótunum sem haldin eru í heiminum. Okkar besti þolfimimaður, Magnús Scheving, hefur unnið margra glæsilega sigra á þessum mótum og er silfurhafi frá síðustu heimsmeistarakeppni sem IAF hélt á síðasta ári. Einnig náði Magnús yfirburðasigri á Evrópumeistara- móti í Sofiu sem haldið var af IAF í febrúar sl. og varði þar með titil sinn frá árinu áður. Magnús hefur sett ísland í fremstu röð þolfimi- fólks í heiminum. Fimleikasambandið hefur unnið að þolfimi undanfarin ár ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum og átt fulltrúa í norrænu þolfiminefnd- inni. Þolfimi var tekin upp sem ein af keppnisgreinum fimleika innan Alþjóða fimleikasambandsins, FIG, á síðasta ári. Á svipuðum tíma gekk Magnús Scheving í raðir Ár- menninga. í bréfi til Fimleikasam- bandsins frá því í febrúar 1994 óskaði Glímufélagið Ármann að þolfími yrði viðurkennd sem keppn- isgrein innan Fimleikasambands- ins. Þetta var samþykkt af Fim- leikasambandinu og staðfest af íþróttasambandi íslands. Á þingi Fimleikasambandsins í lok ágústmánaðar var kosin ný þolfíminefnd og óskað eftir því við Magnús Scheving að hann gæfi kost á sér í nefndina til eflingar íþróttinni og uppbyggingar hér á landi. Magnús varð við þeirri beiðni og hefur skilað miklu og árangurs- ríku starfí á þessum tíma. Á sama tíma hefur hann heimsótt skóla víðsvegar þar sem kynning hans á þolfímiíþróttinni hefur tengst góðu lífemi, reglusemi og baráttu gegn vímuefnum. Það er ekki tilviljun að Magnús var valinn íþróttamaður ársins 1994 af íþróttafréttamönnum, þeir vissu að Magnús var vel að þessum titli kominn og hafði unnið vel til hans. Ég vona að allir íþróttamenn og aðrir þeir sem vilja vinna íþróttum farsældar standi saman að upp- byggingu okkar fremsta afreks- fólks svo það geti áfram haldið uppi heiðri íþróttahreyfíngarinnar hér á landi og erlendis. GUÐMUNDUR HARALDSSON, formaður Fimleikasambands íslands. Upplýsingar um Intemettengingu við Morgunblaðið VEGNA fjölda fynrspurna varðandi Intemet-tengingu við Morgunblaðið, skal eftirfarandi áréttað: Tenging við heimasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heimasíðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upplýs- ingar um blaðið, s.s netföng starfs- manna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðsins og helstu símanúmer. Morgunblaðið á Internetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á Internetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengjast heimasíðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskriftar- sölu Morgunblaðsins á Internetinu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um Internetið noti netfangið: mbl@centmm.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mismunandi tengingar við Internet Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/ Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýsingar með Gopher- forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. ANTIK Gallerí Borg - antik heldur uppboð í dag, laugardaginn 18. mars. Uppboðið fer fram í húsnæði verslunarinnar, Faxafeni 5, og hefst kl. 14.00. Bjóðum til dæmis: Skápa, sófa, sófaborð, skrifborð, ljósakrónur, handofnar mottur, snyrtiborð, stóla, postulín og fleira. Uppboðshlutirnir verða sýndir í dag, í Faxafeni 5 frá kl. 10.00-13.00. ATH! ALUR HLUTIRNIR VERÐA SELDIR HÆSTBJÓÐANDA! antik FAXAFENI 5, SÍMI 581-4400. Framsókn'95_______ Halldór Ásgrímsson veröur á almennum fundi í Brúarásskóla í Jökulsárhlíð í dag kl. 14:00 og viö opnu koningaskrifstofu Framsóknarmanna á Neskaupstað kl. 20:00. Sunnudaginn 19. mars verður hann í Austurlandskjördæmi og á fundi um sjávarútvegsmál í Sandgerði kl.20:30. Mánudaginn 20. mars verður hann á vinnustaðafundum í Reykjavík. B Framsóknarílokkurinn kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.