Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Ýmsar uppákomur
fyrir afmælisböm
á veitingastöðum
FYRR í þessari viku var að ósk
fimm ára telpu farið á af-
mælisdaginn á Hard Rock í
Kringlunni. Það sem vakti fyrir
þeirri stuttu var að fá ís með
stjörnuljósum og starfsfólkið til að
syngja fyrir sig afmælissönginn. Á
meðan verið var að borða uppgötv-
aði stúlkan að það var ekki bara
hún sem átti afmæli á þessum
merkisdegi því a.m.k. fjórir aðrir
fengu sunginn fyrir sig afmælis-
sönginn þann stutta tíma sem
staldrað var við á staðnum.
Afmælisveisla í Keiluhöllinni
Sígildu tertuboðin virðast eiga
við meðan börnin eru lítil og fyrir
afa og ömmur en þegar krakkar
komast á skólaaldur taka við öðru-
vísi veislur, pizzuboð, partí þar sem
gestum er boðið upp á ýmiss konar
snakk og síðan er dansað, horft á
myndbönd eða farið í ýmsa leiki.
Sumir krakkar halda upp á afmæl-
ið sitt í Keiluhöllinni. Þar standa
til boða sérstakir afmælispakkar.
Afmælisbamið fær að gjöf keilu og
síðan geta gestir farið í einn leik
sem tekur u.þ.b. klukkustund séu
gestirnir til dæmis tíu. Verðið er
250 kr. á mann. Sumir koma með
veitingar með sér eða panta þær
og þá er oft gert hlé þegar leikur-
inn er hálfnaður til að borða. Sigur-
vegarinn í leiknum fær síðan einn
leik í verðlaun.
Þá geta þeir sem vilja keypt pyls-
ur, kók eða franskar á staðnum.
Pylsan kostar 120 kr., kók 70 kr.
og lítill skammtur af frönskum er
á hundrað krónur. Þá er hægt að
kaupa pakka með pizzum, borð-
skreytingu og tilheyrandi og kostar
þá allur pakkinn 780 kr. á mann.
Mac Donalds með sérþjálfað
starfsfólk í afmælisveislur
Foreldrar geta komið á Mac Don-
alds með böm sín í sérstaka afmæl-
isdagskrá. Þar er veislan í höndum
sérþjálfaðs starfsfólks sem fer í ieiki
með bömunum, veitir verðlaun og
síðan er þeim gefíð að borða. Æski-
legt er að einn fullorðinn komi með
hveijum fimm börnum.
Þátttökugjald á bam er 175 kr.
og síðan maturinn sem valinn er.
Barnagaman nefnist box með gosi,
hamborgara, frönskum og leikfangi
og kostar það 399 kr. Það eru þá
574 kr. á barn. Þá er hægt að fá
afmælistertu sé þess óskað og börn-
in eru leyst út með gjöfum.
Vilji böm eldri en tíu ára halda
veislu á Mac Donalds er í boði svo-
kölluð stjömumáltíð sem kostar inn-
an við sex hundruð krónur á mann-
inn, stór hamborgari eða kjúkling-
ur, franskar og gos.
Samlokur í afmælið
Subway er einnig með sérstök
tilboð þegar afmælisveislur eða
partí eru annars vegar. Þar er til
dæmis hægt að fá svokallaðan risa-
sub-samlokubát sem er 1,80 m að
lengd með völdu áleggi á 6.999
krónur. Slíkur samlokubátur ætti
að duga fyrir 30 manns. Þá er
hægt að fá partíplatta á 2.199 krón-
ur. Þar er um að ræða 18 kafbáta-
bita með völdu áleggi. Auk þess er
hægt að fá með kartöfluflögur,
smákökur og gos. Sérstakur barna-
pakki er hálfur samlokubátur, gos,
smákaka og leikfang á 399 krónur.
TRAUST, VALSSON
^Íf^lÓNSSON
ÝTTU/Vf HEIMI
Fjölvaútgáfan kynnir merka nýjung!
Grundvallarrit um framtíð íshinds.
Handbókí
stjómmála-
og skipulags
frœði, gefur
raunsœtt
yfirlit yfir
stöðu
íslands í
breyttum
heimi.
Höfundarnir, Trausti Vaisson skipulagsfræð-
ingur og Albert Jónsson stjórnmálafræbingur,
leggja spilin á borbib. Yfirgripsmikib verk meö
skýrri framsetningu fyrir almenning og ógrynni
skýringarmynda og korta í fullum litum.
Helstu kaflar eru: Umskipti í alþjóbamálum — Mikilvœgi utanríkisviöskipta
— Umhverfismál breyta vibhorfum — Tœkni og þekkingarumhverfi —
Menningarþœttir í þróun þjóbmála — Breytingar í byggbaþróun heimsins
— Ný Evrópa í mótun — ísland í nýrri heimsmynd — Breytingar á
byggöamynstri á íslandi — Mat á leiöum til framtíöar.
EFNIBÓKARINNAR SNERTIR OKKUR ÖLL!
mBmnmmmmMusBKttwm
Pizzuveislur
Undanfarin ár hafa barnaafmæli
hjá skólakrökkum ekki þótt al-
mennileg nema þar væru á borðum
pizzur og á mörgum pizzustöðum
eru ýmis afmælistilboð.
Hjá Pizza Hut er t.d. hægt að
halda veisluna á staðnum eða fá
sendar heim pizzur. Ef sent er heim
fá börnin gos og síðan blöðru eða
íspinna með. Þar er tilboðið fjöl-
skyldupizza fyrir 4-6, brauðstangir
og gos á 1.780 krónur. Auk þess
fá afmælisgestirnir semsagt blöðrur
og/eða íspinna.
Hjá Hróa hetti er veittur 15%
afmælisafsláttur af pizzum í af-
mæli og 9 tommu pizza fylgir frítt
með handa afmælisbarninu. Vilji
foreldrarnir halda afmælið á Hróa
hetti er krökkunum boðið upp á ís
á eftir og þar hefja starfsmenn upp
raust sína og syngja.
18 tommu pizza með 2 áleggs-
tegundum kostar þar 1.340 kr. en
síðan er veittur 15% afsláttur.
Dominos veitingastaðurinn er
með afmælispakka, þijár 15 tommu
þizzur með tveimur áleggstegund-
um kosta 3.055 kr. og þeim fylgja
diskar, glös, servíettur og glaðning-
ur handa afmælisbarninu. Ef pizz-
urnar verða fleiri lækkar verðið.
Þessi listi er síður en svo tæm-
andi, aðeins sýnishorn af því sem
í boði er. Það er sennilegt að flest-
ir veitingastaðir bjóðist til að gleðja
afmælisgesti sína með einhveijum
hætti.
Neytendavernd á alþjóðadegi neytenda
Stjórnvöld gagnrýnd
fyrir sinnuleysi
Morgunblaðið/Halldór
SIGRÍÐUR Arnardóttir lögfræðingur
Neytendasamtakanna, Jóhannes
Gunnarsson formaður, Þuríður Jóns-
dóttir varaformaður og Jón Magnús-
son, formaður Neytendafélags höfuð-
borgarsvæðisins.
ALÞJÓÐADAGUR neyt-
endaréttar var á miðviku-
daginn og leiðbeiningar
Sameinuðu þjóðanna um
neytendavernd voru efst á
baugi að þessu sinni sam-
kvæmt tillögu alþjóðasam-
taka neytenda. Leiðbein-
ingarnar voru samþykktar
af allsheijarþingi SÞ fyrir
tíu árum og forsvarsfólk
íslensku Neytendasamtak-
anna hefur fylgst með
frammistöðu hérlendra
stjórnvalda hvað þær varð-
ar. Ekki verður sagt að rík-
isstjórnir síðan 1985 hafi
fengið háa einkunn fyrir
fylgni við samþykkt SÞ eða
aðra fjölþjóðasáttmála á
sviði neytendamála.
Jón Magnússon, formað-
ur Neytendafélags höfuðborgar-
svæðisins, sagði að ísland hefði
dregist aftur úr öðrum Norðurlönd-
um, verðlag hér væri hærra en þar
og ljóst að íslensk stjómvöld tækju
framleiðenda- og atvinnurekenda-
hagsmuni fram yfir hag neytenda.
Eðlilegrar samkeppni væri ekki
gætt af stjómvöldum og eftirliti með
viðskiptum væri ábótavant. Jón
benti sérstaklega á nokkur tilmæli
leiðbeininga SÞ til ríkisstjórna:
Að þær ættu að gera neytendum
kleift að njóta hámarkshagnaðar af
fjármagni sínu — fá sem mest fyrir
þá pehinga sem þeir leggja til þjóð-
arbúsins. Að þær ættu að auka að-
hald við framleiðendur og dreifend-
ur, efla eftirlit með hömlum og
slæmum viðskiptavenjum og
tryggja virka samkeppni. Að þær
ættu að hvetja til samvinnu fyrir-
tækja við neytendasamtök, tryggja
upplýsingar um bætur til neytenda
og stuðla að þjálfun kennara og
fjölmiðlafólks í miðlun upplýsinga
til neytendaj
Stjórnvöld vom gagnrýnd á fund-
inum fyrir að sinna ekki heldur öðr-
um samþykktum um neytendamál;
skuldbindingum á evrópska efna-
hagssvæðinu og í Norðurlandasam-
starfi. Viðkvæðið er peningaskortur,
að sögn forsvarsmanna Neytenda-
samtakanna, en áhrifin þjóðhagsleg
hvað varðar gæði útflutnings, auk
augljóslega lakari stöðu neytenda.
Jafnframt væri auðvitað alvarlegt
að íslensk stjómvöld héldu ekki íjöl-
þjóðasamþykktir. EES skyldaði þau
til dæmis til stuðnings við neytenda-
samtök í landinu, en lítið færi fyrir
honum. Hvað Norðurlandasamstarf
varðaði hefði sérstaks styrks verið
óskað frá Norðurlandaráði til að
íslendingar gætu skipað sérfræð-
inganefndir um ýmis hagsmunamál
neytenda. Jafnframt hefðu formenn
Neytendasamtaka á Norðurlöndum
sent forsætisráðherrum landanna
bréf þann 8. mars um aukinn stuðn-
ing við neytendastofnanir í löndnum
og samstarf þeirra.
Viðhorf jákvætt til
N eytendasamtakanna
Könnun Félagsvísindastofnunar
um viðhorf almennings í garð Neyt-
endasamtakanna var ennfremur
kynnt á blaðamannafundi samtak-
anna í vikunni. Jóhannes Gunnars-
son, formaður samtakanna, sagðist
ánægður með útkomuna, sem var
mjög jákvætt viðhorf tæpra 27%
aðspurðra og frekar jákvætt hjá
tæpum 43%. Jóhannes sagði ekki
koma á óvart að konur væru ívið
jákvæðari en karlar og fólki á miðj-
um aldri, búsett á suðvestur-horn-
inu, væri hlýjast til samtakanna.
Sjómenn og bændur væru hins veg-
ar neikvæðastir, enda hefðu for-
svarsmenn bænda lengi rekið áróður
gegn samtökunum.