Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Næst skal ég sko fara að ráðleggingum fiskifræðingana . . . Heimsklúbbur Ingólfs gefur út ferðaáætlun fram á haust Boðið upp á ferðir til fjögurra heimsálfa „ SÓLRISUHÁTÍÐ" í tilefni af út- gáfu ferðaáætlunar Heimsklúbbs Ingólfs „Undur heimsins 1995“ verður haldin á Hótel Sögu á morg- un. Ingólfur segir að boðið sé upp á ferðir til fjögurra heimsálfa í ferðaáætluninni. Hann nefnir sér- staklega ferðir eins og Perlur Aust- urlanda og Töfra Ítalíu. Hann segir að verð á öllum ferðum hafi lækkað. Ingólfur segir tvær ástæður fyrir verðlækkuninni. „Annars vegar hefur mér tekist að gera afar hag- stæða samninga um fargjöld á lang- leiðum, t.d. á austurleiðum og í Karíbahafið, og hins vegar er gengi erlendra gjaldmiðla hagstætt núna,“ segir hann. Þegar Ingólfur er beðinn að nefna dæmi tekur hann fram að þriggja vikna ferð með yfírskriftinni Perlur Austurlanda kosti samtals 190.000 kr. Innifalið sé flug, gisting og morg- unverður, ásamt aðstoð íslensks far- arstjóra. Ingólfur segir að ferðin sé sérstaklega sniðin fyrir yngra fólk og sjálfstæða ferðalanga þótt hún geti að sjálfsögðu hentað öllum. Þeir telji sig að mestu geta spjarað sig sjálfír en vilji geta leitað aðstoð- ar þegar eitthvað bjáti á. Heimsóttir verða staðir eins og Hong Kong, Bangkok, Balí og Singapore. Ari Trausti fararstjóri Þegar spurst er fyrir um aðrar ferðir segir Ingólfur að einna hæst beri menningar- og listaferðina Töfra Ítalíu í ágúst. Heimsóttar eru helstu listaborgir á Ítalíu með áherslu á listir, listasöfn, fagrar byggingar og tónlist, m.a. með því að hlýða á óperuna Carmen í hring- leikahúsinu i Verona. Ari Trausti Guðmundsson, jarð- fræðingur, verður ásamt Ingólfí fararstjóri í fyrstu ferðinni um vest- urfylki Kanada í september. Farið verður um Alberta og Bresku Kól- umbíu og meðal annars komið við á slóðum Stephans G. Stephansson- ar skálds. Nefna má að ferðast verður með sérstakri útsýnisjám- braut um Klettafjöllin til Vaneouver á strönd Kyrrahafsins. Suður-Afríka Að nýju verða teknar upp ferðir til Suður-Afríku í nóvember. Ingólf- ur segir að á þeim tíma sé blóma- dýrðin hvað mest um vor á suður- hveli. „Farið verður m.a. í Kruger- þjóðgarðinn, stærsta friðaða villi- dýrasvæði heimsins, dvalist í Drekafjöllum, á baðstaðnum Dur- ban á strönd Indlandshafs og loks ekin „blómaleiðin" eftir suður- ströndinni til Höfðaborgar," segir Ingólfur og tekur fram að þar að auki verði famar fjölmargar ferðir með hópa og einstaklinga út um allan heims. Almenn kynning er í Arsal Hótel Sögu kl. 14 síðdegis. Þar verður myndasýning og almennar upplýs- ingar um ferðirnar veittar. Ferðim- ar verða á sértilboði á morgun í tilefni dagsins. Nýja ferðabækl- ingnum verður dreift en honum fylgir happdrættismiði þar sem að- alvinningur er farseðill í kringum hnöttinn. Annað kvöld kl. 19.30 hefst svo í Súlnasal Hótel Sögu sjálf Sólrisuhátíðin með kvöldverði og fjölda skemmtiatriða. Veislustjóri verður Ari Trausti Guðmundsson. Aðgangur er ókeypis fyrir þá sem panta sér ferð á hátíðinni. Ingólfur segir viðskipti Heimsklúbbsins hafa aukist jafnt og þétt síðustu þijú árin en arður af starfseminni renn- ur í sérstakan sjóð til lista- og menningarmála. Forsætisráðherra um deilur samráðherra um úthafsveiðar Svar Jóns er afstaða Islands DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist sammála bæði Þorsteini Páls- syni sjávarútvegsráðherra óg Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráð- herra, en þeir hafa deilt undanfarna daga um þá ákvörðun Jóns Baldvins að hafna stuðningi við Kanadamenn í deilu þeirra við Evrópusambandið. Davíð segir hins vegar að Jón Bald- vin fari með utanríkismál landsins og svar hans til Kanadamanna sé hið opinbera svar íslands. „Ég er sammála afstöðu þeirra beggja," sagði Davíð á blaða- mannafundi í Valhöll í gær. „Báðir segja að framganga Spánveija sé stórlega ámælisverð og það tek ég undir. Spánveijar áttu að bregðast við eins og víð gerðum, sem stöðv- uðum slikar veiðar í Smugunni þeg-r ar smáfiskur var kominn yfír ákveð- ið magn í afla. En með sama hætti höfðu Kanadamenn ekki leyfi til að taka skip utan lögsögu." Hugsanlega betra að ræða í ríkisstjórn Davíð sagði að hugsanlega hefði verið betra að utanríkisráðherra hefði rætt svör sín við beiðni Kanadamanna um stuðning í ríkis- stjórn. Hins vegar væri hann hús- bóndi sendiherrans í Washington og erfítt væri að ná ríkisstjórninni saman, nú þegar ráðherrar væru um allt land í kosningabaráttu. Málið hefði borið að með þeim hætti, sem raun bar vitni, og hann gerði ekki athugasemdir við svör Jóns Baldvins. Davíð sagði að jafnvel þótt svar utanríkisráðherra hefði verið „einkaskoðun" hans, eins og sjávar- útvegsráðherra hefur sagt, yrði hún tekin gild sem afstaða íslands. Rík- isstjóm íslands væri ekki fjölskipað stjórnvald og utanríkisráðherrann svaraði fyrir utanríkismál. Miðstöð nýbúa Fjölmiðlar ráða því hvem blæ orðið nýbúi fær Kristín IMjálsdóttir UPPLÝSINGA- og menningarmið- stöð nýbúa tók til starfa hinn 26. ágúst 1993. Miðstöðin er rekin af íþrótta- og tómstundar- áði Reykjavíkurborgar og er til húsa að Faxafeni 12. Opið er alla virka daga frá 10-16.30. Forstöðumaður hennar er Kristín Njáls- dóttir félagsráðgjafi. - / hveiju felst starf- semi miðstöðvarinnar? - Hér geta nýbúar fengið allar nauðsynlegar upplýsingar eins og til dæmis um atvinnuleyfí, dvalarleyfi, heilsugæslu, kennslu í íslensku, trygg- ingar og leikskólapláss. Margir þurfa á ráðlegg- ingum að halda varðandi vinnuleit og bendi ég þeim á vinnumiðlanir og sumir vita til dæmis ekki að hér á landi séu verkalýðsfélög og hafa látið hlunnfara sig á vinnumarkaði. En það hefur reyndar minnkað. Hér er menningarmiðstöð nýbúa. Ýmis félög nýbúa hafa hér aðset- ur eins og Félag Hollendinga, Samfélag gyðinga, Félag Serba, Félag nýrra íslendinga, íslensk- filippseyska félagið og fleiri. Nú eru hér tveir leshópar, fyrir en- skumælandi og tælensk börn. Bókasafn er á staðnum í sam- vinnu við Borgarbókasafnið. Hér eru haldnar samkomur og hátíðir af ýmsum toga allan ársins hring eins og til dæmis Loykratong- hátíð Tælendinga, nýársfagnaður 13. janúar hjá Serbum, Heilags Patreksdagur og svo mætti lengi telja. Við höfum einnig milli- göngu um að útvega fólki túlka. Hingað leita gjarnan stofnanir eins og til dæmis leikskólar eða Sálfræðideild skóla til að fá túlk. Sem dæmi má nefna að tælenski túlkurinn, sem er reyndar löggilt- ur skalaþýðandi og dómtúlkur, hefur nóg að gera því það eru ekki fleiri færir í að túlka fyrir Tælendinga af íslensku. Þess ber að geta að miðstöðin er fyrir Reykjavík en þegar hringt er utan af landi þá sinni ég því líka. - Leita margir nýbúar til ykkar? - í fyrstu reyndi ég að hafa tölu á þeim sem kæmu eða hringdu, en gafst svo upp á því. En til marks um þörfina má nefna að í janúar síð- astliðnum gaf ég út bækling í tvö þúsund éintökum á níu tungu- málum. Hann er uppurinn. Þann- ig að ég held að starfsemin hér sé að verða ágætlega kynnt með- al nýbúa. - Hver er svo helsti Þrándur í Götu nýbúa? - Tungumálið. Ég hugsa að flestir nýbúar myndu nefna það. Tungumálið er lykillinn að því að bjarga sér á íslandi og þannig er það sjálfsagt í öllum öðrum löndum. Þótt margir íslendingar kunni ensku þá kunna Víetnam- arnir, Tælendingarnir eða Aust- ur-Evrópubúarnir yfírleitt ekki ensku. - Hver sýnist þér vera staða kvenna sem giftast hingað? - Það er ekki hægt að alhæfa um það frekar en sambönd og hjónabönd á íslandi almennt. Sum ganga upp og önnur ekki. ►Kristín Njálsdóttir er fædd 16. nóvember 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslunar- skólanum árið 1983 og prófi í uppeldisfræði og félagsráðgjöf frá Háskóla íslands 1989. Kristín vann við meðferðar- störf í Noregi að því búnu en fluttist svo heim og gerðist forstöðumaður félagsmið- stöðvarinnar Bústaða. Kristín hefur verið forstöðumaður Upplýsinga- og menning- armiðstöðvar nýbúa frá því hún var opnuð í ágúst 1993. Það er fullt af hamingjusamlega giftu fólki þar sem annar aðilinn er íslenskur en hinn frá einhveiju öðru landi. En, auðvitað eru dæmi um að þau hjónabönd hafi ekki gengið upp frekar en önnur. Það eru dæmi um óheppileg sambönd, sem hefur kannski verið stofnað til á röngum grundvelli. En þau eru alls ekki í meirihluta. Umræð- an um asískar konur, sem var kannski hvað háværust fyrir einu og hálfu ári síðan, var eingöngu neikvæð fyrir þær sjálfar. Hún varð alls ekki til að hjálpa þeim. - Er orðið nýbúi búið að vinna sér sess í málinu? - Ábyrgð fjölmiðla á því hvem sess orðið nýbúi hlýtur er mikil. Mér fannst orðið mjög jákvætt þegar það kom fyrst fram. Og margir sem hingað leita, einkum ungt fólk, segja að ef það á að fara að kalla það einhveiju öðru en sínu eigi nafni, ef það á sem- sagt að telja það til einhvers hóps, þá kjósi það fremur heitið nýbúi en útlendingur. En þegar farið er að nota orðið í fjölmiðlum sem yfírskrift yfír neikvæðum fréttum þá fer maður að hafa sínar efa- semdir. Ég hef til dæmis í huga frétt í DV þar sem maður sagði að tuttugu nýbúar hefðu ráðist á sig og það var haft í fyrirsögn. Síðan kom í ljós að í hópnum voru einungis fjórir nýbúar og ekki einu sinni um árás að ræða af þeirra hálfu, en blaðamaðurinn hafði ekki fyrir því að athuga þetta nánar áður en þessu var slegið upp. Ég vona því að fjöl- miðlar beri gæfu til að forðast að stuðla að því að orðið nýbúi fái neikvæðan blæ. Þetta orð hefur marga kosti og nægir að nefna þann að allir geta borið það fram. Tungumálið helsti Þrándur í Götu nýbúa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.