Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 18

Morgunblaðið - 18.03.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 18, MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður Flugleiða ,á aðalfundi Kaflaskil í rekstri Flugleiða árið 1994 HÖRÐUR Sigurgestsson, stjórnarformaður Plugleiða sagði við upp- haf ræðu sinnar, á aðalfundi félagsins i fyrradag að kaflaskilum hafi orðið í rekstri Flugleiða hf. á árínu 1994 með því að tveggja ára taprekstri félagsins hafi verið snúið í hagnað. Stjórnarformaður- inn sagði að grundvöllinn að þessum árangri mætti í þýðingarmiklum atriðum rekja til ákvarðana um nýja markmiðBsetningu fyrirtækisins fyrir sjö árum síðan. Hörður gerði þýðingu ferða- þjónustu á íslandi nokkur skil í máli sínu. Hann sagði m.a. að gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu á síðasta ári hafa verið um 17 milljarðar króna og hafa vaxið um rúmlega 30% á árunum 1990 - 1994. Gera mætti ráð fyrir, að hátt í helmingur ' þeirra tekna kæmi frá rekstri Flugleiða. Hörður sagði einn af vaxtar- broddum ferðaþjónustu á næstu árum gæti vafalaust verið aukið ráðstefnuhald hér á landi. Sérstakt ráðstefnuhús í Reykjavík væri meðal þeirra framkvæmda, sem skynsamlegt væri að ráðast í. „Reynslan erlendis sýnir, að upp- bygging fyrsta flokks ráðstefnum- iðstöðvar er ekki framkvæmanlegt nema með umtalsverðri þátttöku opinberra aðila. Ég er þeirrar skoð- unar að myndarleg ráðstefnumið- stöð í Reykjavík verði ekki byggð upp nema af opinberum aðilum. Þetta er verkefni fyrir íslenska rík- ið og Reykjavíkurborg,“ sagði stjómarformaðurinn. NYJIR KÆLIMIÐLAR NÝJAR KRÖFUR NÝ EFNI NÝJAR LAUSNIR : Ráðstefna um nýjungar í kælitækni Dagur: Miðvikudagurinn22. mars1995. Staður: Scandic Hótel Loftleiðir, Þingsalir 1 og 2. Tími: 09:00-16:30. I Ráöstefnustjóri: Siguröur Bergsson, formaður Kælitæknifélags íslands. 1 08:30-09:00 Innritun/afhending fundargagna. 09:00-09:15 Setning: Inaimar Sigurðsson, skrifstofustjóri [ Umhverfisráðuneytinu. 09:15-09:30 Kynning dagskrár og fyrirtesara: Sigurður Bergsspn, tormaður Kælitæknifélags íslands. 09:30-10:15 Kynning á nýrri reglugerð um kælimiðla: (Tilgangur, kvaðir, Krörur, viðurlög). Hollustuvernd ríkisins. 10:15-10:30 Kaffihlé. 10:30-11:15 Breytingar í evrópsku samhengi: Morten Arnvig, forseti AREA; Samtaka evrópskra kæli- og frystitækjaframleiðenda og framkvæmda- stjóri AKB; Samtaka löggiltra frysti- og kælifyrirtækja í Danmörku. 11:15-12:00 Nýir kælimiðlar í stað ósóneyðandi efna: John R. Morley, tæknistjóri, Du Pont Chemicals. | 12:00-13:00 Léttur hádegisverður. 13:00-13:45 Ammoníak sem kælimiðill/kælilausnir: Bo Stubkier, framkvæmdastjóri Retech a/s, dótturfyrirtækis Sabroe+Soby. 13:45-14:30 Öryggi ammoníakskælikerfa og evrópskar reglugerðarkröfur um ammoníakskælikerfi: Leif Spby, framkvæmdastjóri Sabroe+Soby. 14:30-14:45 Kaffihié. 14:45-15:30 Framtíðarsýn í kæliiðnaði: Knud Andersen, framkvæmdastjóri Sabroe framleiðslufyrirtækisins og aðstoðarforstjóri Sabro-samsteypunnar. ####•*«####*####*####•*##•#######•####•################## 15:30-16:15 Pallborðsumræður: Þátttakendur verðaframsögumenn. •#••##############*##•#*#####•#*#####*#•«################ 16:30-17:30 Móttaka í boði umhverf isráðherra. i Þátttökugjald er kr. 4.900,- (kr. 4.165,- fyrír félaga í KTI). Innlfafið: Ráðstefnugögn (ítarefni) og léttur hádegisverður. í UNDIRBÚNINGUR & FRAMKVÆMD: ÍSLENSKA HUGMYNDA8AMSTEYPAN HF. I SIMASKRANING: (91) 23344 Hæyt er að senda skránintjar í fax: (91) 23342 Hörður vék að áherslum á markaðssvæði Flugleiða í milli- landaflugi og sagði eðlilega að aðaláherslan hefði verið lögð á markaðssvæði Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. „En það er mörg matarholan," sagði Hörður. „Á fáum árum hefur til dæmis ferða- mönnum frá Japan fjölgað veru- lega, og á síðastliðnu ári komu hingað 2 þúsund japanskir ferða- menn.“ Hann sagði að þegar horft væri til næstu ára á þessum vettvangi, mætti ekki eingöngu horfa á fjár- festingu í fasteignum, tækjum og aðstöðu. „Þessari þróun þarf einn- ig að fylgja fjárfesting í þekkingu og gæðurn," sagði Hörður Sigur- gestsson, stjórnarformaður Flug- leiða. Þóknun samþykkt TILLAGA stjórnar Flugleiða um þóknun til stjórnarformanns og stjórnar, upp á 800 þúsund krónur til formanns og 400 þúsund krónur til hvers stjórnarmanns var sam- þykkt á aðalfundi félagsins á hótel Loftleiðum í fyrradag. Athygli vakti, við atkvæðagreiðsl- una, að þegar tillagan var borin upp, voru margir hluthafa sem ekki greiddu atkvæði, rétt eins og gerðist ( atkvæðagreiðslunni um 7% arð- greiðslur. Einn greiddi þó atkvæði á móti tillögunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg HÖRÐUR Sigurgestsson, stjórnarformaður Flugleiða á aðalfundi félagsins í fyrradag. Scandic og arð- greiðslur gagn- rýnd á fundinum KRISTJANA Milla Thorsteinsson, viðskiptafræðingur, gagnrýndi notkun nafnsins Scandic á skiltum Hótels Loftleiða og Hótels Esju, á aðalfundi Flugleiða I fyrradag. Kristjána Milla gagnrýndi einnig tillögu stjórnar um 7% arðgreiðslur, sem hún taldi vera mjög lága. „Mér finnst sorglegt að sjá þetta jana Milla. Hún kvað það vissulega útlenda nafn, Scandic, á hótelunum okkar. Það eru alls staðar auglýs- ingar með þessu nafni, til dæmis ef maður les blöðin. Mér finnst sorg- legt að á sama tíma og verið er að reyna að efla íslenska ferðaþjónustu þá sé verið að setja útlend nöfn á þessi hótel,“ sagði Kristjana Milla. „Ég hélt nú satt að segja, fyrst þegar ég sá þetta, að búið væri að selja hótelin, en sem betur fer reyndist það ekki vera,“ sagði Krist- ■cbmIv UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ ■rKvaT kælitæknifélag íslands PÁSKATILBOÐ A HREINLÆTISTÆKJUM O.FL. 20% afsláttur vera gott að hafa samninga við erlendar hótelkeðjur, en vegur þess- arar erlendu nafngiftar, á auglýs- ingaskiltum hótelanna, væri að hennar mati einfaldlega of mikill og hin ágætu nöfn hótelanna Esja og Loftleiðir, hyrfu einfaldlega í samanburðinu. „Þetta er ekki gott fyrir ímynd íslands,11 sagði hún. Sigurður Helgason, forstjóri svaraði gagnrýni Kristjönu Millu, og kvaðst ekki telja að Scandic nafnið væri stærra á íslensku skilt- unum en tíðkaðist erlendis hjá hót- elkeðjunni, þótt engin nákvæm mæling hefði farið fram. Hann sagði það mikilvægt fyrir Flugleiðir að hafa náð samningum við keðjuna og auðveldaði markaðssetningu á hótelum félagsins. Lágar arðgreiðslur Þegar Kristjana Milla vék að til- lögu stjórnar um 7% arðgreiðslu, fyrir árið 1994, kvaðst hún telja hana of lága. Hún benti á að í fyrra hefði enginn arður verið greiddur, þannig að þetta samsvaraði 3,5% arði á ári, fyrir hluthafana. „Þegar búið er að draga frá skatta af þess- um arðgreiðslum, þá er ekki eftir nema svona 1,5% fyrir hluthafana, að minnsta kosti suma þeirra" sagði Kristjana Milla og bætti við: „Að mínu mati hefði mátt greiða svolít- ið meira, til þess að reyna að bæta aðeins fyrir síðastliðið ár.“ Pétur Guðmundarson, hrl., fund- arstjóri bar upp tillögu stjórnar um 7% arðgreiðslu og var hún samþykkt mótatkvæðalaust. Athygli vakti þó, að fjölmargir hluthafar kusu að greiða ekki atkvæði, heldur sátu hjá. ♦' » ♦ VATNSVIRKINN HF. Ármúla 21, símar 68 64 55 - 68 59 66 Stjórnunar- keppni ÚRSLITAKEPPNIN í íslenska hluta Samnorrænu stjórnunar- keppninnar verður haldin í Verslun- arskóla íslands í dag, laugardag kl. 10-15. Tvö efstu liðin komast f Norður- landaúrslit, sem haldin verða á ís- landi 8. apríl nk. Fyrir úrslitakeppn- ina er sveit Reiknistofu bankanna [ efsta sæti, en næstar koma sveit- ir Olís, Ingjaldar & Co. úr Háskólan- um, Skýrsluvéla ríkisins og Reykja- víkurborgar og Ríkisbókhalds.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.