Morgunblaðið - 18.03.1995, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 18.03.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 39 Ofstæki eða hófdrykkja NÝLEGA vakti ég athygli á því hér í blaðinu að hófleg neysla áfeng- is er heilbrigð og sjálfsögð lífsnautn. Þetta er engin einkaskoðun mín sem vínumboðsmanns heldur niðurstaða virtra læknarannsókna, sem heil- brigðisyfirvöid erlendis, t.a.m. í Bret- landi, Frakklandi og Bandaríkjunum, taka fullt mark á. Áfengisvamaráð lætur hinsvegar eins og ekkert nýtt hafi komið fram í þessum efnum síð- an á blómatíma ungmennafélaganna snemma á öldinni. Ráðið lítur hom- auga vaxandi áhuga og þekkingu á borðvínum, sem eru eðlilegur þáttur í byltingarkenndum framfömm í matarmenningu okkar. Staðreyndin er sú að 90% þjóðarinnar er vel trey- standi tii að umgangast vín með skikkanlegu móti, en áfengisstefna og svimandi há verðlagning ríkisins halda fólki frá heiðarlega gerðu víni og hvetja til drykkju á allskyns óly- fian. Ilófdrykkja Hófdrykkja merkir eftir orðsins hljóðan og venjulegum skilningi þess hófleg neysla víns. Hófleg neysla víns er ekki hættuleg frekar en ástir samlyndra hjóna. Starfsmaður Áfengisvamaráðs sagði nýlega í út- varpi að flestir þeirra 2.000 sem undirgengust meðferð SÁÁ á síðasta Hófleg neyzla áfengis er, að mati Þorbjörns Magnússonar, heilbrigð og sjálfsögð lífsnautn. ári hafi verið hófdiýkkjumenn. Þetta er dæmigerður útúrsnúningur les- blindra bókstafstrúarmanna. Þeir sem þurfa á aðstoð að halda vegna drykkju geta ekki talist hófdrykkju- menn. Þá mætti allt eins halda fram að hófdrykkja sé hættulegri en of- drykkja. Þeir sem ekki þola vín eiga að sjálfsögðu ekki að neyta þess fremur en sykursjúkir sykurs. Hvað telst hófleg vínneysla er náttúrulega einstaklingsbundið og ræðst t.d. af líkamsþyngd. Bresk heilbrigðisyfirvöld (Health Education Authority) ráðleggja sem heilsusam- legt hámark allt að 14 einfalda skammta af áfengi á viku fyrir kon- ur en 21 fýrir karlmenn, eða sem nemur 2,3 og 3,5 flöskum af borð- víni vikulega. Er þá miðað við dreifða neyslu yfír vikuna, með eins eða tveggja daga hléi. Þessar tölur eru byggðar á sjálf- stæðum rannsóknum eftirtalinna stofnana á sviði læknis- og sálar- fræði: Royal College of General Practitioners (1986), Royal College of Psychiatrists (1986), og Royal College of Physicians (1987). Hæfl- legt áfengismagn á viku er nú til endurskoðunar, samkvæmt bréfi Health Education Authority til und- irritaðs. Kemur til álita að hækka ráðlagt magn vegna nýrri rannsókna sem sýna enn frekar fram á hollustu áfengis, en um þær fjallaði fyrri grein mín. Ofstækisvíman Áfengisvamaráð birti með frétta- tilkynningu í Morgunblaðinu 24. febrúar sl., þýðingu sína á skýrslu forstöðumanns „Ofneysluráðs" Al- þjóðaheilbrigðisstofnunar (WHO - Program on Substance Abuse). Þó að vitnað sé beint í skýrslu WHO innan gæsalappa, vflar Áfengi- svarnaráð ekki fyrir sér að skálda inn í hana sínum eigin skoðunum og segir t.d: „Því eru það blekkingar þegar því er haldið fram að hóf- drykkja bæti heilsuna.“ Þetta stend- ur hvergi í skýrslu WHO. Setningin er hreinn og klár uppspuni Áfengi- svarnaráðs. Hér virðast bindindis- postularnir hafa verið á valdi ofstæk- isvimunnar, annars gripu þeir varla til svo ómerkilegra blekkinga að vitna rangt í texta annars aðila. Annað dæmi skal tilgreint: „Sú stað- hæfíng að örlítil áfengisneysla dragi úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum er meira en lítið vafasöm." Þetta stendur alls ekki í skýrslu WHO. Sé eitthvað vafasamt em það þau vinnubrögð Áfengisvarnaráðs að leggja skoðanir sínar í munn WHO, í trausti þess að aðrir lesi ekki skýrsluna. Það er þvert á móti sann- að að hófleg neysla áfengis dregur úr tíðni hjarta- og æðasjúkdóma. Að halda öðru fram eru óprúttnar blekkingar litaðar af bindindisof- stæki. Gera verður þá kröfu til opin- berra starfsmanna í upplýsinga- starfi að þeir miðli ekki vísvitandi röngum upplýsingum. Það er sök sér að „family problems" verði að „harmleikir innan fjölskyldna" í dramatískri þýðingu Áfengisvam- aráðs. Ofneysluráð WHO viðurkennir einmitt í umræddri skýrslu, dræm- lega þó, að áfengisneysla í litlum mæli sé til heilsubótar. Áfengisvarn- aráð virðist hafa sleppt því viljandi að þýða og birta eftirfarandi máls- grein úr skýrslu WHO: „Hvað varð- ar hugsanleg áhrif áfengis til lækk- unar áhættu á hjarta- og kransæða- sjúkdómum, sem mjög hefur verið til umræðu undanfarið, sýna vís- indalegar rannsóknir að það er ein- ungis mjög lítil neysla, um það bil einn einfaldur annan hvern dag, sem virðist minnka áhættuna, borið sam- an við algert bindindi. Ekkert bend- ir til að meiri neysla hafi sömu áhrif, en drykkja umfram 2 einfalda á dag eykur vissulega áhætt- una.“ Einn einfaldur, annan hvern dag — getur verið hollur fyrir hjartað, viðurkennir sjálfur „ofneysluvarn- arráðunautur" WHO. Köllun sinni trúr heldur hann sig við neikvæð- ustu tölur sem tiltækar eru, en getur þó ekki sýnt fram á neitt var- hugavert við að drekka 2 einfalda á dag, eða 14 einfalda á viku. Ágreiningurinn snýst m.ö.o. ekki um það hvort áfengi í hóflegum mæli er hollt, það verður ekki hrak- ið með skýrslu WHO, heldur hvað er hæfilegt magn á dag eða viku. Menn munu seint verða á eitt sáttir um hversu mikil neysla er nákvæm- lega sú rétta, og eins og áður sagði er það líka einstaklingsbund- ið. Fyrir aðeins fáeinum mánuðum bannfærði Ayatollah Ali Khome- nei, andlegur leiðtogi írana, bæði Coca-Cola og Pepsi. Þó að þeir þyki nokkuð einstreng- ingslegir þar suðurfrá, þurfum við ekki að leita svo langt til að finna dæmi um bókstafstrú. Hér heima hika Ayatoll- ar íslenskra bindindi- söfga ekki við að beita blekkingum til að ræna okkur gleð- inni sem glas af góðu víni getur veitt. Höfundur er vínáhuga- og umboðsmaður. Þorbjörn Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.