Morgunblaðið - 18.03.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 41
AÐSENDAR GREINAR
Hvers eiga nemendur að gjalda?
KENNARAVERK-
FALL hefur nú staðið
í heilar fjórar vikur.
Eitt besta tímabil vetr-
arins til kennslu er að
fara forgörðum og
ekki eru enn nein
merki þess að ráða-
menn þjóðarinnar hafi
af því sérstakar
áhyggjur.
Samninganefnd rík-
isins segir að kennur-
um hafi þegar verið
boðin sú hækkun sem
möguleg sé í stöðunni
og með tilliti til ann-
arra nýgerðra kjara-
samninga. En kennar-
ar kjósa fremur áframhaldandi
verkfall en að ganga að tilboði ríkis-
ins. Hvemig má þetta vera? Eru
kennarar með raunhæfar kröfur
eða hafa þeir tapað áttum? Skoðum
það nánar. Viðurkennt er að kenna-
rastéttin hefur dregist töluvert aft-
urúr sambærilegum viðmiðunar-
stéttum. Tölur eins og 15% hafa
heyrst nefndar í því samhengi.
Miklar breytingar hafa orðið á
skólastarfinu og þeim kröfum sem
gerðar eru til skólanna í uppeldis-
og kennslufræðilegu tilliti. Og enn
meiri breytingar eru í vændum ef
við berum gæfu til þess að aðlaga
skólann að samfélagi nútímans með
því að einsetja grunnskólann og
lengja daglegan skólatíma barn-
anna. Nýsamþykkt grunnskólalög
kveða á um þessar breytingar.
Við núverandi aðstæður getur
skólinn engan veginn sinnt nemend-
um eins og þeir eiga skilið og til
er ætlast. Tíminn hreint leyfir það
ekki. Og gleymum ekki því að eftir-
hádegisskóli er ekki mjög árangurs-
ríkur tími til náms. Börnin þurfa
að bíða allan morguninn eftir því
að fá að mæta í skólann sinn og
eru jafnvel orðin þreytt þegar þang-
að er komið eftir hádegi. Því þarf
engan að undra þótt síðustu
kennslustundir dagsins nýtist illa.
Þess vegna hefur það verið baráttu-
mál kennara í áratugi að jafn vel
verði búið að íslenskum grunnskóla-
nemendum og gerist meðal annarra
siðmenntaðra þjóða. Minnumst og
þess að í framtíðinni mun þetta
barnafólk þurfa að keppa við erlent
vinnuafl um atvinnutækifæri bæði
hér heima og erlendis. Þessar skipu-
lagsbreytingar á grunnskólanum
munu leiða til þess að kennarar
hafa ekki lengur möguleika á yfir-
vinnu innan skólanna.
Kennaralaun hafa lækkað mjög
síðustu áratugi. Byrjunarlaun eru
nú aðeins 68 þúsund krónur fyrir
fullt starf. Engan þarf að undra
þótt kennurum þyki þau lítilfjörleg
til framfærslu heimilis. í gegnum
árin hafa kennarar bjargast með
yfirvinnu innan eða utan skólans
og aukavinnu á sumrin. En nú eru
Sigrún Gísladóttir
þessir möguleikar að
heyra sögunni til. Af
framansögðu má ljóst
vera að kennarastéttin
á ekkert val. Hún verð-
ur að beijast fyrir lífi
sínu og þá um leið fýr-
ir bættum skólum nem-
endum til handa.
Hvað með nemendur
— hvaða afleiðingar
hefur svona langvar-
andi verkfall fyrir þá?
Hætt er við að ýmsir
flosni upp frá námi og
afleiðingarnar eru
ófyrirsjáanlegar nú en
munu marka sín spor á
Kennarar kjósa fremur
áframhaldandi verkfall,
segir Sigrún Gísladótt-
ir, en ganga að tilboði
ríkisins.
framtíðarnám allra nemenda án til-
lits til aldurs þeirra.
Hvers eiga saklausir nemendur
að gjalda? Það er enginn vandi að
sleppa prófum og útskrifa nemend-
ur — það er minnsta málið. En
hvað erum við að hugsa? Framhald-
skólinn kvartar yfir illa undirbúnum
nemendum úr grunnskóla og há-
skólinn kvartar yfir slakri kunnáttu
nýnemanna. Og nú blasir við að
hálft skólaár fari í vaskinn og stóm-
völd láta sem ekkert sé.
Þeir sem nenna að kynna sér
málin sjá fljótt að staða íslenska
grunnskólans er slæm miðað við
önnur lönd. Ekki er við öðru að
búast í tvísetnum skóla þar sem
nemendur fá mun færri kennslu-
stundir á viku og auk þess færri
kennsludaga á ári. Halda menn að
þetta hafí engin áhrif? Birtar hafa
verið niðurstöður úr alþjóðlegum
könnunum á þekkingu nemenda þar
sem íslenskir nemendur koma illa
út. Nemendur sem koma heim eftir
búsetu erlendis standa mun framar
jafnöldmm sínum hér heima t.d. í
raungreinum. Þetta sjáum við í
skólunum. Afleiðingar kennara-
verkfallsins sem snertir 60 þúsund
nemendur og flest heimili landsins,
beint eða óbeint, verða alvarlegar
fyrir marga uppvaxandi þjóðfélags-
þegna þessa lands. þess vegna leyfi
ég mér fýrir hönd þeirra að skora
á ráðherra Sjálfstæðisflokksins,
sem hingað til hafa ekki skorist
undan að taka á erfiðum málum,
að leita lausna á því ófremdar-
ástandi sem hér hefur skapast.
Ábyrgðir stjórnmálamenn sem
láta sig varða slík alvörumál munu
uppskera virðingu og traust kjós-
enda.
Höfundur cr skólasijóri og
borgarfulltrúi.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
fttmraiimMiitofr
-kjarni málsins!
OG ENN KEMUR
TWINGO Á ÓVART..
ÞEIR HENTU KÚPLINGUNNI ÚTU
Nýjasta útspil Renault TWingo er kúplingslaus beinskipting.
Tímamótahugmynd sem á eflaust eftir að verða alsráðandi í framtíðinni.
Alan Prost, heimsmeistari í
FORMULA 1 KAPPAKSTRI, OG RÁÐGJAFI
HJÁ Renault ER STÓRHRIFINN:
„Sú staðreynd að kúplingunni hefur
verið hent út er til mikilla bóta. Áfrarn
er notast við hefðbundna gírstöng
þannig að aksturslagið er hið sania.
Það eina sem er breytt er að maður
þarf eldd lengur að vera á fleygiferð
með vinstri fótinn. Afleiðingin er sú
að maður er miklu afslappaðri í
umferðinni og þar af leiðandi
ánægðari og ömggari ökumaður.”
NK l N
..OG VERÐIÐ ?
Hálfsjálfskiptur Twingo Easy með fjarstýrðri
samlæsingu, rafdrifnum mðurn og speglum:
AÐEINS KR. 968.000.-
Hvar gerir þú betri bílakaup?
KOMJ
RE1
KL.10-T6
RENAULT
RENNUR ÚT!
Bifreiðar &> Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14 • SÍMl 568 1200 * ÁRMÚLA 13 • SÍMI 553 1236
i