Morgunblaðið - 18.03.1995, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995 51
FRÉTTIR
Tveggja
daga dans-
veisla
UM helgina stendur Dansráð ís-
lands fyrir tveggja daga dans-
veizlu.
Laugardaginn 18. marz er boð-
ið upp á keppni í 8 og 10 döns-
um, með frjálsri aðferð, sem er
ávallt ein glæsilegasta keppni
ársins, jafnframt því sem boðið
er upp á keppni í einum dansi,
með grunnaðferð. Sunnudaginn
19. marz er keppni í gömlum
dönsum og Rokk’n Roll. Dansráð
íslands hefur staðið fyrir gömlu-
dansakeppni nú í nokkur ár í
röð, með góðum árangri og eru
þær ávallt skemmtileg tilbreyt-
ing frá öðrum keppnum.
Keppnirnar verða haldnar í
íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði og hefjast báða dag-
ana klukkan 13.00. Miðasalan
hefst einnig báða dagana klukk-
an 11.00 og húsið opnar klukkan
12.00. Mikill fjöldi keppenda hef-
ur skráð sig til keppni, sem sýn-
ir glögglega þann mikla áhuga
sem er fyrir dansi á Islandi í dag.
Alþjóðadagur
fatlaðra
í TILEFNI af alþjóðadegi fatlaðra
verður opið hús í Sjálfsbjargarhús-
inu, Hátúni 12 (ofanverðu), í dag,
laugardaginn 18. mars, kl.
14.30-18.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGURSTEINN Stefánsson
og Elísabet Sif Haraldsdóttir
taka nokkur dansspor.
Kirkjudagur
Safnaðarfélags
Ásprestakalls
ÁRLEGUR kirkjudagur Safnaðar-
félags Ásprestakalls er á morgun,
sunnudaginn 19. mars. Um morg-
uninn verður barnaguðsþjónusta í
Áskirkju kl. 11 og síðan guðsþjón-
usta kl. 14. Signý Sæmundsdóttir
syngur einsöng, sóknarprestur
predikar og Kirkjukór Áskirkju
syngur undir stjórn Kristjáns Sig-
tryggssonar organista.
Eftir . guðsþjónustuna og fram
eftir degi verður kaffisala í Safnað-
arheimili Áskirkju. Þar mun Signý
Sæmundsdóttir syngja nokkur kunn
íslensk sönglög og leiða almennan
söng. Allur ágóði af kaffisölu
kirkjudagsins rennur til fram-
kvæmda við kirkjuna og henni til
prýðis, en kirkjudagurinn hefur
lengi verið einn helsti fjáröflunar-
dagur Safnaðarfélagsins.
Bifreið mun flytja íbúa dvalar-
heimila og annarra stærstu bygg-
inga sóknarinnar að og frá kirkju.
Folda sýnir nýja
ullarlínu
FOLDA HF. Akureyri sýnir í dag,
laugardag, nýja ullarlínu fyrir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik á HM deginum sem fram
fer í Kringlunni í dag, laugardag,
milli kl. 12 og 16.
Landsliðsmenn íslenska lands-
liðsins í handknattleik verða klædd-
ir í HM peysur og sýningarfólk mun
sýna vöruna.
Hönnuðir Foldu hf. hafa sett
saman fata- og minjagripalínu sem
ber heildstætt yfirbragð og er í lit-
um keppninnar og ber merki henn-
ar. í línu þessari eru ullarpeysur,
vesti úr þæfðri ull, íþróttapokar,
sessur, lyklakippur, minnisbækur,
húfur, vettlingar og treflar að
ógleymdum tveimur tegundum af
værðarvoðum.
Ferðakynning’ á
írskum dögum
DAGUR heilags Patreks, dýrlings
íra, var í gær og af því tilefni eru
haldnir írskir dagar nú um helgina
í Aðalstræti í Reykjavík. Að þeim
standa Kaffi Reykjavík, Fógetinn
og ferðaskrifstofan Ferðabær og
ferðamálaráð N-írlands. Á veitinga-
húsunum ríkir írsk stemmning með
tónlist, mat og drykk frá írlandi.
Markmiðið með írskum dögum
er að kynna íra og írland, einkan-
lega Norður-írland sem til þessa
hefur ekki verið mjög fjölsótt af
íslendingum.
Á írsku dögunum verður fjöldi
vinninga dreginn út á Kaffi Reykja-
vík og Fógetanum og má þar nefna
lúxus páskaferð til írlands fyrir tvo
í boði ferðaskrifstofunnar Ferða-
bæjar. Kynntir verða nýir ferða-
möguleikar frá íslandi til írlands,
dvalar- og afþreyingarmöguleikar á
írlandi og ferðamöguleikar þaðan
og áfram út í veröldina. Fulltrúi
írsk-íslenska flugfélagsins Emerald
European, Mary Power, mun svara
fyrirspurnum almennings um þau
mál.
Skíðagöngu-
dag’ur fyrir
almenning
UNGMENNAFÉLAG íslands og
íþrótta- og tómstundaráð Selfoss-
bæjar standa sameiginlega fyrir
skíðagöngudegi í Þrastaskógi,
Grímsnesi, laugardaginn 18. mars
kl. 13.
Mæting í Þrastalundi við Sogs-
brúna kl. 12 á hádegi og fer skrán-
ing fram á staðnum. Troðnar verða
göngubrautir á þar til gerðum
göngustígum sem lagði hafa verið
um skóginn.
■ HLÍÐARBÚAR ætla að funda
um umferðarónæði við Miklubraut
á kaffistofu Kjarvalsstaða sunnu-
daginn 19. mars kl. 15.
„Samtal við
Guð“ í Hafnar-
fjarðarkirkju
VIÐ guðsþjónustu í Hafnar-
fjarðarkirkju á sunnudaginn 19.
mars, sem hefst kl. 14, munu leik-
arar og listdansari sýna Samtal
við Guð; dagskrá úr bókmenntum
og leikverkum og listdansi sem Jón
Hjartarson leikari hefur sett sam-
an og sýnd var í haust í kirkjunni
á héraðsfundi Kjalarnesprófasts-
dæmis.
Auk hans koma við sögu leikar-
arnir Edda Heiðrún Backman,
María Sigurðardóttir og Ragnheið-
ur Tryggvadóttir og Guðbjörg *
Arnadóttir listdansari en hún
dansar Credo úr Spazenmesse eft-
ir W.A. Mozart. Barnakórinn
syngur í guðsþjónustunni undir
stjórn Brynhildar Auðbjargardótt-
ur en sýningin kemur í stað ritn-
ingarlestrar og predikunar.
Eftir guðsþjónustuna verður
samvera með listamönnunum í
Strandbergi.
■ TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur
hið árlega Voratskákmót mánu-
daginn 20. og 27. mars. Tefldar
verða 6 umferðir eftir Monrad '
kerfi með 25 mínútna umhugsun-
artíma. Þátttökugjald er 400 kr.
fyrir félagsmenn og 600 kr. fyrir
aðra. Unglingar 15 ára og yngri
fá helmings afslátt. Mótið er öllum
opið og teflt er í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi og hefst
taflið báða dagana kl. 20.
Jafnt hjá Anand
og Kamsky
SKAK
Las Palmas, Kanarí-
cyjum
ÚRSLITAEINVÍGI UM
ÁSKORUNARRÉTTINN Á
KASPAROV
8.-25. mars
ÞREMUR síðustu
skákunum í einvígi
Anands og Kamskys
á Kanaríeyjum hefur
lokið með jafntefli.
Einvígið er nú hálfn-
að og staðan er þrír
vinningar gegn
þremur. Það má bú-
ast við æsispennandi
baráttu í seinni hlut-
anum og jafnvel líkur
á að það þurfi að
framlengja. Kamsky
hafði hvítt í ^jórðu
og sjöttú skákunum
og Anand beitti svo-
nefndu opnu afbrigði
spánska leiksins.
Kamsky urðu snemma á mistök
í báðum þessum skákum og í
sjöttu skákinni varð hann að berj-
ast fyrir jafntefli með peði minna.
Sú skák varð 38 leikir.
Anand hafði hvítt í fimmtu
skákinni, en mátti sætta sig við
jafntefli eftir aðeins 26 leiki.
Kamsky reyndist afar vel undir-
búinn í lokaða afbrigði spánska
leiksins.
ívantsjúk framúr Karpov
Úkraínumaðurinn Vasilí
ívantsjúk er efstur fyrir síðustu
umferð á stórmótinu í Linares á
Spáni. Hann hefur unnið tvær
síðustu skákir sínar, á meðan
Karpov hefur slakað á og gert
tvö jafntefli. ívantsjúk sigraði á
mótinu 1989 og 1991. Honum
var spáð miklum frama, en í
heimsmeistarakeppnunum hafa
.taugarnar brugðist illilega. Þegar
litið er t\\ hugmyndaauðgi og
nákvæmni í útreikningum dylst
þó ekki að ívantsjúk er í hópi
þriggja til fimm
bestu skákmanna
heims.
Úrslit 11. umferð-
ar:
Drejev-ívantsjúk
0-1, Shirov-Topalov
1-0, Akopjan-Kha-
lifman 0-1, Karpov-
Beljavskí ‘A,
Ljubojevic-Illescas
Vi, Short-I. Sokolov
‘A, Tivjakov-Lautier
‘/2.
Úrslit 12. umferð-
ar:
Ívantsjúk-Tivjakov
1-0, Ljubojevic-
Karpov ‘/2, Topalov-Drejev 1-0,
Beljavskí-Shirov ‘/2, Lautier-
Akopjan 0-1, Illescas-I. Sokolov
0-1, Khalifman-Short 'h.
Staðan fyrir síðustu umferð:
1. ívantsjúk 9 v.
2. Karpov 8’/i v.
3. -4. Topalov og Shirov Vh v.
5. Khalifman 7 v.
6. Beljavskí 6'/i v.
7. -8. Illescas og Tivjakov Vh v.
9.-10. Drejev og I. Sokolov 5 v.
11.-12. Short og Ljubojevic 4'/i v.
13.-14. Lautíer og Akopjan 4 v,
í síðustu umferðinni teflir
ívantsjúk við Akopjan, en Karpov
við Illescas. Karpov hefur ekki
sýnt mikil heimsmeistaratilþrif á
mótinu. Hann hefur að vanda
forðast áhættu en gripið tæki-
færin þegar þau hafa boðist.
Þessi staða kom upp í innbyrðis
viðureign efstu manna í níundu
umferð mótsins:
Svart: Vasilí ívantsjúk
Hvítt: Anatólí Karpov
Karpov hefur sterka stöðu á
drottningarvæng og peðið á a7
er dæmt til að falla, því eftir 31.
r Hbb7 er 32. Ha6 óþægjlegt.
ívantsjúk verður að leggja allt
sitt traust á gagnsóknina:
31. - h4! 32. Hxa7 - hxg3 33.
Hxc7?
Karpov hefur ofmetið áhrif
leppunar á áttundu línunni. Sjálf-
sagt var 33. fxg3 þótt svartur
hafi einhver færi fyrir peðið.
33. - gxf2+ 34. Kg2 - Dxc7
35. Ha8 - Bd8!
E.t.v. hefur Karpov yfirsést
þessi einfaldi varnarleikur. Nú
má hann hafa sig allan við að
halda jafnvæginu.
36. Da7 - Dd6 37. Rxe6! -
Dxe6 38. Hxd8 - De4+ 39. Kh2
- De5+ 40. Kg2 - De4+ 41.
Kh2 - De5+ 42. Kg2 - Hg6+
43. Kxf2 - f4 44. Hxe8+!? -
Dxe8 45. exf4 - Dd8 46. Bd3!
- Dh4+ 47. Ke2 - He6+ 48.
Kdl - Del+ 49. Kc2 - He2+
50. Bxe2 - Dxe2+ 51. Kb3 -
Ddl+ 0g samið jafntefli.
í tíundu umferðinni stóð
Karpov um tíma illa að vígi gegn
Topalov. En Búlgarinn tvítugi
náði ekki að halda höfði og tap-
aði meira að segja skákinni. Eft-
ir þennan beiska ósigur mátti
hann líka lúta í lægra haldi fyrir
Shirov og sigur í Linares verður
að bíða betri tíma.
Svart: Anatólí Karpov
a b c d a I q h
Hvítt: Veselin Topalov
22. - f5?
Þessi afleikur hlýtur að byggj-
ast á einfaldri yfirsjón. Rétt var
að fórna peðinu með 22. - Hfc8
23. Rxh6+ - Kf8 24. Hxc8+ -
Hxc8 25. Rg4 - Dxb2 og svartur
stendur betur að vígi.
23. Rxh6+ - Kh7 24. Rg4 -
Hfd8 25. Re5 - Be8 26. De3 -
Bf6 27. g4?
Veikir stöðuna að óþörfu. Með
peð yfir var sjálfsagt að tefla
rólega með 27. Hd2 eða 27. Df2.
27. - g6 28. gxf5 - exf5 29.
Dc3 - Hac8 30. Dh3+ - Kg7
31. Hxc8 - Hxc8 32. Dg2 -
Hd8 33. Df2 - Be7 34. h4? -
Df6 35. Hcl - Dxh4 36. Hc7 -
Kf8 37. De3 - Bd6!
Lagleg peðsfórn sem snýr tafl-
inu endanlega við.
38. Hxb7 - Bxe5 39. Dxe5 -
Dg3+ 40. Kfl - Df3+ 41. Kel
- Dxb7 42. Df6+ - Bf7 43.
Dxd8+ - Kg7 44. d5? - Db4+
45. Kdl - Dd4+ 46. Kc2 -
De4+ 47. Kc3 - Dxbl 48. d6
- Del+ 49. Kd4 - Db4+ 50.
Ke3 - De4+ 51. Kd2 - Dxf4+
52. Kc2 - De4+ 53. Kd2 -
Dd4+ 54. Kcl - f4 og Topalov
gafst upp.
Hraðskákmót stofnana
Hraðskákkeppni stofnana og
fyrirtækja fór fram í síðustu viku.
Úrslit urðu þessi:
A flokkur:
1. Búnaðarbanki íslands 48 v.
2. íslandsbanki 43 v.
3. VISA ísland 40 v. o.s.frv.
B flokkur:
1. Lögmenn Austurstræti 36 'h v.
2. RARIK 34 v. _
3. Verzlunarskóli íslands 33 v.
í skákþætti í síðustu viku voru
þau leiðu mistök gerð að rangt
var farið með nafn RARIK, sem
lenti í öðru sæti í B flokki aðal-
keppninnar. Er það ágæta fyrir-
tæki, sem hefur marga snjalla
skákmenn í starfsliði sínu, beðið
velvirðingar á þessu.
Skákþingi Norðlendinga
frestað
Vegna ófærðar varð að fresta
Skákþingi Norðlendinga um tvær
vikur, sem halda átti á Blöndu-
ósi. Þar nyrðra komast menn
hvorki lönd né strönd.
Voratskákmót Hellis
Taflfélagið Hellir heldur árlegt
voratskákmót sitt mánudagana
20. og 27. mars. Tefldar verða
sex umferðir eftir Monrad-kerfi
með 25 mínútna umhugsunar-
tíma. Þátttökugjöld eru kr. 400
fyrir félagsmenn og kr. 600 fyrir
aðra. Unglingar 15 ára og yngri
fá helmings afslátt. Mótið er öll-
um opið og er teflt í Menningarm-
iðstöðinni Gerðubergi í Breið-
holti. Taflið hefst báða dagana
kl. 20.
Helgarskákmót TR
Að loknum þremur umferðum
á mótinu eru eftirtaldir með fullt
hús vinninga: Björn Þorfinnsson,
Júlíus L. Friðjónsson, Tómas
Bjömsson, Ólafur B. Þórsson,
Einar Hjalti Jensson.
Margeir Pétursson
Vasilí ívantsjúk