Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
B6 HELP AP pó SÉIST KawiMlsí
E/NHVEPTA PBST, GCETTlR ?
TH05E T0UN6
WMBLEUÚEEDS ARE
HARP TO 0REAK..
Það er erfitt að eyði-
leggja þessar ungu
þomurtir.
3Har0nnIþt«iÞÍb
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Guðni Ágústsson, alþingismaður, svarar
Amal Rún Qase og Hrafni Jökulssyni:
Island er fyrir
ykkur, mig og
aðra Islendinga
Frá Guðna Ágúatsayni:
ÞAÐ er með ánægju sem ég svara
spumingum Amal Rún Qase, sem
birtust i bréfi hennar í Morgunblað-
inu fimmtudaginn 16. mars síðastlið-
inn. Spurninganna spyr hún vegna
ummæla minna i sjónvarpsþætti á
Stöð 2 fyrir nokkru. í upphafi vil
ég fá að blrta orðrétt það sem ég
sagði í umræddum þætti. Nokkrir
þafa prðið til að snúa át úr orðum
mínum, þá sérstaklega kratar, en
ég vík nánar að því síðar.
Ummælin á Stöð 2:
Stefán Jóp Hafstein spyr um af-
stöðu mína til nýbúa á_ Islandi.
Guðni Ágústsson: „Ég hef alltaf
verið þeirrar skoðunar að ísland eigi
að vera fyrir íslendinga, en ég hef
ekki á móti því að fá hingað inn
böm og að hjónabönd verði með
þeim hætti, en ég vii ekki sjá sömu
hluti og eru að gerast í Svíþjóð, t.d.
átök á milli kynstofna. Ég svona er
þeirrar skoðunar. ísland sé okkar
land og við megum ekki galopna
KqHq ionH **
Stefán: „Bíddu. Við hvað áttu við
- að gaiopna? Á að herða reglur"?
Guðni: „Við eigum ekki að falla
í þá sömu gryfju og gerist hér hjá
nálægum þjóðum.“
Stefán: „Stefnir nokkuð í það?“
Guðni: „Ég vona ekki.“
Stefán: „Ertu að tala um að það
eigi að herða reglur, eða eigum við
að hafa óbreytt ástand?"
Guðni: „Ég held í sjálfu sér að
við þurfum ekki að herða reglur.
Ég sé ekki að það sé neitt að gerast
í þessum efnum sem við þurfum
að...“
Stefán Jón snýr sér að næsta við-
mælanda með sömu spurningu.
Amal Rún svarað:
Amal Rún spyr þriggja spurninga
í Morgunblaðinu:
1. „Finnst Guðna Ágústssyni að
ísland sé aðeins fyrir suma Islend-
inga.“
Svar: ísland er að mínu mati ynd-
islegt land allra íslendinga. í þeim
hópi eru ég og þú, auk allra annarra
íslendinga sem byggja þetta land,
eða búa I útlöndum. Eg þekki marga
sem hingað hafa flutt frá öðrum
löndum og tek undir það með þér
að margt það fólk er jafnvel meiri
Íslendingar en sumt það fólk sem
hér er fætt.
2. „Er þetta skoðun Framsóknar-
flokksins."
Svar: Ég hygg að formaður
flokksins, Halldór Ásgrímsson, hafi
svarað þessu ágætlega á fundi í
Háskólabiói á dögunum þar sem
hann sagði eitthvað á þá leið að ís-
land væri fyrir íslendinga, hvar svo
sem þeir eru fæddlr.
8. „Er Framsókn kannski aðeins
fyrir suma islendinga?"
Svar: Framsóknarflokkurinn er
oplnn öllum íslendingum. Hann er
öfgalaus féJagshyggjuflokkur, sem
sækir fylgi sitt til allra hópa þjóðfé-
lagsins.
Þessum spurningum þínum, Amal
Rún, svara ég með ánægju og vona
að þér þyki svörin nægilega skýr.
Skítkast Alþýðuflokksins;
Það er hins vegar með mun minni
ánægju sem ég svara ritstjóra Al-
þýðublaðsins og þar með málpípu
Alþýðuflokksins, Hrafni Jökulssyni.
Ég sé mig hins vegar tilneyddan
þar sem ég hef, eftir þáttinn á Stöð
2, mátt sæta þvílíkum svívirðingum
og rógi að engu tali tekur og er
ekki sæmandi fullþroska fólki að
viðhafa þvílíkt orðbragð. Ég hef
verið kallaður rasisti, kynþáttahat-
ari, krúnurökuð fótboltabulla og þar
fram eftir götunum, en ekkert af
þessu er rétt, enda væri þá illa fyr-
ir mér komið.
Ég þykist vita að þessi áróður
eigi rætur sinar 1 Alþýðuflokknum,
það sýna skrif og ummæli manna
þar á bæ. Steininn tekur úr með
greinum þeirra Magnúsar Árna
Magnússonar í Alþýðublaðinu sið-
astliðinn þriðjudag og Hrafns Jök-
ulssonar i Dagskránni, sem gefin var
út hér á Selfossi í gær.
Ég ætla ekki að fara að elta ólar
við þessa menn. Mér finnst og ég
heyri það á fólki hér á Suðurlandi
og víðar, að skítkast og rógur af
því tagi sem þessir menn stunda sé
þeim ekki sæmandi. Finnist þeim
annað hlýtur sú skoðun að lýsa best
þeirra innri manni og hitta þá sjálfa
fyrir. Vist sannast það vel í stjórn-
málum að enginn er annars bróðir
i leik, en að draga kosningabarátt-
una niður á jafn lágt plan og þessir
menn gera er með ólíkindum. Að
fara að leika við þá á þeirra lága
plani hvarflar ekki að mér en ég get
tekið undir það sem ágætur vinur
minn úr Alþýðuflokknum hér á Suð-
urlandi sagði þegar hann sá grein
Hrafns í Dagskránni: „Þar' skaut
kratinn sjálfan sig í fótinn.“ Hrafn,
þið sjáið flisina i auga náungans en
ekki bjálkann í eigin auga.
GUÐNIÁGÚSTSSON
Selfossi.
Mænustunga
I GREIN sinni, Rúllustigaröflið
(Morgunblaðið 14. mars), getur
Gísli Árnason þess að ég hafi villst
á hljóðfæraleikurum og leikurum
í grein minni um rokksöngleikinn
Mænustungu sem nemendur við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði
sýndu nýlega. Þetta er rétt og eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar
á því.
GUÐBRANDUR GÍSLASON
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt I
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða & annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.