Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBIJtXF.NTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fyrsta erlenda fyrirtækið
tengt fískmarkaði á Islandi
Reiknistofa fiskmarkaða býður í
bandarískt verkefni
Glórulaus
bylur
HVÖSS norðanátt og snjókoma
var um norðanvert landið og á
Austurlandi í gær. Bragi Jóns-
-son, veðurfræðingur á Veður-
stofunni, segir að smám saman
dragi úr veðrinu og fyrst fyrir
vestan land, en lengur yrði
hvasst fyrir norðan. Björgunar-
sveitarmenn áttu víða annríkt í
gær við að leita að fólki, hjálpa
fólki til að komast leiðar sinnar
og við björgun kinda, en hluti
þaks féll undan snjófargi af fjár-
húsi við bæinn Svínhól í Miðdöl-
um í gær.
Bragi sagði að vindur hefði
verið á bilinu 6 til 8 stig og farið
upp í 9 stig fyrir norðan.
■ Hvassviðri/4
■ Snjóflóðahætta/16
HIÐ tölvuvædda uppboðskerfi ís-
lenskra fiskmarkaða varð alþjóðlegt
á fimmtudag þegar Ingvar Guðjóns-
son, fulltrúi Reiknistofu fiskmarkaða,
tengdi fyrirtækið Northcoast Seafood
inn á íslenska kerfið.
Ingvar og Ólafur Þór Jóhannsson,
forstjóri fyrirtækisins, voru reyndar
ekki aðeins staddir hér í Boston til
að fjölga áskrifendum að íslenska
kerfinu, heldur einnig til að gera til-
boð í að setja upp slíkt kerfi í borg-
inni Portland í Maine á norðaustur-
strönd Bandaríkjanna.
Reiknistofa fiskmarkaða er eitt af
þremur fyrirtækjum, sem hafa gert
tilboð í verkið, og áttu tilboðsaðilar
að mæta á fund í Boston með þeim,
sem sjá um útboðið í Portland, til
að kynna sín kerfi. Ingvar sagði í
samtali við Morgunblaðið að keppi-
nautarnir væru frá Belgíu og Hol-
landi og væru þeir með annars konar
uppboðskerfi en Reiknistofa físk-
markaða. Kvaðst hann telja að hið
íslenska kerfí myndi henta aðstæðum
í Maine betur auk þess sem það
væri ódýrara í uppsetningu, þótt það
væri ef til vill tæknilegur eftirbátur
annarra kerfa.
Fundinn bar upp á sama tíma og
sjávarafurðasýninguna í Boston og
notuðu Ingvar og Ólafur Þór því
tækifærið til að sýna íslenska kerfið
í verki. Þegar uppboðið hófst á ís-
landi á miðvikudag, klukkan tíu að
morgni að bandarískum tíma og þijú
síðdegis að íslenskum, tengdist Bos-
ton íslenska kerfinu. Áður en lauk
hafði einn viðstaddra, fulltrúi fyrir-
tækisins Northcoast Seafood, keypt
tvö tonn af fiski á uppboðinu.
„Þeir hjá Northcoast Seafood vildu
fá tengingu til að geta fylgst með
sjálfír," sagði Ingvar. „Þeir hafa
umboðsmenn heima, en oft hætta
þeir við að bjóða ef verðið er orðið
hátt þegar Northcoast Seafood hefði
viljað kaupa burtséð frá verði. Nú
getur fyrirtækið fylgst með og keypt
fiskinn beint.“
Ingvar bætti því við að Northcoast
Seafood væri fyrsti aðilinn, sem kæmi
inn á kerfið og væri erlendis.
Tannvernd
Tann-
skemmd-
um fækkar
um 70%
TANNSKEMMDUM hefur
fækkað um nálægt 70% á und-
anförnum 13 árum að því er
fram kemur í grein eftir Magn-
ús R. Gíslason, yfirtannlækni í
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, í blaðinu í dag.
Magnús segir að greiðslur
hins opinbera vegna tann-
læknaþjónustu hafi lækkað og
offjölgun tannlækna eigi eftir
að verða aukið vandamál.
Tannheilsa fullorðinna
verði bætt
Hann segir að því sé tíma-
bært að athuga hvort ekki séu
möguleikar til að bæta tann-
heilsu þjóðarinnar, t.d. þeirra
sem eru 17 ára og eldri og
nýta jafnframt betur krafta
þeirra sem sérmenntaðir séu til
þessara starfa.
■ Tannlækningaþjónusta/31
Ósamið er við alla opinbera starfsmenn og einstök sambönd og félög á almenna markaðnum
Sjómenn og rafiðnaðarmenn
ræða aðgerðir í næstu viku
VIÐRÆÐUR um gerð nýrra kjarasamninga
eru mislangt á veg komnar hjá þeim stéttarfé-
lögum sem ekki hafa náð samningum við við-
semjendur sína. Auk kennarafélaganna er
ósamið við öll félög opinberra starfsmanna í
BSRB og BHMR. Samningar hafa ekki tekist
í kjaradeilu Sambands íslenskra bankamanna
og viðsemjenda þess. Þá er ósamið við starfs-
menn hjá ISAL og erfiðlega gengur í viðræðum
„Rafiðnaðarsambandsins og ríkisins.
Átök eða frestun
Samningaviðræður sjómanna á fiskiskipum
og LÍÚ eru í hnút en ekki hefur verið haldinn
samningafundur frá 22. febrúar þegar slitnaði
upp úr viðræðunum. Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambandsins, segir að ákveð-
ið hafi verið að halda formannafund í næstu
—v-ku til að taka ákvarðanir um framhald máls-
ins. „í mínum huga er ekki nema tvennt í
stöðunni, átök eða að fresta málunum fram á
haustið," sagði Sævar.
Samninganefnd rafiðnaðarmanna gekk út
af samningafundi með samninganefnd ríkisins
í fyrradag. Deilunni hefur þó ekki verið vísað
til ríkissáttasemjara. Að sögn Guðmundar
Gunnarssonar, formanns sambandsins, verður
heimild til verkfallsboðunar líklega borin upp
á félagsfundi í Rafiðnaðarsambandinu á mánu-
dag.
I gærmorgun áttu forystumenn Rafiðnaðar-
sambandsins fund með rafiðnaðarmönnum í
starfsmannafélögum Ríkisútvarpsins og Félagi
íslenskra símamanna þar sem rætt var um
möguleika á sameiginlegum aðgerðum þessara
félaga.
Meðal þess sem staðið hefur viðræðum milli
einstakra stéttarfélaga og ríkisins fyrir þrifum
er ágreiningur um hvað felst í sérkjarasamn-
ingum sem gerðir voru á almenna vinnumark-
aðinum. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari hef-
ur ítrekað ósk sína til Þjóðhagsstofnunar um
að fá hlutlaust mat á launahækkunum í ný-
gerðum sérkjarasamningum til viðmiðunar
fyrir aðila sem eiga í kjaradeilu.
Engar samningaviðræður hafa farið fram
milli verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafírði og
Vinnuveitendafélags Vestfjarða frá því að
Baldur felldi kjarasamning Alþýðusambands
Vestfjarða og vinnuveitenda. Að sögn Péturs
Sigurðssonar, formanns félagsins, hefur stjórn
félagsins heimild félagsmanna til verkfallsboð-
unar en frekari ákvarðanir bíða þar til við-
brögð vinnuveitenda liggja fyrir.
Kjarasamningarnir sem gerðir voru á Vest-
fjörðum hafa verið samþykktir af verkalýðsfé-
lögum á Bolungarvík, Flateyri og Bíldudal.
Samningarnir hafa ekki verið teknir fyrir í
öðrum verkalýðsfélögum á Vestfjörðum.
Samið við málara, múrara
pípulagningamenn og blaðamenn
í kjölfar kjarasamninga samtaka vinnuveit-
enda og landssambanda ASÍ í seinasta mán-
uði hefur VSÍ samið við nokkur önnur stéttar-
félög. Að sögn Þórarins V. Þórarinssonar,
framkvæmdastjóra VSÍ, er lokið gerð samn-
inga við málara, múrara, pípulagningamenn
og blaðamenn. Hann sagði að heldur hægt
miðaði í viðræðum við önnur félög. „Við erum
í viðræðum við matreiðslumenn, kjötiðnaðar-
menn, bakara og einnig er ósamið við mjólkur-
fræðinga. Við erum sömuleiðis í viðræðum við
félög yfirmanna á farskipum og ég á von á
að við heíjum viðræður við undirmenn á far-
skipum fljótlega," sagði Þórarinn.