Morgunblaðið - 30.03.1995, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skólastjórar vilja að
kennt verði í dymbilviku
SKÓLASTJÓRAR í grunnskólum Reykjavíkur
vilja að bömum í 1.-9. bekk verði kennt í dymbil-
viku og á þriðjudegi eftir páska. Þeir vilja einnig
að skólastjórar fái heimild til að ráðstafa 20 tím-
um til viðbótar til kennslu bamanna. Búist er við'
að fræðslustjórinn í Reykjavík og menntamálaráð-
herra svari þessum óskum á morgun.
Kennarar komu til starfa í skólunum í gær. í
flestum skólum var dagurinn notaður til kennara-
funda og til að skipuleggja skólastarf næstu daga
og vikur. Menntamálaráðuneytið hefur sent öllum
skólastjómm og skólameisturum í landinu bréf
um skólalok á þessu skólaári og með hvað hætti
bæta skuli nemendum upp þá kennslu sem þeir
fóru á mis við í verkfallinu.
Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra sagði
að í gmnnskólunum yrði lögð megináhersla á að
bæta nemendum 10. bekkjar upp kennslutapið.
Einnig yrði lögð áhersla á að bæta fötluðum böm-
um og þeim sem þyrftu á sérkennslu að halda
upp það sem tapaðist. Aukið yrði við nám ann-
arra grunnskólanema á þessu og næsta skólaári.
Skólastjórar, fræðslustjórar og menntamálaráðu-
neytið kæmu til með að meta þörf á þessari auknu
kennslu.
„Það er stefnt að því að bæta nemendum upp
það sem tapaðist í verkfallinu, en ég held að það
sé alveg ljóst að það verður aldrei bætt að fullu.
Þetta kemur vafalaust verst niður á þeim sem
standa höllustum fæti og þessu viðbótarkennslu-
magni verður væntanlega fyrst og fremst beint
til þeirra," sagði menntamálaráðherra.
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu
ljós í dymbilviku
Forystumenn KÍ kynntu samninginn á fundi
með trúnaðarmönnum í skólum á Reykjavíkur-
svæðinu í gær. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
sagði að á fundinum hefði farið fram mjög mál-
efnaleg umræða um samninginn og samninga-
vinnuna. Hann sagði að lögð yrði mikil áhersla
á að kynna samninginn vel fyrir kennurum og
forystumenn þeirra myndu reyna að hitta kenn-
ara á fundum í sem flestum skólum næstu 3-4
daga. Skrifleg atkvæðagreiðsla myndi síðan fara
fram í síðari hluta næstu viku. Hann sagðist
ekki eiga von á að talningu atkvæða yrði lokið
fyrr en í dymbilviku.
Fór á vélsleða milli ísafjarðar o g Reykjavíkur á tólf klukkustundum
Komið við
á Hveravöllum
EINAR Valur Kristjánsson, ísfirsk-
ur ævintýramaður, fór á mánudag-
inn einn sins liðs á vélsleða frá
ísafirði til Reykjavíkur með við-
komu á Hveravöllum. Hann var
aðeins tólf klukkustundir á leiðinni
og gekk ferðin að óskum.
Hann lagði upp frá ísafirði kl.
06.00 að morgni mánudags og hóf
ferðina á sleðanum meðþví að
keyra frá ísafirði eftir þjóðvegin-
um inn í botn Álftafjarðar en það-
an upp á Glámu og ók þar sem
leið lá í einni lotu að Brú í Hrúta-
firði. Þar fékk hann sér að borða
og tók bensín. Síðan lá leiðin upp
á Arnarvatnsheiði og að Hvera-
völlum þar sem hann stoppaði í
um klukkustund áður en hann
hélt upp á Langjökul og brunaði
eftir honum og niður á Þingvelli
og endaði ferðina í Mosfellsbæ og
var hann kominn þangað um
klukkan 18 að kvöldi og hafði þá
farið um 400 km leið.
Einar Valur sagði að ferðin
hefði gengið samkvæmt áætlun
enda aðstæður verið eins og best
verður á kosið, heiðskirt og logn
alla leiðina og færið eins og best
gerist. „Þetta ferðalag var búið
að blunda í mér lengi. Maður
ákveður svona ferð ekki með
klukkutima fyrirvara. Ég er mjög
vel útbúinn í svona ferðalag; með
staðsetningartæki, farsíma, tjald,
svefnpoka, skóflu og allt sem til
þarf í svona ferð. Eins var ég með
áætlun þar sem ég varð að láta
vita af mér á ákveðnum tímum,“
sagði Einar Valur. Hann sagði að
eina óhappið hefði verið er hann
keyrði á girðingarvír og velti sleð-
anum sem brotnaði aðeins að
framan en hann gat þó haldið
áfram ferð sinni eins og ekkert
hefði í skorist. „Erfiðustu farar-
tálmamir á leiðinni voru slóðir
eftir jeppa er ég nálgaðist höfuð-
borgarsvæðið.“
Einar Valur er mikill ævintýra-
maður. Hann hefur farið víða á
sleðanum um Vestfirði, m.a. á
Drangajökul og Hombjarg. Hann
stundar sjósport á sumrin á hrað-
bátnum sínum og fer í Hombjarg
á vorin til að sækja sér svartfugls-
egg. Hann var kunnur skiðamaður
og varð m.a. íslandsmeistari í stór-
svigi árið 1977.
Morgunblaðið/Viðar Konráðsson
EINAR Valur Krisljánsson
stendur hér uppi á Barðan-
um í einni ferð sinni á snjó-
sleðanum um Vestfirði.
ASI skipar
fulltrúa
í launa-
nefnd
í KJARASAMNINGI lands-
sambanda ASÍ og samtaka
vinnuveitenda sem gerður var
í seinasta mánuði var ákvæði
um að á samningstímabilinu
starfi sérstök launanefnd,
skipuð þremur fulltrúum frá
landssamböndunum annars
vegar og vinnuveitendum
hins vegar.
Á fundi formanna lands-
sambanda innan ASÍ í gær
voru skipaðir fulltrúar af
hálfu launafólks í nefndina
en það eru Benedikt Davíðs-
son, forseti ASÍ, Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verka-
mannasambandsins, og Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, 1.
varaforseti ASÍ og formaður
Landssambands verslunar-
manna.
Launanefndinni ber m.a.
að fylgjast með framvindu
efnahags-, atvinnu- og verð-
lagsmála og gera tillögur um
viðbrögð til samtakanna og
stjórnvalda eftir því sem að-
stæður krefjast á hveijum
tíma.
ísafjörður
Fiskvinnslu-
fólk í verkfall
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
Baldur á ísafirði hefur boðað
til verkfalls sem tekur gildi
5. apríl næstkomandi.
Pétur Sigurðsson formaður
Baldurs segir að fiskvinnslu-
fólk í félaginu hafí fellt samn-
ing, sem gerður hafði verið,
með 88 atkvæðum gegn 14
fyrir tveimur vikum.
Engar viðræður hafí síðan
farið fram fyrr en á þriðju-
dag, þegar vinnuveitendur
lýstu því yfir að þeir gætu
ekki mætt kröfum félagsins.
Hafí ákvörðun um verkfall
verið tekin í lqolfarið.
Ný Súðavík senn byggð upp
TILLAGA arkitektanna Gylfa Guð-
jónssonar og Sigurðar Jóhanns Jó-
hannssonar hefur verið valin til út-
færslu vegna skipulags nýrrar Súða-
víkur, en samstarfsmaður þeirra var
Pétur Jónsson, landslagsarkitekt.
Gylfí Guðjónsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að haft hafí verið
að leiðarljósi að flétta saman sem
best hina nýju byggð og gömlu hús-
in sem flutt verða úr gömlu Súðavík
á nýja skipulagsvæðið, þannig að þau
myndi samræmda heild.
„Á samkeppnissvæðinu er aðeins
fyrir hendi gamla kirkjan í Súðavík,
skólahús og íþróttaaðstaða, annað
er allt nýtt. Gert er t.d. ráð fyrir
torgi sem verður miðja bæjarins,
ásamt sérstakri þorpsgötu þar sem
verslun og þjónusta verður byggð
upp í áfóngum. Gert er ráð fyrir að
talsverður hluti gamalla húsa úr
gömlu Súðavík verði fluttur af sínum
gamla stað á nýjar lóðir hins nýja
skipulagssvæðis," sagði Gylfí.
Aðlaðandi lausn
„Okkur líst mjög vel á þessa nýju
skipulagstillögu þeirra Gylfa Guð-
jónssonar og Sigurðar Jóhanns Jó-
hannssonar, sagði Jón Gauti Jónsson
sveitarstjóri í Súðavík. „Okkur fínnst
þetta aðlaðandi lausn og teljum að
skemmtilegt yfirbragð gæti orðið á
þessari nýju byggð. Eg heyri ekki
annað en þorpsbúum líki mjög vel
þessi iausn. Ég held að arkitektunum
hafí tekist vel að blanda saman
gömlu húsunum og nýjum húsum í
þessari tillögu.
Það liggur ekki alveg ljóst fyrir í
dag hvemig sá þáttur þessara fram-
kvæmda sem snýr að Súðavíkur-
hreppi verður fjármagnaður, en verið
er að skoða það mál og það mun
liggja ljóst fyrir fljótlega. Þetta verð-
ur þó ekki formlega afgreitt fyrr en
hættumat liggur fyrir og hið nýja
skipulag hefur verið staðfest af
Skipulagsstjóm ríkisins. Þá fyrst
getum við hafist handa fyrir alvöru."
Jon Baldvm Hannibalsson um ummæli
Davíðs Oddssonar um tiivísanakerfið
„Svona gera
menn
JÓN Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Álþýðu-
flokksins, segir að ákvörðun um
að taka upp tilvísanakerfi byggi á
samþykkt ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar.
„Ef forsætisráðherra sýnist að
það eigi af einhveijum efnislegum
ástæðum að taka málið upp þá geri
ég ráð fyrir að vinnubrögðin eigi að
vera þau að ræða það ekki bara við
heilbrigðisráðherra heldur innan rík-
isstjórnarinnar," segir Jón Baldvin.
Éins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær sagði Davíð Oddsson
á fundi Sjálfstæðisflokksins í Stapa
í Njarðvík á mánudag að meirihluti
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
hefði að hans mati fallist á rök sér-
fræðinga gegn tilvísanakerfínu.
Hann sagði einnig að ekki væri óeðli-
legt að fresta gildistöku reglugerðar
um tilvísanakerfíð meðan leitað væri
sátta.
Ekki einkaákvörðun
Sighvats
Jón Baldvin sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hafa yrði í
ekki“
huga að ákvörðun um að gera til-
raun með tilvísanakerfíð á höfuð-
borgarsvæðinu væri ekki einka-
ákvörðun Sighvats Björgvinssonar
heilbrigðisráðherra. Máljð ætti sér
langan aðdraganda, og það byggði
á samþykkt ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar. Á bakvið hana væri sam-
þykkt þingflokka stjórnarflokkanna
og atkvæði þingmanna stjórn-
arflokkanna á Alþingi við afgreiðslu
fjárlagafrumvarps, ella hefði málið
ekki náð fram að ganga.
Veitir ekkiaf
stuðningi
„Heilbrigðisráðherra er þess
vegna að framfylgja sameiginlegri
ákvörðun ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar, og á meðan hann stendur í
stórræðum við að veija pólitiska
ákvörðun ríkisstjórnarinnar og al-
mannahagsmuni í árekstrum við sér-
fræðinga, þá veitir honum ekki af
stuðningi þeirra samstarfsmanna,
sem sameiginlega standa að þessari
ákvörðun. Eg vitna í fleyg orð for-
sætisráðherra: Svona gera menn
ekki, sagði Jón Baldvin.