Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 56
jy-v AMERICAN POWER CONVER5ION MEST SELDU VARAAFLGJAFARNIR <o> NÝHERJI WhpI hewlett mílríÆ PACKARD -----------UMBOÐIÐ HPÁ ÍSLANDI H F Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91)671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Vaxandi áhugí á stækkun álversins í Straumsvík Bjartsýni varðandi hagkvæmniathugun Hlíðarþúfur við Kaldárselsveg Eldurí hesthúsum ELDUR kom upp í hesthúsahverfi Sörla í Hlíðarþúfum við Kaldársels- _ . veg í gærdag. Slökkviliðið í Hafnar- fírði var kallað út klukkan hálffímm og logaði þá glatt í tveimur hús- anna og eldur búinn að læsa sig í hið þriðja að sögn slökkviliðsmanna. Sjö hesthús eru í lengjunni og var á þriðja tug hesta í húsunum sem kviknaði í. Þeim var hleypt út og komið fyrir í nærliggjandi hús- um. Er talið að kviknað hafí í út frá rafmagni og samkvæmt upplýs- ingum frá slökkviliði var mikill elds- matur í húsunum svo sem spóna- pokar, auk heys. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var slökkvi- starfí að ljúka um tíuleytið í gær- kvöldi. Talsverðar reyk- og vatns- skemmdir urðu í húsunum en þau verða vöktuð í nótt. ----» ♦ ♦ Steinn stór- skemmdibíl STÓR steinn féll úr Þyrilshlíð í Hvalfírði síðdegis í gær og stór- skemmdi bíl sem átti þar leið um. Steinninn féll á veginn beint fyrir framan bílinn og ók ökumaðurinn á hann. „Eg var að koma úr Reykjavík og tók eftir hreyfíngu í hlíðinni. Eg hélt fyrst að þetta væri refur sem væri að koma hlaupandi. Hann lenti á hæð skammt frá veginum og féll síðan í boga á veginn. I sama mund og hann snerti veginn lenti ég á honum. Það munaði þvi engu að steinninn lenti ofan á bflnum,“ sagði Bára Jósefsdóttir, sem ók bflnum. Hún sagði að steinninn hefði verið allstór. Aðvífandi menn hefðu hjálpað sér að velta honum af vegin- um. 25 hundar á námskeiði BJÖRGUNARHUNDAR eru nú til í ölium landshlutum eft- ir vetrarnámskeið Björgunar- hundasveitar íslands sem staðið hefur yfir við Fálkafell á Akureyri en því lýkur í kvöld. Alls tóku 25 hundar og eigendur þeirra þátt í nám- skeiðinu og komu þeir víða að af landinu, en til marks um aukinn áhuga voru 13 nýir hundar til þjálfunar nú. Tíminn skiptir mestu um lífs- líkur þeirra sem lenda í snjó- Hóði. ■ Björgunarhundar/14 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þyrlan af- hent í júní NÝ björgunarþyrla Landhelgis- gæslunnar verður afhent í Frakklandi um miðjan júní og kemur væntanlega til landsins 22. þess mánaðar. Verður þyrlan í fánalitunum og mun bera nafn úr norrænu goðafræðinni eins og önnur skip og flugvélar Gæsl- unnar. Samningur um kaup á þyrlunni var undirritaður 2. júni 1994. Hún er af gerðinni Super Puma, sem kunnugt er, og á að baki 350 flugtíma. JÓHANNES Nordal stjómarfor- maður Landsvirkjunar segir að stórfelld breyting hafi orðið á þró- uninni í orkufrekum iðnaði á undanfömum mánuðum, eftir langvarandi lægð á mörkuðum. Hann segir að nú sé rétti tíminn að semja um nýja stóriðju og seg- ir að íslendingar hafi upp á góða kosti að bjóða í þeim efnum. Telur hann stækkun álversins í Straums- vík og jámblendiverksmiðjunnar á Grundartanga vænlegustu kostina og er bjartsýnn á að t.d. stækkun álversins reynist arðbær fram- kvæmd. Batnandi afkoma stóriðjufyrir- tækja hefur meðal annars komið fram í vaxandi áhuga slíkra fyrir- tækja á fjárfestingum á íslandi. Jóhannes segir að nú sé lögð áhersla á að ljúka hagkvæmniat- hugun á stækkun álversins. Hún er nú á lokastigi og á fundi með fulltrúum Alusuisse-Lonza í liæstu viku verður framhald málsins rætt. Segist Jóhannes hafa orðið var við vaxandi áhuga Alusuisse á þessu verkefíú en einnig hafi önnur erlend fyrirtæki sýnt því mikinn áhuga. Hæfilegir fjárfestingarkostir Jóhannes er bjartsýnn á að stór- iðjusamningar náist á næstu áram. Hér á landi gefíst kostur á hæfí- lega litlum einingum sem henti vel í byijun uppgangstíma. Fyrirtækin séu hins vegar ekki búin að jafna sig nógu vel fjárhagslega eftir langvarandi samdráttarskeið svo Morgunblaðið/Júlíus FLUGFREYJUR hættu verkfallsvörslu á Reykjavíkurflugvelli kl. 16.30 í gær. Á innfelldu myndinni ræðir lögfræðingur ASÍ, Ástráður Haraldsson, við verkfallsverði. VerkfallsvarsIaFlugfreyjufélagsins Ekki flug innan- lands í 10 tíma verið tekin ákvörðun um aðgerðir í dag, á síðasta degi verkfallsins. 2.000 milli landa Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að um tvö þúsund manns hefðu farið um Keflavíkur- flugvöll í gær. Breiðþota, sem Flug- leiðir tóku á leigu, kom frá Banda- rílqunum með 237 farþega, 3 vélar fóra til Evrópu og þijár komu það- an, þar af ein leiguvél. Sú fór áfram til Bandaríkjanna í gærkvöldi. í dag, fimmtudag, verða sjö brottfar- ir frá Keflavík. „Millilandafíugið hefur gengið áfallalaust miðað við neyðaráætlun, en auðvitað hefur orðið mikil röskun á flutningum og sætaframboðið er miklu minna en venjulega," sagði Einar. ■ Yerkfall flugfreyja/6 FLUGFREYJUR stöðvuðu í gær innanlandsflug Flugleiða, á öðrum degi verkfalls. Verkfallsvarsla þeirra á Reykjavíkurflugvelli stóð frá því fyrir kl. 7 í gærmorgun og fram til kl. 16.30. Eftir að flugfreyj- ur hurfu á braut flugu Flugleiðir til Akureyrar, Egilsstaða og Sauð- árkróks. Enginn sáttafundur hefur verið í deilunni frá því á mánudag. Flugfreyjur telja að aðeins 4-5 yfírmönnum Flugleiða sé heimilt að ganga í störf þeirra, en fyrirtækið hefur þjálfað um 20 til starfans. Margrét Hauksdóttir, hjá upplýs- ingadeild Flugleiða, sagði að fjöl- margir farþegar hefðu gefist upp á að bíða eftir flugi í gær. Hún kvaðst ekki vita hvað við tæki í dag, fimmtudag. Hjá Flugfreyjufélaginu fengust þau svör síðdegis í gær að ekki hefði Morgunblaðið/Ámi Sæberg Morgunblaðið/Rúnar Þór þau treysti sér í stærri fjárfesting- ar, eins og til dæmis byggingu álvers Atlantsáls á Keilisnesi. Töluverð umframorka er í land- inu og segir Jóhannes að ekki þurfi að ráðast í nýjar virkjanir vegna stækkunar álversins. Hins vegar verði að hefja undirbúning virkjun- ar um leið og slíkt yrði ákveðið til að anna aukinni eftirspurn lands- manna eftir raforku og til að selja til annarra iðjuvera, til dæmis vegna stækkunar Grandartanga- verksmiðjunnar eða byggingar sinkverksmiðju. Segir hann að margir hæfilega stórir og hag- kvæmir virkjunarkostir séu fyrir hendi til þess. ■ Réttí tíminn til/28-29 Verkfall í Verslun- arskóla Islands Atök um ráðning- arréttindi EKKI tókust samningar milli Yerslunarskóla íslands og HÍK í gær þrátt fyrir langa fundar- setu. Ágreiningur er um ráðn- ingarréttindi kennara við skól- ann. HÍK vill að réttindamál kennara skólans verði skýrð. Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskólans, segir ekki koma til greina að kennarar skólans verði æviráðnir. „Skólanefnd Verslunarskól- ans er tilbúin til að skrifa undir að kjör kennara skólans verði þau sömu og samið var um við ríkið. Það liggur hins vegar ljóst fyrir að ef verið er að reyna að fá samþykktar einhveijar breyt- ingar á stjómskipan skólans, ráðningu kennara eða einhveij- um réttindum sem varða lög og reglur í landinu, þá hef ég ekk- ert umboð til að semja um það og skólanefnd Verslunarskólans ekki heldur," sagði Þorvarður. . Réttindamál óskýr Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, sagði að réttindamál kenn- ara við Verslunarskólann væru um margt óljós. Til margra ára hefðu kennarar skólans verið ráðnir með tilvísun til kjara rík- isstarfsmanna. Á þeim tíma hefði það verið skilningur allra að réttindi þeirra væru í öllum atriðum þau sömu og ríkis- starfsmanna. Kennarar sem ráðnir hefðu verið að skólanum í seinni tíð hefðu ekki verið ráðnir með tilvísun í kjör ríkis- starfsmanna. Elna sagði að HÍK vildi að Verslunarskólinn við- urkenndi að kennarar, sem ráðnir voru að skólanum áður en ráðningarkjörunum var breytt, væru æviráðnir. Hún sagði að HÍK vildi einnig að óvissu um nokkur fleiri atriði varðandi réttindamál kennara Verslunarskólans yrði eytt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.