Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 37
3io r MORGUNBLAÐIÐ Böm Bergrúnar, Ragnheiður og Sváfnir, fengu sömu ástúðina og umhyggjuna enda bera þau það með sér, ljós lífs hennar, móðurkærleik hennar sem þau geyma með sér því af kærleik sprettur alltaf kærleikur. Bergrún var góður vinur - dul um eigin hagi - en síðustu ár tengd- umst við aftur sterkum vináttu- böndum og þá kynntist ég örlítið breyttri Beggu, dýpri, lífsreyndari - hún var þroskuð kona - en sama persónan, umhyggjusama og sterka sem brotnaði aldrei. Þegar við Begga hittumst fyrir alvöm á nýjan leik eftir alltof mörg ár einsettum við okkur að tala um kærleikann, um trúna og ekki síst um vonina. Við töluðum um kærleikann, börnin okkar í sömu andrá, ráðfærðum okkur hvor við aðra eða réttara sagt ég naut góðs af því hversu vel hún náði til bama. Við töluðum um trúna, bjartsýnina og hugrekkið. Við töluðum um vonina, hið sterka afl, sjálft lífið - furðuleg örlög - lásum ævisögur, leituðum uppi lífs- viðhorf sem gátu stækkað okkur sem manneskjur. Við töluðum ekki um dauðann því lífið var hér og nú, því einbeittum við okkur að því, að sjálfsögðu í anda Johns Lennons - um annað var ekki að ræða. En hún trúði á líf eftir dauðann og ég veit að nú er hún í ljósinu með englunum þar sem engin þjáning er til, aðeins það sem hún trúði mest á, kærleikurinn. Elísabet Guðbjörnsdóttir. Lífið er fljótt, líkt er það elding, sem glampar um nótt, ljósi, sem tindrar á tárum, titrar á bárum. (Matthias Jochumsson.) Örlagadísirnar eru iðnar við að spinna okkur mannanna börnunum sinn vef, ólíkan að lit og lögun — hver og einn fær sitt mynstur án tillits til eigin óska eða vilja og við verðum að sætta okkur við það. En það er ekki auðvelt þegar fólk í blóma lífsins fær kallið svo fljótt, þar sem ætla mátti að langt líf væri fyrir höndum. Örlagaþráður Bergrúnar varð ekki lengri en 38 ár, sem er svo alltof skammur tími, svo margt ógert. Að Bergrúnu standa sterkir stofnar og samheldin fjölskylda sem stóð eins og klettur við hlið hennar í gegnum öll hennar veikindi til margra ára, sjálf mætti Bergrún örlögum sínum af ótrúlegri hetju- lund og æðruleysi, nokkrar orrustur unnust en að lokum varð hún að lúta í lægra haldi fyrir ofureflinu. Bergrún ólst upp í glaðværum hópi fjögurra systra á heimili þar sem bækur og tónlist var í hávegum höfð, enda systurnar, sem allar báru nöfn er enduðu á „hín“, Guð- rún elst, Eyrún næst í röðinni, síðan Bergrún og yngst Arnrún, með af- brigðum söngelskar. Á hátíðum og tyllidögum var slegið upp eftir- minnilegum veislum hjá foreldrun- um, Jöru og Tona, og þá ekkert til sparað, borð hlaðin veitingum og farið í leiki. Þar giltu ákveðnar regl- ur, enginn veislugesta komst undan því að vera þátttakandi. Þetta upp- eldi og það umhverfi sem hún ólst upp í gerði Bergrúnu ákaflega fé- lagslynda og lífsglaða. Það er oft sagt, að þeir sem guðimir elski deyi ungir og að þeir safni til sín ungu hæfileikafólki. Sé það rétt verður Bergrúnu öragglega fagnað í híbýlum guðanna. Örlögin veita oft þung högg á lífsleiðinni og hafa böm Bergrúnar, Ragnheiður og Sváfnir, fengið að reyna það þrátt fyrir ungan aldur. Lát huggast, þú ástvinur hryggur! Nú hætti þinn grátur að streyma! Þvi dauðinn er leið sú er liggur til lífsins og ódáinsheima. (Prudentíus) Kæru Jara, Toni, Guðrún, Eyrún, Am- rún, Ragnheiður og Sváfnir. Fyrir hðnd fjöl- skyldna okkar sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Fjóla Karlsdóttir og Brynhildur G. Björnsson. Elsku Bergrún. Okkur langar til þess að kveðja þig með nokkrum orðum. Loksins er þinni þrautagöngu lokið og þú búin að fá hvfld. Þú barðist hetju- lega til enda, en hafðir ekki betur. í gegnum huga okkar systra þinna þjóta minningabrot frá þeim tíma er við vorum litlar stelpur í Efsta- sundi. Manstu eftir því þegar þú varst á fiðrildaveiðunum? Eða þegar þú vaktir bæði Eyrúnu og Arnrúnu á hveijum sunnudags- morgni, Arnrúnu til þess að fara með í sunnudagaskólann og Eyrúnu til þess að fylgja ykkur yfir Lang- holtsveginn. Það er sterkt í minningunni, hvað þú ætlaðir að verða þegar þú yrðir stór: „Bara venjuleg kona með stór bijóst og kenria litlu svörtu börnun- um í Kongó að þekkja guð.“ Það verður kannski þitt næsta hlutverk. Það hefur verið gott að hafa þig í „Rúnu“-hópnum okkar, og ekki verður hægt að fylla í það skarð. Margt hefur gengið á okkar í milli og þá sérstaklega eftir að þú hófst þína erfíðu baráttu. Þú varst hetja í gegnum þetta allt og átt aðdáun okkar allra. Börnin þín sýna og hafa sýnt að þau era sömu hetjum- ar og mamma þeirra, og þau halda sterk áfram á lífsins vegi. Þig kveðj- um við öll með hlýjum huga. Guð DAGMAR BECK + Dagmar Beck fæddist í Litlu- Breiðuvík við Reyðarfjörð 15. nóvember 1908. Hún lést á Elli- og lyúkrunarheimil- inu Grund þann 26. mars sl. Foreldrar hennar voru hjónin Níels Beck bóndi í Litlu-Breiðuvík og Hólmfríður Þor- valdsdóttir. Systk- ini Dagmarar voru Soffía Beck, Þor- gerður Beck, Níels Beck og Lorenz Beck. Dagmar fluttist til Reykja- víkur á tvítugsaldri, vann við saumaskap í mörg ár, en var matráðskona hjá Slippfélagi Reykjavíkur frá 1967-1980. Þann 11. október 1947 giftist Dagmar Bjarna Svavars, starfsmanni hjá Rafmagn- sveitu Reykjavíkur. Dóttir þeirra er Jóna B. Svavars fé- lagsráðgjafi, gift Sten Frands- en verkfræðingi og eru þau búsett í Danmörku. Dóttir þeirra er Eva Svavars Frands- en, fædd 1982. Útför Dagmarar fer fram frá Foss- vogskapellu, fimmtudaginn 30. mars og hefst at- höfnin kl. 15. YNDISLEG gömul vinkona, Dagmar Beck, hefur nú kvatt þennan heim. Hún hafði dvalið á elliheim- ilinu Grand undanfar- in ár, þar sem við vin- konurnar reyndum eftir beztu getu að líta til hennar þegar tími gafst til. Einkadóttir Dagmarar, Jóna, fluttist til Danmerkur eftir stúd- entspróf, þar sem hún síðar stofn- aði fjölskyldu og hefur verið búsett þar síðan og starfað sem félagsráð- gjafí. Eiginmaður hennar, Sten Frandsen, er verkfræðingur og eiga þau eina dóttur, Evu, sem var sólar- geisli ömmu sinnar. Enginn vafí er á að dagamir hafa oft verið langir og einmanaleg- ir og saknaði hún sárt ástvinanna erlendis. Þess vegna fannst okkur ástæða til að heimsækja hana sem ao FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 37 MINNINGAR geymi þig vel, og gefi þér tíma til þess að hvfla þig eftir allt þetta. Guðrún, Eyrún, Arnrún og makar. Þau vora grimm örlögin sem henni Bergrúnu voru búin. Það er þyngra en táram taki að hún skyldi ekki fá að lifa lengur og njóta samvista við börnin sín. Bergrún var viðkvæm og tilfínn- ingarík með stórt hjarta. Það gat því vart hjá því farið að hún hlyti nokkur sárin á lífsleiðinni. Hetjuleg barátta hennar sl. 5 ár sýndi okkur nýja hlið á henni. Þá kom glöggt í ljós hinn mikli styrkur sem hún bjó yfír. Hún hreinlega neitaði að gef- ast upp fyrr en í fulla hnefana. Það má vera að hún hafi tapað þessari síðustu orrastu, en í huga okkar er hún sigurvegari. Það er myndin sem við geymum af þessari góðu, glæsilegu stúlku. Yið þökkum liðnar, ljúfar stund- ir. Guð styrki börnin hennar, for- eldra, systur og aðra sem elskuðu Bergrúnu. Blessuð sé minning hennar. Kolbrún, Erla og Hildur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Foersom - Sb. 1871 - S. Egilsson.) Elsku Bergrún. Okkur systkinabörn þín langar að kveðja þig með nokkrum orðum: Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit-og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. Ég lifi í Jesú nafni, í Jesú nafni ég dey, þó heilsa og líf mér hafni, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristi krafti ég segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. HVíl þú í friði og Guð geymi þig. Jarþrúður, Jón, Anton, Þórður, Svanlaug, Rúnar og Arnar. • Fleirí minningargreinar um Bergrúnu Antonsdóttur bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. oftast. Skemmtilegast fannst henni að tala um Evu, ömmubamið sitt, en þá kom alltaf sérstakur glampi í augun og andlitið varð að einu brosi. Heimsóknir mínar til Dagmarar voru orðnar fastur punktur í tilver- unni og á ég eftir að sakna þeirra því að þær voru mér ekki síður til ánægju en henni. Mér finnst ég eiga Dagmar svo mikið að þakka fyrir það hvað hún reyndist mér vel þegar ég þurfti á að halda. Á menntaskólaárum mín- um eftir að mamma dó hélt ég mikið til á heimili Jónu og naut þar gestrisni og velvilja fjölskyldunnar. Við vinkonurnar lásum saman fyrir stúdentspróf við beztu hugsanlegar aðstæður. Dagmar bókstaflega dekraði við okkur. Þó að hún kæmi þreytt heim eftir langan og strangan vinnudag sá hún alltaf um að elda eitthvað gott handa okkur svo að við gætum einbeitt okkur að náminu. íbúðin var lítil og notaleg en þar var gott að gera. Snyrtilegri hús- móður var vart hægt að hugsa sér og hver stund notuð til að nostra við heimilið. Að lokum vil ég votta Jónu, Sten og Evu samúð mína og bið góðan guð að blessa minningu Dagmarar. Hildur Björg. + Bróðir minn, EINAR PÁLSSON, bóndi, Steindórsstöðum, er lést í Landspítalanum þriðjudaginn 21. mars. sl., verður jarð- sunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 1. apríl kl. 14.00. Bílferð verður frá BSÍ kl. 11.00. Fyrir hönd annarra vandamanna, Ingibjörg Pálsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR HELGADÓTTIR frá Kaldbak, Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 1. apríl kl. 14.00. Inga Guðjónsdóttir, Gunnar Olsen, Alda Guðjónsdóttir, Jón Gunnar Gíslason, Guðmundur Guðjónsson, Guðbjörg Viglundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LÁRA SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Dalbraut 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudag- inn 31. mars kl. 15.00. Guðmundur A. Ingvarsson, synir, tengdadætur og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR GUÐMUNDSSON frá Málmey, Hrauntúni 11, Vestmannaeyjum, sem lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 21. mars, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugar- daginn 1. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Guðfinna Bjarnadóttir, Gísli Einarsson, Ellý Gísladóttir, Kristbjörg Einarsdóttir, Tryggvi Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Efri Þverá, verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju laugardaginn 1. apríl kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti sjúkrahúsið á Hvammstanga njóta þess. Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðlaug Sigurðardóttir, Hjálmar Pálmason, Kristján Sigurðsson, Maggý Stella Sigurðardóttir, Birgir Pálsson, Halldór Sigurðsson, Margrét Guðmundsdóttir, Jónína Sigurðardóttir, Sigurður Björnsson, Sverrir Sigurðsson, Sigrún Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, ÞORGERÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Túngötu 16, Húsavik. Hildigunnur Halldórsdóttir, Páll Þórhallsson, Þórður Adamsson, Þuríður Hallgrímsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.