Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30.MARZ1995 21 ERLENT Olga og pólitískt morð á Haítí Andstæðingur Aristide Port-au-Prince. Reuter. MIKIL spenna er á Haítí og fyrrver- andi embættismaður herforingja- stjómarinnar, sem steypti Jean- Bertrand Aristide forseta í blóðugri uppreisn árið 1991, var skotinn til bana með vélbyssu á götu á þriðju- dag. Mireille Durocher Bertin, sem var 34 ára og harður stuðningsmaður Raouls Cedras, leiðtoga herfor- ingjastjórnarinnar fyrrverandi, var skotin til bana í bifreið sinni ásamt bílstjóra sínum og viðskiptavini. „Þetta var augljóslega pólitískt morð,“ sagði talsmaður bandaríska sendiráðsins í Port-au-Prince. Sjónarvottar sögðu að tilræðis- mennimir hefðu komist undan með leigubíl. Durocher Bertin var oft talsmað- ur herforingjastjórnarinnar og um tíma skrifstofustjóri Emile Jonas- drepinn saints, forseta herforingjastjórnar- innar. Hún varð að persónugervingi andstöðu múlattayfírstéttarinnar gegn Aristide forseta, sem komst til valda með stuðningi fátækra og ómenntaðra Haítíbúa. Clinton til Haíti Morðið var framið aðeins þrem dögum áður en 6.900 friðargæslu- liðar á vegum Sameinuðu þjóðanna taka við hlutverki flölþjóðahersins, sem kom Aristide aftur til valda í friðsamlegri hemaðaríhlutun í sept- ember. Bill Clinton Bandaríkjafor- seti og Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, heimsækja Haítí á föstudag í tilefni þessara tímamóta. 'Bandaríkjastjórn fordæmdi morðið og sagði að það mætti ekki hindra umbætur á Haítí. Tugþúsundir flýja Tsjetsjníju Rússar hafa umkringt bækistöðvar upp- reisnarmanna í Gudermes og Shali Moskvu, Genf, London. Reuter. TALIÐ er að minnst 30.000 manns, sem em á flótta undan rússneskum hersveitum er sækja að borgunum Gudermes og Shali í Tsjetsjníju, muni á næstu dögum fara yfír landamærin inn í grannhéraðið Dagestan, að sögn talsmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. /nter/ax-fréttastofan sagði í gær að Rússar hefðu um- kringt borginar tvær en þær hafa verið öflugar bækistöðvar uppreisn- armanna eftir fall höfuðborgarinnar Grosní. Talsmaðurinn sagði að nú þegar væru 87.000 flóttamenn í Dagestan og birgðir af hjálpargögnum af mjög skomum skammti. Ætlunin væri að reyna að koma upp tjald- búðum til að hýsa fleira fólk en menn óttuðust að upp gæti komið kólera á svæðinu. Æðsti yfírmaður heija Rússa í Tsjetsjníju, Anatolí Kúlíkov, segir útilokað að hefja á ný viðræður um frið við Dzhokar Dúdajev, leiðtoga Tsjetsjena, nema uppreisnarmenn afvopnist. Hann sagði uppreisnar- liðið nú hafa misst megnið af þungavopnum sínum. Talsmaður rússneska hersins sagði í sl. viku að alls hefðu 1.367 rússneskir hermenn fallið í Tsjetsjníju, sex munu hafa fallið við Gudermes á þriðjudag. Rússneskir mannréttindasinnar fullyrða að 24.000 óbreyttir borgarar hafí fallið í bardögunum um Grosní. Ósviknir steinar ekki skjá- vænir BRESKI skáldsagnahöfund- urinn Barbara Cartland, sem nú er 93 ára gömul, lýsti því yfir í gær að hún hygðist selja skartgripasafn sitt en það er metið á rúmar 8 milljónir króna. Framvegis ætlar hún að láta nægja eftirlíkingar. „Ég er alltaf í sjónvarpinu, á hveijum degi, og þess vegna er miklu betra fyrir mig að vera með [eftirlíkingarnar], ég þarf ekki að vera með áhyggjur af þeim og auk þess koma þær betur út á skján- um“, sagði skáldkonan í gær, skrýddbleiku eins og veiyu- lega. „Ósviknir gimsteinar koma ekki vel út á skjánum." Cartland er nú að vinna að bók númer 617 og er fastlega gert ráð fyrir að hún verði hefðbundin ástarsaga þar sem brúðirnar eru ávallt hreinar meyjar og brúð- gumar þeirra alltaf forrík glæsimenni. Reuter BANDARÍSKIR hermenn kanna bíl, þar sem fyrrverandi embættismaður herforingjastjórnarinnar á Haítí var myrtur ásamt bílstjóra og viðskiptavini í skotárás á þriðjudag. □ /FOnixQ FONIX 60 ARA 9 9 AFMÆLISTILBOÐ TIL PASKA 3 ÓO 9 ck m Drjúgur afsláttur, allt að 20% á stórum- og 40% á smærri tækjum. 0/7=onixH m ASKO ÞVOTTAVELAR, TAUÞURRKARAR OG UPPÞVOTTAVÉLAR TAUÞURRKARAR ASKO er sænsk hágæðavara, sem hvarvetna hlýtur góða dóma í neytendaprófunum. Nú er ASKO á frábæru verði, t.d. ASKO 10504 þvottavél með 1000 sn. vindingu á kr. 66.490,- stgr. Nýjar gerðir uppþvottavéla eru væntanlegar strax eftir páska. Við tökum við pöntunum núna. Hollensku FRESCO tauþurrkarana höfum við selt í 30 ár. Nú bjóðum við 5 kg. FRESCO þurrkara á aðeins kr. 31.990,- og 3ja kg. á kr. 23.790,-. KÆLISKAPAR, FRYSTISKAPAR OG FRYSTIKISTUR Dönsku GRAM kæliskáparnir eru glæsilegir, sterkir og sparneytnir. Þú getur valið um 20 gerðir kæliskápa, með eða án frystis. Að auki 8 gerðir frystiskápa á 4 stærðir af frystikistum. Verðdæmi: KF-263 kæliskápur m/200 Itr. kæli og 55 Itr. frysti á kr. 53.990,- KF-355 kæliskápur m 275 Itr. kæli og 62 Itr. frysti á kr. 69.990,- KS-300 274 Itr. kæliskápur án frystis á aðeins kr. 52.990,- stgr. ára óbyrgft OMENGUÐ GÆÐI NILFISK NY,U NILFISK GM-GERÐIRNAR mkrioiv ^ frábæru afmælisverðii 3 litir og 3 útfærslur: Sameiginlegt er 1200W mótor, inndregin snúra og sogstykkjageymsla. GM200 og GM210 hafa rykmæli og stillanlega rörlengd. GM210 að auki 2ja hraða mótor, TURBO-teppasogstykki með snúningsbursta og nýjan síunarbúnað, svonefnda FIEPA-sfu, sem er svo fullkomin, að hún heldur eftir 99,95% rykagna. Ný NILFISK á frábæru kynningarverði, frá kr. 18.990,- ELDAVÉLAR,INN8YGGINAROFNAR OG HELLUBORÐ (RAF OG GAS) Frábær tæki á enn betra verði. Margar gerðir og litir af ofnum, með eða án blásturs, á verði frá kr. 19.990,-. Helluborð með 2 eða 4 hellum, keramikhelluborð í miklu úrvali, einnig gashelluborð. Frístæðar eldavélar, 60 cm. eða 50 cm. breiðar, frá kr. 37.900,-. FALLEGAR - VANDAÐAR Einnig fjölmargar gerðir borðofna og örbylgjuofna á frábæru verði. TURBO ELDHÚSVIFTUR 15 gerðir og litir. Venjulegar, hálfinnbyggðar, með útdregnum gler- hjálmi, hálf-háfformaðar eða til innbyggingar í háf. Verð frá aðeins kr. 6.280,- LITLU TÆKIN A LAGA VERÐINU Cea-inig) iddins euRm Ávaxtapressur, borðeldavélar, borðofnar, borðviftur, brauðristar, brauð- og áleggshnífar, djúpsteikingarpottar, dósahnífar, eggjasjóðar- ar, handsugur, hárblásarar, hitamælar, hrærivélar, hraðsuðukönnur, kaffivélar, matvinnsluvélar, rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og vatnssug- ur, safapressur, straujárn, örbylgjuofnar - og margt fleira. Já, við erum í afmælisskapi um þessar mundir. Staðgreiðslu- og magnafsláttur. Sextugir Og SÍungir.... EURO- og VISA-raðgreiðslur til allt að 36 mánaða án útborgunar. Frí heimsending - og við fjarlægjum gamla ísskápinn, þvottavélina eða önnur tæki þér að kostnaðarlausu - um leið og við komum með nýja tækið - glæsilegt, notadrjúgt og sparneytið - og nú á afmælisverði. /rQniX HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.